Morgunblaðið - 08.06.1988, Side 33

Morgunblaðið - 08.06.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1988 33 annbroddar prófaðir á Fjallsjökli. Listahátíð: Verk Þorvaldar Skúla- sonar í Gallerí Borg' STNING á verkum Þorvaldar Skúlasonar er framlag Gallerís Borgar til Listahátíðar, og verð- ur hún opnuð á fimmtudag. Á sýningunni eru 10 olíumálverk, auk nokkurra qvass, vatnslita- mynda og teikninga. Það voru ættingjar Þorvaldar, búsettir í Kaupmannahöfn, sem lán- uðu myndimar. Olíumálverkin eru frá árunum 1958—1982, og segir í fréttatilkynningu frá Gallerí Borg, að nýjasta myndin sé talin eitt af síðustu málverkum Þorvaldar. Flest verkanna verða til sölu. Þorvaldur Skúlason fæddist á Borðeyri árið 1906. Hann stundaði listnám hjá Ásgrími Jónssyni árin 1925—1927 og við Statens Kunst- akademi í Oslo 1927—1930. í einka- skóla Marcel Gromaire, í París var hann 1930—1933. Þorvaldur lést árið 1984. Bókin Þorvaldur Skúlason, brautryðjandi íslenskrar samtíma- listar, eftir Bjöm Th. Bjömsson, listfræðing, sem út kom 1983 verð- ur til sölu á sýningunni. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 10.00-18.00 og frá 14.00- 18.00 um helgar. Henni lýkur 21. júní. (Ur fréttatilkynningu) a vígsluaf- víkurkirkju Jónsson frá Kollafjarðarnesi forspil, en það hafði hann einnig gjört við vígsluna. Hann spilaði sama forspil og þá. Næst tóku við stjómvölnum Ólafía Jónsdóttir organisti og Jóhann Guðmundsson kórstjóri. Sr. Andrés Ólafsson prédikaði, en hann hafði þjónað Hólmavíkurpre- stakalli í 34 ár. Sóknarpresturinn sr. Baldur Rafn Sigurðsson þjónaði fyrir altari og annaðist altarisþjónustu ásamt sr. Andrési. Að loknu eftir- spili þakkaði sóknarprestur öllum gestum, kórfólki og sr. Andrési fyrir þeirra framlag við hátíðarguðsþjón- ustuna. Að lokum fluttu þeir brseður Gufpón, Gunnar og Sigmundur Jóns- synir nokkur lög við undirleik Guðna Þ. Guðmundssonar. Var söngur þeirra mikið rómaður. Haukur Guð- laugsson söngmálastjóri þjóðkirkj- unnar lék einnig nokkur lög á píanó og aðstoðaði við undirbúning hátí- ðarinnar. Á eftir samverunni í kirkjunni var öllum boðið í kaffisamsæti í bama- skólann en konur á Hólmavík stóðu fyrir því. - BRS Kristnir í Sovétríkjunum: Fögnuður vegna biblíu- gjafa Norðurlandabúa Vonast eftir tilslökunum í trúmálum af hendi sovéskra stjórnvalda eftir Erik Bjerager Það hefur valdið miklum fögnuði hjá kirkjudeildum og einstaklingum í Sovétríkjunum að borist hafa að gjöf 150.000 bibliur frá Norðurlöndun- um. Þetta er stærsta gjöf sinnar tegundar sem kristnum Sovétmönnum hefur borist en frá þvf að bolsévikkar gerðu byltingu árið 1917 hefur dreifing bibliunnar verið nqög takmörkuð. Bibliumar em gefnar í til- efni af þúsund ára afmæli kristindóms i Rússlandi en hátíðahöld vegna afmælisins fara fram nú dagana 5. félögin á Norðurlöndunum fimm. Sú staðreynd að Norðurlandabúar hafa fengið að afhenda biblíumar gefur til kynna meiri velvilja en áður af hendi stjómvalda gagnvart kirkju- deildum í landinu en þær hafa sætt mikilli kúgun. Filaret höfuðborgarbiskup (metro- politi), sem er einn af æðstu mönnum rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, hefur sagt í viðtali að mikil þörf sé á fleiri biblíum í kirkjustarfinu og gjöfín sé einstaklega mikilvæg fyrir rétttrúnaðarkirkjuna. „Fjöldi kris- tinna í landinu er langtum meiri en Ijöldi biblíueintaka ogtakmark okkar er að sérhver eigi sína biblíu," sagði höfuðborgarbiskupinn. Þráin eftir biblíunni Hægt er að gera sér grein fyrir hinum gifurlega biblíuskorti með þvi að vera fyrir utan baptistakirkjuna í miðborg Moskvu á venjulegu laug- ardagskvöldi. Á annað þúsund manns eru á leið frá guðsþjón- ustunni sem varir í tvær stundir og lítil stúlka, í mesta lagi tíu ára göm- ul, stöðvar skyndilega útlendinginn og segir það eina sem hún kann að segja á ensku: „Viltu vera svo góður að gefa mér rússneska biblíu?" til 