Morgunblaðið - 05.05.1988, Page 41

Morgunblaðið - 05.05.1988, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 41 Breytingartillögnr við virðisaukaskattsfrumvarpið: Undanþáguákvæði varð- andi menning-ar- o g lista- starfsemi verði víkkuð út FRUMVARP til laga um virðis- aukaskatt kom til annarrar og þriðju umræðu í efri deild á fundi í gærkvöldi. Meirihlutinn lagði til að frumvarpið yrði samþykkt en að gerðar yrðu á því nokkrar breytingar, meðal annars að und- anþáguákvæði varðandi menn- ingar- og listastarfsemi verði víkkuð út, sala á timaritum verði undanþegin virðisaukaskatti og að staða fiskvinnslufyrirtækja gagnvart virðisaukaskatti verði sú sama hvort sem þau standa fyrir rekstri fiskiskips eða ekki. Minniidutinn lagði hins vegar til að málið yrði fellt. Halldór Blöndal, formaður flár- hags- og viðskiptanefndar efri deildar, mælti fyrir áliti meirihluta nefodarinnar, en í því segir að full- trúar sjávarútvegs, iðnaðar og verslunar hafi almennt mælt með því að virðisaukaskattur yrði tekinn upp í stað söluskatts, þó athuga- semdir og fyrirspumir kæmu fram um einstök atriði sem ýmist lutu að einstökum lagagreinum eða framkvæmd þeirra. Fulltrúar ASÍ lögðu áherslu á andstöðu sína við að einungis ein skattprósenta væri í frumvarpinu sem tæki til allrar vöru og þjónustu og lýstu þeirri skoðun að ekki ætti að taka upp virðisaukaskatt i stað söluskatts. Nefnd athugar álitamál Löggjöf um virðisaukaskatt er viðamikil og flókin og framkvæmd hennar þarf vel að vanda þegar í upphafi. Augljóst er að við undir- búning framkvæmdarinnar kemur fram ýmislegt sem gerir það nauð- synlegt að breyta lögunum í ein- stökum atriðum og hefur af þeim sökum verið ákveðið að skipuð verði sérstök nefad fulltrúa stjómar- flokkanna og embættismanna er fylgist með öllum undirbúningi og taki til umfjöllunar þau áhorfsmál sem upp kunna að koma. Jafoframt er nefodinni falið að taka til athug- unar einstök álitamál og hliðarráð- stafanir sem þeim tengjast og geta eftir atvikum gert það nauðsynlegt að til lagabreytingar þurfi að koma á hausti komanda. Nefodin fjallar um eftirfarandi atriði: 1. Mat á skattprósentu virðis- aukaskatts. 2. Reglur um endurgreiðslu virð- isaukaskatts af vinnu við nýbygg- ingar eða endurbætur og meiri hátt- ar viðhald af íbúðarhúsnæði og annað sem tengist byggingarstarf- semi. 3. Reglur um endurgreiðslu virð- isaukaskatts af orkugjöfum til hit- unar íbúðarhúsnæðis. 4. Reglur um skattskil af hráefoi til fiskvinnslu sem tryggir jafoa stöðu fiskvinnslufyrirtækja hvort sem þau gera út sín eigin skip eða ekki. Tryggt verði að endurgreiðsla á virðisaukaskatti þeim sem leggst á hráefai fiskvinnslufýrirtækja gangi það greiðlega fyrir sig að ekki valdi íþyngjandi rekstrarflár- vanda. 5. Reglur um það hvemig með virðisaukaskatt af menningar- og listastarfsemi skuli farið. 6. Reglur sem tryggja að jafo- ræði sé f samkeppni einkafyrirtælqa og opinberra aðila. 7. Reglur um það hversu skatt- skilum skuli háttað af útgáfu tfma- rita. 8. Reglur um skattskii í viðskipt- um bænda og afurðastöðva og ann- að sem varðar landbúnað séretak- lega. 9. Reglur um heimild til að veita gjaldfrest á innflutningi. 10. Reglur um það hvemig með virðisaukaskatt af fólksflutningum skuli farið. 