Morgunblaðið - 06.05.1988, Síða 20

Morgunblaðið - 06.05.1988, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988 LOGREGLAN I HEIMSOKN HJÁ 6 ARA I SELÁSSKOLA „Við verðum að fara eft- ir umferðarreglunum“ - sögðu börnin, sem þekktu reglurnar vel Morgunblaðið/BAR Sex ára bekkur S i Selásskóla ásamt Þorgrími Guðmundssyni, varðstjóra. Á myndinni eru frá vinstri í efstu röð: Þorsteinn Viðar, Kristjana Björk, Maria Rún, Jóhanna Helga, Þorgrímur, Inga Rós, Christine Linda, Kristmundur Helgi og Sigurður. í miðröð: Konráð Örn, Amar Þór og Benedikt Freyr. Fremst frá v: Sigurður Baldvin, Ásgeir Rafn, Andrea Ósk, Guðmundur Haukur og Jóhanna. Á myndina vantar þau Önnu Lydiu, Jón Þór og Katrínu Sjöfn, sem ekki voru í skólanum þennan dag. LÖGREGLAN í Reykjavík hef- ur í mörg ár farið á milli bama- skólanna og rifjað upp helstu umferðarreglur með böraun- um. Þorgrímur Guðmundsson, varðstjóri, hefur haft þann starfa lengi og Morgunblaðið slóst í för með honum fyrir skömmu, þegar hann ræddi við 6 ára bekk S i Selásskóla. Þar var honum vel tekið og börnin töluðu við hann eins og gamlan vin, enda hefur hann heimsótt þau áður. Að visu var einn ung- ur maður óánægður með að Þorgrímur var ekki með lög- regluhúfu og spurði hvort hann væri nokkuð iögregla fyrst eng- in væri húfan. Þorgrimur sagði að hann hefði skilið húfuna eft- ir úti í bfl, enda ætti ekki að vera með húfu inni í húsi. „Ekki erað þið með kuldahúfurnar ykkar núna,“ sagði hann og þessi athugasemd þótti svo fyndin að Þorgrimi fyrirgafst húfuleysið. Þorgrímur byijaði á að spyija bömin hvort þau mundu það sem hann hefði sagt þeim í síðustu heimsókn. Já, það stóð ekki á því. „Við verðum að fara eftir um- ferðarreglunum og hafa nógan tíma til að fara í skólann, svo við getum valið góða leið. Við eigum að fara þar sem er lítil umferð og nota göngustíga," svöruðu þau hvert í kapp við annað. „Já, það er rétt, en hvað verðum við að muna þegar við komum að götu og ætlum yfir?" spurði Þorgrímur. „Að bremsa með tánum eins og Agnarögn," svöruðu þau og vitn- uðu þar í bamatíma í sjónvarpinu. Svo vissu þau öll að það átti að líta vel til beggja hliða og hlusta eftir umferð. „Og ganga yfír á hraðbraut, nei, ég meina gang- braut," sagði einn piltur alvarlegur á svip. Öll þekktu þau gangbraut- armerkið, „þetta með manninum sem er að ganga og það er gult í kringum hann. Hann er eiginlega í gulu indjánatjaldi." Rauði og græni karlinn Þessu næst spurði Þorgrímur þau um gangbrautarljósin og kom ekki að tómum kofanum þar. Þau vissu öll að karlinn á efri hæðinni, þessi rauði, þýddi að það var bann- að að ganga yfir. „Hann stendur alveg eins og myndastytta, graf- kyrr, en þessi á neðri hæðinni, sá græni, hann er að ganga og þegar hann kemur þá megum við líka ganga." En til þess að geta notað gangbrautarljósin þarf að kunna að kveikja á þeim og Þorgrímur spurði hvort þau kynnu það. Ljós- hærður drengur misskildi spum- inguna eitthvað og sagði að í bílnum hans pabba væru ljósin kveikt með því að snúa einhverri stöng. Bekkjarsystkini hans bentu honum góðlátlega á að það væri verið að tala um gangbrautarljós og telpa sagði að til að kveikja á þeim þyrfti að ýta á takka. Allt á hreinu þar. Þegar maður er sex ára getur verið dálítið erfitt að sitja lengi og einbeita sér að því sem lögreglan er að segja, jafnvel þó að maður viti ósköp vel að það er mikilvægt. Þess vegna hófust nú líflegustu umræður meðal bamanna um umferðaróhöpp. „Mamma mín keyrði á fyrir nokkrum dögum, af því að hún gleymdi að bremsa," sagði telpa og bekkjarbróðir henn- ar sagði að pabbi hans hefði líka gleymt sér og ekið yfir á rauðu ljósi. Þorgrími tókst að stöðva um- ræðumar áður en allt var komið í óefni og beina talinu að reiðhjólum. Hann kvaðst hafa tekið eftir, að fyrir utan skólann væru nokkuð reiðhjól. Bömin játtu því, en sögðu að stóru krakkamir ættu þessi hjól, þau væru ekki enn farin að nota sín eftir veturinn. „Ég get ekki einu sinni notað mitt, af því að það er svo ofsalega skítugt," sagði telpa og bætti því við að pabbi ætlaði að þvo það. En vissu þau þá hvar má hjóla? „Alla vega ekki á götunni," sögðu þau öll í kór. En málið vandaðist þegar þau áttu að nefna þá staði þar sem hjólreið- ar væm leyfðar. Selásskóli er nýr skóli í nýju hverfí og gangstéttir og gangstíga vantar mjög víða. „Eg verð að hjóla á götunni, af því að það er engin gangstétt,“ sagði telpan sem átti óhreina hjól- ið. „Iss, það er allt í lagi, þú getur bara komið í mína götu, þar em gangstéttir," sagði sessunautur hennar hughreystandi og hin tók ekki illa í það. „Það má ekki hjóla yfir götuna, heldur leiða hjólið," sagði kotrosk- inn piltur skyndilega. „Hva, reiða, má nokkuð reiða?