Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
Organistanámskeið í Skálholti:
Ætlað tál eflingar tón-
listarlífi safnaðanna
- segir Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri
Haukur Dór myndlistarmaður.
Nýhöfn:
Listamannalaunum
úthlutað í Kópavogi
LISTAMANNALAUNUM var
úthlutað í annað sinn þann 11.
maí s.l. á 33 ára afmæli Kópa-
vogskaupstaðar. Einnig var út-
hlutað sérstökum heiðurslaun-
um sem veitt eru þegar ástæða
þykir til.
Starfslaun listamanns komu í
hlut Ingibergs Magnússonar
myndlistarmanns. Hann er kunnur
grafíklistamaður og hefur nýverið
haldið sýningu í Gallerí Gangskör.
Ingiberg nam í Myndlista- og
handíðaskólanum árin 1965-1970
og hefur haldið 12 einkasýningar.
Einnig hefur hann haldið sýning-
ar, aðallega á grafíkverkum, í
Oðinsvéum og Stokkhólmi og tek-
ið þátt í samsýningum víða erlend-
is.
I fyrra, er starfslaunum var út-
hlutað í fyrsta sinn, deildu tveir
listamenn með sér laununum.þeir
Björgvin Pálsson ljósmyndari og
Björgvin Gylfí Snorrason mynd-
listarmaður.
Þá voru að þessu sinni einnig
veitt sérstök heiðursverðlaun að
upphæð 250.000 kr. og þau hlaut
Bjöm Guðjónsson tónlistarkenn-
ari. Bjöm er kunnur fyrir braut-
ryðjendastarf í tónlistarmálum
Kópavogsbúa og hefur um áratuga
skeið stjómað Skólahljómsveit
Kópavogs.
Ingiberg Magnússon listamaður Kópavogs 1988.
Björn Guðjónsson hljómsveitar-
stjóri sem hlaut heiðursverðlaun
Kópavogskaupstaðar.
NÁMSKEIÐ fyrir organista og
kórfólk í kirkjum landsins verður
haldið í Skálholti dagana 3. til
12. júní næstkomandi. Það er
söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar,
Haukur Guðlaugsson, sem ber
hitann og þungann af skipulagn-
ingu og stjórn námskeiðsins, sem
verið hefur árlegur viðburður
undanfarin ár.
„Þetta námskeið er einkum til
þess ætlað að efla tónlistarlíf safn-
aðanna út um landið," sagði Hauk-
ur. „Þetta er í fjórtánda sinn sem
ég held námskeið af þessu tagi og
þau hafa gefist afar vel. Af um 180
organistum á landinu hafa um 70
mætt að jafnaði á þessi námskeið
og mikið hefur líka mætt af kór-
fólki, þannig að um 300 manns
hafa verið í Skálholti þegar mest
hefur verið."
Á námskeiðinu verða kenndar
nokkrar sameiginlegar námsgrein-
ar, litúrgía, kórsöngur, tónfræði,
tónheym og kórstjóm, bæði fyrir
byrjendur og lengra komna. í eink-
atímum verður svo kenndur píanó-
leikur, orgelleikur, söngur og sam-
leikur. Fyrri hluti námskeiðsins,
sem stendur frá 3. til 9. júní, er
einkum ætlaður organistum og ein-
söngvurum. Kórþáttur námskeiðs-
ins, sem ætlaður er kórfélögum,
hefst hins vegar 9. júní.
Meðal kennara á námskeiðinu
verða Guðrún Tómasdóttir, Glúmur
Gylfason, Jónas Ingimundarson,
Reynir Jónasson, Fríða Lárusdóttir,
Halldór Vilhelmsson, Ingibjörg Þor-
steinsdóttir, Bjöm Steinar Sól-
bergsson og Haukur Guðlaugsson.
Einnig mun prófessor Gerard Dic-
kel frá Tónlistarháskólanum í Ham-
borg halda þriggja daga námskeið
í orgelleik fyrir lengra komna í
Selfosskirkju. Dickel verður einnig
dómari í keppni í leik sálmalaga.
Keppendur munu leika sálminn Vor
Guð er borg á bjargi traust og að
auki tvö sálmalög að eigin vali.
Að sögn Hauks Guðlaugssonar
eru námsgreinamar miðaðar við
prófverkefni í 1. áfanga orgelleik-
araprófs. „Mér er ákaflega um-
hugað að koma námsefninu, sem
við kennum á þessu námskeiði, inn
í alla tónlistarskóla á landinu,"
sagði Haukur og sagðist telja að
slíkt yrði tónlistarlífí kirkjunnar
tvímælalaust lyftistöng.
Meðan á námskeiðinu stendur
verður tónleikahald á hveiju kvöldi
í Skálholtskirkju. Flytjendur verða
þátttakendur á'námskeiðinu og
kirkjukórar úr Ámesprófastsdæmi.
Einnig munu þeir Gerard Dickel og
Ulrich Böhme, organisti Tómasar-
kirkjunnar í Leipzig, leika á orgel
kirkjunnar. Að sögn Hauks verða
tónleikar þessir öllum opnir.
