Morgunblaðið - 20.05.1988, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
hefur verið látið heita. Þetta er
hrein fásinna. Þessi fyrirtæki eru
öll löglega stofnuð, löglega skráð
og löglega starfandi — auk þess sem
rekstur þeirra allra gengur vel, en
þau hafa haslað sér nýjan og sjálf-
stæðan tilveru- og rekstursgrund-
völl, hvert um sig, eins og áður
greinir — og verður því ekki við
þeim hróflað.
Þá hefur því verið haldið fram,
að búið væri að gera riftunarkröf-
ur, hvað varðar kaupsamninga milli
hinna þriggja nýju NESCO-fyrir-
tækja, annars vegar, og NESCO
Manufacturing, hins vegar. Það
rétta í þessu er, að
NESCO-Kringlan gerði aldrei neinn
kaupsamning við NESCO Manufac-
turing, heldur gekk það fyrirtæki
inn í kvaðir og skuldbindingar
NESCO Manufacturing um verzl-
unarrekstur í Kringlunni, sem
NESCO Manufacturing hafði ekki
bolmagn til að standa við, og losaði
NESCO Manufacturing undan
þeim. Þar er því engum kaupsamn-
ingi fyrir að fara né hægt að rifta.
Varðandi kaupsamninga milli
NESCO-Laugavegs og NESCO-
Xenon iðnfyrirtækis og NESCO
Manufacturing, þá hefur engin
formleg riftunarkrafa komið fram,
a.m.k. ekki enn sem komið er. Hvor-
ugt þessara nýju félaga keypti
umtalsverðar áþreifanlegar eignir
af NESCO Manufacturing, heldur
fyrst og fremst „viðskiptasambönd
og viðskiptavild". Ráðstafaði undir-
ritaður málum þó svo, að fyrir þessi
„viðskiptasambönd og viðskipta-
vild“ skyldu NESCO-Laugavegur
og NESCO-Xenon iðnfyrirtæki
greiða háar fjárhæðir, jafnvel óeðli-
lega og óhæfilega háar, enda hefur
enginn sem til þekkir, haldið því
fram, að um undirverð eða undan-
skot eigna hafi verið að ræða í við-
skiptum þessum. Var þetta m.a.
gert til að reyna að tryggja, að við-
skilnaður NESCO Manufacturing
yrði sem skástur, eins til að reyna
að tryggja frið um þessa endur-
skipulagningu. Það sanna og rétta
er þó, að fyrir þessi „viðskiptasam-
bönd“ hefði undirritaður aldrei
þurft að greiða neitt, því þau tengj-
ast órjúfanlega persónu undirritaðs
og helztu samheija hans, og verða
því, í raun, hvorki seld né keypt.
Og um „viðskiptavildina" má vitna
í elzta son minn, sem nú er fram-
kvæmdastjóri NESCO-Laugavegs,
en hann sagði á dögunum; „Innan-
Iandsrekstur NESCO Manufactur-
ing var hruninn, þegar við yfirtók-
um hann, og við höfum þurft að
byggja okkur upp nýjan og sjálf-
stæðan eigin grundvöll. Og, hafi
ég verið að kaupa viðskiptavild af
NESCO Manufacturing í fyrra, þá
hefur hún nú snúizt í andhverfu
sína.“ Friður hefur nefnilega enginn
haldizt, en ástæða þess er sú, að
helztu kröfuhafar — nokkrir fulltrú-
ar ríkisvaldsins og embættismenn
— komu saman í lok febrúar og
ákváðu, að krefjast skyldi riftunar
á kaupsamningum milli NESCO-
Laugavegs og NESCO-Xenon iðn-
fyrirtækis og NESCO Manufactur-
ing, eða hótuðu því a.m.k. Var
meiningin með þessu varla sú, að
reyna að bæta stöðu búsins — ég
hygg, að skiptastjóri, sem hefur
unnið störf sín að kostgæfni og
heiðarleika, hafi gert mönnum grein
fyrir því, að engin efni stæðu til
þess — heldur, væntanlega, að vega
að undirrituðum og hinum nýju
NESCO-fyrirtækjum, en kröfuhaf-
ar þessir virðast ekki hafa getað
unað því, að umrædd uppstokkun
og endurskipulagning NESCO
Manufacturing hafí tekizt, og, allra
sízt, að undirritaður standi enn
uppréttur og í fætuma, slíkt gæti
verið „hættulegt fordæmi". Virðist
hér engu skipta, að eignatjón undir-
ritaðs og félaga hans af gjaldþroti
NESCO Manufacturing hafí orðið
gífurlegt — eitthvert mesta tjón
einstaklinga af gjaldþroti hlutafé-
lags hin síðari ár — en hvergi var
reynt að skýla sér bak við hlutafé-
lagsformið. Hótun þessi hafði þó
lítil áhrif, og það næsta, sem gerð-
ist, var, að frétt um riftunarkröfuna
birtist í Helgarpóstinum, í heldur
illyrmislegri útgáfu, og var bál tor-
tryggni og efasemda þannig tendr-
að gegn undirrituðum og nýju
NESCO-fyrirtækjunum. Sá friður,
sem kaupa átti dýrum dómum, er
því lítill orðinn og lítið fyrir hann
gefandi. Það skal sérstaklega tekið
fram, að á fundi með þremur máls-
metandi hæstaréttarlögmönnum og
sérfróðum lögfræðingi um félaga-
rétt, sem undirritaður hélt nýverið,
var niðurstaðan sú, að ekki yrði
séð, að fullnaðarriftun umræddra
kaupsamninga myndi nokkuð um-
talsverð áhrif hafa á stöðu eða
möguleika hinna nýju NESCO-fyr-
irtækja, og væri því skynsamleg-
ast, að fallast á riftunarkröfu bús-
ins, yrði hún sett fram. Það er því
rétt, að aðilar „beggja vegna borðs-
ins“ hugleiði nú riftunarmöguleika
á kaupsamningum þessum.