11. Önnur atriði sem upp kunni að koma. Breytingartíllögur meirihlutans Meirihluti nefodarinnar flytur nokkar breytingartillögur við frum- varpið og em aðalatriði þeirra þessi: 1. Lagt er til að undanþágu- ákvæði 2. gr. varðandi menningar- og listastarfsemi verði víkkuð út, en jaftiframt er gert ráð fyrir því að starfsnefad fjármálaráðuneytis- ins athugi sérstaklega um það hvemig með virðisaukaskatt af slíkri starfsemi skuli farið og at- huga þarf hvemig þau ákvæði grípa inn í útgjöld samkvæmt fjárlögum til menningar og lista. 2. Eins og frumvarpið liggur fyr- ir er gert ráð fyrir að útleiga íbúðar- húsnæðis sé undanþegin virðis- aukaskatti. í breytingartillögunum er gert ráð fyrir að undanþágu- ákvæðið taki til allrar fasteigna- leigu, þar með til leigu hótel- og gistiherbergja eða samkomuhúsa. 3. Lagt er til að sala á tfmaritum verði undanþegin virðisaukaskatti. 4. Lagt er til að með afootagjöld útvarps8töðva skuli farið eins og söiu dagblaða og sambærilegra landsmála- og héraðsfréttabiaða. 5. Gerð er sú breyting á 41. gr. að sektarákvæði vegna vangoidins virðisaukaskatts skuli ekki vera forgangskrafa f þrotabúi. Styðst það við þau rök að hér er ekki um vörelufé að ræða eins og um virðis- aukaskattinn sjálfan. 6. Breytingamar sem lúta að því að staða fiskvinnslufyrirtækja gagnvart virðisaukaskattinum skuli vera sú sama, hvort sem þau standa fyrir rekstri fískiskipa sjálf eða ekki. Er það í samræmi við ábend- ingar frá útvegsmönnum og fulltrú- um fiskvinnslunnar. Séretaklega verður fjallað um útfærelur á þess- um reglum í starfsnefod flármála- ráðuneytis. 7. Þijár breytingartillögur sem lúta að því að lögin taki þegar gildi en skattheimta skv. þeim komi ekki til framkvæmda fyrri en 1. júlí 1989. Minnihlutmn vill fella frumvarpið Þeir Júlfus Sólnes (B/Rn) og Svavar Gestsson (Abl/Rvk) skrifa undir álit minnihluta nefadarinnar. Guðrún Agnarsdóttir sat einnig fundi nefadarinnar og er samþykk áliti minnihlutans. Þar segir að þó frumvarpið um virðisaukaskatt hafi verið tilbúið f haust hafi það ekki verið lagt fram fyrr en á sfðustu dögum þingsins og hefur því ekki fengið nægilega glögga meðferð að mati minnihlutans. Þvf væri tillaga þeirra sú að frumvarpið yrði fellt. Minnihlutinn myndi sfðan leggja fram breytingartillögur við frum- varpið við þriðju umræðu, yrði það samþykkt í þeirri annarri. Með lögfestingu virðisaukaskatts sé gert ráð fyrir að framiengja hinn illræmda matarskatt sem lagður var á af núverandi ríkisstjóm og hefði f för með sér 6000 milljóna króna skattheimtu af almenningi f landinu. Þá væri gert ráð fyrir sér- stakri og vfðtækri skattlagningu á menningaretarfsemi f þessu frum- varpi. Væri þar gengið lengra en í virðisaukaskatti nágrannalanda okkar. Minnihlutinn gagnrýnir einnig að áformað sé að leggja á virðisauka- skattinn með einni prósentu en í aðildarríkjum OECD væri oftar um fleiri en eina skattprósentu að ræða. Virðisaukaskatturinn yki einnig hvere konar skriffinnsku stórkost- lega og væri gert ráð fyrir að starfs- menn skattstofanna yrðu tvisvar sinnum fleiri en nú. Einriig hefðu gjaldþrot smáfyrirtækja í Dan- mörku verið tíð vegna þess að for- ráðamenn þeirra réðu ekki við þá skriffinnsku sem kerfið gerði ráð fyrir. Virðisaukaskattur myndi þar að auki hækka verð á fbúðarhúsnæði, fyrst á nýju húsnæði og síðan al- mennt. Mörg vandamál, sum