Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 54
0 54 MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988 4 ■ i < Faðir Koesler (Sutherland) er í vandasamri aðstöðu í Rósary- morðunum. SÁLNAHIRÐAR OG SIFJASPELL Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarson ROSARY-MORÐIN - “THE ROSARY MURDERS“ Leikstjóri Fred Walton. Hand- rit Walton og Elmore Leonard. Kvikmyndataka David Golia. Tónlist Bobby Laurel og Don Sebesky. AðaUeikendur Donald Sutherland, Charles Durningf, Belinda Bauer, Josef Sommer. Bandarísk. The Samuel Goldwyn Company 1987. Þessi rólega og óvenjulega saka- málamynd Qallar öðru fremur um þá erfiðu aðstöðu sem hinn órjúfan- legi þagnareiður skriftastólsins get- ur fært kaþólskum klerkum. Venjubundið líf föður Koeslers (Sutherland), sem einkum fæst við að ritstýra blaði kaþólskra í Detr- oit, hrynur skyndilega til grunna er röð morða verða á vegi hans. Einhver útí borg er önnum kafinn við að drepa kaþóiska klerka og nunnur, það eina sem tengir morðin eru svört talnabönd sem stungið er í hendi fómarlambanna. Koesler vill allt gera til að hjálpa lögregl- unni í málinu en er í þeirri slæmu stöðu að vera bundinn þagnareiði skriftastólsins — því hann kemst fljótlega á braut morðingjans — sem af bölvun sinni skriftar hjá honum. Okkur mótmælendum kann að þykja þessi eiðstafur harla fárán- legur undir ógnarkringumstæðum sem þessum en þá ber að hafa í huga að hér er einmitt um að ræða eitt grundvailaratriði kaþólskunnar. Þá er illa komið kaþólskri kirlqu ef trúnaðartraust skriftanna er brotið. Þá er lætt með ljúfu ástar- ævintýri; blaðakona verður ást- fangin af Koesler, sem orðinn er fullur efasemda um hina stífu, fom- eskjulegu túlkun kirkjulaganna. Og í lokin hefur maður frekar á tilfinn- ingunni að geistlegu starfi hans sé lokið. Það sem háir Rosary-morðunum er heldur veikt undirstöðuefni sem er teygt full mikið á langinn. Og lokauppgjörið við drápsmanninn einkar ófullnægjandi í flesta staði. Hinsvegar em samtölin vel skrifuð á lipru menntamannamáli og mátu- leg kímni til staðar. Stfgandinn er fyrir hendi, þó hægur sé, svo og nokkur vel útfærð atriði til hrelling- ar taugakerfinu!. Sutherland undir- leikur einkar laglega og gerir prest- inn að aðlaðandi og þægilegri per- sónu. Duming gengur að vanda fyrirhafnarlau8t gegnum hlutverk sitt, skilar þröngsýnum harðiínu- prestinum eins vel og efni standa til. Klippingin er góð og myndin í heild lágt stemmd, allt að þvi hæ- versk afþreying. Brlds Arnór Ragnarsson Sanitas-keppnin Bridssamband íslands og Sanitas hf. hafa náð samkomulagi um að bikarkeppni BSÍ 1988, sem fram fer að venju í sumar, verði haldin undir nafninu Sanitaskeppnin, gegn Qárstuðningi Sanitas hf. við BSI. Stjóm Bridssambands íslands færir Sanitas hf. beztu þakkir fyrír þann velvilja og stuðning við starf- semina, sem í þessu felst og vonar að þetta verði beggja hagur. (Fréttatílkynning frá Bridssamb&ndwu) Bridsfélag Tálknafjarðar , Sveit Bjöms Sveinssonar bar sig- ur úr býtum í aðalsveitakeppni fé- lagsins eftir hreinan úrslitaleik við sveit Ævars Jónassonar. Með Bimi eru í sveitinni: Ólöf Ólafedóttir, Brynjar Olgeirsson og Egill Sig- urðsson. Röð sveitanna (efetu) varð þessi: Stig Sveit Bjöms Sveinssonar 120 Sveit Ævars Jónassonar 104 Sveit Kristínar Ársælsdóttur 7 4 Lokið er 1. umferð af þremur í Firmakeppni félagsins, sem jafii- framt er einmenningskeppni. Staða efstu firma er þessi: Ríkisskip (Sigurður Skagflörð) 171 Rafröst (Sveinbjöm Júlíusson) 170 Esso-nesti (Brynjar Olgeirsson) 167 Vatnsveita Tálknafjarðar — (Steinbeig Ríkarðsson) 153 Vélaverkstæði Gunnars (Ævar Jón- asson) 151 Eyrarsparisjóður (Símon Viggós- son) 150 Álls taka 20 firmu (spilarar) þátt í keppninni. Opna Sparisjóðsmótíð í Kópavogi Eitt glæsilegasta mót sem haldið verður á íslandi verður í Kópavogin- um helgina 28.