Morgunblaðið - 08.06.1988, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1988
21
Við ætlum að lifa og vinna saman
í landinu og til þess þurfum við sjálf
að setja okkur leikreglur, sem
stuðla að framgangi sameiginlegra
markmiða um sem best lífskjör,
stöðugleika og frið. Löggjöf um
samningamál á að heyra til algerra
undantekninga og breyttar leikregl-
ur okkar í millum ættu að styrkja
það meginmarkmið.
Ég vék að því fyrr í ræðu minni,
að Vinnuveitendasambandið hefur
í reynd staðið í stöðugum samn-
ingaviðræðum undangengin misseri •
og þetta hefur eðli málsins sam-
kvæmt sett mark sitt á daglega
starfsemi sambandsins. Nú eru hins
vegar horfur á, að tóm gefíst til
að sinna öðrum og mikilvægum við-
fangsefnum, sem hafa orðið að
víkja fyrir brýnustu úrlausnarefn-
unum á sviði samningamálanna.
Ég horfí hér fyrst og fremst til
þess, að þörf er á aukinni útgáfu-
og fræðslustarfsemi í þágu aðildar-
fyrirtækjanna. Við hyggjumst láta
þessi mál meira til okkar taka á
næstu misserum og þegar er hafínn
undirbúningur að því að gera verk-
stjómarfræðslu að rejglubundnum
þætti í starfsemi VSI. í því efni
njótum við ágæts samstarfs við
systursamtök okkar á hinum Norð-
urlöndunum, sem náð hafa miklum
árangri á þessu sviði. Útgáfa samn-
inga og fræðsluefnis um lögfræði-
leg og vinnumarkaðsleg viðfangs-
efni er einnig á döfinni, og er þar
ætlunin að bæta úr brýnni þörf.
í annan stað er ljóst, að upplýs-
ingar um vinnumarkaðinn, launa-
þróun og eftirspum eftir vinnuafli
eru ekki sem skyldi hér á landi.
Hvort tveggja em mikilvægar for-
sendur ákvarðana um vinnumark-
aðslegar og efnahagslegar aðgerðir
og nýtast stjómendum atvinnufyrir-
tækja í daglegum rekstri, ef vel er
á haldið. Að því verður unnið á
næsta starfsári.
Þá er ennfremur áformað að taka
upp nánara samstarf við aðildarfé-
lögin og vinna að því að fjölga þeim
fyrirtækjum, sem skipa sér í raðir
VSÍ. Hér þarf einkum að huga að
fyrirtækjum á sviði þjónustu, sem
taka til æ stærri hluta vinnuaflsins.
Þessi fyrirtæki þurfa e.t.v. aðra
þjónustu en við bjóðum nú og við
því þarf að bregðast. Eigi Vinnu-
veitendasambandið áfram að vera
í ótvíræðu forsvari fyrir atvinnulífíð
í landinu, þarf að gæta þess, að
nýjar greinar fái þar eðlilegt svig-
rúm. Ég vil í þessu sambandi sér-
staklega fagna því, að einn _af
einkabönkunum, Iðnaðarbanki ís-
lands hf., hefur gengið til formlegs
samstarfs við VSÍ og gert við okk-
ur þjónustusamning vegna samn-
ingagerðar á komandi ámm. Við
væntum þess, að með fjölgun félaga
og þjónustusviða verði Vinnuveit-
endasambandið enn betur { stakk
búið tii að veita þá forystu í mótun
launastefnu, sem reynslan sýnir að
þörf er á.
Af einstökum málaflokkum, sem
Vinnuveitendasambandið hefur lát-
ið sig miklu skipta vil ég hér sér-
staklega víkja að lífeyrismálunum.