þeirra pólitfsk, væra þar að auki óleyst og vísað til nefodar. Þinglausnirá þriðjudag Jón Kristjánsson, forseti Gunnareson, neðri deildar, sagði á Alþingi f gær að stefnt væri að þing- lausnum næstkomandi þriðj- dag, 10. maí, að öllu óbreyttu. Fundir vóra í báðum þingdeild- um í gær frá klukkan 2 til 4 mið- degis. Þingflokkafundir vóra frá 4 og 5.30 síðdegis. Þá hófust fundir á ný í þingdeildum. í efri deild var sfðan haldinn kvöld- fundur. Neðri deild samþykkti níu lög. í efri deild mælti Birgir ísleifur menntamálaráð- herra fyrir framvarpi um Lista- safa íslands. Egill Jónsson mælti fyrir nefodaráliti um eigið fram- varp um breytingu á lögum um framleiðslu og sölu á búvöram. Tillaga kom frá forsætisráðherra um að vísa málinu til ríkisstjórnar- innar og var hún samþykkt. Til stóð að afgreiða stjómarfrumvörp um virðisaukaskatt og umferð frá efri til neðri deildar í gærkvöldi. Búast má við þingfundum bseði á föstudag og laugardag. Rýmkun á reglum um erlend vörukaupalán er í athugun JÓN Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, hefur svarað fyrirspum Geirs H. Haarde (S/Rvk) um er- lend vörukaupalán. Geir spurði hvaða reglur giltu um erlend skammtfmalán til vörukaupa. Hvort breytingar væra fyrir- hugaðar á núgildandi reglum um þetta efni og hvort einhver at- hugun á þjóðhagslegri hag- kvæmni (eða óhagkvæmni) slfkra lána lægi að baki reglum um greiðslufrest í einstökum vöru- flokkum. í svari ráðherrans seg- ir að reglur um erlendar lántök- ur og nýtingu greiðslufrests hafi verið rýmkaðar verulega eftir þvi sem ástandið hafi farið batn- andi og nú værí f athugun hvort til greina kæmi að rýmka þær enn frekar. Viðskiptaráðherra segir í svari sínu að viðskiptaráðuneytið hafí gefið út auglýsingu um innflutning með greiðslufresti og aðrar erlendar lántökur 1. febrúar sl. Samkvæmt henni er aimenna reglan sú að greiðslufrestur er heimilaður í 90 daga. Þá era í öðra lagi nokkrar vörategundir sem heimilaðar era með sex mánaða greiðslufresti, svo sem hráefoi til iðnaðar, veiðarfæri, pappfr og fóðurbætir. Heimilaður er 105 daga greiðslufrestur á olíu- vöram. Rýmri reglur en hér hafa verið taldar er að fínna í auglýsingu nr. 49/1988 um erlendar lántökur og leigusamninga vegna innflutnings á vélum, tækjum og búnaði til at- vinnurekstrar. Á undanfömum áram hafa regl- urnar um erlendar lántökur og nýt- ingu greiðslufrests verið rýmkaðar veralega eftir því sem efaahags- ástandið hefur farið batnandi, segir í svarinu. Það sé hins vegar álita- mál hvereu langt sé ráðlegt að ganga f sambandi við afoám á þvf eftirliti sem nú er með erlendum lántökum. „í viðskiptaráðuneytinu er unnið að hugsanlegum breyting- um á þeim reglum sem nú gilda, m.a. þannig að reglumar mismuni ekki milli vöraflokka og atvinnu- greina eins og nú er. Einnig verður athugað hvort til greina komi áð rýmka og samræma þessar heimild- ir í áföngum eftir því sem aðstæður leyfa. Samráð verður haft við sam- tök verslunarinnar um málið á síðari stigum. Þá vinnur Seðlabankinn að athugun á peningalegum áhrifum vörakaupalána frá útlöndum." 