Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 64
EINKAfíEIKNINGUR Þ/NN
í LANDSBANKANUM
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Neskaupstaður:
Bjarti snúið við úr
söluferð til Færejja
Færeyingar buðu
aðeins „ufsaverð“
fyrir þorskinn
Neskaupstað.
SKUTTOGARINN Bjartur sneri
við úr söluferð til Færeyja í
gær. Hann var kominn langleið-
ina, þegar í Ijós kom að Færey-
ingar vildu aðeins borga ufsa-
verð fyrir þorskinn, um 23 krón-
ur. Aflanum verður því landað í
Neskaupstað, þrátt fyrir að tæp-
Siglufjörður:
Gunnjón
GK f ékk
trollí
skrúfuna
Sig-lufirði.
GUNNJÓN GK fékk troll í
skrúfuna í fyrrinótt og Pét-
ur Jónsson RE tók hann í
tog til Siglufjarðar og var
kominn með hann hingað
um klukkan 22.30 í gær-
kvöldi.
ast hafist undan að vinna þann
fisk, sem að landi berst.
Sveinn Benediktsson, skipstjóri á
Bjarti, sagði í samtali við fréttarit-
ara Morgunblaðsins, að þeir hefðu
verið með um 150 tonn, þar af um
65 af þorski. Vegna þess hve mikið
af físki bærist nú að, hefði verið
ákveðið að selja aflann í Vogi á
Suðurey. Þegar í ljós hefði komið
hve lágt verð þeir vildu borga fyrir
þorskinn, hefði ekki verið um annað
að ræða en snúa heim að nýju.
Sveinn sagði að þeir hefðu verið
með góðan þorsk, ekki þann smáa,
sem fengist hefði úr hólfínu í Beru-
fjarðarál, sem að hans mati hefði
ekki átt að opna á þessum tíma.
Mikill afli hefur borist hér að
landi undanfarið og ekki hafst und-
an að vinna hann. Nótaskipið Börk-
ur fór því utan fyrir skömmu með
um 190 tonn, sem seld voru í Grims-
by í vikunni og fékkst þokkalegt
verð fyrir aflann, um 10 krónum
hærra að meðaltali fyrir þorskinn
en úr gámunum.
Ágúst
Morgunblaðið/Þorkell
Orka vegin
ogmæld
Orka úr iðrum jarðar ólmast
hvæsandi upp á yfirborð Nesja-
valla. Þaðan munu íbúar höfuð-
borgarsvæðisins fá heita vatnið
sitt í framtíðinni. Þar standa
gufustrókarnir upp frá bor-
holum og ein sú nýjasta þeirra
er NJ 18. Hola númer 18 á
Nesjavöllum, boruð af Jötni.
Borun lauk síðastliðið haust og
hefur holan blásið síðan. í gær
voru starfsmenn Orkustofnun-
ar að mæla hita og þrýsting í
NJ 18. Inni í rörinu, sem þeir
eru að koma fyrir, er hólkur
með mælitækjum. Hólkinum er
slakað niður í jörðina, allt niður
á 2.000 metra dýpi. Til þessa
verks hafa þeir þijár stundir.
Hitinn og þrýstingurinn á þessu
dýpi eru meiri en svo, að nokk-
ur rafleiðari þoli. Þess vegna
eru í hólkinum sjálfvirk mæli-
tæki tengd klukku og sírita.
Klukkan getur gengið í þijár
stundir, því verður að hafa
hraðar hendur við að koma
tækjunum niður í holuna, niður
á 2.000 metra dýpi, áður en
tíminn er útrunninn. Síðan
verður holunni lokað og orkan
geymd þar til hennar verður
þörf til að orna borgarbúum.
Rekstrarstöðvun og at-
vinnuleysi blasir við
Frystingin rekin með 15% tapi, segir
Jón Ingvarsson, formaður stjórnar SH
Þá kom Víkingur AK með
slasaðan sjómann til Siglu-
fjarðar í fyrrinótt og Guð-
mundur VE kom hingað í gær
með rifíð troll. Jón Finnsson
RE kom hingað í nótt eftir
að hafa fengið á sig lítið gat
í ísnum um 80 sjómflur norð-
ur af Siglufírði fyrir nokkrum
dögum, að sögn Guðlaugs
Jónssonar skipstjóra á Jóni
Finnssyni.
M.J.
„VERÐLÆKKANIR á freðflski
auk innlendra kostnaðarhækk-
ana, meðal annars vegna ný-
gerðra kjarasamninga, hafa að
engu gert þann ávinning, sem
vannst með gengisbreytingunni
og er rekstarhalli frystingar nú
samkvæmt nýlegu úrtaki talinn
vera um 15%. Því blasir nú ekk-
ert annað við en rekstrarstöðvun
hjá fjölda frystihúsa víðs vegar
um landið auk stórfellds atvinnu-
leysis, verði ekki þegar í stað
gripið til róttækra efnahagsráð-
stafana," sagði Jón Ingvarsson,
stjórnarformaður SH, meðal
annars á aðalfundi samtakanna.
í gær.