Haukur Guðlaugsson sagði að
upplýsingar um námskeiðið hefðu
verið sendar öllum organistum á
landinu og kórfélagar gætu haft
samband við þá ef þeir hefðu áhuga
á námskeiðinu. Þátttakendur munu
gista í Skálholtsskóla og sumarbúð-
unum í Skálholti.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Nýjar kirkjuklukkur verða vígðar á Seltjarnamesi á hvítasunnudag.
Kírkjuklukkur vígð-
ar á Selljarnarnesi
HÁTÍÐAHÖLD verða í Sehjam-
ameskirkju á hvítasunnudag,
þann 22. mai nk. Við hátiðaguðs-
þjónustu sem hefst kl. 14 verða
nýjar kirkjuklukkur vígðar, sem
komið hefur verið fyrir í
klukknaportinu við kirkjuna.
Klukkumar, sem em þijár, em
smíðaðar í Bretlandi og era gjafir
frá einstaklingum og félagasamtök-
um á Seltjamamesi, en um gefend-
ur klukknanna verður nánar til-
kynnt við vígsluna. Söfnuðurinn
gleðst við hvem nýjan áfanga við
kirkjubygginguna, en klukkur sem
kalla fólk til guðsþjónustu em þar
afar mikilvægur þáttur.
Við guðsþjónustuna mun Elísa-
bet F. Eiríksdóttir syngja stólvers
eftir Stefán frá Hvítadal og Selmu
Kaldalóns, organisti verður Sig-
hvatur Jónasson, en sóknarprestur-
inn Solveig Lára Guðmundsdóttir
predikar og þjónar fyrir altari.
Sóknarnefnd
Morgunb!aðið/Ámi Sæberg
Haukur Guðlaugsson söngmála-
stjóri með námsefnið, sem kennt
verður á námskeiðinu.
Gigtarfélag íslands:
Giglin er dýrasti
sjúkdómur á Islandi
Haukur Dór sýnir
HAUKUR Dór opnar sýningu í
Listasalnum Nýhöfn, Hafnar-
stræti 18, laugardaginn 21. maí
kl. 14.00.
Á sýningunni verða teikningar
og málverk unnin á pappír og striga
á síðastliðnum tveimur ámm.
Haukur Dór er fæddur í
Reykjavík árið 1940. Hann stund-
aði nám við Myndlistaskólann í
Reykjavík 1958—1'62. Frá
1962—’64 var hann við nám í The
Edinborough College of Art og við
Kunstakademiet í Kaupmannahöfn
frá 1965—’67.
Trúlega er Haukur Dór þekktast-
ur fyrir leirverk sín, en að eigin
sögn segist hann hafí sagt skilið
við leirinn og hefur snúið sér ein-
göngu og að málun og teikningu.
Hann er nú búsettur í Danmörku.
Sýningin, sem er sölusýning, er
opin virka daga frá kl. 10.00—18.00
og um hvítasunnuna og helgar frá
kl. 14.00—18.00. Hún stendur til
1. júní (Fréttatilkynning)
NÝKJÖRIN stjóm Gigtarfélags
íslands hefur sett fram kröfu um
að heildarskipulagi verði komið
á læknisþjónustu við gigtsjúka
hér á landi. Gigtin er skæð og
veldur örkumlum en sjaldan
dauða. Gigtin er dýrasti sjúk-
dómur á Islandi en um leið sá
afskiptasti í heilbrigðiskerfinu
að mati Jóns Þorsteinssonar yfir-
læknis, formanns Gigtarfélags
íslands.
Talið er að gigtsjúkir í landinu
séu ekki undir fímmtíu þúsundum
en félagar í Gigtarfélagi Islands era
2.200 talsins. „Allur þessi fjöldi
þjáist á einn eða annan hátt dag
hvem. Vinnutapið er gífurlegt og
örorkubætur og sjúkrapeningar
sem gigtveikir fá em margfalt
meiri en það fé sem veitt er til gigt-
lækninga. Krafa nýlqörinnar stjóm-
ar er því sú að komið verði á heildar-
skipulagi gigtlækninga hér á landi,
svo færri þjáist og skattpeningar
sparist," sagði Jón.
Undir forystu Sveins Indriðason-
ar hefur Gigtarfélag íslands reist
gigtlækningastöð við Ármúla 5 í
Reykjavík. Þar starfa nú fjórir
sjúkraþjálfarar, tveir iðjuþjálfarar
og þrír gigtlæknar sem veita sjúkl-
'ingum móttöku. „í gigtlækninga-
stöðinni er unnið mikið og gott
starf, en það er aðeins hluti af heil-
sugæslu gigtsjúkra, sem verður að
auka og bæta. Og að því stefnir
nýkjörin stjóm," sagði Jón.
Stjómina skipa, auk Jóns, Sigríð-
ur Gísladóttir sjúkraþjálfari, vara-
formaður, Arinbjöm Kolbeinsson
fyrrv. yfirlæknir, ritari, Sigurður
H. Ólafsson kaupmaður, gjaldkeri,
Sveinn Indriðason forstjóri, Ámi J.
Geirsson læknir, Guðbjörg Eiríks-
dóttir skrifstofumaður, Ingibjörg
Pétursdóttir hjúkmnarfræðingur,
Kristján Steinsson læknir og Sigur-
þór Margeirsson forstjóri.