Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
37
FERÐAMÁL Á ÍSLANDI / Einar þ. Guðjohnsen
FEI®AFÉLÖGIN
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
smiw 1953:1 i i7aa
UTIVISTARFERDIR
OUTOOOR LIFE TOURS
1988
FEROAAÆTLUN
ICELAND TOURS
1988
GFSÓOW« l - BEVKMVlK
SÍML-SÍMfiVAnt I4«0b
Skömmu fyrir páskana átti
Sjónvarpið viðtal við ferðamála-
stjóra og var rætt um páskaferð-
imar framundan. Barst talið með-
al annars að innanlandsferðum
og virtist fátt eitt vera á dagskrá
í þeim eftium. Ekki var minnst á
ferðafélögin tvö, sem allan ársins
hring halda uppi fjölda ferða um
landið, og buðu einnig upp á fjölda
ferða, langar og stuttar, um pá-
skana.
Þegar forustumenn ferðamál-
anna vita ekki einu sinni um þessi
félög og starfsemi þeirra, eða
muna ekki eftir þeim þegar rætt
er um innanlandsferðir, er varla
von að almenningi detti þau í hug
þegar á að fara að ferðast. Því
vil ég hér vekja nokkra athygli á
starfí þessara tveggja félaga,
Ferðafélags íslands og Útivistar.
Ferðafélag íslands var stofnað
1927 og er því 60 ára gamalt.
Auk þess að hafa gefíð út frábær-
ar árbækur með lýsingum í máli
og myndum af nánast öllu íslandi
hefír það haldið uppi viðamikilli
ferðastarfsemi allt frá stonun.
Eðlilega hafa ferðir félagsins
breyst mikið frá byijun enda hafa
orðið stórstígar framfarir í ferða-
háttum síðan 1927.
Eitt hefír þó ekki breyst, en
það er góður undirbúningur ferð-
anna og traust og góð fararstjóm.
Þetta hefir frá upphafi verið
gmndvallarþáttur ferðanna, og á
60 ára starfsemi félagsins hafa
engin meiriháttar óhöpp skeð í
ferðum.
Félagið Útivist var stofnað
1975 og er því orðið 13 ára. Á
sama hátt og ferðafélagið hóf
Útivist útgáfu góðra ársrita og
að skipuleggja ferðir, langar og
stuttar, og einnig allan ársins
hring. Sama alúð var lögð í undir-
búning ferða og val á traustum
og reyndum fararstjórum. Engin
meiriháttar óhöpp hafa heldur
orðið í ferðum félagsins á 13 ára
ferli.
Ég, sem þetta rita, sat í stjóm
Ferðafélags íslands um 18 ára
skeið og var framkvæmdastjóri
félagsins í 12 ár. Þá var ég einn-
ig stoftiandi Útivistar og stjómaði
þvf féiagi fyrstu 7 árin. Það fer
því ekki á milli mála að ég er
mjög vel kunnugur starfí beggja
félaganna.
í þessari grein er ekki ætlunin
að fara nánar út í ágreining og
aðdraganda að stofnun Útivistar.
Mun ég í stómm dráttum segja
frá ferðastarfsemi beggja félag-
anna og ekki sundurgreina hvað
er hvors félags. í upphafí töldu
sumir að stofnun Útivistar væri
til höfuðs ferðafélaginu, en eins
og ég vissi fyrir varð samkeppnin
báðum félögum holl. Mörg ágrein-
ingsatriði hafa eyðst með ámnum.
Ferðimar skiptast í þijá flokka.
1. Einsdagsferðir.
2. Helgarferðir.
3. Sumarleyfísferðir.
Stuttu ferðimar em famar á
sunnudögum, sumum laugardög-
um og flestum öðmm frídögum
ársins. Yfírleitt er lagt af stað frá
Umferðarmiðstöðinnni kl. 13 og
stundum fyrr ef lengra á að fara.
Skrá yfir ferðimar er birt i ferðaá-
ætlun félaganna og auk þess aug-
lýstar f félagsdálkum dagblað-
anna. Ferðimar em öllum opnar,
seldar á hóflegu verði og frítt
fyrir böm í fylgd með fullorðnum.
Þessar stuttu ferðir em yfírleitt
við allra hæfi og sérlega þægileg-
ar fyrir fólk með böm. Sumir
halda að þeir, sem í slíkar ferðir
fara, þurfí að vera þjálfaðir í
göngum, en sú er ekki raunin.
Samt verður að viðurkenna að
ferðimar em misjafnlega léttar,
og því skal byijendum ráðlagt að
fara fyrst í mjög léttar ferðir
meðan þeir em að átta sig á út-
búnaði og gönguálagi.
Engan sérstakan útbúnað þarf
í þessar ferðir annan en góða skó
og hlýjan fatnað yst sem innst.
Þetta þýðir einfaldlega að konur
mæti t.d. ekki á háhæluðum skóm
og nælonsokkum. Slíkur fatnaður
hefir sést jafnvel í flallaferðum,
en heilbrigð skynsemi ætti að
forða flestum frá því klæðavali.
Ef menn átta sig á því að velja
réttan klæðnað hveiju sinni sjá
þeir, að veðrið skiptir ekki lengur
neinu máli. Aðalatriðið er að láta
veðrið ákveða klæðnaðinn. Þá sjá
menn að veður er aldrei vont held-
ur misjafnlega gott.
