Morgunblaðið - 06.05.1988, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
37
Fjármálaráðherra:
Staðgreiðsla orlofs
verði samræmd
Fjánnálaráðherra segpur að ólík-
ar reglur gildi um staðgreiðslu
orlofs eftir þvf í hvaða formi það
hefur verið innt af hendi. Fjár-
málaráðuneytið hafi hins vegar
óskað eftir viðræðum við félags-
málaráðuneytið um hvort ekki
væri unnt að samræma reglur laga
um staðgreiðslu og reglur nýrra
laga um orlof. Þetta kom fram i
svari við fyrirspum frá Guðmundi
G. Þórarinssyni (F/Rvk) um það
með hvaða hætti færi fram stað-
greiðsla skatta af orlofsfé sem
launþegi fengi ekki i hendur fyrr
en að orlofi kæmi.
Jón Baldvin Hannibalsson, Qár-
málaráðherra, sagði að orlofsgreiðsl-
ur samkvæmt orlofslögum og reglu-
gerðum færu fram með tvennum
hætti. Annars vegar fengju fastir
starfsmenn orlofslaun, þ.e. fengju
greidd venjuleg laun meðan þeir
væru í orlofi. Aðrir launþegar fengju
hins vegar greitt orlofsfé sem næmi
ákveðnu hlutfalli af launum þeirra
hverju sinni. Afleiðingin af því að
orlofsgreiðslur færu fram með þess-
um hætti væri sú að staðgreiðsla af
orlofsgreiðslum færi eftir því hvemig
launþegar fengju greitt á meðan
þeir væru í orlofi.
Þegar um væri að ræða orlofsfé
sem lagt væri inn á póstgíróreikning
skyldi orlofsfé bætt við laun launa-
manns fyrir hvert greiðslutímabil.
Af þannig ákvörðuðum launum
greiðslutfmabilsins bæri launagreið-
anda að reikna staðgreiðslu launa-
manns vegna greiðslutfmabilsins og
draga hana frá launum hans.
Þegar um væri að ræða mánaðar-
kaupsmenn, þ.e. þá sem fengju
greidd venjuleg laun á meðan þeir
væru í orlofi, gilti sú regla að stað-
greiðslu bæri að draga af þessum
launum þegar þau kæmu til útborg-
unar.
Þess mætti geta að orlofsfé sem
reiknað hefði verið á laun vegna
greiðslutímabila á árinu 1987 kæmi
ekki tii skattlagningar á árinu 1988
vegna niðurfellingar innheimtu
tekjuskatts og útsvars á laun á því
ári. Þá væri rétt að minna ný lög
um orlof sem öðluðust gildi 1. maí
1988 og fælu í sér verulegar breyt-
ingar á gildandi orlofsreglum.
Eins og fram hefði komið hefðu
fram að þessu gilt ólfkar reglur um
staðgreiðslu af orlofsgreiðslum eftir
þvf í hvaða formi þær hefðu verið
inntar af hendi. Fjármálaráðuneytið
hefði óskað eftir viðræðum við fé-
lagsmálaráðuneytið um hvort ekki
væri unnt að samræma reglur laga
um staðgreiðslu og reglur nýrra laga
um orlof þannig að það skipti ekki
máli varðandi skil á staðgreiðslu
hvemig orlof væri greitt til launþega.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Guðrún Agnarsdóttir S bjórumræðunni f gær. Einnig eru á myndinni
Karl Steinar Guðnason, forseti efri deildar, og Valgerður Sverris-
dóttir, skrifari.
Bjórínn samþykktur í
annarri umræðu 13-8
Þriðja umræða á
mánudag
BJÓRFRUMVARPIÐ var sam-
þykkt í efri deild eftir aðra um-
ræðu i gær með 13 atkvæðum
gegn 8. Engin breytingartillaga
var flutt við frumvarpið en talið
er liklegt að lögð verði fram til-
laga um þjóðaratkvæðagreiðslu
þegar málið verður tekið til
þriðju og sfðustu umræðu i þing-
inu á mánudag.
Nafnakall var viðhaft við at-
kvæðagreiðsluna. Þeir þingmenn
sem greiddu atkvæði með frum-
varpinu voru: Danfríður Skarphéð-
insdóttir (Kvl/Vl), Eiður Guðnason
(A/Vl), Jón Magnússon (S/Rvk),
Guðmundur Ágústsson (B/Rvk),
Guðmundur H. Garðarsson
(S/Rvk), Halldór Ásgrímsson
(F/Al), Halldór Blöndal (S/Ne), Jó-
hann Einvarðsson (F/Rn), Júlíus
Næturfundur um
vírðisaukaskattínn
Guðmundur H. Garðarsson sat hjá við atkvæðagreiðsluna
EFRI deild afgreiddi virðisauka-
skattsfrumvarpið til neðri deild-
ar klukkan hálfþijú aðfaranótt
fímmtudags. Stjómarandstæð-
ingar fluttu fjölda breytingartil-
lagna við frumvarpið en þær
vora allar felldar. Einnig var
felld breytingartillaga frá Guð-
mundi H. Garðarssyni (S/Rvk)
þess efnis að útgáfa og sala inn-
lendra tímarita verði undanþegin
virðisaukaskatti. Breytingartil-
lögur meirihlutans voru hins veg-
Efri deild:
Fern lög
Fera lög vóra samþykkt i
efri deild Alþingis f gær: I)
Lög um atvinnuleysistrygg-
ingasjóð, 2) Læknalög, 3) Lög
um hlutafé íslands i Alþjóða-
bankanum, 4) Lög um gildi-
stöku staðgreiðslu opinberra
gjalda.
