Morgunblaðið - 08.06.1988, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1988
63
BLAK
Dómurum greitt
sín
Aársþingi Blaksambands ís-
lands, sem haldið var á dögun-
um, var samþykkt að dómarar fái
á næsta keppnistímabili greiðslur
fyrir dómgæslu í 1. deild og bikar-
keppni.
Kjarfan Páll Einarsson var endur-
lqörinn formaður BLÍ, og aðrir í
sýóm em: Friðbert Traustason,
Beigiind Þórhallsdóttir, Þorvarður
Sigfússon og Jón Gunnar Sveins-
son.
4. DEILD
Skoraði tvö
og viðbeins-
brotnaði
Jón Þór Þórsson, leikmaður með
Skallagrími, varð fyrir því
óhappi að viðbeinsbrotna í leik gegn
Létti í 4. deildarkeppninni i knatt-
spymu i gærkvöldi. Jón Þór var
búinn að skora tvö mörk þegar
óhappið varð.
Skallagrímur vann, 5:1, á gervi-
grasvellinum í Laugardal. Hafþór
Hallsson skoraði einnig tvö mörk
og Ólafur Helgason eitt. Mark Létt-
is skoraði Einar Birgisson.
FRJALSAR
Guðmundur
náði 5. besta
árangrinum
í1500m
GUÐMUNDUR Sigurðsson,
UMSK, náði fimmta besta tíma
íslendings f 1500 metra hlaupi
á Bislet-leikvaginum f Osló f
fyrrakvöld, hljóp á 3:50,34
mínútum.
Guðmundur bætti árangur sinn
í 1500 metra hlaupi um röskar
þijár sekúndur, átti íiður 3:54,6 frá
í hitteðfyrra. Guðmundur varð f 5.
sæti í hlaupinu, sém vannst á 3:48
mín.
Hannes Hrafnkelsson KR varð í
5.-6. sæti í seinni ríðli hlaupsins á
3:58,47 mínútum, sem er hans
næstbesti árangur, á 3:57,50 frá í
hitteðfyrra.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Atli Eðvaldsson í hópi
reyndustu leikmanna EM
Ásamt köppum eins og Dino Zoff,
Morten Olsen, Sören Lerby, Liam
Brady, Pat Jennings og Eric Gerets
ATLI Eðvaldsson, fyrirliði
íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, er í hópi leikreyndustu
knattspyrnumanna, sem hafa
tekið þátt í Evrópukeppni
landsliða.
Atli er í níunda til átjánda sæti
á iistanum yfír leikmenn, sem
hafa leikið flesta Evrópuleikina.
Atli hefur leikið 23 leiki. Kappar
eins og Sepp Maier, V-Þýskalandi,
Dino Zoff, Ítalíu, Santillana, Spáni,
Frank Stapleton, írlandi og Sören
Lerby, Danmörku, hafa leikið jafn
marga leiki.
Morten Olsen, fyrirliði danska
landsliðsins, hefur leikið flesta leiki,
eða 28. Næstir á blaði eru Facc-
hetti, Ítalíu, Pat Jennings, N-írlandi
og Liam Brady, írlandi — með 27
leiki, Eric Gerets, Belgíu, hefur leik-
ið 25 leiki og Nené, Portugal, John
Holland, Möltu og Jan Ceulemans,
Belgíu, hafa leikið 24 leiki.
■Atli er einnig ofarlega á blaði
yfir leiknar mínútur. Hann hefur
FRJALSAR
Þórdís
stökk 1.82 m
Þórdís Gísladóttir stökk 1,82
metra í hástökki á frjálsí-
þróttamóti í Vestur-Þýzkalandi um
helgina, en þetta var fyrsta utan-
hússmót hennar í ár.
Þórdís varð í sjötta sæti á mótinu,
sem fram fór f bænum Wörrstadt.
Sigurvegari varð Svetlana Isaeva
frá Búlgaríu sem stökk 1,93 metra.
