Morgunblaðið - 20.05.1988, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
13
„Þetta er eins
og nýtt skip“
- Segja eigendur eftir breyt-
ingarnar á Vestmannaey
FYRSTA skuttogara Vestmannaeyja, Vestmannaey VE 54, hefur
verið breytt í frystitogara og er fyrsta skip þeirrar gerðar í flota
Vestmannaeyinga. „Þetta er eins og nýtt skip og það þekkir það
enginn sem gamla skipið. Það er búið að endurbyggja það gjörsam-
lega,“ sagði Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins
Bergs - Hugins sf sem er eigandi skipsins. Unnið er að því að setja
frystibúnað í skipið á Akureyri og gert er ráð fyrir að það fari að
því loknu til veiða í júlí.
Vestmannaey kom fyrst til lands-
ins 1973 og var þá einn af fyrstu
skuttogurum landsins. Skipið hefur
alla tíð reynst mjög vel og er það
ein af ástæðunum fyrir endurbótun-
um sem gerðar voru. Aflinn verður
fullunninn um borð og sendur á
markað beint frá borði. Gert er ráð
fyrir að 25 manns verði í áhöfn
skipsins.
Að sögn Magnúsar Kristinssonar
tókst endurbyggingin mjög vel.
Skipið var lengt, ný brú sett á það
og stór hluti skrokksins endumýjað-
ur. Skipt var um vél, gír, nýr
skrúfubúnaður settur í það og ljósa-
vél yfírfarin. Öll spil nema togspilið
eru ný en það yfírfarið og endur-
bætt. Jafnframt voru ýmis tæki í
brúnni endumýjuð og nýr krani
settur á skipið.
Kristinn Pálsson stjórnarfor-
maður Bergs - Hugins sf, Eyjólf-
ur Pétursson skipstjóri, Halldór
Waagfjörd yfirvélsljóri og Magn-
ús Kristinsson framkvæmda-
stjóri Bergs - Hugins sf.
Vestmannaey reyndist mjög vel
á heimleiðinni og er ganghraðinn
13 sjómflur. Með öllum breytingum
og búnaði kostar endurbyggingin-
um 200 milljónir.
Vestmannaey kemur til hafnar i Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Er sumarið komið?
Kieppjárnsreykjum.
ER sumarið komið? Sú spurning
vaknaði þegar vind lægði og
hlýnaði undir húsvegg nú um
daginn. Tómatuppskeran er að
aukast með hveijum degi og verð
lækkar til hagsbóta fyrir neyt-
endur.
Sauðburður er seinna á ferðinni
en í fyrra. Ástæðan fyrir því er að
bændur hleypa seinna til ánna og
þykir það nokkur kostur þegar
hægt gróir á vorin. Magnús Magn-
ússon bóndi í Birkihlíð sagði að
sauðburður hefði gengið vel og
væri mikið tvflembt. Þykir það mik-
ill kostur, þá yrðu lömbin minni og
færu færri í O-flokk í haust. Það
er af sem áður var — það sem er
kostur í dag þótti ókostur hér áður
fyrr.
En það er komið vor í unga fólk-
ið líka. Flestir unglingar eru búnir
að fá sér sumarstarf ýmist við garð-
yrkju eða annan landbúnað. Ekki
er um auðugan garð að gresja í
atvinnumálum unglinga hér í sveit.
Um helgina ætlar Ungmennafélag
Reykdæla að halda dansleik á föstu-
dags- og sunnudagskvöld og fá til
liðs við sig hljómsveitimar Villing-
ana og Jámkarlana. Verður áreið-
anlega mikið ijör hjá unglingunum
undir stjóm þeirra félaga Eiríks
Haukssonar og Bjartmars Guð-
laugssonar.
- Bernhard
TONLISTINI HAGKAUP
Já, þegar tónlist er annarsvegar, þá máttu vita að
Hagkaup er með á nótunum við leggjum okkur fram í
að eiga ávallt til allar toppplöturnar á hverjum tíma.
Gríptu með þín uppáhalds tónlist þegar þú gerir helgar-
innkaupin í Hagkaup.
Tl LBOÐSVERÐ
1. AHA - STAY ON THESE ROADS ..kr. 729.- *
2. PREFAB SPROUT - FROM LANGLEY PARK ..kr. 729.- *
3. JOHNNY HATESJAZZ-TURN BACKTHECLOCKkr. 729,- *
4. PRINCE - LOVESEXY ..kr. 729,- *
5. BROS-PUSH ..kr. 729,- *
6. IRON MAIDEN - SEVENTH SON ..kr. 729,- *
7.. OMD-BEST OF ..kr. 729.- *
8. INXS-KICK ...kr. 729.- *
9. MANNAKORN - BRÆÐRABANDALAGIÐ ...kr. 979.- *
10. FLEETWOOD MAC-TANGOIN THE NIGHT ...kr. 729.- *
11. SADE-STRONGER ...kr. 729,- *
12. ROBBIE ROBERTSON - ROBBIE ROBERTSON.. ...kr. 729,- *
13. GEORGE MICHAEL- FAITH ....kr. 729. *
14. NOWII-(safnplata) ....kr. 1.179.-*
15. COCK ROBIN - AFTER HERE THROUGH ...kr. 729,- *
16. T'PAU - BRIDGE OF SPIES ...kr. 729,- *
17. ÞÚ OG ÞEIR - ÚR SÖNGVAKEPPNI ...kr. 799.- *
18. DAVID LEE ROTH - SKYSCRAPER ...kr. 729.-*
19. LABAMBA-ÚRMYND ...kr. 729,- *
20. DIRTY DANCING - ÚR MYND ...kr. 729.-*
* ATH. Ollverðerufyrirgengisbreytinguoggildirumeldribirgð- ir. Verð hækka efum n viar sendinaar er að ræða.
GRAND PRIX -’88
Öll lögin úr Eurovision söngvakeppninni á plötu eða
geisladisk. Meira en klukkustund af bráðskemmti-
legri tónlist og við gerum þér tilboð sem þú getur
ekki hafnað:
LP hljómplata kr. 599.-
Geisladiskur kr. 999.- *
TUboðlð irarirmeðan birgðir endast.
* Aðolns íKringlunnl og Skelfunnl