-29. maí nk. Það er Opna sparisjóðsmót Bridsfélags Kópavogs. Stefiit er að þátttöku 32 sveita, sem munu spila í 2x16 sveita riðlum, með útsláttarfyrir- komulagi, þar til 1 sveit er eftir í hvorum flokki. Á sama tfma munu þær sveitir sem falla út, keppa í „Svissnum", hliðarkeppni, sem spil- uð verður út allt mótið. Tvær efetu sveitimar úr „Sviss-keppninni" munu síðan spila til úrslita við sig- urvegarana úr riðlunum tveimur, en á sama tíma heldur „Svissinn" áfram og sigursveitin þar hlýtur 2. sætið f mótinu. Sveitimar sem tapa í 4 liða úrslitunum hljóta 4.-5. sætið en sigursveitimar spila um 1. og 3. sætið. Þetta er sama (svip- að) fyrirkomulag og notað er í Olympíumótinu f sveitakeppni (Ros- enblum-keppninni), en einfaldað nokkuð. Spilað verður um afar glæsileg verðlaun: 1. verðlaun: kr. 120.000 2. verðlaun: kr. 80.000 3. verðlaun: kr. 40.000 4. verðlaun: kr. 20.000 5. verðlaun: kr. 20.000 ímyndin og innihaldið Kvikmyndlr Arnaldur Indriðason Sjónvarpsfréttir („Broadcast News“). Sýnd í Bíóborginni. Bandarísk. Leikstjóri, hand- ritshöfundur og framleiðandi: James L. Brooks. Kvikmynda- taka: Michael Ballhaus. Tónlist: Bill Conti. Helstu hlutverk: Holly Hunter, William Hurt, Albert Brooks, Robert Prosky, Lois Chi- les, Peter Hackes og Jack Nic- holson. Bíðið við, hér er frétt sem var að berast. Óskarinn fyrir bestan leik konu í aðalhlutverki hefði betur farið til Holly Hunter en samkvæmt áreiðanlegum heimildum verður engin leiðrétting gerð á því. Og hér var að berast önnur frett. Sjón- varpið blekkir, skælir og skekkir en þannig er sjónvarp og sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum verður ekki aftur snúið með það. Ög þá er það veðrið. Já, Holly Hunter sat eftir með sárt ennið á Óskarsverðlaunahátíð- inni. í ljós kemur að hlutverk henn- ar er miklu burðarmeira eri Cher í Fullu tungli, bitastæðara og meira krcfyandi og hún gerir því mjög góð skil í myndinni Sjónvarpsfréttir („Broadcast News“), sem sýnd er í Bíóborginni og er önnur mynd leikstjórans James L. Brooks er áður gerði „Terms of Endearment". Eins og óskarsverðlaunahátíðir eru Sjónvarpsfréttir um þá sem komast áfram og þá sem sitja eft- ir, lélegasti fréttamaðurinn kemst áfram á sjónvarpsstöðinni, sem er leiksvið myndarinnar, en sá besti lendir f þriðja flokks starfi útá krummaskuði. Hvers vegna? Hvað hefur sá lélegi framyfir þann besta? Hann ræður varla hjálparlaust við frétt. En jájá, hann hefur gott út- lit, hann kemur vel fyrir á skjánum og um það snýst sjónvarp; að koma vel fyrir. Skítt með það þótt þú getir ekki talið upp að tíu án þess að fingurbijóta þig og látir ekki vangaveltur um siðferðileg heilindi í starfí skemma morgunkaffíð (ef þú þá skilur þá yfírleitt hugtakið). Þú getur verið góður fréttamaður en ef þú situr f aðaiþularsætinu og svitnar eins og Nixon, þá er úti um Þ'g; Á okkar skemmtanasjúku, snöggsoðnu tímum verða hinir Spilað verður einnig um silfur- stig. Keppnisstjórar verða Hermann og Ólafur Lárussynir. Spilað verður í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, og hefst spilamennskan kl. 13 á laugardaginn. Skráning er hafin hjá