Morgunblaðið - 08.06.1988, Page 58

Morgunblaðið - 08.06.1988, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1988 „ Fljót þln sendi mfer afimælisgjöf. Klábu í vatnsfdfcu." c 1984 Unlvtml Prm SyndlMU 3.-/7 Með morgxmkaffinu Ekkert liggur á! Það er búið að finna upp fasteignaskattinn. HÖGNI HREKKVÍSI <p 2 f, ^EG FVLLTI þAE?AFPOPFKORN).'" I>essir hringdu .. Höfum hugann við aksturinn Atvinnubílstjóri hringdi: „Ökumaður fékk birtan pistil eftir sig í Velvakanda um daginn og er á honum að skilja að hrað- akstur og ölvunarakstur sé ástæðan öllum slysum. Þetta er því miður ekki tilfellið, oftast er hreinum sauðshætti um að kenna. Fólk einbeitir sér einfald- lega ekki nóg að akstrinum þeg- ar það er undir stýri og þess vegna verða oft mikil slys þó hraðinn sé innan eðlilegra marka miðað við aðstæður. Eg er ekki að mæla hraðakstri bót og því síður ölvunarakstri. En stað- reyndin er bara sú að ef við vilj- um fækka slysunum verða öku- menn að taka sig á og hafa hug- an við aksturinn og ekkert ann- að.“ Góð sumarnámskeið Rannveig hringdi: „Ég vil þakka Iþrótta- og tóm- stundaráði Reykjavíkur fyrir ágæt sumamámskeið sem haldin hafa verið fyrir böm á aldrinum 6 til 10 ára. Þetta em tíu daga námskeið og mjög flölbreytt. Dóttir mín er búin að vera á þessum námskeiðum í fímm daga og er alveg upptekin af þessu. Ég vil benda foreldrum sem eiga böm á þessum aldri á að kynna sér þessi námskeið því bömin geta haft mikið gagn og gaman af þeirn." Kerrupoki Kona hringdi: „Ég fékk kerrupoka í mis- gripum úr hreinsun í Grímsbæ fyrir nokkm. Minn kermpoki, sem er gæmkermpoki, hefur hins vegar lent hjá öðmm viðskipavin fyrirtækisins. Bið ég hann að hafa samband við mig í síma 76021. Kvengullúr Kvengullúr tapaðist í Kópavogsstrædó 1. júnf á Ieiðinni frá Kársnesbraut að Lækjart- orgi. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Guðnýju í síma 11139. Grá læða Grá læða með hvíta bringu og hvítar hosur og stóran hvítan blett öðm megin við trýnið fannst á rölti í Karfavogi fyrir nokkm. Hún er með skærgula ól með steinum. Eigandi hennar er beð- inn að hringja í síma 32651 sem fyrst. Angóralæða Svört angóralæða tapaðist frá Vfkurbakka hinn 13. maí. Þeir sem hafa orðið varir við hana em vinsamlegast beðnir að hringja í síma 73084. Gleraugu Gleraugu í brúnni umgerð töp- uðust á Hótel íslandi sl. laugar- dagskvöld. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 24438. Fundarlaun. Yíkverji skrifar Víkverji las einhversstaðar í Qöl- miðlaflómnni að utanferðum Islendinga Qölgaði enn. Svo mun komið að Qöldi utanferða er nánast hinn sami og tala vinnandi manna, sem svarar helft þjóðarinnar. Það er naumast að mönnum liggur á að yfírgefa skerið! Það er að vísu af hinu góða að orlofsferðir til annarra landa em ekki lengur bundnar við tiltölulega fáa menn, sem ferðast á annarra kostnað eða sitja á gildum sjóðum. Engu að síður skortir á kynningu á ferðaleiðum innanlands. Þess- vegna sækir margur vatnið yfír lækinn; leitar langt yfír skammt að dægradvöl í orlofi. Úr má