Morgunblaðið - 06.05.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
29
Las Vegas:
Jafnaðist við jörðu í
97 ára
maður sló
þjóf niður
Stokkhólmi. Reuter.
FJALLHRESS 97 ára gamall fyrr-
um loðdýraveiðimaður, Freddy
Nilsson, varð hetja heimabæjar
síns, Moheda í Suður-Svíþjóð, í
gær, eftir að hann hafði slegið
innbrotsþjóf niður með því að
rétta honum einn á lúðurinn með
hægri hendi og annan með vinstri
handar sveiflu.
„Ég varð þrjótsins var, þegar hann
var að troða sér inn um baðherbergis-
gluggann hjá mér,“ sagði Nilsson í
viðtali við sænska dagblaðið Afton-
bladet. „Ég gerði mér þá lítið fyrir
og rétti honum sitt höggið með
hvorri beint á kjammann."
Við þetta féll þjófurinn niður í
blómabeð fyrir utan gluggann og
flýði síðan sem fætur toguðu. „Gam-
alt fólk verður að læra að verja sig,“
sagði Nilsson. „Ég læt engan kom-
ast upp með að ræna mig.“
Nilsson sagðist halda sér frískum
með því að fá sér smávodkatár i
morgunmat. „Læknirinn minn segir,
að það sé gott fyrir blóðrásina," sagði
Nilsson í viðtalinu.
þremur sprengingiim
Henderson. Reuter.
ÞRJAJR miklar sprengingar urðu frá Las Vegas í Nevadaríki í
í fyrradag í verksmiðju skammt Bandaríkjunum. Nærri 200
Iranskur sendiráðsritari í Riyadh:
Saudi-Arabar réð-
ust inn í sendiráðið
Nicósíu, Reuter. The Economist.
mn
Reuter
Fred Gibson, einn af eigendum verksmiojunnar, baðar út höndum í
uppgjöf enda stendur ekki lengur steinn yfir steini þar sem áður
FYRRUM sendiráðsritari írans í
Saudí-Arabíu sagði á miðvikudag
að saudí-arabískar öryggissveitir
hefðu ráðist inn í sendiráð írans
í Riyadh og Jeddah, tekið þaðan
skjöl og barið starfsmenn sendi-
ráðsins áður en þeir hefðu verið
sendir heim.
íranska fréttastofan IRNA hafði
eftir Mohammad Hossein Tarami,
fyrrum sendifulltrúa írans í Riyadah,
við komu hans til Teheran að fylgst
hefði verið með sendiráðunum og
hýbýlum starfsmanna eftir að
Saudí-Arabar slitu stjómmálasam-
bandi við írani 26. apríl. Tarami
sagði að öryggissveitir hefðu ráðist
inn í sendiráðin á þriðjudagsmorgun,
skömmu áður en vikufrestur sem
starfsmennimir fengu til að yfirgefa
sendiráðin rann út. Hann sagði að
hegðun Saudí-Araba hefði verið
„ósæmileg og í bága við alþjóðalög."
Talsmaður saudí-arabísku stjóm-
arinnar vísaði ásökunum íranans á
bugog sagði að starfsmenn sendiráð-
anna hefðu yfirgefíð landið án þess
að ofbeldi hefði verið beitt.
Helsta ástæðan fyrir því að
Saudí-Arabar ákváðu að slíta stjóm-
málasambandi við írani er sú að
írönsk stjómvöld höfðu í janúar hót-
að að efna til pólitískra fjöldafunda
í Mecca í júlí. Saudí-Arabar óttuðust
að óeirðir í Mecca endurtækju sig,
en í júlí í fyrra létust 400 manns í
óeirðum sem fylgdu í kjölfar fjölda-
funda íranskra pílagríma. Saudí-
Arabar ákváðu að einungis 45.000
íranskir pílagrímar fengju að koma
til Mecca í júlí en Ayatollah Khom-
eini, trúarleiðtogi írana, sagði að
150.000 íranir færu til Mecca, hvað
Svíþjóð:
sem Saudí-Arabar segðu, og að efnt
yrði til pólitfskra fjöldafunda þar.
Þar sem stjómmálatengslum
ríkjanna hefur verið rift gæti írönum
hins vegar reynst erfítt að fá vega-
bréfsáritanir fyrir 45.000 manns.
Svo gæti farið að írönskum pflagrím-
um, sem ekki fá áritun, yrði vísað
aftur til írans.
manns slösuðust en í gær var
ekki fullljóst hve margir létu
lífið. Nefndu sumir níu en aðrir
færri. f verksmiðjunni var fram-
leitt eldsneyti fyrir eldflaugar.
„Ég var líklega í 100 metra fjar-
lægð þegar fyrsta sprengingin varð
og kastaðist til jarðar en eftir aðra
sprenginguna sá ég hluta úr verk-
smiðjuhúsinu þyrlast í kringum
mig,“ sagði einn starfsmannanna,
Robin Maassberg að nafni, en eftir
sprenginguna lagðist mikill reykjar-
og efnamökkur yfir bæinn Hender-
son en þar búa um 30.000 manns.
Var öllum bæjarbúum skipað að
hafa sig á brott og varð þá mikið
umferðaröngþveiti á vegum.
Borgaryfirvöld í Las Vegas sögðu
fyrst, að níu manns hefðu farist í
sprengingunum en síðar var til-
kynnt, að ekki væri vitað ’nvort eða
hve margir hefðu látist. Er það
haft eftir starfsmönnum í verk-
var blómlegt fyrirtæki.
smiðjunni, að vegna bilunar í tæki
hafi komið upp eldur í því og hafí
hann orðið óviðráðanlegur á
skömmum tíma.
í sprengingunum jafnaðist verk-
smiðjan algerlega við jörðu og svo
var einnig um sælgætisverksmiðju
skammt frá.
ÞÚSUNDIR
SEM VALIÐ HAFA MAZDA 323 HUOTA AÐ HAFA RETT FYRIR SER!!
MAZDA 323 hefur jafnan veriö ímynd hins fullkomna
fjölskyldubíls því hann býður upp á fullkomnun þeirra
þátta, sem skipta mestu máli í slíkum bíl. Hann er
fallegur, lipur í akstri, aflmikill, sparneytinn og óvenju
rúmgóður. 1988 árgerðin af þessum geysivinsæla bíl er
með ýmsum útlitsbreytingum, fjölmörgum tæknileg-
um nýjungum og nýrri luxusinnréttingu. MAZDA 323
fæst í yfir 20 gerðum: 3, 4, 5 dyra eða Station. Einn
þeirra hentar þér örugglega!
MAZDA 323 kostar nú frá aðeins kr.449.000
(gengisskr. 04.03.88)
IS> INDIÍóá