Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988 + Móðir okkar, BRÍET ÓLAFSDÓTTIR, andaðist á Droplaugarstöðum miðvikudaginn 4. maí. Börn hinnar látnu. t Móðir mín, tengdamóöir og amma, ÁSTA MARÍA GRÍMSDÓTTIR frá Siglufirði, lóst á elliheimilinu Grund 4. maí. Gunnar Finnsson, Elísabet Finnsson, og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamöðir og amma, UNNUR SVEINSDÓTTIR, Blómsturvöllum, lést á heimili sínu fimmtudaginn 5. maí. Frímann Stefánsson, Sveinn Frímannsson, Sædís Vigfúsdóttir, Ásdfs Frímannsdóttir, Jónas Björnsson, Halldór V. Frfmannsson, Lilja Dóra Victorsdóttir og barnabörn. + Eiginmaöur minn og faðir okkar, STÍGUR HANNESSON, Hólmgarði 11, Reykjavík, lést á heimili sínu þann -3. mai sl. Ingibjörg Jónsdóttir og börn. + Ástkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR JÓHANNESSON vélstjóri, Kársnesbraut 129, Kópavogi, andaðist í Landspítalanum að morgni 5. maí. Reynir Einarsson, Einar Jóhannes Einarsson, Kristján R. Einarsson, Erna Friðbjörg Einarsdóttir, Agnes Einarsdóttir, Ásbjörg ívarsdóttir, Filippía Kristjánsdóttir, Ólöf Stefánsdóttir, Jóhanna Jakobsdóttir, Sofffa Ingimarsdóttir, Hannes Oddsson, Hermann Friðriksson, Jón Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN SVERRIR KRISTINSSON fyrrum bóndi á Ketilsstöðum, lést þann 25. apríl. Jarðsett verður frá Selfosskirkju laugardaginn 7. maí kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á að láta Dvalarheimilið Lund á Hellu njóta þess. Valgerður Daníelsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ANDRÉSAR MAGNÚSSONAR bónda í Vatnsdal í Fljótshlfð. Guð blessi ykkur öll. Kjartan Andrésson, Magnús Andrésson, Elvar Andrésson, Sveinn Andrésson, Sigurður Andrésson, Ólafur Andrésson, Sigurleif Andrésdóttir, Guðrfður Andrésdóttir, Matthildur Andrésdóttir, Elfsabet Andrésdóttir, Þormar Andrésson, barnabörn Þorgerður Guðrún Sveinsdóttir, Auður Karlsdóttir, Svanhvft Guðmundsdóttir, Ólafía Sveinsdóttir, Sigurður Gíslason, Eirfkur Ágústsson, Dofri Eysteinsson, Tryggvi Ingólfsson, Sigurlfn Óskarsdóttir, og barnabarnabörn. Minning: Ingimundur Hjör- leifsson fv. verkstjóri Fæddur 21. janúar 1898 Dáinn 28. april 1988 „Hver er sinnar gæfu smiður, seg- ir máltækið, og ekki dettur mér í hug að rengja það, en aleinn er vita- skuld enginn við það verk. Og þvi sting ég nú niður penna að mig lang- ar að senda afmæliskveðju og þakk- ir til verkstjórans yfir minni smíð.“ Eitthvað á þessa leið voru upp- hafsorðin í greinarkomi sem ég hrip- aði niður fyrir röskum þremur mán- uðum. Aldrei fyrr hafði hvarflað að mér að skrifa afmælis- eða minning- argrein í blað. Því þá nú? Hafði þessi níræði höfðingi ekki einmitt rifið sig upp úr rúminu og flogið vestur á firði til að sleppa við umstang og athygii sem gjama fylgir stóraf- mælum? Jú, jú, sagði ég við sjálfa mig, en það skemmtilegasta sem hann afi gerir er að spjalla við gott fólk í síma, og þegar gamlir vinir og vinnufélagar sjá mynd af honum í blaði og nokkrar línur um hann, þá hugsa þeir áreiðanlega: Nei sko. Er ekki öðlingurinn hann Mundi orð- inn níræður. Það má nú ekki minna vera en að ég slái á þráðinn til hans! Og vissulega reyndist ég sannspá, þau voru ófá símtölin og skeytin sem glöddu hann þennan dag. Nú er hann farinn í lengri ferð en svo að símasamband náist, en mig langar samt að leiðarlokum að kveðja og þakka fyrir mig. „Þið afi þinn voruð nú alltaf svo náin á einhvem sérstakan máta,“ sagði gömul og góð vinkona þegar ég sagði henni að nú væri hann all- ur. Mikið gladdi hún mig með þessum orðum, og þegar ég fór að hugleiða þau nánar, fann ég að þau giltu víst ekki bara um mig. Það var líklega sterkasta einkenni Ingimundar Hjör- leifssonar hvað hann varð fólki náinn á einhvem sérstakan máta. Hann hafði sterkan persónuleika og maður laðaðist að honum vegna þess að hann var góður og réttsýnn og vildi allt fyrir mann gera. Við sem næst honum stóðum deildum honum með mörgum, en hjartað var lika stórt og hugurinn mikill. í ellinni uppskar hann eins og hann hafði til sáð, því þeir sem hann hafði reynst vel og bundið tryggð við sýndu þakklæti sitt og væntum- þykju í verki með heimsóknum og hjálpsemi. Fyrir það ber að þakka, og það er gott tii þess að vita að honum fylgja hlýjar hugsanir og óskir um góða heimkomu. Hildur Látinn er hinn 90 ára aldni Skaft- fellingur Ingimundur Hjörleifsson, kunnur fyrir góðar gjörðir og al- þekktur sómamaður við störf sem verkstjóri við Bæjarútgerð Hafnar- flarðar svo áratugum skiptir. — Hans vil ég