Morgunblaðið - 05.05.1988, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
33
Morgunblaðið/Bjami
Gunnar J. Friðriksson, formaður VSÍ (t.h.), tekur í hönd Guðmundar Vignis Jósefssonar, aðstoðarsáttasenýara, eftir undirritun samninganna
í gær. Á bak við þá stendur Björn Þórhallson, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna.
Nýir samningar við verslunarmenn:
Hækkun á launauppbót
og stytting gildistíma
kaupkröfum starfsfólks síns í upp-
hafi þessa árs. Það var í upphafí
alveg ljóst að þær kjarabætur
fengju ekki staðist nema hvort
tveggja kæmi til: í fyrsta lagi að
verðlag á afurðum okkar erlendis
lækkaði ekki, og í öðru lagi að
stjómvöldum þessa lands tækist
með sameiginlegu átaki allra að
drepa verðbólguna hér innanlands.
Hvorugt hefur gengið eftir.
Verðlag sjávarafurða hefur nú
fallið verulega og ekki séð fyrir
endann á því. Borin von er að stjóm-
völdum takist að þessu sinni að
kveða niður verðbólguna. Það er
við þessar aðstæður sem hags-
munaaðilar í sjávarútvegi hafa full-
yrt að þýðingarlaust sé að halda
við núgildandi stefnu í gengismál-
um. Slíkt mundi á örstuttum tíma
leiða til hruns, ekki eingöngu í sjáv-
arútvegi heldur mest alls efnahags-
lífsins með skelfílegum afleiðingum,
ekki síst fyrir launþega þessa lands.
Það er ekki af ábyrgðarleysi
hagsmunaaðila í sjávarútvegi að
þeir kveða upp úr um þessa hluti,
heldur þvert á móti lífsnauðsynlegt
til að forðast stórslys. Það er eflaust
mjög sárt fyrir marga að þurfa að
viðurkenna að fastgengisstefnan
hafí mistekist. Það er jafnframt
afar brýnt að menn geri sér grein
fyrir því að hún mistókst eingöngu
vegna þess að ekki tókst að hemja
verðlag hér innanlands.
Við hveija er að sakast?
Á síðastliðnu ári var gengi fast.
Þrátt fyrir það var verðbólga hér á
landi 23%. Hvemig stóð á þessu?
Hveijir vom það sem bragðust?
Hveijir voru það sem gengu á und-
an með góðu fordæmi og nýttu sér
ný viðhorf í rekstri? Vora það
stjómendur sveitarfélaganna? Vora
það stjómendur orkufyrirtækjanna?
Vora það þeir sem sljóma efna-
hagsmálum þessarar þjóðar? Eða
kannski æðstu yfírmenn peninga-
málanna — var það kannski Seðla-
bankinn? Sýndi sú stofnun ráðdeild
og spamað í rekstri, fyrirhyggju
og nægjusemi í flárfestingum?
Það mundi ekki skaða þann
ágæta mann sem skrifaði síðasta
Reykjavíkurbréf að glöggva sig
nokkuð á þeim tölum og öðram
slíkum. Það væri líka mun nytsam-
ara heldur en sýknt og heilagt að
vera að agnúast út í þann atvinnu-
veg sem fært hefur íslenskri þjóð
hvað best lífskjör sem þekkjast í
heiminum.
Höíundur er framkvæmdastjári
Hj&lms hf. á Fl&teyri við Önundar-
fjörð.
i í bið-
tofnun
að auglýsa eftir handhöfum láns-
loforða til þess að taka þátt í bygg-
ingaframkvæmdum, en fáir hefðu
sýnt sig þegar það var gert.
Á árunum 1955—1976 fóru
42,98% nýbyggingalána til
Reykjavíkur. Á sama tíma fengu
aðrir landshlutar sem hér segir:
Vesturland 4,74%, Vestfírðir
2,88%, Norðurland V. 2,27%,
NorðurlandE. 10,14%, Austurland
4,66%, Suðurland 7,89% og
Reykjanes 24,44%.
