Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 33
MQRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
33
„Saga tveggja morða“ ný bók um Rudolf Hess:
Staðgengill Hess var myrt-
ur í Spandau-fangelsinu
Lundúnum, Reuter.
BRESKUR rithöfundur staðhæfði
á miðvikudag að nasistinn og
fyrrum aðstoðarmaður Adolfs
Hitlers, Rudolf Hess, hefði ekki
framið sjálfsmorð í Spandau-
fangelsinu í Berlín á síðasta ári.
Rithöfundurinn heldur þvi fram
að maðurinn sem fannst látinn í
fangelsisklefanum hafi verið
staðgengill Hess sem hafi verið
myrtur til þess að leyna sannleik-
anum.
Rithöfundurinn og skurðlæknir-
inn, Hugh Thomas, skoðaði fangann
í Spandau árið 1973 þegar hann
starfaði á sjúkrahúsi breska hersins
í Berlín. Síðan þá hefur hann stað-
hæft að rangur maður hafi setið í
fangelsinu. „Það er enginn fótur
fyrir þeirri staðhæfingu að fangi
númer sjö, Rudolf Hess, hafi framið
sjálfsmorð í Spandau-fangelsinu 17.
ágúst 1987,“ sagði Thomas í yfirlýs-
ingu á miðvikudaginn. „Þvert á
móti eru sannanir fyrir því að fram-
ið hafi verið morð. Ekkert bendir til
þess að fanginn hafi svipt sig lífi.“
Lögfræðingur Hess-flölskyld-
unnar í Miinchen segist hafa undir
höndum gögn sem sanni að Hess
hafi verið myrtur í Spandau-fangels-
inu. Samkvæmt skýrslu bresku her-
lögreglunnar hengdi Hess, sem hafði
verið eini fanginn í Spandau-fang-
elsi frá því árið 1963, sig í raf-
magnssnúru sem hann hafði bundið
við gluggahespu. Hann var 93 ára.
Tilefni yfirlýsingar Thomas er
útkoma bókar hans um aðstoðar-
mann Hitlers, sem ber heitið „Saga
tveggja morða". í bókinni staðhæfir
Thomas áð Hess hafi verið myrtur
árið 1941 þegar hann kom til Bret-
lands undir yfirskyni friðarviðræðna.
Thomas segir ástæðu morðsins hafi
verið samsæri gegn Hitler sem
Heinrich Himmler hafi staðið á bak
við. Hafí staðgengill Hess verið um
borð í annarri flugvél á sama tíma
og Hess var á leið til Bretlands.
Hess var myrtur en staðgengillinn
fór til Bretlands. Þessu hefur Thom-
as áður lýst í bók sinni „Morðið á
Rudolf Hess“, sem kom út árið 1979.
Síðara morðið segir Thomas hafa
verið framið í Spandau-fangelsinu.
Tilgangur þess var að leyna því að
Rudolf Hess sat ekki í fangelsinu
heldur staðgengill hans. Segir hann
að ef staðgengilliw hefði sloppið úr
fangelsinu hefði komist upp hver
hann var og á það vildu bandamenn
ekki hætta, að sögn Thomas.
Bretar, Bandaríkjsmenn, Frakkar
og Sovétmenn, sem fara með yfir-
stjóm Spandau-fangelsins, hafa lá-
tið yfirlýsingar Thomas sem vind
um eyru þjóta. Sjálfur segir Thomas
að íjölskylda Hess leggi ekki trúnað
á sögu hans.
Alfred Seidl, lögfræðingur Hess-
fjölskyldunnar segir í viðtali við
Reuters-fréttastofuna að sonur
Hess, Wolf-Rudiger, hafi aldrei trú-
að því að faðir hans hafi hengt sig.
„Förin á hálsi hans samræmast eng-
an veginn því að hann hafi hengt
sig. Þau sannfærðu okkur um að
hann hafi verið kyrktur," sagði Seidl.
Hann sagðist hafa beðið bresk yfir-
völd um að fá að sjá rafmagnssnúr-
una sem Hess átti að hafa hengt sig
í. Honum var sagt að snúran hefði
verið eyðilögð og vakti það einnig
grunsemdir fjölskyldunnar.
.
Keuter
Arás á norskt olíuskip
Skipverji á norska olíuskipinu Berge Strand kannar hér skenund-
ir á skipinu eftir árás iranskra byssubáta í gær. Einn úr áhöfn-
inni slasaðist í árásinni sem gerð var í Hormuz-sundi í mynni
Persaflóa. Nú er beðið eftir viðbrögðum Bandaríkjamanna við
árásinni sem og annarri árás sólarhring fyrr á japanskt olíuskip.
