Morgunblaðið - 08.06.1988, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDA^UR 8. JÚNÍ 1988
35
Stækkun álversins:
Raforka unnin á hagkvæm-
an hátt úr jarðgufu?
Hugmyndir um stórfellda virkjun Nesjavalla og Eldvarpa
STÆKKUN álversins, ef af verður, kallar á auknar virkjannafram-
kvæmdir hérlendis fram að árunum 1991-92. Auk Blönduvirkjunnar
sem á að verða tilbúin 1991 er helst rætt um stækkun Búrfellsvirkj-
unar og Sultartangavirkjunar til að mæta hinni auknu orkuþörf en
einnig eru uppi hugmyndir um raforkuvinnslu i stórum stQ á Nesja-
vöUum og Eldvörpum suður á Reykjanesi einkum vegna nálægðar
við álbræðsluna og þess að talið er að á þessum stöðum megi vinna
raforku á hagkvæman hátt úr jarðgufu.
Ef ráðist verður í stækkun ál- Þótt stækkun Búrfellsvirkjunnar
versins við Straumsvík verður afl- og Sultartangi séu þær virkjanir
þörf þess um 300 megavattstundir
og orkuþörf um 2500 gígavatt-
stundir á ári. Ljóst er að Blöndu-
virkjun ein mun hvergi nærri anna
þeirri orkuþörf. Hinsvegar er
Blönduvirkjun lengst komin af þeim
virkjanaframkvæmdum sem áform-
aðar eru á næstu árum. Olafur Jens-
son hjá Landsvirkjun segir að í
sumar verði varið 363 milljónum
króna til virkjunarinnar en þá á að
ljúka allari jarðgangagerð og upp-
byggingu mannvirkja auk þess að
unnið verður að þéttingu undir
stíflunni. Á næsta ári á síðan að
hlaða upp stífluveggina og á árun-
um 1990-91 verður unnið að upp-
setningu vélasamstæðnanna.
Stækkun Búrfellsvirkjunnar hef-
ur verið til á teikniborðinu frá árun-
um 1979-81. Afl þeirrar virkjunnar
er 100 MW og orkuframleiðslan 510
GW stundir á ári. Gert er ráð fyrir
að byggt verði sérstakt stöðvarhús
suðaustur af núverandi húsi. Vatnið
í þessa virkjun á að taka úr núver-
andi aðfallsgöngum Búrfellsvirkj-
unnar en síðan þyrfti að byggja 2
km löng affallsgöng út í Fossá.
Sultartangavirkjun er lengra á
veg komin en stækkun Búrfells-
virkjunnar þar sem þegar er búið
að byggja stíflugarðinn við hana
en það var gert á árunum 1982-83.
Afl þessarar virkjunnar er 110 MW
og orkuframleiðslan 735 GW stund-
ir á ári. Virkjun þessi er staðsett á
mótum Þjórsár og Tungnár í um
það bil 13 km fjarlægð frá Búrfells-
virkjun.
tekur til starfa á tímabilinu 1992-
1994 er áætlað að heildarffjárfest-
ing í raforkugeiranum á næsta ára-
tug gæti numið um 25 milljörðum
króna á verðlagi í desember síðast
liðnum (1987 innskot blm.) þar af
um 19 milljarðar í orkuöflunarkerf-
inu það er virkjunum og flutnings-
línum."
sem helst er horft til ef af stækkun
álversins verður er raforkuvinnsla
úr jarðgufu ekki síður til umræðu
enda hagkvæmur kostur. Jóhann
Már Maríusson aðstoðarforstjóri
Landsvirkjunnar kom inn á þetta í
erindi sem hann flutti á síðasta
ársfundi Landsvirkjunnar. Þar
sagði hann m.a.: „Ef ráðist verður
í byggingu hins nýja álvers við
Straumsvík...má sjá að þær vatns-
aflsvirkjannir sem þegar eru verk-
hannaðar auk Blönduvirkjun,
myndu nægja ríflega til að sjá fyrir
orku og aflþörfum slíkrar verk-
smiðju. Ekki er þó talið að hag-
kvæmast yrði að sjá fyrir orkuþörf-
um markaðaríns í slíku tilviki með
vatnsaflsvirkjunum eingöngu.
