Morgunblaðið - 06.05.1988, Side 62

Morgunblaðið - 06.05.1988, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988 HANDKNATTLEIKUR/V-ÞÝSKALAND íslendingar hafa kom- iðv séð og sigrað íslenskir handknattleiksmenn verða alltaf eftirsóttir í V-Þýskalandi „ÞAÐ er öruggt að ef við höld- um aftur út til að leika hand- knattleik, þá komum við aftur hingaðtil V-Þýskalands. Hér er handknattleikurinn í hœsta gæðaflokki og hór er leikin harðasta deildarkeppni heims,“ sögðu þeir Alfreð Gíslason og Páll Ólafsson, sem eru á heimleið. Þrír landsliðsmenn, Páll Ólafs- son, Alfreð Gíslason og Sigurð- ur Sveinsson eru á heimlið. Þá get- ur einnig farið svo að Kristján Ara- son komi einnig SigmundurÓ. heim, eða fari til Steinarsson Spánar. Þegar þess- skn,ar ir leikmenn eru famir frá V-Þýska- landi, er Bjami Guðmundsson einn * eftir, en hann leikur með 2. deildar- liðinu Wanne-Eickel. Aðalsteinn Jónsson, Breiðabliki, er á leiðinni til 2. deildarliðsins Schutterwald. Enginn íslendingur verður í sviðs- ljósinu í Bundesligunni, en það er nokkuð sem hefur ekki gerst í mörg ár. Miklir möguleikar em á að Sig- urður, Páll, Kristján og Alfreð snúi afturtil V-Þýskalands. Ef ekki, eiga ungir og efnilegir leikmenn frá Is- landi eftir að feta í fótspor þeirra pg leika í Bundesligunni á næstu ■'árum? „Ég hef trú á því að íslensk- ir leikmenn eiga eftir að leika hand- knattleik í Vestur-Þýskalandi um ókomin ár. Eftir þetta tvö til þrjú ár verða íslenskir leikmenn hér aft- ur í sviðsljósinu," sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, handknattleiksþjálfari í viðtali við Morgunblaðið. V-Þýskaland er draumalandið ■ ' Aí Jóhann Ingl Qunnarsson IIOMH „Vestur-Þýskaland er draumaland handknattleiksmanna. Bundesligan er sterkasta deildarkeppni í heimi. Hér er mörg mjög öflug lið. í öðmm löndum em aftur á móti þetta tvö til þrjú yfírburðarlið og á þeim em landslið byggð uþp. í Sovétnkjun- um er t.d. Minsk algjört yfirburðar- lið, sem hefur aðeins tapað einu til tveimur stigum í vetur. Liðið sem kemur næst á blaði, Moskva, er búið að tapa fjórtán stigum. Hér í Vestur-Þýskalandi geta botnliðin hæglega unnið toppliðin. Sterkustu liðin geta með góðum leik unnið leiki á útivöllum, en þau geta einn- ig tapað öllum leikjum sínum þar. Það er svo margt sem spilar inn í. Hingað koma margir af bestu hand- knattleiksmönnum Póllands, Tékkóslóvakíu, Ungveijalands, Sovétríkjanna, Júgóslavíu, íslands og jafnvel Danmerkur. Ahorfendur fjölmenna á leiki og hér geta t.d. sjö þúsund áhorfendur í JCiel hreinlega ráðið því hvort lið vinni eða tapi með einu marki. Til þess að vinna þar þurfa lið hrein- lega að vera þremur til fimm mörk- um betri en Kiel. Sama er uppi á teningnum á heimavöllum annarra liða,“ sagði Jóhann Ingi. Mikil pressa á útlendlngunum Jóhann Ingi sagði að handknatt- leiksmenn í Vestur-Þýskaiandi séu alltaf undir pressu. „Sérstaklega erlendu leikmennirnir, sem oftast ná fram hagstæðari samningum heldur en innlendir leikmenn. Það gfefur auga leið að frammistaða þeirra hér hefur oftast verið metin í mörkum. Það eru yfirleitt sóttir leikmenn sem geta skorað mörk. Kristján Arason, Alfreð Gíslason og Páll Ólafsson hafa skorað mikið af mörkum. Auk þess eru þeir allir mjög sterkir vamarleikmenn. Sig- urður Sveinsson er ekki eins sterkur vamarleikmaður, en hann vinnur |>að upp með því skora fleiri mörk Kristjén Arason sést hér, annar frá vinstri, fagna sigri með Gummersbach. Páll Ólafsson hafði ekki heppnina með sér undir