Bandaríkjamenn hafa heitið þvi að veija skipaflutninga á Persaf-
lóa fyrir árásum írana ef skipveijar æskja þess.
Izvestía:
Stj órnar hættir bak við
Kremlarmúra upplýstir
Time og The Economist.
Bjórunnendur bera
templarana ofurliði
NÝ LÖG á íslandi sem heimila
bjórsölu eftir rúmlega sjötiu ára
hlé hafa að vonum vakið athygli
erlendis. Vikuritin Time og The
Economist sögðu frá þessum
tiðindum fyrir skemmstu.
Sagt er frá því í Time að nær
árlega undanfarin 73 ár hafi Al-
þingi íslendinga fjallað um bjórmál-
ið. I ár hafi bjórunnendum loks tek-
ist að bera „smáan en háværan hóp
bindindismanna" ofuriiði. Áður
hafði „Jón Helgason, fyrrum dóms-
málaráðherra, helsti talsmaður
þurrksins, lýst því yfir að bjór væri
hættulegur."
Á viðskiptasíðu The Economist
eru afdrif bjórmálsins túlkuð sem
góðar fréttir fyrir tvö brugghús
landsmanna en nú syrti í álinn fyr-
ir framleiðendur létts víns og
sterkra diykkja „sem fengist hafa
löglega árum saman“.
Moskvu, Reuter.
RÍKISSTJÓRN Sovétríkjanna
heldur allsheijarfundi á þriggja
mánaða fresti og kemur þá sam-
an í fölgrænum sal í Kreml, sem
kallaður er sporöskjulaga her-
bergið — líkt og skrifstofa
Bandaríkjaforseta í Washington.
Fundir eru að vísu tíðari meðal
æðstu ráðamanna, því hér ræðir
um fundi ríkisstjómarinnar allr-
ar — meira en 100 ráðherra, for-
stöðumanna æðstu ríkisstofnana
og ef nahagssérf ræðinga. Kemur
þetta fram í grein dagblaðsins
Izvestíu, hins opinbera málgagns
stjóraarinnar, en þess munu ekki
dæmi áður að Sovétþegnar séu
upplýstir um innviði ríkis sins.
Síðasti allsheijarfundur ríkis-
stjómarinnar var settur af Níkolaj
Rýshkov, forsætisráðherra, klukk-
an tíu að morgni. Fyrst var farið
yfir hagtölur og gætt að samræmi
áætlanagerðar og raunverulegs ár-
angurs. Þá var tekið til við að ræða
framboð á matvöru og ýmissi
neysluvöru annarri. Sagði blaðið að
hressilegar umræður hefðu verið á
ríkisstjómarfundinum um þessi
efni, enda stóð fundurinn í sex
klukkustundir.
„Hvemig starfar ríkisstjómin?
Og svo áfram sé spurt: hvar starfar
hún?“ stóð í upphafi greinarinnar
og lýsa þessi upphafsorð nokkuð
fáfræði almennings í Sovétríkjun-
um um stjómarhætti Kremlar-
bænda.
Á fábrotnum tréstólum
í greininni, sem er síðasti ávöxt-
ur glasnost-stefnu Míkhafls Gor-
batsjovs, sagði að stjómin héldi
fundi sína í sömu byggingu og
Lenín, stofnandi Sovétríkjanna, bjó
og starfaði í eftir valdarán komm-
Sakharov-þingið í Amsterdam:
Skiptar skoðanir um tak-
mörk „glasnost“-stefnunnar
Amsterdam. Reuter.
SKIPTAR skoðanir voru um
það á Sakharov-þinginu i Amst-
erdam á fimmtudag, hvort
glasnost-stefna Mikhails Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga mundi
leiða til grundvallarbreytinga á
sovésku þjóðfélagi. Flestir sér-
fræðingar í málefnum Sov-
étríkjanna voru sammála um,
að stefnunni væru skorður sett-
ar og hætta væri á kúvendingu,
ef forystunni þætti stöðu sinni
ógnað.
Nokkrir fyrrverandi sovéskir
andófsmenn sögðu í hringborðs-
umræðum á þinginu, að stjóm-
málakerfið í Sovétríkjunum skorti
um of sveigjanleika til þess, að
umfangsmiklar umbætur ættu
möguleika á að ná fram að ganga.
Sumir vestrænu þátttakendanna
voru bjartsýnni og sögðu, að Gor-
batsjov hefði þegar fengið miklu
áorkað.
