Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
35
Misheppnað sprengjutilræði í Kuwait:
Sprengja sprakk í
bfl tilræðismanna
Kuwait, Reuter.
TVEIR Kúvætmenn, sem æt-
luðu að koma sprengju fyrir í
bO, létust þegar sprengjan
Bretland:
Pundið
sterkt en
hættaá
ofþenslu
London, Reuter.
SVO virtist f gær sem bresk yfir-
völd væru komin í klfpu vegna
þess hve pundið er sterkt. Nýjar
hagtölur sýna að mikU þensla er
í hagkerfinu og hættan á verð-
bólgu þýðir að ekki er skynsam-
legt að mati sérfræðinga að lækka
vexti frekar en orðið er.
Vaxtalækkun í Bretlandi á þriðju-
dag dró nokkuð úr sókn manna í
pundið og er gengi þess nú komið
niður í 3,17 vestur-þýsk mörk eftir
að hafa verið nærri 3,20 mörkum
fyrr í vikunni, sem er það hæsta sem
gerst hefur í tvö ár. Fyrr á árinu
reyndi breska stjómin að halda gengi
pundsins nærri þremur mörkum en
gekk ekki.
Verðbréf féllu I gær í verði
víðsvegar á flármálamörkuðum
vegna ótta manna við verðbólgu og
vaxtahækkanir. Eins og svo oft þeg-
ar verðbólguhætta vofír yfír jókst
eftirspum eftir gulli og fengust
457,25 dalir fyrir únsuna í London
í gær.
Tölur frá Bandarílqunum um furð-
ulítinn halla á viðskiptum við útlönd
í mars hafa einnig vakið ótta meðal
Bandarílq'amanna um að hagkerfíð
þeirra sé í of ömm vexti.
sprakk í bifreið þeirra í Kuwait
í fyrrakvöld, að því er haft er
eftir talsmanni kúvæska inn-
anríkisráðuneytisins.
Skammt frá þeim stað þar sem
sprengingin varð voru gerðar tvær
sprengjuárásir fyrr í þessum mán-
uði. „Guði sé lof að þeir drápust
við gíæpaiðju sína,“ sagði talsmað-
ur kúvæska innanríkisráðuneytis-
ins í samtali við kúvæsku frétta-
stofuna KUNA.
Kúvæsk dagblöð greindu frá því
að tveir menn í annarri bifreið
hefðu slasast lítilsháttar vegna
sprengingarinnar. Blöðin hafa
sakað herskáa stuðningsmenn Ir-
ana um að bera ábyrgð á fyrri
sprengjutilræðunum í Kuwait, en
kúvæsk stjómvöld styðja íraka í
stríði þeirra við írana. Ekki var
Ijóst í gær hvort mennimir sem
fórust í fyrrakvöld hefðu verið
stuðningsmenn írana.
Reuter
Búningar til að draga úrmetingi
Walter Henry, skólastjóri Burville-bamaskólans í Washington-
borg, ásamt nemendum sínum. Burville-skólinn er einn af þeim
fáu skólum sem hið opinbera rekur í Bandaríkjunum þar sem
nemendum er gert að klæðast skólabúningum, en með þvi vilja
foreldrar.og kennarar barnanna stuðla að sparnaði og draga
úr metingi í fatakaupum.
Fjársvik gyð-
ingaleiðtoga
hneyksla
Tel Aviv. Reuter.
UMFANGSMIKIL fjársvik fyrrum
leiðtoga vestur-þýskra gyðinga,
Wemers Nachmanns, hafa valdið
hneykslan og reiði í Israel, að þvi
er sagði í ritstjórnargrein í óháða,
ísraelska dagblaðinu Maarív í
gær.
ísraelsk blöð hafa mikið fjallað
um mál Nachmanns í þessari viku,
eftir að ljóstrað var upp, að hann
hefði dregið sér 20 milljónir marka,
sem ætluð voru fómarlömbum út-
týmingarbúða nasista, en Nachmann
var aðalleiðtogi vestur-þýska gyð-
ingasambandsins, þar til hann lést í
janúarmánuði síðastliðnum.
„Það er smánarlegt, að gyðinga-
leiðtogi skuli draga sér fé úr opin-
bemm sjóði, en einkum og sér í lagi
sjóði, sem hefur það hlutverk að
styðja eftirlifandi fómarlömb útrým-
ingarbúðanna," sagði í ritstjómar-
greininni.
