Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 72
\e
EINKAREIKNINGUR ÞINN
í LANDSBANKANUM
FOSTUDAGUR 20. MAI 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
15% hækk-
un á brauði
og kökum
BRAUÐ hf. hefur hækkað verð
**á brauði og kökum um 15%.
Sturla Rafn Guðmundsson
framkvæmdastjóri segir að
hækkunin • sé óhjákvæmileg
vegna tveggja gengisfellinga á
skömmum tíma, samtals 16%,
og hækkunar á launakostnaði.
Verð á brauði hækkaði í janúar
síðastliðnum en var lækkuð um
3% að ósk stjómvalda í byijun
febrúar.
Að sögn Erlends Magnússonar
bakarameistara hjá Brauðgerð
Mjólkursamsölunnar hækkaði
brauð frá þeim í byijun mars.
Engin ákvörðun hefur verið tekin
■^0/0tum verðhækkun en verið er að
kanna hver hún þyrfti að vera
með tilliti til nýrra kjarasamninga
og gengisfellingar.
Landspítalinn:
Hlé á hjarta-
aðgerðum
í sumar
Morgunblaðið/Einar Falur
KR sigraði íKeflavík
KR vann Keflavík 3:1 í 1. deild karla í knattspymu
í gærkvöldi að viðstöddum 1350 áhorfendum. KR-
ingar eru í efsta sæti deildarinnar með flögur stig
að tveimur leikjum loknum, en Keflvíkingar eru í
3. sæti með þijú stig. Þetta var fyrsti leikurinn í
2. umferð, en í kvöld leika Leiftur og Valur í Ólafs-
firði og þrír leikir verða á morgun. Hér hefur KR-
ingurinn Þorsteinn Guðjónsson betur í baráttu við
Óla Þór Magnússon í leiknum í gærkvöldi.
Sjá frásögn á bls. 71.
Forseti
Islands í
Washington
Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara
Morgunblaðsins i Washington.
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, sat hádegisverð
í boði Ameríska-íslenska verslun-
arráðsins í gær í Essex House
gistihúsinu í New York. Forseti
verslunarráðsins, Magnús Gúst-
afsson, forstjóri Coldwaters,
bauð heiðursgestinn velkominn,
en forseti svaraði með skemmti-
legri ræðu þar sem hún m.a. lýsti
viðskiptaháttum á íslandi fyrr á
tímum, þegar reiknað var i kú-
gildum, lömbum eða fiskum. Var
gerður góður rómur að máli for-
seta.
Áður en hófíð hófst var haldinn
aðalfundur verslunarráðsins. Magn-
ús Gústafsson var endurkjörinn
formaður. Aðrir í stjóm voru kjöm-
ir: Jón Ámason lögfræðingur, Hilm-
ar Skagfjörð, Jón Guðmundsson,
Johanna Wong, Thor Thors, Sigfús
Erlingsson, Ölafur Ólafsson og
Hilmar S. Skagfield. Framkvæmda-
stjóri verslunarráðsins er Úlfur Sig-
mundsson, viðskiptafulltrúi.
íslendingafélagið í New York
gekkst fyrir samkomu til heiðurs
forseta í gærkvöldi. Forseti heldur
síðan til Washington í dag þar sem
íslendingafélagið í Washington
heldur henni kvöldhóf.
HLÉ verður gert á hjartaað-
gerðum á Landspítalanum í
fjórar tíl sex vikur í sumar. Að
sögn Harðar Alfreðssonar
hjartaskurðlæknis hafa verið
gerðar tvær aðgerðir á viku það
sem af er þessu ári og er stefnt
að því að hægt verði að fjölga
þeim en það yrði þó ekki fyrr
en i fyrsta lagi eftir sumarleyfi.
Um helmingur allra hjarta-
aðgerða sem íslendingar gangast
undir er nú gerður hérlendis og
sagði Hörður að stefnt væri að
því að hægt yrði að gera allar
hjartaaðgerðir hér á landi. Öllum
þeim sem gangast þurfa undir
hjartaaðgerð er boðið að fara utan
en sem stendur er styttri bið eftir
aðgerðum erlendis.
Hörður sagði ástæðumar fyrir
því að ekki væri hægt að gera
fleiri aðgerðir hér margþættar og
tengjast rekstrarvanda sjúkrahús-
anna, m.a. væri skortur á hjúkr-
unarfólki tilfínnanlegt.
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra:
Niðurstaða um efnahagsað-
gerðir verður að fást í dag
ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra segir að í dag verði að
fást niðurstaða í rikisstjórninni um efnahagsaðgerðir í kjölfar
gengisfellingar krónunnar síðastliðinn mánudag og ríkisstjórnin
verði þá að sýna það hvort hún nær saman eða ekki. „Það lifir
engin ríkisstjórn sem ekki nær saman,“ sagði Þorsteinn Pálsson
við Morgunblaðið í gær en hann sagðist hafa lagt fram tillögur
á ríkisstjórnarfundi i gær sem miðuðu að þvi að stjómarflokkarn-
ir gætu náð samkomulagi. Síðari hluta dagsins sátu formenn stjóra-
arflokkanna á fundi um þær tillögur og í dag er fyrirhugaður
rikisstjóraarfundur þar sem úrslit eiga að fást.
