Morgunblaðið - 20.05.1988, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
53
Skólaslit Bænda-
skólans á Hólum
Sauðárkróki.
SKÓLASLIT Bœndaskólans á Hólum fóru fram í íþróttasal skólans
laugardaginn 14. mat stðastliðinn. Er nú brugðið út af áralangri
hefð, að skólasetning og skólaslit fari fram í dómkirkju staðarins, en
á kirkjunni er nú unnið að viðamiklum endurbótum, og því er þessi
háttur á hafður nú.
Athöfnin hófst með því að vígslu-
biskup sr. Sigurður Guðmundsson
ávarpaði gesti og flutti helgistund,
þar sem hann hvatti það unga fólk
sem nú útskrifast til þess að varð-
veita í hjarta sér og viðhalda þeim
vorhug, sem þessa daga fylgir birtu
og ljósi.
Þá söng kirkjukór Hóladóm-
kirkju, en síðan flutti ræðu Jón
Bjamason skólastjóri. í ræðu Jóns
kom fram að Bændaskólinn á Hól-
um er nú tveggja ára skóli og nú
útskrifast á þessu vori 24 nemendur
eftir tveggja vetra nám á tveim
brautum. Af búfræðibraut útskrif-
ast 10, en af fiskeldisbraut 14. Nám
á fyrra ári stunduðu 20 nemendur.
Þá kom einnig fram að enn getur
skólinn tekið við stúdentum sem
með því að taka verklega hluti
námsins í sumar, geta lokið náminu
á styttri tíma eða á einu ári, og í
haust sest í seinni áfanga.
Símenntun, endurmenntun
— nýjung í starfi
bændaskólanna
í Hólaskóla hafa ýmis námskeið
verið í gangi seinnihluta vetrar, og
hefur skólinn í auknum mæli beitt
sér fyrir allskonar námskeiðahaldi,
sérstaklega í nýbúgreinum, loð-
dýra-, fiski- og hrossarækt. Þessi
endurmenntun bænda er nú viður-
kennd á þann hátt, að hið opinbera
greiðir ferða- og uppihaldskostnað
þeirra er þetta nám stunda, og einn-
ig hefur Bændaskólanum verið falið
að gera áætlun til fjögurra ára um
þetta skipulagða endurmenntunar-
starf. Með þessu væri, sagði skóla-
stjóri, sinnt öðru og ekki síður mikil-
vægum þætti í menntun bænda, þar
sem fengin væri viðurkenning á
símenntun, en áður hefði eingöngu
verið um undirbúningsmenntun að
ræða.
Fiskeldið aukið og sérhæft
Nám við Hólaskóla var { vetur
með hefðbundnum hætti, þó sniðið
að þeim nýjungum sem fram koma
í landbúnaði hveiju sinni. Skólinn
sérhæfir sig í loðdýra- og hrossa-
rækt og sagði skólastjóri að ætlun-
in væri að efla þessa þætti enn frek-
ar. Þá hefði fískeldisnámið verið
aukið og sérhæft, og það skilið frá
hinu eiginlega búfræðinámi. Skól-
inn útskrifar nú búfræðinga eins
og áður sagði, af tveim brautum
fiskeldis- og búfræðibraut, en þar
sem nám á fískeldisbrautinni hefur
nú farið fram eftir skilgreindri
námsskrá, hafa þeir nemendur sem ■
þar útskrifast heimild til þess að
bera starfsheitið fískeldisfræðingar.
Aðkallandi að endurnýja
gripa-og útihús
í máli skólastjóra Jóns Bjarna-
sonar kom fram að í janúar síðast-
liðnum var tekin í notkun ný tengi-
bygging milli íþróttahúss og skóla-
húss, hið glæsilegasta mannvirki,
sem er til mikils hagræðis fyrir
nemendur og allt starfslið skólans.
Ekki væru aðrar stórframkvæmdir
í gangi þessa stundina, en nú mundi
höfuðáhersla verða á það lögð að
ganga frá og fegra ytra útlit skól-
ans, nýrra húsa og einnig hinna
eldri.
Hins vegar væri helsti vankantur
við rekstur tilraunabús, hversu
mjög skorti á að útihús búsins full-
nægðu þeim kröfum sem gera
þyrfti. Myndi lögð á það höfuð-
áhersla að úr þessu yrði bætt á
næstu árum, enda yrði mun meiri
áhersla lögð á kennslu og rannsókn-
ir í hrossa- og fískirækt þegar á
næsta skólaári. Það væri auk þess
fyrirséð að í þessum tveim kennslu-
greinum yrði mikil fjölgun á næstu
árum.