Nachmann hafði umsjón með fyrr-
nefndum sjóði og færði fé úr honum
inn á einkaviðskiptareikninga sína.
Ekki hafa komið fram neinar
vísbendingar um vitorðsmenn.
Sprenging í sovéskri verksmiðju:
Sovétmenn segja birgða-
byggingu hafa sprungið
Moskvu, Reuter.
GENNADÍJ Gerasímov, talsmað-
ur sovéska utanríkisráðuneytis-
ins, visaði þvi á bug i gær að
sprenging hefði orðið i byggingu
þar sem framleiddir hefðu verið
hreyflar i kjarnorkueldflaugar.
Hann sagðist hafa rætt við for-
mann nefndar sem hefði rann-
sakað sprenginguna i verksmiðju
nálægt Pavlograd 12.. mai og
Moskvuháskóli á Lenínhæðum, sem reistur var á síðari hluta valda-
skeiðs Jósefs Stalins. Einhvers staðar í þessari griðarstóru byggingu
mun Ronald Reagan Bandarikjaforseti ávarpa námsmenn er hann
heldur tíl fundar við Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga um næstu
mánaðamót.
ul kona í spjalli við fréttaritara
Eeuters-fréttastofunnar. „Húsið
mitt verður hins vegar ekki málað
og okkur mun ekki gefast tækifæri
til að sjá hann“. Raunar er það al-
siða í Moskvu líkt og í flestum borg-
um heims að fegra umhverfíð þegar
sumra tekur en afköst vinnuflokk-
anna þykja með ólíkindum. „Þeir
mála allt sem þeir komast yfír og
það er eins gott að standa ekki lengi
kyrr á sama stað,“ sagði eiginkona
bresks sendimanns í Moskvu.
Verður 9ykur
fáanlegfur?
Bill Keller, fréttaritari banda-
ríska dagblaðsins The New York
Times, segir margan Moskvubúann
líta með tilhlökkun til heimsóknar
Reagans forseta því gera megi ráð
fyrir að ófáanlegur munaðarvam-
ingur svo sem sykur komi til með
að vera seldur í verslunum þá fjóra
daga sem forsetahjónin dvelja í
Sovétríkjunum. Sykur er almennt
ekki til sölu í verslunum þar sem
hann er, svo sem alkunna er, ómiss-
andi við heimabruggun en Gor-
batsjov Sovétleiðtogi hefur skorið
upp herör gegn gegndarlausri
áfengisnotkun þegna sinna. Enn er
hins vegar ekki vitað hvort gripið
verður til sambærilegra aðgerða og
árið 1980 er olympíuleikamir fóru
fram í Sovétríkjunum og portkonur
allar voru fluttar á brott úr Moskvu.
Heimildir: Reuter og The New
York Times
fengið þær upplýsingar að tólf
tonn af sprengiefni til iðnaðar-
nota hefðu sprungið i birgða-
byggingu.
Gerasímov var að svara yfírlýs-
ingum talsmanna bandaríska vam-
armálaráðuneytisins, sem sögðu að
eina byggingin þar sem aðalhreyfl-
ar sovéskra SS-24 eldflauga hefðu
verið framleiddir hefði sprungið og
að sprengingin gæti tafíð fram-
Ieiðslu sovéskra eldflauga. „Það var
birgðabygging sem sprakk, ekki
verksmiðjubygging," sagði Ger-
asímov í samtali við fréttamann
Reuters í Moskvu. „Sprengiefnið
sem sprakk var til iðnaðamota."
Þegar hann var spurður um yfír-
lýsingar Bandarfkjamanna um að í
verksmiðjunni í Pavlograd hefði
fast eldsneyti fyrir eldflaugar verið
framleitt svaraði hann: „Ég get
hvorki staðfest né neitað að um
eldflaugaeldsneyti hafí verið að
ræða.“ Gerasímov hafði vísað því
algjörlega á bug á miðvikudag að
sprengingin tengdist eldflaugum
eða eldflaugaeldsneyti.
Bandaríkjamenn byggja stað-
hæfíngar sínar aðallega á myndum
frá gervihnöttum. Þeir segja að
þótt sprengingin gæti tafíð eld-
flaugairamleiðslu Sovétmanna
muni hún ekki hafa alvarlegar af-
leiðingar fyrir kjamorkuherafla
Sovétmanna.
