Morgunblaðið - 06.05.1988, Page 3

Morgunblaðið - 06.05.1988, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988 3 Skoðunargjald skípa fimmfaldað SKOÐUNARGJALD skipa og báta var allt að fimmfaldað um síðustu áramót. Gjaldið er nú 53.000 krónur fyrir 500-1600 brúttórúmlesta skip, en nam áður 9.000 krónum. Þá þurfa eigendur smábáta að greiða allt að 10.000 krónum fyrir skoðun þeirra. Tekjur af skoð- unargjaldinu renna í ríkissjóð, en hækkunin mun vera liður í þeirri viðleitni að rekstur rikis- stofnana standi undir sér. Að sögn Hjartar Magnússonar hjá Tollstjóraembættinu er skoð- unargjald báta miðað við lengd. Ef báturinn er styttri en 8 metrar nemur gjaldið nú 5.500 krónum en var 1.875 krónur áður. Hækk- unin nemur 193%. Fyrir átta til fímmtán metra langa báta er gjaldið 10.000 krónur, rúmum helmingi meira en áður. Skoðunargjald skipa er miðað við brúttólestir. Tveir flokkar eru í gildi eftir því hvort skipið er í „flokkunarfélagi", svo sem Lloyds eða Veritas, eða ekki. Munurinn er 60-70% að jafnaði, flokkunar- félögunum í vil. Af skipi, sem er á bilinu 500-1600 brúttólestir að stærð, er til dæmis greitt 88.000 krónur í skoðunargjald, sé það ekki skráð í flokkunarfélagi. Um áramót var vitagjald hækkað úr 46 krónum í 61 krónu á brúttólest. Ef dæmi er tekið um 3000 lesta skip nemur gjaldið 186.000 krónum. Við það bætist 57.000 krónu skoðunargjald. Þá er enn í gildi svo nefnt lest- argjald sem hefur ekki hækkað síðan árið 1960. Það nemur 9 aurum á lest eða 270 krónum fyrir fragtskip af þessari stærð. Heildartekjur ríkissjóðs af lestar- gjaldi alls íslenska flotans ná tæplega 20.000 krónum í ár, að sögn Hjartar. Frá uppboði á Fiskmarkaði Suðurnesja i gær. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Verðhrun á fiskmörkuðum vegna aukins framboðs „VEGNA manneklu virðist fisk- vinnslan ekki vera tilbúin að taka við þvi mikla framboði á fiski sem verið hefur undanfarið því fiskverðið á mörkuðunum hefur lækkað töluvert vegna aukins framboðs,“ sagði Einar Sveins- son, framkvæmdastjóri fisk- markaðarins i Hafnarfirði í sam- tali við Morgunblaðið. „Fiskvinnslan virðist heldur ekki Aprflmánuður mjög kaldur en sólríkur Aprílmánuður var mjög kaldur um allt land og sá fjórði kaldasti á öldinni á Akureyri, að sögn Öddu Báru Sigfúsdóttur, veður- fræðings. • í Reykjavík var meðalhitinn 0,6 gráður, sem er 2,7 gráðum undir meðaltali áranna 1951-’80, en á Akureyri var meðalhitinn -1,8 gráð- ur, sem er 3,5 gráðum undir meðal- lagi. Árið 1983 var apríl kaldari en nú, en að því ári slepptu þarf að fara aftur til 1953 til að finna ann- an eins kulda í þessum mánuði. Úrkoma var mjög lítil í Reykjavík, aðeins 22 millimetrar, sem er 40% af meðalúrkomu. Hins vegar kjmgdi niður snjó á Akureyri og mældist úrkoma þar 56 mm, sem er 85% umfram meðaltal. Sólin skein í 190 stundir fyrir höfuðborgarbúa, eða 50 stundum meira en í meðalapríl, og f höfuð- stað Norðurlands mældust sólskins- stundir 149, sem eru 30 stundir yfír meðallagi. Sólríkasti staður landsins var Hveravellir með 215 sólskinsstundir í apríl, sem er það mesta frá upphafi mælinga árið 1966. vera tilbúin að greiða eins hátt verð og áður fyrir fískinn á mörkuðunum vegna verðlækkana undanfarið, bæði á frystum físki og söltuðum," sagði Einar. Á fiskmarkaðinum í Hafnarfirði voru m.a. seld um 59 tonn af karfa sl. þriðjudag fyrir 7,52 króna meðalverð og um 8 tonn af þorski fyrir 35,80 króna meðal- verð. „Þetta verð fyrir karfann er mjög lágt en hann var hins vegar mjög smár og því var mikið af hon- um ekki vinnsluhæft. Aftur á móti er 36 króna meðalverð fyrir þorsk ágætt miðað við markaðsaðstæður en ég seldi hins vegar togaraþorsk fyrir 42 krónur kílóið fyrir hálfum mánuði," sagði Einar. Á Faxamarkaði voru m.a. seld um 48,5 tonn af þorski sl. miðviku- dag fyrir 26,97 króna meðalverð og um 17 tonn af þorski í gær fyr- ir 29,71 króna meðalverð. „Þorsk- urinn, sem við höfum verið að selja undanfarið, hefur verið frekar smár, eða um 1,8 kg., og á sama tíma hafa móttökur frystihúsanna verið troðfullar af fiski, þannig að menn hafa ekki verið að hlaupa eftir fískinum hjá okkur,“ sagði Bjami Thors, framkvæmdastjóri Faxamarkaðar hf., í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ef ekki verður dregið úr veiðum, á meðan ekki má flytja út físk í gámum, eins og t.d. 9. til 16. maí nk., hlýtur verðið á fiskmörkuðun- um hér að lækka vegna aukins framboðs. Kvótinn er hins vegar það dýrmætur að menn hljóta