Kemur þá mjög til álita raforku-
vinnsla í stórum stíl á Nesjavöllum
og í Eldvörpum suður á Reykjanesi
einkum vegna nálægðar við ál-
bræðsluna en einnig vegna þess að
talið er að á þessum stöðum megi
vinna raforku á mjög hagkvæman
hátt úr jarðgufu. Þá má heldur
ekki gleyma þeim möguleika að
hægt verður að stækka Kröflu um
helming með tiltölulega stuttum
fyrirvara."
Jóhann kom einnig inn á fjárfest-
ingar- og mannaflaþörf vegna upp-
byggingar virkjanna og flutnings-
lína í tengslum við stækkun álvers-
ins og sagði hann að hún væri ekki
meiri en áður hefur gerst í raforku-
geiranum...„Ef álbræðslan við
Straumsvík verður að veruleika og
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Zsuzsa Polgar og Helgi Ólafsson áttust við í fyrstu umferð og lauk
þeirri viðureign með sigri Zsuzsa.
Opna Austurlandsmótið í skák:
Helgi off Zsuzsa Polgar sterkust
EirUsstöðum.C-' CJ
Egilistöðum.
FYRSTA umferð í opna Austurlandsmótinu í skák var tefld á Egils-
stöðum á mánudag. Keppendur á mótinu eru 34 og er teflt í tveimur
styrkleikaflokkum. 1. flokk skipa þeir sem hafa 2.000 ELO-stig eða
fleiri en 2. flokk þeir sem eru neðan við 2.000 ELO-stig. Keppendur
í fyrsta flokki eru 10 og er þar sterkastur Helgi Ólafsson stórmeist-
ari með 2.540 stig en fast á hæla honum kemur Zsuzsa Polgar frá
Ungveijalandi með 2.480 stig. Þau kepptu saman í fyrstu umferðinni
og lauk skákinni með sigri Zsuzsa sem hafði hvítt.
Alls keppa 8 útlendingar á þessu
móti, en þekktastir hér á landi eru
e.t.v. Polgar-systumar, Zsuzsa, Judit
og Zsofía ffá Ungveijalandi, en þær
keppa hér ásamt foreldrum sínum.
Móðirin ætlaði ekki að taka þátt í
mótinu en þegar einn þátttakandi
boðaði forföll hljóp hún í skarðið.
Polgar-systur tóku þátt í Reykjavík-
urmótinu sl. vetur og vöktu mikla
athygli. Zsuzsa, sem er 18 ára, er
alþjóðlegur meistari en hinar sem eru
aðeins 11 og 13 ára eru einnig sterk-
ir skákmenn.
Egilsstaðabær heldur mótið og
verður keppt alla daga fram til 15.
júní, fyrir utan 10. júní, í Hótel Vala-
skjálf. Verðlaun eru 8 í hvorum flokki
og nema alls um 700.000 krónum.
Fyrstu verðlaun í efri flokki eru um
200.000 krónur en 100.000 í þeim
neðri.