Loks er því haldið fram, að til
standi, að krefjast riftunar á sölu
hlutabréfa í NESCO-Laugavegi og
NESCO-Kringlunni, en NESCO
Manufacturing neyddist til að selja
hlutafjáreign sína í þessum nýju
félögum nokkru eftir stofnun
þeirra. Annars vegar kom það til,
að NESCO Manufacturing gat ekki
staðið við greiðsluskuldbindingar
sínar vegna hlutafjárkaupa í
NESCO-Kringlunni, og hótaði við-
skiptabanki fyrirtækisins þá, að
höggva á alla fyrirgreiðslu og þjón-
ustu við það, yrði ekki úr því bætt
í skyndingi (sem var gert með sölu
bréfanna og yfírtöku nýs aðila, sem
bankinn gat sætt sig við, á viðkom-
andi skuldbindingum), og, hins veg-
ar, að auglýsingaaðilar og fjölmiðl-
ar settu öll NESCO-fyrirtækin í
auglýsingabann vegna vanskila
NESCO Manufacturing í fyrra-
haust, sem verið hefði getað bana-
biti þeirra allra, en m.a. til að leysa
þann hnút varð hlutabréfaeign
NESCO Manufacturing í NESCO-
Laugavegi seld. Var hlutabréfaeigri
NESCO Manufacturing í báðum
félögum seld á nafnverði og fékkst
fullt endurgjald fyrir. Til að skapa
riftunargrundvölí eða grundvöll fyr-
ir kröfu um hærra söluverð, hvað
varðar þessar ráðstafanir, þyrfti bú
NESCO Manufacturing að sýna
fram á eða sanna, að verðgildi
umræddra hlutabréfa hafi aukizt á
þeim fáu vikum, sem liðu frá því
að nýju fyrirtækin voru stofnuð þar
til bréfin voru seld, en ekki er auð-
hlaupið að slíku, því miklu rökrétt-
ara er að álykta, að verðgildi hluta-
bréfanna hafí fallið verulega, slík
var neyðarstaðan, sem fyrirtækin
voru komin í, enda var það ekki
fyrir eftirgangsmuni kaupanda
bréfanna, sem þau voru seld.
6. Hin hliðin
Það er kunnara en frá þurfí að
segja, að íslendingar hafa þurft að
sæta hærra verðlagi á erlendum
aðföngum sínum og innflutningi en
aðrar þjóðir. Má kannski segja, að
þetta sé stærsta einstaka vandamál
og úrlausnarefni landsmanna, en
yfírverð til íslands hefur numið allt
að 20—30%. Með alþjóðlegu starfí
sínu gat NESCO Manufacturing
rofið þennan vítahring á sínu .vöru-
sviði og miðlað vamingi til landsins
á lágu alþjóðlegu verðlagi. Þetta
knúði síðan keppinauta fyrirtækis-
ins hér til að kreíja umbjóðendur
sína um lægra verð og leita nýrra
og hagstæðari innkaupaleiða, til að
halda velli, og er ljóst, að fyrir til-
stuðlan NESCO Manufacturing er
verðlag heimilisrafeindatækja hér
nú 10—20% lægra en ella. íslenzki
heimilisrafeindatækjamarkaðurin
er af stærðargráðunni 12—1.500
milljónir króna á ári, í smásöluverð-
mæti, og má því segja, að íslenzkir
neytendur spari sér um 200 milljón-
ir króna á ári vegna starfs NESCO
Manufacturing. Hefur einhver
hugsað út í það?
Höfundur er stjórnarforruaður
NESCO-fyrirtækjanna.
Tekinn á 99
km hraða á
Nýbýlavegi
LÖGREGLAN í Kópavogi stöðv-
aði ökumann, sem ók á 99 km
hraða á Nýbýlavegi á miðviku-
dag. Hann var sviptur ökuleyfi á
staðnum. Á Nýbýlavegi er leyfð-
ur 50 km hámarkshraði.
Alls tók lögreglan í Kópavogi
rúmlega tuttugu ökumenn fyrir of
hraðan akstur í bænum þennan
dag. Auk hraðamælinga var Kópa-
vogslögreglan, ásamt manni frá
Bifreiðaeftirlitinu, að kanna ástand
ökutækja. Reyndust allmargir bflar
vera óskoðaðir og talsverður fjöldi
var enn á nagladekkjum, þrátt fyr-
ir að nær þijár vikur séu liðnar
síðan notkun þeirra varð óleyfileg.
Þá var athyglinni beint sérstaklega
að skellinöðrum og bifhjólum og
reyndist ástand þeirra vera bág-
borið. Að sögn lögreglunnar í Kópa-
vogj verður fylgst vel með umferð-
inni í bænum næstu daga, bæði
með hraðamælingum og einnig
verða ökutæki athuguð.
Heimilisverslim ÍHúsasmiöjunnar
qinar fostudagiim 27.maí...
• • •
« •
• • •
• « • •
• • • •
• . •
* •
• e
* •
rr
r
• • *
■ ® « ■
ÍÞ.
/ c
. •
»
■:
©
dagar þí ngað til við opnum!
Heimilisverslun Húsasmiðji
húsbyggjendur eru eins o|
yjipmar-þar sem
heima hjá sér!
ti
HUSA
SMIÐJAN