Sex frumvörp vóru afgreidd
frá efri deild til neðri deildan
1) Frumvarp að umferðarlög-
um, 2) Frumvarp að þinglýsing-
arlögum, 3) Frumvarp um rfkis-
ábyrgðir, 4) Frumvarp um bif-
reiðagjald, 6) Frumvarp um
sölu fasteigna Grænmetisverzl-
unar landbúnaðarins, 6) Frum-
varp um leigubifreiðir.
ar samþykktar. Guðmundur H.
sat siðan hjá, einn stjóraarliða,
við lokaafgreiðslu frumvarpsins
i deildinni. Neðri deild tók frum-
varpið til fyrstu umræðu sfðdeg-
is f gær og var það afgreitt til
nefndar.
Stjómarandstaðan flutti 13
breytingartillögur við virðisauka-
skattsfrumvarpið í efri deild, meiri-
hlutinn 8 og Guðmundur H. Garð-
arsson eina. Breytingartillögur
stjómarandstöðunnar voru flestar
þess efnis að matvæli og menning-
arstarfsemi ýmiss konar yrði und-
anþegin virðisaukaskatti. Breyting-
artillaga Guðmundar H. Garðars-
sonar (S/Rvk) var þess efnis að
útgáfa og sala á innlendum tfmarit-
um yrði undanþegin virðisauka-
skatti þannig að samkeppnisstaða
þeirra gagnvart erlendum tfmarit-
um yrði óbreytt. Guðmundur lýsti
sig einnig hlynntan þvf að tvö skatt-
þrep yrðu í virðisaukaskattinum,
annað þeirra mjög lágt og mundi
það gilda um matvæli en breyting-
artillaga þess efnis var lögð fram
af þeim Júlíusi Sólnes (B/Rn) og
Guðmundi Ágústssyni (B/Rn).
Þetta ásamt því að hann taldi að
málið væri enn opið, þar sem milli-
þinganefnd ætti að kanna ýmis at-
riði, þar á meðal skattprósentuna,
gerði það að verkum að hann sat
hjá er greidd voru atkvæði um
frumvarpið f deildinni.
Breytingartillögur meirihlutans
voru hins vegar allar samþykktar.
í þeim er m.a. gert ráð fyrir að
undanþáguákvæði varðandi menn-
ingar- og listastarfsemi verði
vfkkuð út, leiga hótel- og gistiher-
bergja verði undanþegin skattinum
og að með afnotagjöld útvarps-
stöðva skuli farið eins og sölu dag-
blaða.
Jón Baldvin Hannibalsson, fjár-
málaráðherra, mælti fyrir frum-
varpinu í neðri deild sfðdegis f gær.
Hann sagði að með virðisauka-
skatti yrði hætt að mismuna fyrir-
tækjum innan sömu atvinnugreina,
eins og gert væri í söluskatts-
kerfínu, en bætt söluskattskerfí
væri ekki raunhæfur kostur.
Það hefði verið sagt að þetta
væri flókið kerfi en ósannað væri
að söluskattskerfi sem nálgaðist
virðisaukaskattskerfið að skilvirkni
og gæðum yrði ódýrara. Hjá þeim
þjóðum sem hefðu byggt upp kerfi
sitt skynsamlega og undanþágulftið
væri þetta ódýrasti skatturinn í inn-
heimtu.
Nokkrir stjómarandstæðingar
tóku til máls og gagnrýndu frum-
varpið. Meðal annars taldi Stefán
Valgeirsson (SJF/Ne) að heppileg-
ast væri að fresta málinu til hausts-
ins það væru enn svo mörg spum-
ingamerki. Albert Guðmundsson
(B/Rvk) sagðist sem flármálaráð-
herra hafa lagt fram ■,-irðisauka-
skattsfrumvarp til kynningar á
sínum tíma. Það hefði þó mætt
mikilli andstöðu alþýðuflokks- og
sjálfstæðismanna og undraðist
hann sinnaskipti þessara flokka nú.
Sólnes (B/Rn), Bjöm Gíslason
(A/Vf), Salome Þorkelsdóttir
(S/Rn), Stefán Guðmundsson
(F/Nv) og Valgerður Sverrisdóttir.