Jón ræddi um markaðsmál og
fleiri þætti starfseminnar, en lagði
mikla áherzlu á afkomu frystingar-
innar og rakti gang þeirra mála
síðustu misseri. „Eftir mikið góðæri
í íslenzkum sjávarútvegi og sam-
fellt tímabil erlendra verðhækkana,
sem stóð síðari hluta árs 1986 og
fyrri hluta síðastliðins árs og fólu
í sér yfír 30% verðhækkanir á freð-
físki, má segja að loksins hafí náðst
jafnvægi í afkomu frystingar,"
sagði Jón. „En Adam var ekki lengi
í Paradís. Gífurleg þensla leiddi til
holskeflu innlendra kostnaðar-
hækkana. Er engu líkara en að öll-
Borgarstjórn staðfestir
byggingarleyfi ráðhúss
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Áheyrendapallar borgarstjórnar voru nær fullskipaðir í gærkvöldi.
BYGGINGARLEYFI fyrir ráð-
húsi við Tjörnina hlaut staðfest-
ingu á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í gærkvöldi. Fulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins greiddu
staðfestingu leyfisins atkvæði en
allir fulltrúar minnihlutans voru
á móti.
Fólk úr samtökunum fyörnin lifi
fyllti áheyrendapalla borgarstjóm-
ar. Forseti borgarstjómar þurfti
oftar en einu sinni að hasta á áheyr-
-«endur vegna frammíkalla, þegar
borgarstjóri var í ræðustól og undir
ræðu hans risu meðlimir samtak-
anna allir úr sætum í einu, gengu
úr salnum og sungu hástöfum
biblíusönginn „Á sandi byggði
heimskur maður hús“.
Fulltrúar Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Kvennalista lögðu
'fram bókun á fundinum þar sem
forsendur þeirra fyrir andstöðunni
við ráðhúsið em raktar. Þar kemur
fram að staðsetning hússins raski
mjög svip umhverfisins, húsið sé
of dýrt og of stórt. Minnihlutafull-
trúamir telja byggingarleyfið
stangast á við skipulagslög þar sem
það sé ekki í samræmi við aðal-
skipulag Reykjavíkur.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, lagði
fram sérstaka bókun þar sem það
er talið borgaryfírvöldum til vansa
að þau hafí keyrt framkvæmdir
áfram með offorsi. Sigrún segist
hlynnt ráðhússbyggingunni sem
slíkri en gagmýnir þann hátt sem
hafður var á við útboð fram-
kvæmda, kynningu á húsinu og
hönnun bílastæða í kjallara þess.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið
eftir fundinn að hann gæti ekki
ímyndað sér að neitt stöðvaði fram-
kvæmdir við ráðhúsið nú að bygg-
ingarleyfínu staðfestu. „Þetta er
allt í réttum farvegi og húsið er
langt innan við þau mörk sem sett
eru á þessu svæði," sagði Davíð.
„Þetta er sennilega minnsta húsið
í Kvosarskipulaginu miðað við nýt-
ingu.“ Borgarstjóri sagði að fram-
kvæmdir myndu halda áfram af
fullum krafti og væntanlega yrði
hægt að fara að grafa fyrir húsinu
eftir nokkra daga.
um erlendum verðhækkunum hafí
bókstaflega verið veitt út í hag-
kerfíð til að fjármagna þensluna.
Auk þess var mikið innstreymi er-
lends ijármagns í formi erlendra
Iána og fjármagnsleigu, sem magn-
aði þetta ástand."
Um gengi krónunnar sagði Jón:
„Homsteinn efnahagsstefnu núver-
andi ríkisstjómar, fastgengisstefn-
afl' hefur gert það að verkum að
hagkvæmara er nú að flytja inn
flesta hluti frá útlöndum í stað þess
að kaupa innlenda framleiðslu. ís-
lensk framleiðslufyrirtæki, sem
framleiða plastumbúðir og bylgju-
pappa og sem lengst af hafa stað-
ist samkeppni við innflutta fram-
leiðslu eru nú hvergi nærri sam-
keppnishæf. Af þeim sökum hefur
Sölumiðstöðin meðal annars séð sig
tilneydda til að snúa sér til útlanda
með þessi viðskipti. Svipaða sögu
er að segja af ýmsum öðrum iðnfyr-
irtækjum hér á landi svo ekki sé
talað um ferðamannaþjónustu og
flugrekstur.
Þessi dæmi, sem hér hafa verið
nefnd auk hins geigvænlega við-
skiptahalla hljóta að gefa tilefni til
að ætla að gengi krónunnar sé of
hátt skráð. Einsætt virðist því að
framkvæmd fastgengisstefnunnar
hefur mistekÍ3t vegna þess meðal
annars að forsenda raunhæfrar
fastgengisstefnu er að verðbólga
sé ekki meiri til lengdar að minnsta
kosti heldur en í viðskiptalöndum
okkar. Stjómvöldum hefur einfald-
lega ekki tekist að haga stefnu sinni
í stjóm efnahags- og peningamála
með þeim hætti að dygði til að
stemma stigu við hinni hrikalegu
þenslu."
Sjá ræðu Jóns Ingvarssonar á
bls. 24 og 25 og frásögn af
aðalfundi SH á bls. 26.