Að lokum ávarpaði skólastjóri
nýútskrifaða búfræðinga og afhenti
þeim prófskírteini. Þá voru veittar
ýmsar viðurkenningar þeim nem-
endum sem fram úr hafa skarað í
námi, verklegum og bóklegum
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Nýútskrifaðir búfræðingar og fiskeldisfræðingar. Gamli Hólabærinn í eigu Þjóðminjasafns í baksýn.
greinum, bæði frá skólanum og
ýmsum þeim stofnunum sem tengj-
ast námi því sem fram fer við skól-
ann.
Hæstu einkunn á búfræðibraut
hlaut Guðrún Jóhanna Stefánsdótt-
ir 9,51, sem jafnframt er hæsta
einkunn við skólann. Hæstu ein-
kunn á fískeldisbraut hlaut Hreinn
Sigmarsson, 8,49.
Þá flutti Hjörtur E. Þórarinsson
formaður Búnaðarfélags íslands
ávarp og ámaðaróskir til nýútskrif-
aðra búfræðinga og skólans, og
afhenti viðurkenningar frá Búnað-
arfélagi íslands. Jóhann Guð-
mundsson deildarstjóri í Landbún-
aðarráðuneytinu flutti kveðjur land-
búnaðarráðherra Jóns Helgasonar,
sem ekki átti þess kost að vera við-
staddur. Guðmundur Guðmundsson
framkvæmdastjóri afhenti verðlaun
gefín af Trésmiðjunni Borg á Sauð-
árkróki. Þá tók til máls fulltrúi
nemenda Hreinn Sigmarsson og
ræddi hann um nám við skólann frá
sjónarhóli nemenda og benti hann
á nokkra þætti í náminu sem betur
mættu fara. Þá þakkaði Hreinn
skólastjóra og kennurum fyrir
ágæta dvöl við skólann og ámaði
skólanum heilla í öllu starfi.
Að síðustu þakkaði Jón Bjarna-
son gestum komuna og nemendum
ánægjulegan vetur og ámaði þeim
allra heilla og sagði skóla slitið.
- BB
MYNDLISTASKÓLINN í REYKJAVÍK,
Tryggvagötu 15.
Umsóknir um námskeið fyrir næsfa vetur 1988-89,
þurfa að berast skriflega fyrir 1. júlí.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í myndlistadeild
Pennans í Austurstræti.
Skólastjóri.
PFAFF h.l. tilkynnir veigamikla
breytingu á viðskiptaháttum:
REYKJAVÍKURVERÐ
UNI LAND ALLT!
Héöan í frá mun Candy þvottavélin, PFAFF sauma-
vélin, HORN saumavélaborðið, STARMIX ryksugan
og BRAUN hrærivélin kosta það sama í Reykjavík og
á Þórshöfn, Höfn í Hornafirði, ísafirði eða Vest-
mannaeyjum svo dæmi séu nefnd.
Hvaða breyting er þetta?
Hingað til hefur landsbyggðarfólk
orðið að greiða ofan á „Reykjavíkur-
verð“ flutningskostnað, vátrygging-
arkostnað og jafnvel fleiri auka-
gjöld af CANDY þvottavél eða
PFAFF saumavél ef keypt var af
umboðsmanni í héraði.
Nú tökum við á okkur flutnings-
kostnaðinn og aukagjöldin. Þú
kaupir þína Candy þvottavél eða
PFAFF saumavél af næsta um-
boðsmanni á Reykjavíkurverði.
Verslunin er heima í héraði og um-
boðsmaðurinn sér um hina góðu
PFAFF-þjónustu á sanngjörnu
verði.
Ef enginn umboðsmaður er nálæg-
HORN sáumavélaborð
ur, eða hann á ekki þá vörutegund
sem þú vilt kaupa, hafið þá sam-
band beint. Við sjáum eftir sem áð-
ur um allan aukakostnað ef um
stærri hlut er að ræða.
Við hækkum enga vörutegund fyrr en nýjar
sendingar koma. Ótrúlega góð kaup í
PFAFF saumavélum og BRAUN hrærivélum.
H.F. Borgartúni 20 - sími 2 67 88