Sovéski útlaginn Vladimir
Búkovskíj sagði, að glasnost gæti
gert opinberar umræður möguleg-
ar í Sovétríkjunum um takmark-
aðan tíma, en of margir ættu of
mikilla hagsmuna að gæta innan
valdakerfis kommúnistaflokksins
til að breytingar næðu fram. Hann
taldi, að glasnost væm þröngar
skorður settar.
„Frá hugmyndafræðilegu sjón-
armiði mun forystan aldrei tefla
lenínisma í tvísýnu," sagði
Búkovskíj. „Tímamörkin fara svo
eftir gengi efnahagsumbótanna;
því minni sem ávinningurinn verð-
ur, því fyrr verður dymnum skellt
í lás.“
„Hugmyndafræði flokksins er
ekki eingöngu trúarlegs eðlis,“
sagði Búkovskíj enn fremur, „
heldur eiga 18 milljónir manna
afkomu sína undir henni. Verið
getur, að þeim sé ósárt um, að
lýðræði sé aukið innan flokksins,
en þeir munu aldrei samþykkja,
að um neina valkosti verði að
ræða.“
Breski sagnfræðingurinn John
Barber, sem starfar við háskólann
í Cambridge, var öndverðrar skoð-
unar og sagði, að sovéskir sagn-
fræðingar hefðu aldrei haft eins
mikla möguleika og nú til að halda
fram skoðunum, sem væm gagn-
stæðar opinberri hugmyndafræði.
„Þess sjást greinileg merki, að
gmndvallarbreytingar eiga sér nú
stað,“ sagði Barber. „Hér áður
fyrr markaðí það umræðulok, ef
sovétleiðtogar, t.d. Bukharín eða
Stalín, opinbemðu skoðanir sínar
á einhveiju máli, en nú er því
ekki þannig farið."
En flestir ráðstefnugesta vom
sammála um, að glasnost-stefn-
unni væm takmörk sett. „Við
verðum að muna, hvað frelsi er,“
sagði sovétsérfræðingurinn Vlad-
imir Berelowitsj, sem er kennari
í París. „Það getur ekki kallast
frelsi, þótt flokkurinn leyfi, að
eitthvað sé sagt, sem ekki mátti
segja áður; frelsi felst í því að
vera óháður flokknum."
únista árið 1917. Em ráðherramir
sagðir sitja á fábrotnum tréstólum
við gríðarlegt fundarborð, sem
klætt er grænu áklæði.
Ekki var frá því skýrt hvenær
ríkisstjómin hefði síðast haldið
fund, en fram kom að nokkur fyöldi
fyrrverandi ráðamanna hefði sótt
hann, þar á meðal Níkolaj Baj-
bakov, sem var yfirmaður Gosplan,
áætlanagerðastofnunar Sovétríkj-
anna, á valdadögum Leoníds Brez-
hnevs.
Þá var Boris Jeltsín, sem vikið
var úr stöðu flokksleiðtoga Moskvu
á síðasta ári og um leið ýtt úr
Stjómmálaráðinu (hinni eiginlegu
ríkisstjóm Sovétríkjanna), á fundin-
um, en hann tók nýlega við emb-
ætti fyrsta varaforstöðumanns
Byggingastofnunar Sovétríkjanna.
Annar fyrrverandi stjómmálaráðs-
maður var á fundinum, en það var
Geidar Alíjev, sem sagður var sér-
stakur „ríkisráðgjafi", en Alíjev var
látinn fjúka úr stjómmálaráðinu á
síðasta ári.
Unglegra yfirbragð
Að sögn Ízvestíu er mun ung-
legra yfirbragð yfir þessari ríkis-
stjóm en þeim, sem á undan sátu.
Þá var meðalaldurinn um og yfir
áttrætt og féllu fundarmenn iðulega
í væran svefn, enda fóm fundimir
yfirleitt þannig fram að lesið var
úr hagtölum Sovétríkjanna, en
minna um umræður hvað þá
ákvarðanatöku.
Þeir dagar era fyrir bí segir íz-
vestía og vitnar í harðorðar umræð-
ur ráðherra, sem krefja hver annan
um útskýringar á því hvers vegna
kjötframleiðsla í Úkraínu hefur
dregist saman, af hveiju verksmiðj-
ur í Georgíu skila ekki áætluðum
afköstum og hvers vegna í ósköpun-
um reynst hafi nauðsynlegt að
skammta sykur.
Þá var það týnt til sem dæmi
um að ferskir vindar blási í Kreml,
að ráðherramir ávarpi ekki lengur
forsætisráðherrann: „Hæstvirti for-
sætisráðherra ..." Nú era allir
jafnir og enginn jafnari en annar,
og því láta þeir sér nægja hið gamla
byltingarávarp „Félagi!"