“, spurði bekkjar- systir hans, sem hafði verið eitt- hvað annars hugar. Hún var leidd í allan sannleika um málið og að Forvamarstarf lögreglunn- ar mætir litlum skilningi - segir Þorgrímur Guðmundsson, varðstjóri „LÖGREGLAN hefur ávallt lagt mflda áherslu á umferðar- fræðslu í skólum, en þvl miður er ekki hægt að segja það sama um fræðsluyfirvöld og for- eldra,“ sagði Þorgrímur Guð- mundsson, varðstjóri, sem hef- ur haft þessa fræðslu á hendi í mörg ár. „Ég tel þetta starf afar þýðingarmikið og er þess fullviss að slysatíðni í Reykjavík yrði meiri ef þvi yrði hætt. Slysatíðnin hefur staðið í stað undanfarin ár, en þó hefur böraum i borginni fjölgað um 1400 á síðustu tveimur árum og bifreiðum fjölgað mjög mikið. A sama tíma hefur slysatíðni auk- ist úti á landi. Forvarnarstarf lögreglunnar i Reykjavík mætir þó litlum skilningi og það er með ólíkindum hvað fólk Iætur sig litlu skipta hvort börnin fá fræðslu um umferðarmál.“ Þorgrímur og félagi hans, Bjami Torfí Álfþórsson, heimsækja ár- lega um 12 þúsund böm í skólum borgarinnar. Næsta haust bætist þeim liðsauki og munu þá þrír eða fjórir lögreglumenn sinna þessu brýna forvamarstarfí. Ekki mun veita af, enda bætast þá við um- dæmi þeirra skólar á Seltjamar- nesi og í Mosfellsbæ. Fræðslan byijar hvert skólaár á því að yngstu bekkimir, 6 og 7 ára, eru heimsóttir og rætt við þá um hætt- ur á leið í skólann og fleira sem svo ung böm þurfa að kunna skil á. Síðan er farið í eldri bekki og era elstu bömin 12 ára. Auk þessa fá 3-6 ára böm boð um að mæta ásamt foreldram sínum í skólana á vorin, en þá fræða 3 lögreglu- menn og 3 fóstrar bömin um hætt- ur í umferðinni. María Finnsdóttir, fóstra, sem starfar hjá Umferðar- ráði, hefur haft umsjón með þessu starfí um árabil og Margrét Sæ- mundsdóttir sér um bréfaskólann „Umferðarskólinn ungir vegfar- endur", sem foreldrar yngstu bam- anna kannast eflaust við. „Þessar konur hafa unnið mikið og heill- aríkt starf,“ sagði Þorgrímur. Fræðsla stendur foreldrum næst „Þessir stuttu fundir okkar með bömunum era oft eina fræðslan sem þau fá um þessi mál,“ sagði Þorgrímur. „Ég skil auðvitað að það geti verið erfítt fyrir önnum kafna kennara að taka við þessum fundum í viðbót við öll þau erindi sem berast frá líknarfélögum og samtökum ýmiss konar. Þess vegna verður að koma fræðslunni í ákveðið form; fella hana inn í samræmda stundaskrá skólanna. Ég fæ hins vegar ekki séð að það verði á næstunni. Það virðist sem skólayfírvöld telji að þessi mál komi ekki skólunum við, en þama þarf.auðvitað hugarfarsbreytingu og það stendur foreldram næst að knýja á um breytingar.“ Þorgrímur sagði að á hinum Norðurlöndunum væri umferðar- fræðslan í námsefni skólanna og ríkur þáttur í skólastarfi. Það skýrði þá staðreynd, að hér á landi verða hlutfallslega miklu fleiri slys á bömum og unglingum en hjá Morgunblaðið/Bjami Þorgrímur Guðmundsson, varð- stjóri. nágrannaþjóðunum. „Mér finnst að það standi foreldrasamtökum næst að beita sér fyrir aukinni umferðarfræðslu," sagði hann. „Slík samtök hafa hins vegar ekki sýnt þessu máli nokkum áhuga, fremur en skólayfírvöld. Foreldr- amir, sem eiga mesta möguleika á að ná til bamanna, vísa þessum málum til skólanna, en beita sér ekki fyrir því að þar verði tekið á málum af fullri alvöru. Ég hef til dæmis aldrei verið boðaður á fundi foreldrasamtaka vegna umferðar- fræðslu í skólum. Sem dæmi um áhugaleysið get ég nefnt að í mars var ákveðið að halda fund á vegum fræðslustjórans í Reykjavík. Um- ræðuefnið átti að vera hvað skólinn gæti gert til að bæta þekkingu nemenda í umferðarmálum, með hvaða hætti lögreglan og skólinn gætu unnið betur saman að auk- inni umferðarfræðslu og hvort unnt væri að koma á auknu sam- starfí við samtök foreldra í þessu efni. Þá stóð einnig til að ræða hvort það væri til bóta að hver skóli hefði ákveðinn starfsmann, sem skipulegði kennslu og um- ferðaræfingar í samráði við bekkj- arkennara og væri jafnframt tengi- liður við lögregluna. Fundarboð var sent til allra skólastjóra grunnskól- anna í Reykjavík. Á fundinn komu tveir skólastjórar og níu kennarar, en enginn fulltrúi SAMFOKS, Samtaka foreldra og kennara, sá ástæðu til að mæta. Þar með var úr sögunni að þarna yrði mörkuð framtíðarstefna í umferðar- fræðslu." Ábyrg'ð borgar yfirvalda Þorgrímur kvaðst vilja taka það fram, að sumir skólastjórar og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.