minnast örlítið. Ingimundur var fæddur í Sanda- seli í Meðallandi. Býlið Sandasel er á bökkum Kúðafljóts, þar sem hann leit undrandi hinn stríða straum fljótsins renna fram að ósum sínum og hrffa það með sér er eigi gat stað- ist straumþungann. Aftur á móti horfði hann hugfanginn á föður sinn fara ótal sinnum yfir fljótið og koma ætíð heilan heim. Hjörleifur var einn þekktasti og gæfusamasti feiju- og vatnamaður við fljótið í Sandabyggð- inni. Þessi þrekraun föðurins gaf ungum syni þann þroska, vilja og trúmennsku sem þarf til í þeim iðu- straumi, er mæta kann hveijum vax- andi ungum manni til fuilorðinsára. Þegar ég lít yfir farinn veg Ingi- + Tengdafaðir minn, afi okkar og langafi, INGIMUNDUR HJÖRLEIFSSON, Austurtúni 12, Álftanesi, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni i Hafnarfiröi í dag, föstudaginn 6. maí, kl. 15.00. Finnur Guðmundsson, Hildur Finnsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Gunnar Finnsson, Sigri'ður Halldórsdóttir, Eirikur Finnsson, Hafdís Þorvaldsdóttir og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaöir, BERGSVEINN GUÐMUNDSSON byggingameistari, Eskihlíð 18a, Reykjavfk, verðurjarðsunginnfrá Fossvogskirkju í dag, föstudag, kl. 15.00. Ingibjörg Jóhannsdóttir, Kristin Þuríður Bergsveinsd., Hjörleifur Kristjánsson, Guðmundur Jón Bergsveinss., Ásgerður Ágústsdóttir, Friðrik Bergsveinsson, Sigrún Olgeirsdóttir, Gréta Berg Bergsveinsdóttir, Stefán Kristjánsson. + Hjartanlegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og heiðruðu minningu móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐLAUGAR EIRÍKSDÓTTUR, Þverspyrnu, Hrunamannahreppi. Sérstaklega þökkum við starfsfólki Sjúkrahúss Suöurlands fyrir góða umönnun og hlýju síöustu árin. Eiríkur Jónsson, Sigurjón Jónsson, Sigrfður Jónsdóttir, Kristinn Jónsson, Guðmundur Jónsson, Sigrún Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Stefán Jónsson, Ásta Jónsdóttir, Guðrún K. Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Erna Sigurðardóttir, Sigrún Kristbjörnsdóttir, Jón Jónsson, Bára Sigurðardóttir, Valgeir Jónsson, mundar, kemur í ljós að honum fam- aðist vel við öll sín „feijustörf" á sjó og landi, sem sum voru dýrmæt ábyrgðarstörf. Þessum ágæta, drenglynda manni og hans góðu konu Mörtu Eiríks- dóttur kynntist ég skömmu eftir 50 ára afmæli hans 1948, af því tilefni að böm okkar, Sigríður dóttir þeira og Finnur sonur minn, gengu þá í heilagt hjónaband, á heimili þeirra á Hverfisgötu 46 í Hafnarfirði. Þau hjónin buðu mér að koma norðan af Ingjaldssandi og vera með í þeirra vinahópi. Hann hafði ég hvorki heyrt eður séð, en frá símtali hans við mig þá, minnist ég ávallt skýrrar og hljómmikillar raddar hans, með góð- legri vinarkveðju, sem ég heillaðist af. Þessi flömtíu ár sem siðan em lið- in hafa ÖU verið í sama dúr og fyrsta símtalið, hafa aukið gleði okkar og virðingu fyrir manninum. Hressandi tilhlökkun var það minni flölskyldu í Ástúni að fá þau hjónin til okkar nokkmm sinnum norður í heima- byggð okkar, og hann einnig eftir að hún dó. Já, það var uppörvandi að fá í heimsókn slíkan gest, sem hafði áhuga og þekkingu á öllu sem var að gerast heima við bústörfin, hey- skapinn, ræktun og önnur störf sem fjölskyldan vann að hveiju sinni. Um það vitnuðu best spumingar eins og „Verður allt hirt í hlöðu af ljánum í dag? Geturðu slegið allt í einum áfanga sem óslegið er, þegar hann styttir upp?“ Á þessum ámm vom fætumir famir að bila og hann komst ekki langt frá húsum, en ég held að áhuginn á störfum og framkvæmd- um hafi jafnvel vaxið við það að komast ekki sjálfur á vettvang. Á sjötta og sjöunda áratugnum fóm öll fimm bömin okkar hjóna til náms í Reykjavík og nágrenni. Fyrir vinsemd beggja hjónanna, sem þá vom flutt í Ásbúðartröð 3, áttu þau öll-meira og minna athvarf þar á meðan þau vom í skóla. Árvekni og skilningur Ingimundar og hans fólks stuðlaði þannig að því að létta böm- unum og mér róðurinn við framtí- ðarmenntun þeirra. Þvflík umhyggja og dásemda, mannúðar kærleiki birtist í störfum þessa vinafólks allt til síðustu hér- vistardaga þeirra í Austurtúni 12 á Álftanesi. Ég hef þá trú að þeir sem efla kærleiks góðverk á heimilum jarð- vistar sinnar hér, muni mæta þeím aftur af miskunnsamri ylríkri náð á heimili föður ljósanna í ríki himn- anna. Fari hann í friði Guðs, heill og sæll — með þakkarkveðju vinanna hér á ströndinni. Guðmundur Bernharðsson frá Ástúni. Blóm og skreytingar viö öll tœkifœri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.