að draga úr veiðunum," sagði Bjami. Sjá Fiskverð á uppboðsmörk- uðum á blaðsíðu 34. Skák: Margeiri boðið á heims- bikarmót Stöðvar 2 MARGEIRI Péturssyni hefur verið boðið að taka þátt í' 3. heimsbikarskákmóti Stórmeist- arasambandsins sem Stöð 2 stendur fyrir hér á landi í októ- ber nk. Jóhann Hjartarson verð- ur einnig meðal þátttakenda en að auki keppa 17 af sterkustu skákmönnum heims á mótinu, þar á meðal heimsmeistarinn Garrí Kasparov. Alls em haldin 6 heimsbikarmót á þessu og næsta ári og er einu þeirra lokið. Tæplega 30 stórmeist- arar hafa rétt til þátttöku á mótun- um og verða þeir að taka þátt í að minnsta kosti fjórum þeirra. Sá sem bestum árangri nær úr þremur mótum af fjórum telst heimsbikar- hafi. Jóhann Hjartarson er eini íslend- ingurinn sem hefur rétt til þátttöku í aðalkeppninni en Margeir keppir sem gestur á mótinu í haust. Ökuhraði: 1.635 öku- menn kærðir á þessu ári Alls hafa 220 ökumenn verið sviptir ökuréttindum fyrir of hraðan akstur frá því í septemb- er siðastliðinn. Þar af hafa 174 verið sviptir á staðnum fyrir víta- verðan akstur, það er á hraða Evrópuráðið: Gervilinettir nýttir í þágu opins háskóla í Evrópu? Hugmynd Ragnhildar Helgadóttur á ráðgjafarþinginu í Strassborg ZUrich, frá Önnu Bjarnad&ttur, fréitaritara Morgunblaðains. RAGNHILDUR Helgadottir, alþingismaður, lagði til í ræðu, sem hún hélt á vorþingi Evrópuráðsins í Strassborg á miðvikudag, að Evrópu- ráðið kannaði möguleika á því að gervihnettir verði notaðir í fram- tíðinni til að koma á opnum háskóla í Evrópu. „Ég lagði til að ljós- vakafjölmiðlar yrðu nýttir til fjarkennslu innan Evrópu í fram- tiðinni," sagði Ragnhildur í samtali við Morgunblaðið. „Breskur þing- maður tók í sama streng og ég, en ég veit ekki hver skoðun meiri- hluta þingsins er. En ég tel að Evrópuráðið sé kjörinn vettvangur til að kanna möguleika á auknu samstarfi Evrópuþjóða á sviði fjar- kennslu." Ragnhildur er formaður íslensku sendinefndarinnar á þinginu. Hún var kjörin einn af varaforsetum þess í upphafi þings og mun gegna því embætti þegar Evrópuráðið heldur upp á 40 ára afmæli sitt næsta haust. Ragnhildur kvaddi sér hljóðs í umræðum um menningar- og menntamál. Hún lagði áherslu á mikilvægi Evrópuráðsins sem vett- vangs þar sem Evrópuþjóðir innan og utan Evrópubandalagsins koma saman og leggja á ráðin um framtíð þjóðanna. „Eg lagði meðal annars til að Evrópuráðið beitti sér fyrir auknu samstarfí háskóla þjóðanna og nefndi Norðurlöndin sem dæmi um þjóðir þar sem samstarf á sviði menningar- og menntamála hefur gengið vonum framar. Ég benti á að það mætti líta á Norðurlöndin sem eina menningarheild og koma mætti á svo kölluðu norður-suður samstarfí innan Evrópu á grund- velli þess.“ Ráðgjafaþingið hefur þegar fjall- að um flugsamgöngur og fjöl- skyldumál en mun fjalla um fjöl- miðla, utanríkismál og geimvísinda- stefnu áður en því lýkur á föstu- dag. Ragnhildur sagði að þing- heimur hefði verið hlynntur aukinni samkeppni í flugsamgöngum innan Evrópu. „Það kom mér skemmti- lega á óvart í skýrslu aðalritara Evrópuráðsins um fjölskyldumál hversu rík áhersla var lögð á mikil- vægi einstaklingsins, fjölskyldunn- ar og heimilisins," sagði Ragnhild- ur. „Þar kom fram að það ætti að taka tillit til reynslu við heimilis- störf og bamauppeldi í umfjöllun um einstaklinga og stuðla ætti að auknu jafnrétti kynjanna." Utanríkisráðherrafundur Evr- ópuráðsins var haldinn í gær. Þar var fjallað um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og rætt um samvinnu austurs og vesturs. Steingrímur Hermannsson sat fundinn fyrir ís- lands hönd. sem mældist frá 95 km hraða á klukkustund upp í 156 km hraða. Frá því um áramót hafa 1.635 ökumenn verið kærðir vegna ökuhraða og þar af voru 70 svipt- ir ökuleyfi. Fjöldi kærðra ökumanna vegna ökuhraða voru 566 í aprílmánuði síðastliðnum þar af voru 15 sviptir ökuleyfí. Á tímabilinu september 1987 til apríl 1988 voru flestar sviptingar í september 1987 eða samtals 74 sviptingar, í janúar sl. vom þær 24, í febrúar 8 og í mars sl. 23. í september 1987 vom 1.108 ökumenn kærðir vegna hraðaakst- urs, en sá fyöldi fór niður í 602 í október sl., og var 386 í mars en fór svo upp í 566 í apríl eins og áður segir. Stykkishólmur: Verslunarmenn samþykktu kjarasamning Stykkishólmi. VERSLUNARMENN í Verslun- armannafélagi Stykkishólms samþykktu nýgerða kjarasamn- inga með 14 greiddum atkvæðum á fundi í gær. Árni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.