bæta. Ekki skortir auglýsingastofur eða fjölmiðla í Iandinu. Að vísu munu ferðamálin í þolan- legum jöfnuði. Erlendir ferðamenn eyða svipaðri Qárhaeð hér á landi og íslendingar erlendis. En ekki kæmi að sök þótt orlofseyðsla ís- lendinga, sem er ekkert smáræði á heildina litið, yrði að drýgri hluta eftir hér heima. Það skapar störf. Bætir viðskiptajöfnuðinn. XXX Eitt sinn var Víkveiji f „sjálfs- grilli" á sólarströndu. Þar fékk hann spumir af því að norsk, dönsk og sænsk samtök launafólks ættu íbúðablokkir og orlofsaðstöðu víða við Miðjarðarhafið. Víkveija er hinsvegar ekki kunnugt um að hlið- stæð samtök íslenzk búi jafn vel. Mörg íslenzk stéttarfélög eiga hins- vegar íbúðir og orlofshús víða hér- lendis. Máske em fslenzk stéttarfélög þetta þjóðlegri en hliðstæður í Skandinavíu. Ef til vill er það orlofs- steftia þeirra að ýta undir íslenzka atvinnustarfsemi að þessu leyti. Hollt er heima hvat. Varla em svo- kallaðir „verkalýðsrekendur" hér- lendir hugmyndasnauðari eða fram- taksminni en starfsbræður þeirra í grannríkjum. Þao mætti þó hugsan- lega gauka því að þeim, svona í góðu, að hafa má fleiri en eitt jám í eldi, einnig á þessum vettvangi tilverannar. XXX erzlunarmannafélag Reykjavíkur, sem nýlega var í verkfallsfréttum á sama tíma og önnur stéttarfélög sömdu sem hrað- ast, hefur búið dável í haginn fyrir félaga sína um orlofsmál. Félagið samdi nýlega, ásamt fleiri félögum, um ódýrar flugferðir til Þýzkalands í sumar. Félagið leigði jafnframt 10 orlofshús í Sonnenberg og Wars- berg í Þýzkalandi. Einnig gerði fé- Iagið hagstæðan samning við bfla- leigu í Lúxemborg. Þá á félagið 21 orlofshús á hinum ýmsu stöðum í landinu. Og framkvæmdir em hafn- ar við byggingu fleiri orlofshúsa á rúmum 12 hekturum lands sem VR á í Biskupstungum. Ekki er Víkveija kunnugt um, hvort VR hyggur á eigin orlofsað- stöðu fyrir félagsmenn við Miðjarð- arhafíð, eins og raun er á með nor- ræn launþegasamtök. Það kæmi honum hinsvegar ekki á óvart þótt VR-foiystan færi fram úr öðmm stéttarfélögum að þessu leyti. XXX Fyrir margt löngu neitaði Hall- gerður nokkur langbrók bónda sínum, Gunnari á Hlíðarenda, um hárlokk í bogastreng, svo hann mætti veijast óvinum sínum. Hún neitaði, að þessu leyti, samábyrgð á heimilishögum, samátaki um vamir gegn utanaðsteðjandi vanda. Með afleiðingum sem óþarfí er að rekja frekar. Samtök um Kvennalista neituðu stjómaraðild, sem í boði var, eftir síðustu kosningar. Þau neituðu — í vissum skilningi — samfélaginu um hárlokk í bogastreng til vamar gegn aðsteðjandi vanda. Þótt sögu- lok verði önnur en að Hlíðarenda forðum, enda aðstæður aðrar og heimilishagir breyttir, fannst Víkveija afstaða Kvennalistans langbrókarleg. Sem og vinnulag hans síðan. Annað mál er að hin neikvæða afstaða hefur fremur aukið en dreg- ið úr fylgi þessa fyrirbæris í skoð- anakönnunum. Það er „vinsælla" að setja út á en að axla ábyrgð, takast á við vandamálin. Það er og mannlegt. Stórmannlegt er það hinsvegar ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.