Nauðsynlegt er að hafa með
sér hæfilegt nesti til dagsins, eink-
um ef böm em með. Það er nota-
leg stund í hverri ferð þegar sest
er niður á skjólgóðum stað og
nestið snætt. Gott er að hafa lítinn
bakpoka eða axlartösku, þannig
að hendumar geti verið lausar.
Annar flokkurinn er helgar-
ferðir og er þá dvalið að heiman
í eina eða fleiri nætur. Stundum
er gist í skálum eða húsum, ann-
ars í tjöldum. í þessum ferðum
þarf að hafa meiri útbúnað svo
sem svefnpoka og meiri mat. í
tjaldferðum þarf einnig að hafa
einhverskonar dýnur að liggja á
og hitunartæki. Þessar ferðir eiga
að vera auðveldar fyrir alla en
það er eins hér og 1 stuttu ferðun-
um að menn læra smám saman
af rejmslunni.
í þriðja flokknum em lengstu
ferðimar. Þar þarf að hugsa svo-
lítið lengra fram í tímann og
áætla hvað þarf að hafa með.
Stundum er hægt að endumýja
birgðimar á leiðinni. Einnig í
þessu tilviki læra menn smám
saman af reynslunni.
Bæði í öðmm og þriðja flokkn-
um em svokallaðar gönguferðir,
en í þeim er gengið frá einum
stað til annars með allt hafurtask
á bakinu. Þessar ferðir geta verið
nokkuð erfíðar, einkum ef tjöld
þarf að bera með sér. Þá þarf að
hafa nokkuð sérhæfðan útbúnað.
Mikið úrval er nú af slíkum út-
búnaði í ferðavömverslunum.
í öllum ferðum er fararstjóri
sem gætir öiyggis hópsins og
fræðir um ýmsa þætti náttúmnn-
ar. Það er auðvitað svolltið mis-
jafnt hvaða áherslu hver farar-
stjóri leggur á fræðsluna, en allir
vita þeir margt og mikið og hafa
mikla reynslu að byggja á.
Of oft kemur það fyrir, að
menn kaupa dýr og góð tæki,
ijúka svo af stað með oftrú á
tækjunum og án þess að kunna
að ferðast með fullri virðingu fyr-
ir náttúmöflunum. Þá verða
stundum alvarleg slys. Einstakl-
ingshyggjan hleypur stundum
með menn í gönur.
Því mæli ég með því, að menn
ferðist fyrst með ferðafélögunum
og ferðist ömggt. Þá kynnast
menn landinu, læra að ferðast og
að bera fulla virðingu fyrir náttú-
mnni. Seinna geta menn byggt á
þeirri reynslu í eigin ferðum.
Við getum ekki lært að meta
okkar eigið land nema að þekkja
það. Við getum heldur ekki metið
rétt önnur lönd nema að þekkja
okkar eigið land. Við getum jafh-
vel ekki lært að meta okkar eigið
land til fulls nema að þekkja eitt-
hvað til annarra landa.
Það er góður skóli í ferða-
mennsku að ferðast með Ferðafé-
lagi íslands og Útivist.
Bók uin keltnesk
áhrif á íslandi
ÚT ER komin bókin Gaelic Influ-
ence in Iceland. Historical and
Literary Contacts. A Survey of
Research (þ.e. kettnesk áhrif á
íslandi. Söguleg og bókmennta-
leg tengsl. Yfirlit rannsókna.).
Höfundur bókarinnar, sem samin
er á ensku, er Gísli Sigurðsson
M. Phil.
Meginviðfangsefni bókarinnar,
sem skiptist ( nfu kafla, er að gefa
yfírlit yfír kenningar fræðimanna
um viðfangsefnið, en jafnframt
freistar höfundur þess að vega og
meta þessar kenningar.
Af efnisþáttum má nefna vitn-
eskju og kenningar um kynni
víkinga af fmm, Kelta á íslandi,
blóðflokkarannsóknir, keltnesk
áhrif og keltnesk minni í einstökum
bókmenntaverkum svo sem Fom-
aldarsögum, Eddukvæðum,
Snorra-Eddu, íslendingasögum og
kenningar um keltnesk áhrif í drótt-
kvæðum.
Þá fylgir mjög rækileg skrá yfir
bækur og ritgerðir fyrri frseði-
manna um.efnið.
Gaelic Influence in Iceland er
46. bindið í ritröðinni Studia Is-
landica sem gefín er út í samvinnu
Bókmenntafræðistoftiunar Háskóla
íslands og Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs. Bókin er 172 bls. að stærð
og prentuð í Prenthúsinu sf.
ea uppþvottavélin
hljóðlát - dugleg - örugg
r©s4ur
yö/#RÖNNING
•//f// heimilistæki
KRINGLUNNI - SÍMI (91)685868
TOBI
Alhliða
verslanainnréttingar
*
Alhliða verslanainnréttingar með
öllu tilheyrandi. Útlit og innrétting
verslunar er einn af megin þáttum í
góðri afkomu verslunar.
Láttu TOBI skapa nýtt umhverfi í
verslun þinni sem fellur að því sem
þú selur.
Veldu sjálfur innréttingu eða hluta
innréttingar. sem þú getur fengið á föstu
verði og ákveðnum afhendingartíma.
Láttu okkur finna innréttingu sem
hentar þér og því sem þú selur.
Hringið og biðjiö um bæklinga og
upplýsingar, eða viðtal, við erum ávallt
til þjónustu.
tobi49
AÐALUMBOÐ
Ö. JOHNSON & KAABER HF.
Sími 91-24000
pliðrgiwiE
Góðan daginn!