í fyrstu umferð urðu úrslit í A-
flokki þau að skák Björgvins Jóns-
sonar og James Plaskett fór í bið,
Judit Polgar sigraði Sævar Bjama-
son, Hannes Hlífar Stefánsson og
Mark Orr gerðu jafntefli, Zsuzsa
Polgar sigraði Helga Ólafsson og
Karl Þorsteins vann Þröst Þórhalls-
son
Úrslit f B-flokki urðu þau að Zsofi
Polgar vann Sigurð Ragnarsson, Við-
ar Jónsson vann Klöru Polgar, Uros
Ivanovieh vann Kristján Eðvarðsson,
Jakob Thomsen vann Einar K. Ein-
arsson, Gunnar Finnsson vann Jón
Þór Jóhannsson, Ragnar Fjalar Sæv-
arsson vann Þórarinn Sveinsson, Þór
Öm Jónsson vann Sverri Hjaltason,
Sverrir Unnarsson vann Þorvarð Ól-
afsson, Magnús Valgeirsson og Lazlo
Polgar gerðu jafntefli, Guðmundur
I. Jóhannsson vann Gunnlaug Gunn-
laugsson, Bragi Bergsteinsson og
Hörður St. Þórbergsson skildu jafnir
og Brynjólfur Siguijónsson vann
Amar Ingólfsson. - Bjöm
Hallgrímskirkja:
Ferðir á vegum
starfs aldraðra
FERÐIR á vegum starfs aldraðra
í Hallgrímskirkju eru fyrirhug-
aðar í sumar, sem og undanfarin
ár. Farið verður í þriggja vikna
ferð tU Noregs í júlí og einnig
er skipulögð fimm daga ferð á
norð-austur horn landsins.
Flogið verður til Osló þ. 27. júlí
og komið heim þ. 16. ágúst. Dvalið
verður að mestu í Þrándheimsfirði
og nánasta umhverfi skoðað. Svip-
uð ferð var farin síðasta sumar til
Norður Jótlands. Vegna forfalla em
þijú sæti laus.
I innanlandsferðina verður lagt
af stað þ. 8. júlí. Flogið verður til
og frá Húsavík. Þaðan verður ekið
um Axarfjörð, Vopnafjörð og Mý-
vatnssveit, og m.a. komið við í As-
byrgi, Hljóðaklettum, Hólmatung-
um og Dettifoss skoðaður.
Eins dags ferð verður farin
fímmtudaginn 9. júní. Ekið verður
til Hellu, farið að Tröllkonuhlaupi,
í Galtalækjarskóg komið við á
Skarði í Landssveit.
Leiðrétting
í tónlistargagnrýni Egils Frið-
leifssonar um Pólska sálumessu í
blaðinu í gær misritaðist eitt orð.
Viðkomandi setning átti að vera:
„Söngur hans var svo hreinn og
hrífandi að fágætt er.“
Blaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.
Skoðanakönnun DV:
Vigdís með 98,3% fylgi
SAMKVÆMT niðurstöðum skoð-
anakönnunar, sem DV gerði um
siðustu helgi, fær Vigdis Finn-
bogadóttir forseti 98,3% atkvæða
í forsetakosningunum þann 25.
Leiðrétting
íslenski gigtlæknirinn sem hlaut
Sjmtex styrkinn á norræna gigt-
læknaþinginu í Reykjavík heitir
Helgi Jónsson, ekki Halldór eins og
misritaðist í viðtali við hann í blað-
inu í gær. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á þessum mistökum.
júní næstkomandi, en Sigrún
Þorsteinsdóttir 1,7%.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns. Jöfn skipting var milli
kynja, sem og milli landsbyggðar-
innar og Reykjavíkursvæðisins. í
könnuninni var fólk spurt hvem það
ætlaði að kjósa í forsetakosningun-
um. Af heildinni sögðust 88,7%
styðja Vigdísi, 1,5% Sigrúnu, 2%
neituðu að svara og 7,8% kváðust
vera óákveðin. Ef aðeins eru teknir
þeir sem tóku afstöðu verður út-
koman hins vegar 98,3% fylgi
Vigdísar og 1.7% fvlgi Sigrúnar.
Haustferðir tii
/WaÆriAa/
Anna Þrúður Þorkelsdóttir félagsmálafulltrúi
veitir upplýsingar og ráðgjöf varðandi haustferðir
Klúbbs 60 á skrifstofunni Hallveigarstíg 1,
6.-10. júní báðir dagar meðtaldir milli kl. 15.30-17.
Heitt á könnunni.
Brottfarir: 25. sept. — 7. okt. — 11. nóv.
(MCfHVTIK
FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTlG 1 SlMAR 28388 - 28580