Á síðasta vori lagði endurskoðunar-
nefnd lífeyriskerfísins fram fullbúið
frumvarp að lögum um starfsemi
lífeyrissjóða. Viðamiklar athuganir
staðfesta, að núverandi kerfi lífeyr-
isréttinda fær ekki staðist og vandi
kerfísins vex dag frá degi. Skuld-
bindingar eru langt umfram iðgjöld
og mismunun í lífeyriskjörum er
meiri en unnt er að una. Um þetta
hafa aðilar vinnumarkaðarins orðið
sammála og tekist að ljúka því erf-
iða verki að koma fram með sam-
eiginlegar tillögur að kerfí, sem fær
staðist en byggir ekki á innantóm-
um loforðum. Síðasta ríkisstjóm hét
því að koma frumvarpi þessa efnis
fyrir Alþingi og í stjómarsáttmála
núverandi ríkisstjómar er því enn
heitið. Það veldur því vonbrigðum
• að fjármálaráðherra hafí ekki flutt
málið á liðnu þingi því að hvert ár,
sem líður án þess að breytingar
eigi sér stað, eykur á vanda lífeyris-
kerfísins og gerir hann torleystari.
Þessu máli þarf að fylgja fram og
að því verður unnið.
Én það er að fleiru að hyggja.
Fjarlægðir milli landa styttast ár
frá ári og einangrun okkar hér
norður í höfum er að hverfa. Frá
fomu fari hafa samskipti okkar við
aðrar þjóðir um margt grundvallast
á samskiptum okkar við frænd-
þjóðir á hinum Norðurlöndunum.
Því ollu jafnt efnahagsleg og menn- •
ingarleg tengsl, en á síðustu ára-
tugum hafa viðskiptalegir hags-
munir okkar færst frá Skandinavíu
og nú er svo komið að enginn einn
markaður hefur jafnmikla þýðingu
fyrir okkur og sá, sem liggur innan
marka Evrópubandalagsins. Fáar
þjóðir er í reynd jafnháðar viðskipt-
um við önnur lönd og við íslending-
ar. Þótt menningarleg tengsl muni
áfram binda okkur hinum Norður-
löndunum er alveg ljóst, að sam-
skipti okkar við önnur lönd verða á
komandi árum víðtækari en verið
hefur svo vægi Norðurlandasam-
starfsins á sviði viðskipta mun
minnka. Við erum ekki einir um
þessa skoðun, því að sömu sjónar-
mið eru nú uppi á öllum hinum
Norðurlöndunum, ekki síst fyrir þá
sök, að Danir njóta nú einir þeirrar
stöðu að vera hluti af þeim innri
markaði, sem verið er að byggja
upp á vettvangi Evrópubandalags-
ins._
Á því leikur enginn vafí að Evr-
ópubandalagið með 320 milljóna
manna heimamarkað er vaxandi
efnahagslegt stórveldi. Ákvörðun
bandalagsríkjanna um að gera öll
ríkin að einni viðskiptalegri heild
frá árinu 1992 mun gerbreyta við-
horfum í alþjóðaviðskiptum og
efnahagsmálum heimsins yfírleitt.
Ljóst er, að viðskipti okkar við ríki
Evrópubandalagsins munu ekki
fara varhluta af þessum breyting-
um. Því er afar mikilvægt fyrir
íslenskt atvinnu- og efnahagslíf að
við fylgjumst glöggt með framvindu
mála og myndum okkur sjálfstæða
afstöðu til þess, hvemig íslensk
fyrirtæki og íslenskt þjóðarbú á og
getur brugðist við þessum breyting-
um.
Það var m.a. af þessum ástæð-
um, að Vinnuveitendasambandið og
Félag ísl. iðnrekenda ákváðu á liðnu
ári að gerast aðilar að UNICE,
Sambandi iðn- og atvinnurekenda-
félaga Evrópu. A þeim vettvangi
höfum við öðlast möguleika á að
fylgjast með framvindu mála innan
Évrópubandalagsins og um sumt
að hafa áhrif á afstöðu atvinnurek-
endasambanda Evrópulandanna að
því er varðar þau sérmál, sem okk-
ur skiptir öllu, en aðra litlu. Við
fslendingar erum smáþjóð á mæli-
kvarða heimsins og því skiptir okk-
ur öllu að nota hvert tækifæri til
að koma hagsmunamálum okkar á
framfæri og fylgjast með í ölduróti
breytinga. Að þessu hlýtur VSÍ að
vinna á næstu árum. Atvinnulífið
þarf áður en lýkur að marka sér
afstöðu til þess hver hlutur okkar
í samstarfi við aðrar þjóðir á að
verða.
