Morgunblaðið - 20.05.1988, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
ORLANDO
2 x í viku
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
BARATTAFYRIR
BÆJARRÉTTINDUM
5tefánsson frá Fagraskógi því yfir,
fyrir hönd þeirra flutningsmanna,
að þeir tækju frumvarpið aftur.
Vildu þeir ekki hætta á það að láta
málið ganga til atkvæða, enda frek-
ar líkur fyrir því, að þá yrði það fellt.
BENZ 260 E ’87- 6 CYL
Ekinn 35 þús/km. Innfluttur í mars ’88. Einn með öllu og
standi. Verð kr. 1.950.000 (nýr kostar kr. 3.200.000).
Upplýsingar í síma 41187 - Hrafn.
topp-
Þó að svo færi um frumvarpið á
Alþingi, var það engan veginn lagt
fyrir róða heima í héraði. Siglfírð-
ingar voru staðráðnir í því, eins og
fram kemur í ályktun borgarafund-
arins, að halda málinu fram með
festu og áhuga, unz það yrði leitt
fram til fullnaðarsigurs. Þeir höfðu
að vísu beðið ósigur í fyrstu lotu,
— en þá var að hefja nýja.
Leið nú fram á haustið, en þá
fékk hreppsnefndin bréf frá sýslu-
manni Eyjaijarðarsýslu viðvíkjandi
„sjálfstjómarmáli Siglfírðinga“. Þá
gerði hann ráð fyrir því, að málið
muni tekið fyrir á næsta aðalfundi
sýslunefndar, en taldi jafnframt,
„að í mörgum greinum þurfí að
breyta og bæta frumvarp það, sem
lagt var fyrir Alþingi í sumar“.
Ræður hann hreppsnefndinni til að
fela einhverjum lögfræðingi í Eyja-
fírði að semja frumvarpið að nýju
ásamt honum, og verði það frum-
varp síðan sent til Siglufjarðar til
frekari undirbúnings af hrepps-
nefnd og hreppsfundum.
í tilefni af þessu bréfí sýslu-
manns lét hreppsnefndin á fundi
sínum 17. nóvember bóka eftirfar-
andi:
„Jafnvel þótt hreppsnefndin geti
ekki séð neina brýna þörf á endur-
samningu þessa frumvarps, sem er
alveg sniðið eftir bæjarstjómarlög-
um hinna kaupstaðanna, og þingið
fann ekkert athugavert við form
þess eða frágang í sumar né að
undirbúning skorti — að undan-
teknu þessu eina, að samþykki
sýslunefndar vantaði — þá vill
nefndin ekki slá hendinni á móti
þessari samvinnu við sýslumann um
þetta mál og samþykkir að fela
Bimi Líndal að taka fyrir sína hönd
þátt í þessari samvinnu og gefur
honum skriflegt umboð þar að lút-
andi.“
Upp frá þessu var kaupstaðar-
réttindamálið á dagskrá flestra
hreppsnefndarfunda um veturinn
og ýmsar ályktanir gerðar, eftir því
sem málið þróaðist í meðförum.
Á miðsvetrarfundinum 16. febr-
úar 1918 ræddi séra Bjami Þor-
steinsson um kaupstaðarmálið, rifj-
aði upp það, sem gerzt hafði og
hveijar horfur væm framundan um
framgang málsins. Þá skýrði hann
frá því, að búast mætti við, að inn-
an skamms kæmi nýtt frumvarp
eða endursamið og þá mundi nauð-
syn að halda almennan fund um
málið. Sagði hann það eindreginn
vilja hreppsnefndarinnar að koma
málinu fram í sama eða mjög líku
formi og það var borið fram á Al-
þingi sumarið áður og óska aðeins
þeirrar breytingar á því, að allur
Hvanneyrarhreppur heyrði undir
hið nýja lögsagnarumdæmi, en þó
því aðeins, að það væri vilji yfír-
gnæfandi meiri hluta þeirra, sem
fyrir utan kauptúnið byggju.
Nokkrum vikum síðar voru svo
allir atkvæðisbærir utankauptúns-
búar boðaðir til fundar til þess að
kanna vilja þeirra um framhaldandi
samband eða skilnað, þegar bæjar-
stjómarlögin kæmu í gildi. Á fund-
inum mættu 28 atkvæðisbærir ut-
ankauptúnsmenn, þar af þijár kon-
ur, en 12 sendu skriflegar yfírlýs-
ingar, og greiddu þannig alls 40
manns atkvæði. Eftir að oddviti
hafði skýrt málið fyrir fundarmönn-
um, var lögð fram svohljóðandi til-
laga:
„Fundurinn óskar þess, að þegar
Siglufjörður fær kaupstaðarréttindi
og hér verður stofnað nýtt lög-
sagnarumdæmi, þá nái það lög-
sagnarumdæmi yfír allan Hvann-
eyrarhrepp, og að fjárhagur og
stjórn verði að öllu leyti sameiginleg
eins hér eftir og hingað til.“
Þessi tillaga var samþykkt að
viðhöfðu nafnakalli með 34 atkvæð-
um (að meðtöldum hinum skriflegu)
gegn 6 atkvæðum. Því næst var
önnur tillaga lögð fyrir fundinn, og
var hún á þessa leið:
„Mæti þessi ósk vor andstöðu,
annaðhvort hjá sýslunefnd eða Al-
þingi, svo hið nýja lögsagnar-
umdæmi verði aðeins látið ná yfir
kauptúnið og land Hafnar og
Hvanneyrar, ályktar fundurinn að
kjósa nú þegar þijá menn úr sínum
flokki til þess, ásamt þrem mönnum
úr hreppsnefndinni, að gjöra
ákveðnar tillögur um fjárskipti milli
hins væntanlega kaupstaðar og hins
nýja hrepps samkvæmt þeim regl-
um og venjum, er gilt hafa um
aðrar hreppaskiptingar. Skulu
gjörðir þessarar nefndar vera bind-
andi og leggjast fyrir sýslunefnd
til samþykkis jafnframt og skipti
fara fram milli Eyjafjarðarsýslu og
Siglufjarðarkaupstaðar."
Þessi tillaga var samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum og í
nefndina kosnir af hálfu fundar-
manna þeir Einar Hermannsson,
bóndi á Skútu, Þórður Þórðarson,
bóndi Siglunesi, og Sigurhjörtur
Bergsson, bóndi á Staðarhóli.
í byijun marzmánaðar barst
hreppsnefndinni símskeyti frá Bimi
Líndal, lögfræðingi, þar sem hann
tilkynnti henni, að heimilisástæður
sínar hafí hindrað sig frá samvinnu
við sýslumann við endurskoðun
frumvarpsins um kaupstaðarrétt-
indi Siglufjarðar, og urðu hrepps-
nefndinni þetta mikil vonbrigði.
Hún treysti Líndal frá fomu fari,