Hermanni Lárussyni (41507) og skrifetofu BSÍ (689360). Spilurum er bent á að hafa samband sem fyrst, vegna takmörkunar á þátt- töku (aðeins 32 sveitir, þær er fyrst skrá sig, fá að vera með). Keppnis- gjald er aðeins kr. 8.000 pr. sveit, sem verður að teljast í lægri kantin- um miðað við verðlaun. Allar nánari upplýsingar eru veittar hiá Hermanni eða á skrif- stofu BSI. Mótið er opið öllum NÝRSKEMMTIS TAÐUR Krókurinn Nýbýlavegi 26, Kópavogi, Mini 46080. í kvöld, föstudaginn 6/5 og laugardaginn 7/5: Rúnar Þór Pétursson og Steingrímur Guðmundsson íbanastuði V. ^ VILLIAM HURT ALBERT BR00KS H0LLY HUNTEI Hunter, Hurt og Brooks i Sjónvarpsfréttum. síðustu aðeins fyrstir ef þeir standa sig vel á skjánum, segir Brooks. William Hurt, í hlutverki frétta- mannsins Tom Grunicks, hvorki þolir það eða skilur hvað hann er lélegur í því sem hann nýtur mestr- ar velgengni í á meðan Albert Brooks, f hlutverki fréttamannsins Arons Áltmans, skilur það alltof vel hvað hann er góður í því sem hann nýtur engrar velgengni í. Brooks er svosem ekkert sérstak- lega í mun að koma þessum boð- skap á framfæri, að sjónvarp byggi meira á ímynd en innihaldi, að f auknum mæli eru fréttir að breyt- ast í skemmtiefiii, heldur flækist hann á meinfyndinn og oftar en ekki sprenghlægilegan hátt inní rómantíkina á milli þriggja frétta- manna sjónvarpsstöðvar í Was- hington. Rómantíkin er aðalefni þessarar frábæru gamanmyndar en það eru hinar í sjálfu sér ekkert svo (nýju hugmyndir Brooks um sjón- varp sem gefa persónunum og myndinni líf og gera Sjónvarps- fréttir einstaklega skemmtilega og fyndna bíómynd. Eins og í „Terms of Endear- ment" er miðpunktur Sjónvarps- frétta kraftmikil kona. Jane Craig (Hunter) framleiðir fréttaþætti stórrar sjónvarpsstöðvar og hún losar sig aldrei við vinnuna. Hún dregst meira gegn vilja sínum en hitt að hinum aðlaðandi Grunick sem er, eins og þriðji aðilinn í þríhymingnum, Aron Altman, seg- ir, persónugervingur alls þess sem hún er á móti í starfínu. Það má vera að Grunick sé engin mannvits- brekka en hann er snillingur í að heilla fólk ólíkt Altman, og Craig heillast. ELf það er eitthvað sem einkennir þær tvær bfómyndir sem Brooks hefur gert má alveg eins segja að það sé útpæld, fyndin og afbragðs- góð persónusköpun gerð af næmri tilfínningu fyrir fólki og tengslum þess hvers við annað. Og Brooks hefur tröllatak á Ieikurunum. Sjón- varpsfréttir er frábærlega vel leikin enda hafa leikaramir úr úrvals efiii- við að moða; handritið tútnar út í snjöllum samtölum og leikaramir gera sér ljósa grein fyrir því. Brooks notar aftur Jack Nicholson í örlitlu aukahlutverki aðalfréttaþular og það er ekki að spyrja að því að hann slær meðleikara sfna út á tímabili. Brooks er nógu smekkvís til að forða sér undan auðveldu lausnun- um í lokin. Og myndin hans er sann- arlega þess virði að sjá. Sjónvarps- fréttir er einhver albesta og vandað- asta gamanmynd sem hér hefur sést lengi. Allt hjálpast að, úrvals handrit, úrvals leikur, úrvals leik- stjóm. Úrvalsmynd. mm 20 ára aldurstakmark Snyrtilegur klæðnafiur. Miöaverö kr. 650,- OPIÐ í KVÖLD PRAJKL. 22-03 I Bíókjaiíaranurn^f- dansað öll kvöld fcasssasa®*. Hlynur=Master mix, Daddi=Dee J og Kiddi=Big foot sjá um aó TÓNLIST TUNGLSINS og BÍÓKJALLARANS sé alltaf pottþétt OpiÓ óll kvöld frá kl. 21 Mtóaver kr 100,- frá sunnud. til fimmtudags. Biókjallarinn sameinast Lœkjartungli á föstudðgum og laugardögum. TlTt tl JUL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.