Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
rt
fclk í
fréttum
Ballettinn Svanavatnið í uppfærslu Helga Tómassonar hlýtur mikið lof gagnrýnandans Önnu Kissel-
goff hjá New York Times.
BALLETT
Svanavatni Helg'a,
Tómassonar hrósað
Hinn sígildi ballett Tchaikovskys, Svanavat-
nið, var frumsýndur í San Francisco í Banda-
ríkjunum 23. apríl í nýrri útgáfu Helga Tómasson-
ar. Helgi tók við stjóm San Francisco ballettsins
fyrir þremur árum þegar hann lét af störfum sem
aðal karldansari við New York City Ballet. Hann
er höfundur allra dansa í þessari uppfærslu
Svanavatnsins og hefur gert nokkrar breytingar
á vali tóniistar.
Anna Kisselgoff er ballettgagnrýnandi New
York Times og í blaðinu fer hún mjög lofsamleg-
um orðum um sýningu San Francisco ballettsins.
Hún segir meðal annars: „Með nýstárlegri upp-
færslu Helga Tómassonar á Svanavatninu - þeirri
fallegustu í mörg ár - bætist San Francisco bal-
lettinn í alþjóðlegan hóp úrvalsdansflokka."
Gagnrýnandi New York Times segir Svanavatn
Helga Tómassonar vera einstæða uppfærslu. Hún
lýsir þvj í grein sinni hvemig athygli áhorfenda
er fönguð jafnskjótt og tjöldin lyftast. Fallegt 18.
aldar málverk glæðist lífi þegar dansaramir taka
fyrstu spor verksins.
Þá nefnir Kisselgoff að önnur eins veisla fyrir
augað verði aðeins til fyrir sérlega góða sam-
vinnu dansahöfundar og hönnuða sviðsmyndar
og lýsingar. Hún getur ýmissa dansara, en telur
„uppgötvun" sýningarinnar vera Finnann Mikko
Nissinen.
Kisselgoff segir Helga Tómasson vera ný-
klassískan dansahöfund sem fléttað geti djörfum
hugmyndum við sígildar. Gagnrýnandinn hefur
fylgst með Helga um langt skeið og virðist ekki
síður hrífast af honum nú sem höfundi balletta
en áður sem dansara.
Helgi Tómasson er höf-
undur dansa í Svanavatni
Tchaikovskys, sem frum-
sýnt var nýlega við bal-
lettinn í San Francisco.
Helgi hefur verið stjóm-
andi ballettsins þar í
borg frá árinu 1985.
ÍSLENSKIR AÐALVERKTAKAR
Skemmtileg
tilbreyting í
matartímanum
Vognm.
Þetta var skemmtileg tilbreyting nýlega.
í matartímanum," sagði Friðr- Það voru hátt á þriðja hundrað
ik Eiríksson yfirbryti hjá Islenskum manns sem hlýddu á flutninginn,
aðalverktökum í samtali við frétta- eða rúmlega helmingur allra starfs-
ritara Morgunblaðsins eftir að fé- manna fyrirtækisins, en ekki áttu
iagar úr íslensku óperunni höfðu allir þess kost, þar sem þeir starfa
flutt kafla úr „Don Giovanni" eftir á vinnustöðum eins og í Helguvík
Mozart í mötuneytinu í hádeginu og Stapafelli og fá sendan mat í
Reuter
Vestur-þýska póstþjónustan gaf nýlega út fjögur frímerki þar sem
jafn margra heimsfraegra rokkara er minnst. Þeir Buddy Holly,
Elvis Presley, Jim Morrison og John Lennon prýða frímerkin.
Rokkuð frímerki