Morgunblaðið - 20.05.1988, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
félk í
fréttum
Pokahlaup getur verið vandasðm iþrótt.
|j"j: ir * £
ps §» m « *
iai
BREIÐHOLTSSKÓLI
Vorhatið í
Foreldrafélag Breiðholtsskóla stóð nýlega
fyrir vorhátíð við skólann, og tóku þátt í
henni nemendur skólans ásamt foreldrum, kenn-
uruni og og íbúum Neðra-Breiðholts.
Á hátíðinni var keppt í ýmsum greinum og farið í
skólanum
alls kjms leiki. Keppt var í pokahlaupi, reiptogi og
fímmtarþraut. Farið var í boltaþrautir, gengið á
stultum, leikið mini-golf, farið í sumarleiki og fleira.
Um kvöldið var síðan haldinn fjölskyldudansleikur.
Einbeitingin var mikil i mini-golfinu,
Sumir mættu á vorhátíðina á eigin bílum.
Islensku þátttakendurnir á sjötta alþjóðaþingi Baháía sem haldið var
í ísrael. Talið frá vinstri eru Svana Einarsdóttir, Böðvar Jónsson,
Barbara Thinat, Sigurður I. Jónsson, Elsa Benediktsdóttir, Ólafur
Bjarnason og Sigriður Lóa Jónsdóttir.
ALÞJÓÐAÞING BAHÁÍA
Islendingar á
meðal þáttakenda
Sjötta alþjóðaþing Baháía var
nýlega haldið í borginni Haífa
í ísrael, og voru þar komnir saman
fulltrúar frá öllum heimshomum. Á
meðal þátttakenda á þinginu voru
fulltrúar frá Andlegu Þjóðarráði
Baháía á Islandi. Engir fulltrúar
komu frá íran, þar sem Baháítrúin
varð til árið 1844, en þar í landi
er trúarhreyfingin bönnuð, og hafa
meðlimir hennar þar sætt miklum
ofsóknum af hálfu stjómvalda. Um
§órar milljónir manna aðhyllast
Baháítrú í heiminum í dag, og eru
aðalstöðvamar í Haífa, en þangað
var stofnandi trúarsamtakanna,
Bahá’u’lláh, sendur í útlegð árið
1868.
Reuter
Hér sést Redford koma til sýningar myndarinnar ásamt aðalleikkon-
unum, þeim Melanie Griffith frá Bandaríkjunum og Soniu Braga frá
Brasilíu.
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í CANNES
Redford rennir
hýru auga til
gamallar kærustu
Robert Redford er þekktari fyrir
leik sinn í kvikmyndum en leik-
stjóm. Hann stýrði þó nýrri kvik-
Reuter
Hjartaknúsarinn bláeygi brosir við brasilísku leik
konunni Soniu Braga skömmu áður en blaða
mannafundur þeirra hófst i Cannes á sunnudag.
mynd sem á engilsaxnesku nefnist
„The Milagro Beanfíeld War“.
Myndin er sýnd á nýhafínni kvik-
myndahátíð í
Cannes í Frakk-
landi en keppir
ekki um gullpálm-
ann. Redford og
brasílíska leikkon-
an Sonja Braga,
sem leikur eitt að-
allhlutverkið í
myndinni, munu
hafa dregið sig
saman á tímabili
en nýlega fréttist
af ástarævintýri
Redfords og vel-
lauðugrar bre-
skrar stúlku. Fólk
í fréttum treystir
sér ekki til að
dæma um hvort
það fuðrar upp í
hitanum í Cannes.