17. júni. Að gjöfinni stóðu Biblíu- Daginn eftir er ég staddur í einu af 49 guðshúsum rétttrúnaðarkirkj- unnar í Moskvu - fyrir byltinguna voru þau yfir 600 - og þar er fullorð- inn maður, sem heyrt hefur um biblíugjöf Norðurlandabúa. ■ „Látið senda kirkjunni okkar tuttugu af biblíunum. Bara tuttugu. Það kemur svo mikið af nýju fólki sem vill lesa biblíuna en við eigum ekki nógu margar." Serge, sem er 23 ára gamall, sæk- ir nær allar þær sex guðsþjónustur sem haldnar eru í baptistakirkjunni í Moskyu í viku hverri og það hefur hann gert í mörg ár. Hann hefur aldrei átt biblíu en segir að það sé hans heitasta ósk. Einn vina hans bauð mér heim til sín í ömurlegt steypukassa-úthverfí í Moskvu. Eftir að við höfðum rætt saman í margar klukkustundir í fá- tæklegri íbúðinni, sem var illa búin húsgögnum, opnaði hann skáp til að sýna mér dýrmætustu eigur sínar: Litla vasabiblíu, sem finnskir ferða- Iangar höfðu eitt sinn gefið honum, og enska biblíu í fallegu leðurbandi sem var gjöf frá bandarískum gest- um. Báðar bækumar varðveitir hann vandlega í plastpokum. í sovéskum bókasöfnum er hvorki Filaret Moskvubiskup: „Tak- mark okkar að allir geti átt biblíu.“ hægt að fá lánaðar biblíur né önnur trúarleg rit og heldur ekki hægt að kaupa þau í verslunum. Aðeins er hægt að fá þau að láni ef viðkom- andi hefur meðferðis skriflégt leyfi frá vinnustað sínum þar sem tekið er fram að hann þarfnist ritanna við störf sín. Sem stendur er hvergj hægt að kaupa biblSu í Moskvu eða annars staðar í Sovétríkjunum með venjuleg- um hætti. Á svarta markaðnum í Moskvu kostar biblía 70 - 120 rúblur ( 5000 - 8.600 ísl. kr.) en viðmælend- ur mínir sögðu að nær ómögulegt væri að nálgast þær. Rétttrúnaðar- kirkjan og baptistakirkjan, sem er stærsta mótmælendakirkjudeildin, annast sjálfar prentun á biblíum. 70 milljónir kristnir Síðastliðin þrjátíu ár hefur rétt- trúnaðarkirkjan látið prenta saman- lagt 350 þúsund biblíur og baptista- kirkjan fær árlega leyfi til að prenta fímm til tíu þúsund biblíur. Kirkju- deildimar dreifa sjálfar þessum bibl- íum en upplag þeirra samanlagt er allt of lítið til að fullnægja sífellt vaxandi þörf kristinna í landinu. Giskað er á að þeir séu um 70 milljón- ir eða fjórðungur þjóðarinnar. Biblíufélögin á Vesturlöndum hafa öðru hveiju fengið leyfi yfirvalda til að gefa baptistakirkjunni nokkuð af biblíum en það hefur ekki dugað. Sömuleiðis hefur það aðallega haft táknræna þýðingu að ýmis samtök hafa smyglað fáeinum biblíum til landsins. Faðir Andronik, sem er munkur í Zagorsk-klaustrinu norðaustur af Moskvu og guðfræðiprófessor við prestaskólann á sama stað, segir að yfirþyrmandi skortur á biblíum hafi þær afleiðingar að ungir Rússar viti nú jafn mikið um kristindóminn og lítil böm. „Þetta er stærsti vandi kirkjunnar núna,“ segir faðir Andr- onik. „Allar guðfræðilegar hefðir okkar urðu fyrir þungu áfalli eftir byitinguna 1917 og nú verðum við átakanlega vör við að margir vita ekkert um guð. Þess vegna er þörfin fyrir biblíur svo mikil." Norræna gjöfin er talin andvirði rúmlegpa 120 milljóna ísl. króna og hafa aldrei borist jafn margar biblíur í einni sendingu til Sovétríkjanna. Um er að ræða svonefnda „náms- biblíu" í þrem bindum með skýring- um og athugasemdum. Að sögn foð- ur Androniks er þessi útgáfa afar hentug fyrir fólk með litla þekkingu á biblíunni og kristindómnum. Fyrsta sendingin er þegar komin til Moskvu og byijað að dreifa henni um landið. íslenska biblíufélagið hef- ur beðið ríkisstjómina um fjárstuðn- ing vegna biblíugjafarinnar, stjómir Danmerkur og Noregs hafa þegar ákveðið að veita stuðning en yfirvöld l Svíþjóð og Finnlandi hafa enn ekki svarað beiðnum biblíufélaganna um stuðning. Hvarvetna verður veruleg- ur hluti gjafarinnar fjármagnaður 1 með fijálsum framlögum. Höfundur er blaðamaður i Dan- mörku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.