Ég er hér ekki að boða nauðsyn
þess, að við gerumst aðilar að Evr-
ópubandalaginu því sú umræða er
engan veginn tímabær. En við skul-
um vera viðbúin því að svara spum-
ingunni, þegar sá tími kemur og
vita þá gerla kost og löst.
Góðir fundargestir.
í inngangi ræðu minnar gerði ég
grein fyrir horfum í efnahags- og
atvinnumálum eins og þær blasa
við mér um þessar mundir. Útlitið
er að sönnu dekkra en verið hefur
undangengin ár. Við höfum notið
fádæma góðæris, en ekki haft þá
sjálfstjóm, sem æskilegt hefði verið
nú fremur en svo oft áður, þegar
líkt hefur staðið á. Við höfum eytt
um efni fram og stöndum nú með
tóman sjóð og skuldimar hrannast
upp. Allt að einu blasa við okkur
miklir möguleikar og lífskjör hér á
landi geta áfram verið með því
besta, sem gerist, þótt einhver aft-
urkippur sé óhjákvæmilegur.
Við þessar aðstæður er nauðsyn-
legt að saman fari styrk stjóm og
samstaða allrar þjóðarinnar um það
að spila sem best úr því, sem nú er
á hendi. Á atvinnulífinu hvíla þung-
ar skyldur og sú helst að tryggja
þjóðinni þau lífskjör í bráð og lengd,
sem best mega verða. Kröfur um
árangur í rekstri, aðhald og ráð-
deild hvíla nú á atvinnulífinu af
meiri þunga en nokkm sinni fyrr.
Til okkar verður horft og hver og
einn verður að gera sitt til að byrð-
unum verði sem réttlátast skipt.,
Takist það ekki verður enginn frið-
ur og enpn samstaða um að vinna
sig út úr vandanum. Okkar ábyrgð
er því mikil en á mestu veltur, að
stjómvöld veiti hér nauðsynlega
forystu og fordæmi og skapi þann
ramma um efnahagsstarfsemina,
sem leitt getur til þess stöðugleika,
sem er forsenda viðunandi árang-
urs. Á því veltur hversu til muni
takast, en Vinnuveitendasambandið
mun ekki láta sitt eftir liggja.
NY SJOÐSBRÉF:
SKAMMTÍMABRÉF
VIB!
íSMnyáíljjjiW >**»*
N>
SJÓÐSBRÉFI
SJÓÐSBRÉF 2
UK'JWÍlAMWKUSTKl
snr. jínwiwsfofti. Armöc
\IW KUA\W llfJC
SJÓÐSBRÉF3
"h* 'Air uo. |J«utj wnr S-nnr -aJ t* «i,
•jvjAji r. SfcHK 2. nau. <or mfsmiA :nu>:
Ji f wȒ iw(s,'u
:•■«(: Mlifc'Íiuet-r\í
liIiwtiuTi.. -AaÍkllilWiani:
AV "Jvnn' 'iirnqpint
Utirrðinm. *.-cn}\a\£!j!\un
8 uo ir-ikmnV .íi
.VÍwAuTwtiDh vtaiúi*
II «i- Iiualti>
Btti 'úiihlÍiilnillLinvu. ituili-
autöim&ti ijirrítiiinUnyai
■■■ irr.Iknkt. íht
; SkuABi
itanlihi wh ijjnAna <tk
uuiiur sgjKtS lí ^rtn.ur
iJinwa
íllM/i
iiöi jC <nrí)nut‘l:
-mSIUUX. i.'MBlÚr 'lnu!
IWenýinn uúau. \todh«
a»An-tiui»k-iu» fUÉ Ihrúf
muku íí Siifcl..
wnrtii Sjbiti* turít* * Sjník
; jptiik. SLmiMOiaiyr. «* -í
; ttijitrrniuutk m
*y»ú»<i»)fcwuto«
'SkuiUMtic HinrHxitnvt
•.kWl /tndÍJmp nrífHi jþun
> vn»n«r*U»tnk*riL»h Mn;, .