38 nýir íslendingar Samkvæmt framvarpi um veit- ingu rfkisborgararéttar, sem var tíl umræðu f fyrri (efrí) þing- deild f gær, fá væntanlega 38 einstaklingar fslenzkan ríkis- borgararétt fyrir þinglausnir. Ef frumvarpið verður samþykkt, sem lfkur standa til, öðlast eftirtald- ir einstaklingar íslenzkan ríkis- borgararétt: Anna Hrönn Gunnars- dóttir, bam, fætt í Kenýa. Anna Svandfs Gunnaredóttir, verkakona, fædd á íslandi. Azevedo, Ágúst Eiríksson, nemi, fæddur í Portúgal. Bamanowski, Christine Margaret, verkakona, fædd í Bandaríkjunum. Bauer, Hermann Þór, þjónn, fædd- ur á íslandi. Catacutan, Merceditas Carmen, skrifstofustúlka, fædd á Filipsseyjum. Cejudo, Manuel Aij- ona, hamskeri, fæddur á Spáni. Cosser, Cynthia Anne, húsmóðir, fædd í Englandi. Cosser, Jeffrey Michael, blaðamaður, fæddur í Zimbabwe. Delavault, Gérard Rob- ert, tækniteiknari, fæddur f Frakk- landi. Dhour, Abdelilah, matreiðslu- maður, fasddur f Marokkó. Ducusin, Lagrimas Soriano, húsmóðir, fædd á Filippseyjum. Gunnel, Terence Adrian, kennari, fæddur f Eng- landi. Hendircks, Linda Margaret Perkel, flugfreyja, fædd f Banda- rfkjunum. Hemandez, Beatriz Ray, ritari, Filippseyjum. Van Hulst, Carolína, skrifstofumaður, fædd f Hollandi. De Jesus, David Paul, skrifstofumaður, fæddur á Filipps- eyjum. Jacobsen, Jóna Kristín, hús- móðir, fædd á íslandi. Kolbrún Andereon, bam, fædd á íslandi. Kuhn, Tomas Walter, sjúkraþjálfi, fæddur f Þýzkalandi. Kupas, Amanda Joan, nemi, fæddur f Kanada. Kupas, Monica Darlena, skrifstofumaður, fædd f Kanadan. Laufey Guðmundsdóttir, bam, fætt á Sri Lanka. MacFarlane, Mark Reymond, landslagsarkitekt, fædd- ur í Tyrklandi. Margrét Björgóifs- dóttir, nemi, fædd í Bandarfkjunum. Mazmanian, Viken Samuei, hljóð- upptökumaður, fæddur í IJbanon. Millard, Elfsabet Svana, ræstingar- maður, fædd á íslandi. Schnabl, Hilmar Tor, bankastarfsmaður, fæddur í Bandaríkjunum. Swift, Emma Marie, bam, fætt í Bret- landi. Swift, Martin Jónas Bjöm, bam, fætt í V-Þýzkalandi. Tofrolo, Danival, nemi, fæddur í Banda- rfkjunum. Toffolo, John, raftækni- fræðingur, fæddur á ítalfu. Toffolo, Sólveig, nemi, fædd í Bandaríkjun- um. Tomczyk, Tomasz, nemi, fædd- ur í Póllandi. Vandenriessche, Pet- er, kennari, fæddur í Þýzkalandi. Vavrickova, Stepanka, verziunar- maður, fædd f Tékkóslóvakfu. Vaz- quez, Antonfa Maria Galan, doktor f sjávarlfffræði, fæddur á Spáni. Þór Saari, sölumaður, fæddur f Bandaríkjunum. Guðrún Agnarsdóttir um bjórfrumvarpið: Onógar forvarnir og meðferð GUÐRÚN Agnarsdóttír, sem myndar minnihluta allsherjar- nefndar efrí deildar f bjórmálinu, leggur tíl að frumvarpið verði fellt. Guðrún telur að heildar- neysla áfengis muni aukast og að ekki sé nægilega vel staðið að forvöraum og meðferð barna, unglinga og fullorðinna fórnar- lamba áfengis- og vimuefna- neyslu. Skúli Alexandersson (Abl/Vl) sat fundi nefndarinnar og er samþykkur álití minnihlut- ans. í nefadarálitinu segir m.a. að tvfskinnungur og ósamræmi rfki nú f meðferð áfengs öls á íslandi þar sem sumir geta keypt og neytt þess en aðrir ekki. Hér séu einnig á boðstólum margar tegundir sterkra áfengra drykkja en ekki áfengt öl sem telst til léttra áfengra drykkja. Á þessu yiði best tekið með því að móta heildaretefou f áfengismálum. í frumvarpinu væri lagt tjí að bæta við nýréi tegund áfengis sem öll líkindi bentu til að auka myndu heildameyslu. Jafnframt væru þó engar ráðstafanir fyrirhugaðar til mótvægis sem dregið gætu úr auk- inni neyslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.