Bretland:
Kosning meðal rafvirkja um
úrsögn úr alþýðusambandinu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari FrímannBsyni, fréttaritara MorgunblaðBÍns.
STJÓRN sambands rafvirkja
ákvað I siðustu viku að leggja
tillögu um úrsögn úr Breska al-
þýðusambandinu fyrir félags-
menn sína. Búist er við, að sam-
band vélvirkja fylgi á eftir. For-
ysta Verkamannaflokksins er
reiðubúin að heimila þessum sam-
böndum áframhaldandi aðild að
flokknum.
Frá því að átök urðu við Wapping
í London, höfuðstöðvum blaðaút-
gáfu Ruperts Murdochs, fyrir rúm-
um tveimur ámm, þegar samband
rafvirkja hafði gert leynilegan
samning við fyrirtæki Murdochs um
að það væri eina viðurkennda verka-
lýðsfélagið við fyrirtækið, hefur ver-
ið djúpstæður ágreiningur innan
bresku verkalýðshreyfíngarinnar
um slíka vinnustaðasamninga.
Stjóm breska alþýðusambandsins
hefur samþykkt vítur á samband
rafvirkja. Það hefur verið ljóst nú
í nokkum tíma, að innan alþýðusam-
bandsins yrðu samþykktar bindandi
reglur, sem kveða á um bann við
slíkum vinnustaðasamningum. í
þeim em yfirleitt sérstök ákvæði
um hvemig fara skuli með ágreining
um kaúp og kjör og ekki viður-
kenndur verkfallsréttur.
Rafvirkjasambandið hefur nýlega
skrifað undir slíkan samning við
japanskt fyrirtæki, og Eric Hamm-
ond, leiðtogi sambandsins, segir, að
hann muni skrifa undir að minnsta
kosti sex slíka samninga, áður en
árið er úti.
í siðustu viku ákvað stjóm sam-
bands rafvirkja að leita eftir heimild
til að segja sig úr breska alþýðusam-
bandinu með því að efna til almennr-
ar atkvæðagreiðslu félagsmanna,
sem em um 360.000. í könnunum,
sem stjómin hefur látið gera fyrr á
árinu, kom fram, að um 85% félag-
anna væm hlynnt úrsögn.
Samband vélvirkja hefur einnig
skrifað undir vinnustaðasamninga
og hefur átt í viðræðum við sam-
band rafvirkja um sameiningu. í því
em um 800.000 félagar. Talið er
líklegt, að vélvirlqar muni efna til
svipaðrar atkvæðagreiðslu.
Samvinna við hófsöm
verkalýðssambönd
Eric Hammond hefur lýst því yfír,
að hann muni leita eftir samvinnu
við ýmis hófsöm verkalýðssambönd
til að stofna annað alþýðusamband.
Þar má nefna vélvirkja; námamenn
í Nottinghamskíri, sem reknir vom
úr námamannasambandi Arthurs
Scargills; samband lögreglumanna
og eitt hjúkrunarfélaganna.
Breska alþýðusambandið á aðild
að Verkamannaflokknum og fer
með þriðjung allra atkvæða á árs-
þingum flokksins, auk þess sem það
leggur mikið fé í flokkssjóðinn. For-
ysta Verkamannaflokksins er reiðu-
búin að heimila samböndum vél-
virkja og rafvirkja aðild að flokkn-
um, þótt þau gangi úr alþýðusam-
bandinu. Þau greiða um 700.000
pund (tæpar 50 millj. kr.) til flokks-
ins á ári.
Gæti riðlað öllum
fjármálaáætlunum
Verkamannaflokksins
Verkamannaflokkurinn hefur
verið að reyna að koma fjármálum
sínum í sæmilegt horf eftir kosn-
ingabaráttuna á síðasta ári, en
flokkurinn var mjög skuldugur eftir
hana. Komi ekki fé frá þessum
tveimur samböndum, gæti það riðl-
að öllum áætlunum. En það eru
ekki eingöngu Qármálin, sem ráða
þessari afstöðu, heldur telur foryst-
an, að þessi tvö sambönd eigi áfram
samleið með flokknum og forysta
þeirra vilji áframhaldandi aðild að
Verkamannaflokknum.