Austur-evrópskar stúlkur urðu í
næstu tveimur sætum, stukku báð-
ar 1,88 metra. Þórdís hefur sett
stefnuna á ólympfulágmark f sum-
ar, en til þess að komast til Seoul
þarf hún að stökkva tvisvar yfír
1,90 metra í sumar. íslandsmet
hennar er 1,87, sett á móti f Gaines-
ville í Flórída 19. marz 1983.
leikið í 2.070’ttiín. í Evrópukeppni
og er í níunda sæti. Facchetti, ít-
alíu, hefur leikið flestar í min., eða
2.490. Þá kemur Morten Olsen,
Danmörku, 2.449 mín., Pat Jenn-
ings, N-Irlandf, 2.385 mín., Liam
Brady, írlandi, 2.355 mín., Eric
Gerets, Belgíu, 2.205 mín., Sepp
Maier, V-Þýskalandi, 2.130 mín.,
Dino Zoff, ítalfu, 2.115 mín. og
John Holland, Möltu, 2.080 mfn.
■ Atli Þór Héðinsson, fyrrum leik-
maður KR, er í hópi þeirra sem
hefur leikið styst í Evrópukeppni.
Hann hefur leikið inn á í fimm
mfn. Hann er í sextánda til tuttug-
usta og þriðja sæti. Tveir leikmenn
hafa aðeins leikið eina mín. inn á
í Evrópukeppninni. Það eru þeir
Bleidick, V-Þýskalandi (1971) og
Kovacik, Tékkóslóvakíu (1983).
Þorvaldur Örlygsson, KA, er í
fertugusta og áttunda sæti, með tfu
mín. leiknar og Ottó Guðmunds-
son, KR, kemur í sextugusta og
fjórða sæti, með þrettán mín. leikn-
ar.
Morgunblaöiö/Einar Falur
Atll Eðvaldsson sést hér sækja að Dessajew, markverði Sovétmanna, í lands-
leik f Evrópukeppninni. Anatoli Demjanenko, fyrirliði, er einnig til vamar.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Fimmtugastí leikur
Keflavíkur og Fram
KEFLVIKINGAR fá Framarar
í heimsókn f kvöld f 1. deildar-
keppninni f knattspyrnu. Leik-
urinn er fimmtugasta vlöur-
eign þeirra f 1. deildarkeppn-
inni.
Keflavík og Fram léku fyrst í
1. deildarkeppninni 1958 og
lauk leiknum með jafntefli, 2:2.
Keflvíkingar hafa unnið átján
leiki, en Framarar sextán. Fimmt-
án sinnum hefur orðið jafntefli.
Keflvíkingar hafa skorað 68 mörk
gegn 60 mörkum Framara.
Þrír aðrir leikir verða leiknir f 1.
deildarkeppninni í kvöld. Völsung-
ar fá íslandsmeistara Vais í heim-
sókn. Nýliðar Víkings og Leifturs
mætast á heimavelli Víkings - í
Fossvogsdalnum. Þórsarar fá
Skagamenn í heimsókn.
Allir leikimir heijast kl. 20.
SUND / LANDSLIÐIÐ
Guðmundur Harðarson
hættirað þjálfa eftir ÓL
„ÉG tók við landsliðinu 1985
og œtlaði aldrei að vera leng-
ur en fram yfir Ólympíuleik-
ana f Seoul. Sú ákvörðun
stendur og óg tek mér frf f
haust,u sagði Guðmundur
Harðarson, landsliðsþjálfari
íslands í sundi, við Morgun-
blaðið í gœr vegna auglýs-
ingar í blaðinu frá Sundsam-
bandi íslands, þar sem óskað
er eftir landsliðsþjálfara.
