Morgunblaðið - 20.05.1988, Síða 15
Rafiðnaðarsam
bandið:
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
15
Gengisfell-
ingu mótmælt
SAMBANDSSTJÓRN Rafiðnað-
arsambands íslands hefur sent
frá sér eftirfarandi ályktun um
kjaramál í tilefni nýlegrar geng-
isfellingar.
Fundur fullskipaðrar sambands-
stjómar Rafiðnaðarsambands ís-
lands, haldinn á Selfossi 13.-14.
maí 1988, mótmælir harðlega þeirri
gengisfellingu sem ríkisstjómin
hefur ákveðið.
Fundurinn lýsir fyllsta stuðningi
við ályktun formannafundar lands-
sambanda innan ASÍ frá 13. maí sl.
Fundurinn hvetur verkalýðs-
hreyfinguna til órofa samstöðu
gegn öllum hugmyndum um að rýra
kjör verkafólks. Jafnframt vara raf-
iðnaðarmenn við áformum um að
skerða samningsrétt verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Ennfremur lýsir fundurinn full-
um stuðningi við starfsfólk Álvers-
ins í Straumsvík í kjarabaráttu þess.
Fundurinn felur miðstjóm R.S.Í.
að fylgjast með þróun mála næstu
daga og móta afstöðu R.S.Í. til
aðgerða stjómvalda þegar þær
liggja fyrir.
Vinnueftirlitið:
Leiðbeininga-
rit um starfs-
mannarými
VINNUEFTIRLIT ríkisins hefur
gefið út nýtt hefti í röð fræðslu-
rita sem nefnist „Starfsmanna-
rými. Leiðbeiningar um hönnun
og fyrirkomulag. Reglur um hús-
næði vinnustaða." Tilgangurinn
með útgáfunni er sá að auðvelda
þeim, sem þurfa að bæta og end-
urnýja starfsmannarými, það
verk. Einnig á ritið að auðvelda
arkitektum og öðrum er vinna
við að skipuleggja atvinnuhús-
næði hönnun starfsmannarýmis.
Tilefni þess að Vinnueftirlitið
gefur út þetta leiðbeiningarit er
gildistaka endurskoðaðra reglna um
húsnæði vinnustaða 1. maí síðast-
liðinn og em reglumar birtar í heild
í bæklingnum.
Lög um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum gera viss-
ar kröfur til starfsmannarýmis og
hefur Vinnueftirlitið eftirlit með því
að þeim, ásamt reglum þeim tengd-
um, sé framfylgt. Hugtakið starfs-
mannarými nær yfir ýmis konar
aðstöðu starfsfólks eins og Mat- og
kaffistofur, búningsherbergi, sal-
emi og fleira.
Teikningar af nýju atvinnuhús-
næði og verulegum breytingum á
eldra húsnæði skal leggja fyrir
Vinnueftirlitið til umsagnar og er
einn þáttur þeirrar umsagnar að
yfirfara hvort gert sé ráð fyrir fúll-
nægjandi starfsmannarými.
Búnaðarsamband
Suðurlands:
Afmælisferð
til Noregs
Selfossi.
Búnaðarsamband Suðurlands
efnir til bændaferðar til Noregs
í júní f tilefni af 80 ára afmæli
sambandsins. Níutfu manns fara
í bændaferðina og er uppselt í
hana.
Sunnlensku bændumir fara með
leiguflugi til Bodo 12. júní og heim
aftur 19. júní. Nokkur sæti era laus
með leigufluginu, samkvæmt upp-
lýsingum Búnaðarsambandsins, og
geta þeir sem áhuga hafa haft sam-
band við Einar Þorsteinsson í Sól-
heimahjáleigu í Mýrdal.
Sig.Jóns.
I
nordmende
14" Nordmende 3604
litsjónvarpstækið er
með fullkomna fjar-
stýringu, inniloftnet,
tengingu fyrir heyrnar-
tól og að sjálfsögðu
frábær myndgæði í
öllum regnbogans lit-
um.
Sjónvarpið tengist
beint í 220 Volt eða við
12 Volta geymi með
spanspenni.
Hann kostar 3.980,-
(keyptur með sjón-
varpi, en 4.980,- sér).
Alm. verð á 14" sjón-
varpinu er 27.400,- en
Við bjóðum auðvitað
Visa raðgreiðslur og
Eurokredit greiðslu-
kjör, sem sagt ekkert út
og restin á allt að 11 til
12 mánuðum.
BILLINN
2. tbl. 1988
I
Reynsluakstur: Nýr BMW520i
og Lada Samara 1500.
- Hvernig á að ve/ja jeppa?
- Eðalvagnar í Ólafsfirði.
- Glæsilegustu
sýningarbílarnir.
- Verðskráin:
Nú erað grípa
gæsina.
REYNSLUAKSTUR
*\9
Frjáktframtak
Armúla 18,108 Reykjavfk
Aðalskrifstofur: Ármúla 18 — Slmi 82300
Ritsljóm: BikJshöfða 18 - Slmi 685380