Morgunblaðið - 20.05.1988, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
OPH) í DAG
OGÁKIORGUN
KL. 11-18
Reuter
Hér sjást þrír af 46 síkum sem gáfust upp fyrir indverskri lögreglu
á miðvikudag koma út úr Gullna hofinu. Þar höfðu þeir staðið af
sér umsátur lögreglu í 10 daga.
Punjab:
Látinna
leitaðí
Gullna
hofinu
Amritsar, Reuter.
STARFSMENN Rauða krossins i
Indlandi leituðu i gær i Gullna
hofinu í Amritsar að látnum
mönnum sem kynnu að hafa orð-
ið eftir þar þegar síkarnir sem
höfðust við i hofinu gáfust upp
á miðvikudagsmorgun.
Fjörtíu og sex aðskilnaðarsinnar
síka yfírgáfu helgasta hluta hofsins
að tilmælum lögreglu með hendur
yfír höfði sér. Aðrir þrír gleyptu
eitur og létu lífíð í kómum þar sem
hin helga bók síka er varðveitt.
Tveir féllu fyrir skotum lögreglu
þegar þeir reyndu að flýja.
Farið var með þá sem gáfust upp
í eldhúsbyggingu hofsins og þeir
yfírheyrðir. Talið er að a.m.k.
þijátíu manns hafi látið lífíð á með-
an baráttan stóð um hofíð, þar af
flestir síkar. Indverska lögreglan
segir að enginn úr hennar röðum
hafí fallið. Alls gáfust nærri tvö
hundruð manns upp uns yfir lauk,
þar af 146 á sunnudag. 128 manns
hafa nú verið ákærðir fyrir glæpi
gegn ríkinu.
Noregur:
Sala þungs vatns tii
Rúmeníu rannsökuð
LASSE Seim, talsmaður norska
utanríkisráðuneytisins, sagði í
gær að Norðmenn hefðu hafið
rannsókn á sölu þungs vatns til
Rúmeníu. Norðmenn hafa áður
veriu sakaðir um að hafa flutt
út þungt vatn, sem notað hafi
verið til að framleiða kjarnorku-
sprengjur.
Lasse Seim sagði í samtali við
fréttamann Reuters að Norðmenn
hefðu selt Rúmenum 12,5 tonn af
þungú vatni árið 1986. Vatnið hefði
átt að nota í tveim kjamakljúfum
sem Rúmenar fyrirhuguðu að taka
í notkun sama ár. „En að því er
við komumst næst hafa kjamakljúf-
amir ekki verið teknir í notkun enn
og því hefur verið haldið fram að
vatnið hafí verið selt til ísraels. Við
erum að reyna að komast að því
hvað gerðist."
Síðustu tvö árin hafa farið fram
tvær aðrar rannsóknir á útflutningi
Norðmanna á þungu vatni og tengj-
ast ísrealar annarri þeirra.
Hægt er að nota þungt vatn, sem
myndað er úr súrefni og tvíefni, við
framleiðslu kjamorkuvopna, en það
er einnig notað í kjamakljúfum og
við vísindarannsóknir. Normenn
hafa haft strangt eftirlit með sölu
vatnsins síðan þeir skipuðu sér í
flokk með helstu framleiðendum
þungs vatns á sjötta áratugnum.
Bannað er að endurselja vatnið og
norsk stjómvöld segja að það megi
ekki nota til að framleiða vopn.
Moskvubúar búa sig undir komu Reagans Bandaríkjaforseta:
Holótt breiðstrætin bætt
ÍBÚAR Moskvu reikna með því
að njóta góðs af komu Ronalds
Reagans Bandaríkjaforseta til
Sovétríkjanna þann 29. maí.
Ýmislegt þykir benda til þess að
munaðarvamingur ýmiss konar
verði fáanlegur í verslunum í
borginni þá fjóra daga sem Reag-
an ræðir við Míkhaíl S. Gor-
batsjov Sovétleiðtoga. Hætt er
þó við þvi að varningurinn hverfi
úr hillunum jafnskjótt og erlendu
fréttamennimir, sem verða ekki
færri en 5.000, snúa aftur heim.