Hlutfall Reykjavíkur var lægra
á árunum 1975—1983, fór lægst
í 21,3% árið 1980. 1984 er hlut-
fall lána sem fara til höfuðborgar-
innar 43,4%, 1985 er það 49,3%
og 1986 er það 58,7%. Mestur
hefur samdrátturinn orðið á Norð-
urlandi eystra, þar var hlutfallið
19,1% árið 1980 en var árið 1986
komið niður í 2,4%. Þessar tölur
eru úr ársskýrslum Húsnæðis-
stofnunar, þær nýjustu frá 1986.
SKRIFAÐ var undir nýja kjara-
samninga á milli vinnuveitenda
og 13 félaga verslunarmanna i
húsi ríkissáttasemjara laust eftir
hádegi í gær eftír rúmlega 20
stunda fund. Samningurinn er f
flestum atriðum svipaður miðl-
unartillögu ríkissáttasenyara, en
þijár meginbreytingar hafa þó
verið gerðar frá henni, sem fel-
ast í hærri greiðslum og styttri
gildistíma.
í fyrsta lagi er gert ráð fyrir 1200
króna launauppbót á mánuði til alls
afgreiðslu- og skrifstofufólks sem
ekki fær bónus eða vaktaálag, en
í miðlunartillögunni var gert ráð
fyrir 750 króna uppbót og aðeins
til afgreiðslufólks. I öðra lagi er í
samningnum 5000 króna ein-
greiðsla í júni sem ekki var í miðlun-
artillögunni. í þriðja lagi styttist
gildistími samningsins, hann er til
20. febrúar í stað 10. apríl, og um
leið fellur niður hið síðasta af þrem-
ur „rauðum strikum" með vísitölu-
viðmiðun. Þá er nýtt ákvæði um
fræðsiunefnd sem á að skipuleggja
námskeiðshöld hjá verslunarmönn-
um.
Þeir fulltrúar vinnveitenda og
verslunarmanna sem Morgunblaðið
ræddi við vora sammála um að
mjög góður andi hefði ríkt í þess-
arri fjórðu lotu viðræðnanna miðað
við það sem á undan hefði gengið
og að óformlegt „vopnahléssam-
komulag" samningsaðila á aðfarar-
nótt þriðjudags hefði greitt mjög
fyrir viðræðunum.
Leó Kolbeinsson, formaður
Verslunarmannafélags Borgamess
sagði að verslunarmenn hefðu náð
fram talsverðum breytingum frá
miðlunartillögunni og að tekist
hefði með honum að bæta kjör
hinna lagst launuðu. Hann sagði
að mjög mikil harka hefði verið í
deilunni, og hún hefði hugsanlega
aldrei verið meiri. Fara þyrfti aftur
til ársins 1963 til að fínna verkfall
verslunarmanna af svipaðri lengd
og nú hefði verið. Steini Þorvalds-
son, formaður Verslunarmannafé-
lags Ámessýslu, sagði að samning-
urinn væri áfangasigur og hann
væri viðunandi.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, sagði að hann hefði kosið
minni breytingar á samningum, en
eins og mál hefðu þróast hefði frið-
urinn verið keyptur réttu verði af
báðum aðilum. Þórarinn sagði það
ljóst að kjör verslunarmanna yrðu
„ÉG MERKTI það strax í upp-
hafi þessarrar lotu að það var
gífurlegur vilji hjá báðum aðilum
að leysa þessa deilu, eins og kom
fram í þvi „heiðursmannasam-
komulagi“ sem gert var um að
vera ekki með ýtrustu aðgerðir.
Ég held að menn hafi verið bún-
ir að gera það upp við sig að úr
því sem komið er var þetta eina
leiðin," sagði Guðlaugur Þor-
valdsson, rikissáttasenyari, en
það hefur mikið mætt á honum
í kjaradeilum undanfarinna
vikna og mánaða.
„Ég átti ekki von á því þegar ég
kom heim frá Akureyrarsamning-
unum að þetta byði min, en hinsveg-
ar sá ég það fljótlega eftir heim-
komuna að þetta myndi verða mjög
harðvítug deila. Vinnuveitendur
voru bundnir af sínum fyrri samn-
ingum og forystumenn verslunar-
manna höfðu tvífellda samninga að
baki.“ Aðspurður sagði Guðlaugur
að kjarasamningalotan í ár hefði
verið mjög erfíð, en hins vegar hefði
árið í fyrra verið mjög erfítt líka,
ekki síst vegna sjómannadeilunnar.