Þeir sem greiddu atkvæði á móti
frumvarpinu vom: Egill Jónsson
(S/Al), Karl Steinar Guðnason
(S/Rn), Guðrún Agnarsdóttir
(Kvl/Rvk), Jón Helgason (F/Sl),
Margrét Frímannsdóttir (Abl/Sl),
Skúli Alexandersson (Abl/Vl),
Svavar Gestsson (Abl/Rvk) og Þor-
valdur Garðar Kristjánsson (S/Vf).
Nokkrir þingmenn gerðu grein
fyrir atkvæði sínu. Jóhann Ein-
varðsson (F/Rn) sagði að með þessu
frumvarpi væri einungis verið að
heimila sölu áfengis sem væri innan
við 10% að styrkleika. í trausti þess
að fræðsla og forvamarstarf yrði
stóraukið greiddi hann atkvæði með
frumvarpinu.
Þorvaidur Garðar Kristjánsson
(S/Vf) sagði að samkvæmt þings-
ályktunartillögu sem samþykkt
hefði verið 7. maí 1981 hefði Al-
þingi ákveðið að undirbúa tillögur
að mótun stefnu hins opinbera í
áfengismálum. Þó nauðsynlegt væri
að flýta þvi starfi léki ekki nauðsyn
á að taka einn þátt út úr. Bjór-
drykkja yrði heldur ekki til þess að
draga úr áfengisvandanum.
Guðrún Agnarsdóttir (Kvl/Rvk)
sagði löngu orðið brýnt að móta
heildarstefnu í þessum málum en
ekki ætti að taka úr þennan eina
þátt. Bjór yrði til þess að auka heild-
ameyslu áfengis og því fylgdu auk-
in félagsleg vandamál. Ekki væri
þó ætlunin að grípa til neinna ráð-
stafana vegna þessa samkvæmt
frumvarpinu. _
Guðmundur H. Garðarsson
(S/Rvk) sagði að með tilliti til við-
skipta með áfenga drykki á íslandi
og þeirrar staðreyndar að stór hluti
landsmanna hefði nú þegar aðgang
að áfengu öli með löglegum hætti
teldi hann að besta vömin gegn
skaðlegum áhrifum vínanda væri
fólgin í stórefldri forvamarstarf-
semi hins opinbera, m.a. f skólum,
og á vegum frjálsra samtaka bind-
indismanna.
Það bæri að efla forvamarstarfíð
með stórauknum flárframlögum í
fjárlögum til baráttunnar gegn
neyslu allra tegunda vímuefna. Það
væri eina raunhæfa leiðin í nútíma
þjóðfélagi í þessum efnum. Boð og
bönn dygðu ekki.
Guðmundur sagði að það bæri
að leggja aukna áherslu á öfluga
upplýsinga- og ráðgjafarstarfsemi
og endurhæfingu þar sem þess
væri þörf gegn neyslu vímuefiia í
hvaða mynd sem er. Með vísan til
þessara atriða segði hann já.
Efri deild:
Nýtt bílnúmera-
kerfi samþykkt
Fastnúmerakerfi bifreiða — í
stað núgildandi númerakerfis —
var samþykkt í fyrri (efri) þing-
deild í gær með 13 atkvæðum
gegn þremur, tveir þingmenn
sátu þjá en þrír voru fjarver-
andi. Frumvarpið kemur væntan-
lega til meðferðar í síðari (neðri)
þingdeild i dag.
Frumvarp til breyttra umferðar-
laga var samþykkt í efri deild Al-
þingis f gær. Nafnakall var um
aðra grein frumvarpsins, sem kveð-
ur á um fastnúmerakerfí, en nokkr-
ar deilur hafa staðið um það efni.
Hið nýja kerfí gerir ráð fyrir því
að ökutæki beri sama skráningar-
númer frá nýskráningu til afskrán-
ingar, svo sem víðast er.
Þrettán þingmenn greiddu at-
kvæði með breytingunni: Karl
Steinar Guðnason (A/Rn), Danfríð-
ur Skarphéðinsdóttir (Kvl/Vl) Eiður
Guðnason (A/Vl), Jón Magnússon
(S/Rvk), Guðrún Agnarsdóttir
(Kvl/Rvk), Halldór Asgrímsson
(F/Al), Jóhann Einvarðsson (F/Rn),
Jón Helgason (F/Sl), Bjöm Gíslason
(A/Vf), Margrét Frímannsdóttir
(Abl/Sl), Stefán Guðmundsson
(F/Nv), Svavar Gestsson (Abl/Rvk)
og Valgerður Sverrisdóttir (F/Ne).
Þrfr þingmenn greiddu mótat-
kvæði: Halldór Blöndal (S/Ne), Júl-
íus Sólnes (B/Rn) og Skúli Alexand-
ersson (Abl/Vl).
Egill Jónsson (S/Al) sat hjá sem
og Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S/Vf).
Fjarverandi vóru Guðmundur
Ágústsson (B/Rvk), Guðmundur
H. Garðarsson (S/Rvk) og Salome
Þorkelsdóttir (S/Rn).