Guðmundur þjálfaði í Dan-
mörku, en kom aftur heim
fyrir þremur árum og ætlaði þá
að hvíla sig á þjálfun. „Þá hafði
ég þjálfað samfellt í 20 ár og
fannst kominn tfmi til að hætta,
en lét undan þrýstingi og tók að
mér landsliðið í þijú ár. Tímabilið
er úti f haust og þá geri ég ráð
fyrir að snúa mér alfarið að fyrir-
tæki mínu,“ sagði landsliðsþjálf-
arínn.
Lágmörk
Eðvarð Þór Eðvarðsson og Ragn-
heiður Runólfsdóttir hafa þegar
náð lágmörkum fyrir Ólympíuleik-
ana, en fslenska ólympfunefndin
hefur tilkynnt að allt að sex sund-
menn taki þátt f leikunum. Að
sögn Guðmundar reynir sund-
fólkið fyrst og fremst við lág-
mörkin á spænska meistaramót-
inu, sem verður í Barceiona í lok
júlf, og á Norðurlandamótinu í
Osló um miðjan ágúst. „Við æfum
núna með þessi mót í huga, en
síðustu helgina í júní förum við
óhvíld á æfingamót í Hamar í
Noregi," sagði Guðmundur.
Ragnar í Svfþjóö
Ragnar Guðmundsson hefur æft
með sundfélagi í Malmö í Svíþjóð
síðan í október og um helgina tók
hann þátt f æfingamóti í Mónakó.
Hann synti 1.500 m skriðsund á
16.22,51 (á best 16.09) og hafn-
aði í 5. sæti, en fékk tímann
4.12,3 í 400 m skriðsundi (á best
4.06) og var því nokkuð frá sínu
besta.
>. / /
GuAmundur Harðarson
KNATTSPYRNA
Jóna
kom, sá
og sigraði
Jóna Kristjánsdóttir var í aðal-
hlutverkinu þegar KR og Fram
mættust f 1. deildarkeppni
kvenna á KR-velli f gærkvöldi.
KR-liöiö var betri aöilinn í leikn-
um og sigraði örugglega 4:1.
Fyrir leikinn breytti Haraldur
þjálfari KR uppstillingu liðsins.
Hann setti Jónu í framlínuna, en
hún hefur undanfama leiki spilað á
mn miðjunni. Staðan
H.Katrín virðist eiga vel við
Fríðríksen Jónu því hún skoraði
skrífar öll fjögur mörk KR
í gær.
Jóna skoraði tvö mörk í fyrri hálf-
leik, bæði eftir fyrirgjafir frá
Helenu Ólafsdóttur. Eftir hlé bætti
Jóna síðan við tveimur mörkum
fyrir KR. Hið fyrra setti hún eftir
hom, lagði knöttinn laglega niður
og skoraði með góðu skoti. Fjórða
markið kom eftir þvögu sem mynd-
aðist í teig Framara. í lok leiksins
fengu Framstúlkumar víti þar sem
einn vamarmanna KR handlék
knöttinn innan vítateigs. Það var
Kristín Þorleifsdóttir sem skoraði
öragglega úr vítaspymunni og lag-
aði stöðuna aðeins fyrir Fram.
Sigurinn hefði auðveldlega getað
orðið stærri hjá vesturbæjarliðinu,
því þær réðu lögum og lofum á
vellinum. Sérstaklega var miðja
KR-liðsins, með Kristrúnu Heimis-
dóttir í fararbroddi, sterk. Þá mynd-
uðu þær Jona Kristjánsdóttir og
Helena Ólafsdóttir skemmtilegt
framlínupar. 'r
BYamliðið var dauft í leiknum. Þær
náðu nokkmm skyndiupphlaupum
sem flestar mnnu út í sandinn án
þess að ógna marki KR að ráði.
Liðið náði engum tökum á miðjunni
og fengu því framheijamir úr litlu
að moða. Það var helst að vamar-
mennimir spymtu fram og í þeim
tilfellum höfðu vamarmenn Klf<r
yfírleitt betur í baráttu um knöttinn.