Guðlaugur var spurður að því
hvort of mikið væri lagt á embætti
ríkissáttasemjara með öllum hinum
fjölda deiliia sem hefur verið vísað
þangað í ár. „Það er ljóst að þetta
húsnæði er sprungið, og það er er-
fitt fyrir okkur tvö á skrifstofunni
að anna þessu. Ég hef notið dyggi-
legrar aðstoðar Guðmundar Vignis
Jósefssonar, aðstoðarsáttasemjara,
síst betri en annarra þegar tap
vegna verkfallsins væri tekið með.
Hann sagðist ekki hafa búist við
jafn harðri deilu við verslunarmenn
og raun varð á, en vinnuveitendur
hefðu staðið í mjög harðri samn-
ingalotu frá því í janúar. „Þessi
átök í vetur hljóta að vekja okkur
sem þjóð til umhugsunar um að
fara að skoða þær leikreglur sem
en með sama áframhaldi verð ég
að nota mér í ríkari mæli heimildir
að kveðja til aðstoðarsáttasemjara.
Það getur hins vegar oft verið er-
fítt í hatrömmum deilum að fá
menn sem era óvanir til að taka
GÚRKUBÆNDUR töpuðu rúm-
lega einni milljón kr. vegna verk-
falls verslunarmanna. Vegna
verkfallsins voru allar stærstu
verslanir lokaðar og erfitt að
koma vörum i aðrar vegna fá-
mennis þar.
Grænmeti var ekki boðið upp hjá
Sölufélagi garðyrkjubænda á meðan
á verkfallinu stóð en dreifingardeild
fyrirtækisins var opin. Mikið barst
FUNDI, sem vera áttí hjá rfkis-
sáttasemjara í gær í kjaradeilu
Verkalýðsfélags Vestmannaeyj a
og verkakvennafélagsins Snótar
við viðsenýendur sína, var frestað
þar sem ófært var úr Vestmanna-
eyjum.
Fundur verður haldinn strax og
fært verður milli lands og Eyja. Yfir-
hér era í gildi um samskipti aðila
vinnumarkaðarins. Við eram stöð-
ugt að semja um aukna verðbólgu,
allir þeir samningar sem við höfum
gert í vetur era verðbólgusamning-
ar, en við höfum reynt í vetur að
semja ekki um meiri launahækkan-
ir en það að þeir leiddu til 20%
verbólgu," sagði Þórarinn V. Þórar-
insson.
slíkt að sér.“
Sérðu fram á einhveija hvfld nú
eftir þessa lotu? „Ég er svo bjart-
sýnn að ég vona að ég fái sumarið
í Skorradal. Það er mitt tilhlökkun-
arefni.“
að af gúrkum í verkfallinu og vegna
lftillar sölu fóra yfír 10 tonn fyrir
lítið, ýmist í niðursuðu eða á haug-
ana, að sögn Kristjáns Benedikts-
sonar markaðsstjóra. Verðmæti þess
sem eyðilagðist er á aðra milljón kr.
og að sögn Kristjáns lendir megin-
hluti tjónsins á 10-12 gúrkubænd-
um. Verkfallið hafði einnig slæm
áhrif á sölu annarra grænmetisteg-
unda hjá Sölufélaginu.
vinnubann hefur verið í gildi frá 12.
apríl síðastliðnum hjá Verkalýðs-
félagi Vestmannaeyja.
Undirritaðir vora samningar milli
langferðabflstjórafélagsins Sleipnis
og viðsemjenda þeirra hjá ríkissátta-
semjara seinnipartinn í gær. Bera
átti samningana undir félagsfund í
Sleipni í gærkveldi.
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari:
Mikill samiiingsvilji í lokalotunm
Gúrkubændur töpuðu
milljón í verkfallinu
Fundi frestað í Ejjum