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra sagði eftir langan fund for-
manna stjómarflokkanna og efna-
hagssérfræðinga í gær að hann
hefði lagt fram tillögur á ríkis-
stjómarfundi um morguninn sem
Næturfundur í kjaradeiiu
starfsmanna og ÍSAL
Framleiðslustöðvun verður í kvöld ef ekki semst
BÚIST var við að samningafund-
ur í kjaradeilu starfsmanna Ál-
versins í Straumsvik og viðsemj-
enda þeirra hjá rikissáttasemj-
stæði fram eftir nóttu þegar
Morgunblaðið hafði siðast fregn-
ir af viðræðum á tólfta tímanum
í gærkveldi. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins bar enn mik-
ið á milli deiluaðila, en fram-
leiðsla í álverinu stöðvast á mið-
nætti í kvöld, hafi samningar
ekki tekist fyrir þann tíma.
Jakob R. Möller, starfsmanna-
stjóri ÍSAL, sagði í gærkvöldi að
staðan væri óljós. Menn væru enn á
fundi og meiningin væri að sitja
áfram við eitthvað fram eftir nóttu.
Öm Friðriksson, aðaltrúnaðarmaður
starfsmanna Álversins, vildi ekkert
láta hafa eftir sér um stöðu mála.
Ef framleiðsla í Álverinu stöðvast
hefur það I för með sér tjón, sem
nemur hundruðum milljóna króna.
490 starfsmenn Álversins, sem aðild
eiga að tíu verkalýðsfélögum, boð-
uðu verkfall fyrir tæpum þremur
vikum síðan. Verkfallið hófst laugar-
daginn 7. maí, en tvær vikur tekur
að undirbúa Álverið undir fram-
leiðslustöðvun og lokun, samkvæmt
samkomulagi aðila. Starfsmenn Ál-
versins fóru síðast.í verkfall árið
1984. Þá tókust samningar rúmum
hálfum sólarhring áður en til lokun-
ar átti að koma, en þá var undirbún-
ingstíminn fjórar vikur í stað tveggja
vikna nú.
Sjá fréttir á bls. 30.
miðuðu að því að flokkamir gætu
náð saman um efnahagsaðgerðir.
Formenn flokkanna hefðu síðan
unnið áffarn að tillögunum á löng-
um fundi og þeirri vinnu yrði hald-
ið áffarn.
Þorsteinn vildi ekki upplýsa í
hveiju tillögumar væru fólgnar,
en samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er m.a. gert ráð fyrir
því að bindiskylda bankanna í
Seðlabanka verði hækkuð úr 13%
í 15%. Ávöxtunarsjóðir verði látnir
kaupa ríkisskuldabréf, 200 milljón-
um verði veitt í Byggðasjóð og 80
milljónum í Framleiðnisjóð til að
greiða fyrir búháttabreytingum.
Þá verði lánskjaravísitala afnumin
af skammtímalánum, dregið verði
úr erlendum fjárfestingarlánum og
verðlagseftirlit verði hert. Þá er
rætt um lagasetningu þannig að í
kjarasamningum þeirra félaga sem
ólokið er verði ekki meiri launa-
hækkanir en láglaunafélög hafa
fengið.
Hvorki Steingrímur Hermanns-
son formaður Framsóknarflokks-
ins né Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins vildu
ræða fundinn né tillögumar í gær.
Þær voru ræddar á þingflokks-
fundum Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks í gær en á miðviku-
dagskvöld voru tillögumar ræddar
í þingflokki Sjálfstæðismanna og
þar fékk Þorsteinn Pálsson umboð
til að ganga frá þeim í ríkisstjóm-
inni. Alþýðuflokkurinn hélt fund
strax eftir ríkisstjómarfundinn en
Framsóknarflokkurinn hélt fund f
gærkvöldi þar sem Steingrímur
Hermannsson fékk umboð til að
ræða áfram við formenn hinna
stjómarflokkanna á þessum nótum
en um leið að árétta ýmis atriði
sem framsóknarmenn vildu leggja
áherslu á.
Ný þota skráð
SAMKVÆMT loftfaraskrá Flug-
málastjórnar voru 287 loftför í
landinu 1. maí síðastliðinn, en í
gær var ný þota skráð hér á landi
og loftförin því 288.
í gær var þota af gerðinni Dou-
glas DC-8 ’61 skráð hér á landi í
nafni flugfélagsins Air Atlanta.
Sama félag rekur þotu af gerðinni
Boeing-707, TF-IUE.
Loftförin, sem skráð eru hjá
Flugmálastjóm, eru að langmestu
leyti tveggja til Qögurra sæta einka-
flugvélar. Á skránni eru níu far-
þegaþotur. Þar af eru sjö Flugleiða-
þotur, fjórar af gerðinni Douglas
DC-8-63 og þijár Boeing-727, og
tvær Boeing-737 þotur Amarflugs.