lokin. heldur en Alfreð, Kristján og Páll. Kröfumar til erlendra leikmanna eru geysilega miklar, en það hefur sýnt sig, að það að vera með íslend- ing í herbúðum sínum, er trygging fyrir að lið nái árangri. Það sést á því að Kristján er V-Þýskalands- meistari með Gummersbach, Páll Ólafsson og félagar hans hjá Dus- seldorf náðu öðru sæti og tryggðu sér rétt til að leika í IHF Evrópu- keppninni. Alfreð og leikmenn Ess- en eru nær öruggir með að vera bikarmeistarar og einnig eiga þeir mikla möguleika á að verða Evrópu- meistarar. íslendingar hafa komið hingað, séð og sigrað. Þeir hafa Slgurður Svelnsson hefur oft fagnað sigri. Hann er einn skot- fastasti leikmaður V-Þýskalands. orðið vinsælir vegna dugnaðar síns og samviskusemi. Þess má geta, að það hefur til dæmis enginn Júgóslavi eða leik- menn frá Austantjaldslöndunum orðið V-Þýskalandsmeistarar, en aftur á móti hafa fjórir íslenskir leikmenn orðið meistarar. Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson með Dankersen, Alfreð Gíslason með Essen og Kristján Arason með Gummersbach," sagði Jóhann Ingi. „íslendingar veröa alKaf í svlósljósinu hór“ „Þeir leikmenn sem hafa verið að ,lpjka, ,hé,r ,t, Vestur-Þýskalandi á Alfreð Qíslason hefur gert mjög góða hluti hjá Essen, sem á möguleika á að verða bæði bikarmeistari V-Þýskalands og Evrópubikarmeistari. undanfömum árum koma allir úr mjög sterkum árgangi á íslandi. Þannig árgangar koma ekki fra_m nema á sex til tíu ára fresti. Úr þessum árgöngum koma leikmenn til að fara til V-Þýskalands. Mér er sagt að það sé töluvert af ungum og efnilegum strákum heima. Ég hef aðeins séð nokkra af þeim leika. Ef okkur tekst að halda íslenskum handknattleik í eins miklum styrk- leikaflokki og nú er, þá eiga marg- ir ungir leikmenn eftir að koma hingað eftir eitt til tvö ár og leika hér með liðum. Ég tel að strákam- ir heima séu ekki tilbúnir í slaginn hér fyrr en þá. Góðir íslenskir leik- menn eru eftirsóttir í Vestur-Þýska- landi og ég hef trú á því að íslend- ingar eigi alltaf eftir að vera hér í sviðsljósinu. Vestur-Þýskaland er og verður alltaf annað heimaland íslenskra handknattleiksmanna." „OtlendingahersveK11 er hom- stelnn góðs landsllós „Það er mjög sterkt fyrir íslenskan handknattleik að leikmenn séu að leika hér. Ef leikmenn leika aðeins á íslandi, náum við ekki upp sterk- um landsliðum. Það hefur sýnt sig á undanfömum árum að ef við leik- um ekki með svokallaða „útlend- ingahersveit", þá leikum við ekki um efstu sætin í heimsmeistara- keppni eða á OLympíuleikum. Þetta er svipað og með Danina í knatt- spymu. Það vita allir, að án leik- mannanna erlendis hefði íslenska landsliðið ekki náð þeim árangri sem það hefur náð. Ég segi þetta ekki, af því að ég vantreysti leikmönnum sem leika heima. Það er mikið af góðum leik- mönnum heima. Reynslan, sem fylgir því að leika í Bundesligunni, styrkir leikmenn geysilega. Hér er eins og þeir séu að leika landsleiki um hveija helgi. Það verður að vera markmið okkar sem viljum íslenskum handknattleik vel, að hjálpa ungum og efnilegum leikmönnum að komast til útlanda - til að leika í nokkur ár. Síðan snúa leikmennimir heim reynslunni ríkari eins og nú er að gerast. Koma með með nýtt blóð og skila aftur til íslenskra áhorfenda, því sem þeir hafa lært úti. Þessi hringrás verður að halda áfram, ef við ætlum okkur að eiga áfram landslið á heimsmælihvarða," sagði Jóhann Ingi. i-. t» . i).... i i.i iit-í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.