; iþi'- &»oa .mi ^Ktra-. rum
■ -AMSnfurA JSÍiMfc ?. JK ■
vfrxiMacirvmkim■« i»\«.ntK\vs vvs m
KT. WlitWriSiafc, ULSMÚIA 7. M* ECVKJtAAtlú.
vmtuxni iitx «ti« utstiim
K)VUM«i.UsU\V iö .
u i, uvkjavik
IA iMiAwti JxWJi -iinflh ***BtaMi
*rín» KauM cnv'Rani -JL uiárfiw.rV þmrtn m«-i' uáffcpma Ihtnta »vrtdHMfu
\‘nBtorx&ttsimkjihb TMimbxiYmifcitt
Vmmr-. Jmuu míni ratí
l.útAntni) .5 4i> ÚTWÍB-J' j‘ SktcUfi-ai .-unntkiMenul -KÍMlUWinrtfc jwoMii
teiií- ’ ummar ^uMitmr^lrtlhurUauuKCt ■mtwulihti j íUUiWW JuwmtrtuAu,. tiAV i»r*iv
mpti -m-'ítfy-'ní lia-fru:;. :i w&Auö&rtml) rtAll ú’ ^r'iiðtirMiiihinu" -nttioi a ‘íjinh; J'-nr •funTanv -ny i.rxjnn-VW \»rtif »‘ »fc TtuLAihIb
d .tAiutó»ihrt*í>Mii I; riu*Ui\f.(Ub sCtiUuútta* it‘ «ÍKh«. í'óvwnm.'h — m?i *A.v»AuV»-’3
iw——wtUtow* mtmOmmamm táiMmauUUSaé í ---------------------------túii.i.uA.tL* Shi tíJUmtmuímmilULmmA
nuvMfc iliiiw’. mtm-
tlsmvwiitr
‘ a» ■^nU’- I
'f* jnaí niilUU
iki •» yiríiuim 'U tU'
S* öJu* £
' '3> i ‘-uUUuiiiA. VaA-
K
4 »*..»Jili:»Afc fy-x.
tuwfctbihu
*i* <u»Jtt i Jýrícu S •>*,
lcOoW'ábtx a' -ilÖaru
UwJiiioo á 1.»
MnUwVríi Wto-
V.
rí árojwdl iA**Í4»«s»
Irín»»flálirr«jr <% i.'wtúá
JirtUc. ni Im>J
á.»n'«i<i fiS&iie ormkmi úvt»
í ikuMiujmp; nt •
‘W’v
ar.rú.-CJit rftar löín- | «q; .r
■? LrtSK ted j
itm xr*
H \A <r. Mwöueni. V«nOhrífa
' i.í,MAwríMuwkú.iIiMUfcnú.'i
i í ih>i« fijú jþí nw
wWrfiAwi'isjuVifc; owi*úy*
ríaíiíUtrHfcv þa
• •
Orugg skammtímaávöxtun!
VIB, Verðbréfamarkaður Iðnaðarbankans,
kynnir ný skammtímabréf, Sjóðsbréf 3. Kjörin á
þessum nýju "bréfum eru afar hagstæð fyrir þá
sem vilja varðveita fjármuni sína og ávaxta á
óvissutímum. Verðbólgan brennir upp fé á
skömmum tíma og því má enginn tími líða eigi
það ekki að rýrna. Búist er við að ávöxtun af
nýju skammtímabréfunum frá VIB verði 9-11%
yfír verðbólgu. Innlausn þeirra er einföld, fljót-
leg og endurgjaldslaus. Sjóðsbréf 3 eru því sann-
arlega hyggilegur valkostur fyrir sparifíáreig-
endur. Gerðu vaxtasamanburð og miðaðu við
1
oryggi!
VIB - verðbréfamarkaður fyrir alla.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Armúla 7, 108 Reykjavík. Sími681530