Morgunblaðið - 20.05.1988, Page 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
Sól og sumar
hj á okkur
1VÖRUHÚSIVESTURLANDS er komið sumar
og allar deildirnar bjóða ykkur velkomna.
- MATVÖRUDEILD
- VEFNAÐARVÖRUDEILD
- GJAFAVÖRUDEILD
- RAFTÆKJA- OG SPORTVÖRUDEILD
- BYGGINGAVÖRUDEILD
Komið við hjá okkur í sumar
VÖRUHÚS VESTURLANDS
Birgðamiðstöðin ykkar
Mosaeyðir
Til Velvakanda.
Langalgengasta umræðuefni
garðeigenda um þessar mundir er
hvemig eyða megi mosa úr gras-
blettum. Sérfræðingar ráðleggja
ákveðið magn af þrífosfati og alls
konar kúnstir sem við hjónin höfum
reynt að fara eftir undanfarin ár
með nær engum árangri. Mosinn
hefur „blómstrað" eftir sem áður,
ef svo má segja. En svo var það
einn nágranni okkar sem hefur ver-
ið að beijast við mosann eins og
við, hann uppgötvaði að til er fyrir-
taks sláttuvél sem tætir mosann
upp, eins konar mosatætari. Þessi
mosatætari fæst í garðáhaldaversl-
unum hér í Reykjavík og ég ráðlegg
eindregið að íbúar við eina götu
sameinist um að kaupa svona verk-
færi. Mér datt í hug að koma þessu
á framfæri því að ég veit af fyrri
reynslu að þrífosfatið reynist ekki
alltaf nógu vel. Tætarinn er alveg
fyrirtaks verkfæri og tætir upp all-
an mosa svo að hann lætur ekki á
sér kræla lengi á eftir.
Búskussi
N.Ö.R.D.
gagii-
rýni
Til Velvakanda.
Hvað liggur að baki þegar einhver
sem kallar sig „Gagnrýnanda Stöðv-
ar 2“ veður á skjáinn með skítkast
á skemmtilegasta fólkið í landinu?
Er það vegna þess að honum er
meinilla við þennan flinkasta leik-
stjóra sem við eigum í dag? Það var
engu líkara. Eða er það vegna þess
að Gríniðjan hefur lýst því yfír opin-
berlega að hún frábiðji sér þá um-
fjöllun sem fjölmiðlar bjóði uppá og
kalli „gagnrýni"? Skoðun Gríniðj-
unnar er sú að áhorfendur séu bestu
gagnrýnendur og þeir beri út sínar
skoðanir og með þeim standi og falli
sýningin.
Ég hrópa húrra fyrir leikhúsi sem
þorir að standa við sínar skoðanir,
þó svo að gagnrýnendur reyni að
ná fram hefndum og rakka niður.
Að lokum. Látið ekkki leikritið
N.Ö.R.D. framhjá ykkur fara ef þið
þolið að fá hláturskrampa og ef þið
viljið sjá stórkostlega góð vinnu-
brögð, sem maður sér ekki nógu oft
hér á landi.
A.R.
Maðkar í mysimni
Til Velvakanda.
Kaupahéðnarnir hjá bókaútgáfu
Iðunnar hafa ekki þurft að fara í
verslunarskóla hjá Njáli á Berg-
þórshvoli, þegar þeir gáfu út „Per-
estrojkuna" frægu, og græddu.
Maður gat nú sagt sér það, að þar
sem vinstri pressan gleypti þetta
eins og „manna“ að þar mundu nú
vera margir maðkamir í mysunni
þeirri.
Nú er sem sagt komið á daginn
að Perestrojkan, sem var stærsta
blaðra sem blásin hefur verið á öll-
um öldum, er nú sprungin. Þegar
boðið var upp á rýmri kosningalög,
þá trúði fóikið og reyndi að stofna
flokk á móti kommúnistaflokknum
sem einn hefur öllu ráðið. Stofnend-
umir em allir komnir í fangelsi og
þar fór það frelsið. Rússar sendu
pólskum verkamönnum kveðju sína,
og Pólveijar fundu að þeir gætu
átt von á rússneska hemum, eins
og á dögum Brésnefs. Armenía á
að bíða eftir sínu „Gasasvæði“ eins
og Palestínumennirnir. KGB ætlar
ekki að flýta sér að gefa út söguna
af Stalín, eins og þeir gerðu með
Perestrojkuna. Herferðin gegn
drykkjuskapnum endaði á því, að
nú bætist sykurskorturinn við
skortinn á öðmm lífsnauðsynjum.
Friðinn í Afganistan á að tryggja
með enn meiri vopnasendingum til
Kabúlstjómarinnar og aldrei hefur
KBG verið sterkari en nú. Þeir
Vesturlandabúar sem gleyptu Pere-
strokuna, eiga að fyrirverða sig.