Öllu varanlegri verða vegafram-
kvæmdirnar því verkamenn
vinna þessa dagana myrkranna
á milli við að bæta holur í malbik-
inu á þeim götum sem bílalest
Bandaríkjaforseta mun aka um.
Trjám er plantað þar sem því
verður við komið og flokkar
málara fara sem eldur í sinu um
borgina.
Sovéskir verkamenn eru sagðir
fara sér hægt við vinnu sína og
sjáifur hefur Reagan forseti marg-
oft sagt söguna af bílasalanum sem
tjáði viðaskiptavininum að hann
gæti sótt bílinn sem hann hafði
greitt út í hönd eftir tíu ár. „Fyrir
eða eftir hádegi?" spurði viðskipta-
vinurinn. „Hvaða máli skiptir það
þetta verður ekki fyrr en eftir tíu
ár,“ sagði bílasalinn. „Jú, sjáðu til
pípulagningarmaðurinn
koma fyrir hádegi".
„Remont“
Rússneska orðið „remont“, sem
þýðir „endurbætur" í víðtækustu
merkingu þess orðs vekur jafnan
hrylling í huga Sovétborgara því
vaninn er sá að slíkar framkvæmd-
ir taki mörg ár. En sagan sýnir að
flokkar sovéskra verkamanna geta
gert kraftaverk á nokkrum dögum
ef viljinn er fyrir hendi. Þannig var
heilt þorp reist á bökkum Dnjepr
árið 1787 þegar Katrín mikla ákvað
að fara í siglingu niður ána en raun-
ar var aðeins um framhlið „hú-
sanna" að ræða. Þegar Richard
Nixon Bandaríkjaforseti kom til
Moskvu árið 1974 til fundar við
Leoníd Brezhnev var þremur ak-
reinum bætt við Vernadskíj-breið-
götuna á nokkrum dögum og risa-
stórum tijám plantað meðfram
henni. Torgið við Borovitskíj-hliðin
nærri Kreml var einnig endumýjað
frá grunni enda kalla íbúamir það
enn margir hveijir „Nixon-torg“.
Gamlar byggingar á leiðinni frá
flugvellinum vom fyrirvaralaust
rifnar og nýjar reistar svo að segja
samstundis.
Undirbúningurinn nú er svipað-
ur. Vorovskíj-stræti, sem liggur að
byggingV Rithöfundasambands
Sovétríkjanna hefur verið lokað
r á lofti
undanfama daga en þar mun Reag-
an forseti eiga viðræður við sovéska
menningarvita. Því þarf að bæta
götuna auk þess sem sjálft húsið
þykir tæpast höfðingjum bjóðandi.
Reagan mun að auki ræða við ráða-
menn innan rússnesku réttrúnaðar-
kirkjunnar í Danilov-klaustri, sem
verið hefur í „endurbyggingu" að
því er sagt er undanfarin sex ár
en hefur nú verið opnað á ný. Hugs-
anlegt er að Nancy Reagan heim-
sæki skóla einn við Kropotkin-
stræti og glöddust nemendumir
mjög er þeir fengu hálfsmánaðar
leyfí til að unnt yrði að gera endur-
bætur á byggingunni.
Samvinna á Spaso-setri
Reagan-hjónin munu búa á
Spaso-setri, en svo nefnist bústaður
sendiherra Bandaríkjanna í
Moskvu. Þessa dagana vinna
bandarískir málarar að því að fegra
fordyri hússins. Úti í garðinum
hamast sovéskir verkamenn við að
bæta spmngur í veggnum sem ligg-
ur meðfram stígnum upp að bygg-
ingunni.
Ibúar í nágrenni við Vorovskíj-
stræti og Vojevodín-götu horfa öf-
undaraugum á hús nágranna sinna,
sem verið er að dytta að vegna
heimsóknar forsetahjónanna. „Ég
veit að það er verið að gera þetta
vegna komu forsetans," sagði göm-