Man þá enginn Dubcek, ef marx-
isminn verður nokkum tíma mönn-
um bjóðandi. Þeir sem aldir em upp
í Ráðstjómam'kjunum og em enn
marxistar, þeir geta aldrei búið
nokkmm mannleg lífskjör.
Húsmóðir
Víkverji skrifar
Víkveija þykir vænt um móður-
málið sitt og reynir að beita
því sem réttast. Honum verður þó
á eins og öðmm, en engu að síður
getur hann ekki annað en lýst
áhyggjum sínum vegna þess, hve
margur misþyrmir móðurmálinu.
Yfírleitt em það fulltrúar hins opin-
bera, sem fremstir em í flokki mis-
þyrmingarmanna. Þeir em þá ann-
aðhvort að nota mörg orð um ekki
neitt, en oftast verður þá ræðan
merkingarleysa svo ekki sé meira
sagt, eða hitt, að þeir em lærðir á
erlendar tungur og hafa ekki náð
að hrista af sér áhrif þess lær-
dóms. Enska sögnin to do (að gera)
tröllríður íslenzkri tungu í hinni
ensku merkingu sinni, en sem slík
er hún meira en óþörf. íslenzkar
sagnir em flestar svo merkingar-
bærar að þær þurfa ekkú hjálpar-
sagna með, en þar að auki er sögn-
in að gera ekki hjálparsögn í
islenzku.
Fjármálaráðuneytið ríður í broddi
fylkingar og segir fólki að gera
verðsamanburð. Ekki að bera verð-
ið saman. Einn fulltrúa þjóðhags-
stofnunar sagði fyrir skömmu í DV
að stofnunin hefði framkvæmt út-
reikninga á einhveiju. Ekki reiknað
eitthvað út. Þama hefur reyndar
sögnin að framkvæma leyst sögnina
að gera af hólmi og ekki skánar
málið við það. Svo framkvæma
menn orðið alls konar spymur, en
spyma ekki boltanum; framkvæma
auka- og vítaspymur. Þetta hét
einu sinni að taka víti. Þó tekur
út yfír allan þjófabálk, þegar ein-
hveijir sérfræðingar um skipulag
og húsbyggingar em famir að
framkvæma útreikninga á bygging-
armagni ráðhússins. Á einföldu
máli reikna menn væntanlega út
stærð hússins.
Víkveija þykir það anzi hart að
stjómvöld skuli vera fremst í þess-
um flokki, en það er algengara en
hitt að í opinberum plöggum komist
þeir, sem leita að ambögum, í gjöf-
ular gullnámur. í fréttum í vikunni
komu í ljós þau gleðilegu tíðindi,
að hæfni nemenda í samræmdum
prófum í lok gmnnskólans í íslenzku
hafí hækkað að meðaltali um einn
heilan, úr tæplega 5 í tæplega 6.
Litlu verður Vöggur feginn. Annað-
hvort em nemendur eða kennarar
vandanum tæplega vaxnir. Það
getur tæpast talizt gott að að með-
altali falli tæplega annar hver nem-
andi. Annaðhvort er kennslunni
ábótavant eða nemendum, nema
blessað móðurmálið sé einfaldlega
orðið okkur ofviða og bezt að leggja
það af.
Fyrir skömmu komst Víkveiji
að því, að það er kostnaðar-
samt að selja húsnæði. Sé miðað
við íbúð, sem kostar um fjórar millj-
ónir króna, þarf að borga fasteigna-
sölum allt að 100.000 krónur fyrir
að selja íbúðina. Líklega ráða fæst-
ir við það að snara út 100.000 krón-
um um leið og þeir stækka við sig
húsnæði, líklega vegna fjölgunar í
fjölskyldunni. Einhvers staðar þarf
að taka þessa peninga og augljóst
virðist að seljandinn nái þeim frá
kaupanda með hærra íbúðarverði
en ella. Fasteignasalinn fær alltaf
sitt, eða hvað? Minnki nú framboð
á húsnæði, gæti það ekki aðeins
þýtt hærra verð, heldur einnig að
fasteignasölumar yrðu að keppa
um hnossið með þvi að taka söluna
að sér gegn lægra gjaldi.
XXX
Fyrst Víkveiji er farinn að fjalla
um sölu, getur hann ekki
staðizt þá freistni að nefna eitt orð-
skrípið enn, sem komið er upp á
yfírborðið. Einhvers staðar sá hann
orðið söluaðili. Er það ekki sama
og seljandi? Ef svo er ekki væri
gaman að fá merkingarmuninn gef-
inn upp.