Morgunblaðið - 26.07.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Skálholtskirkja var þétt setin á hátíðarsamkomu á sunnudag.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Skálholtskirkja hin nyja 25 ára
Selfossi.
FJÖLDI manns var á Skálholtshátíð sem fór fram á sunnudag í
fögru veðri. Á hátíðinni var minnst aldarfjórðungsafmælis Skál-
holtskirkju hinnar nýju sem var vigð 21. júlí 1963. Kirkjan var teikn-
uð af Herði Bjarnasyni húsameistara ríkisins. Hátíðin hófst með
klukknahringingu, organleik og skrúðgöngu presta og biskupa til
messugjörðar í Skálholtskirkju. Séra Olafur Skúlason vígslubiskup
prédikaði og sr. Sigurður Guðmundsson vigslubiskup, sr. Guðmund-
ur Óli Ólafsson og sr. Sigurður Sigurðarson þjónuðu fyrir altari.
Að lokinni messu var gestum boðið til afmæliskaffís. Loks var hátið-
arsamkoma í kirkjunni þar sem Jón Sigurðsson dóms- og kirkjumála-
ráðherra flutti ræðu. Meðal gesta á hátíðinni var Vigdís Finnboga-
dóttir forseti íslands.
í prédikun sinni sagði sr. Ólafur
Skúlason meðal annars að frá Skál-
holti hefðu legið straumar út til
þjóðarinnar og staðurinn hefði
meiru miðlað en aðrir staðir á ís-
landi. Hann sagði það sjást í göml-
um heimildum að væri vegur Skál-
holts mikill þá vegnaði þjóðinni vel.
Séra Ólafur minntist á það að eftir
5 ár væru liðin 800 ár frá andláti
Þorláks Þórólfssonar hins helga.
Þá væri við hæfí að halda veglega
hátíð.
„Það hefur tekist að kveðja Skál-
holt til nýrrar þjónustu í þjóðlíf-
inu,“ sagði Jón Sigurðsson dóms-
og kirkjumálaráðherra meðal ann-
ars í ræðu sinni á hátíðarsamkom-
unni. Hann sagði endurreisn staðar-
ins bera því gott vitni hvemig sýna
mætti umhyggju fyrir fomleifum
og sinna líflegu menningarstarfi.
Jón sagði gildi Skálholtskirkju fel-
ast í byggingum hennar, legu og
tengslum við menningu þjóðarinn-
ar. Skálholt væri eign þjóðarinnar
og helgidómur hennar.
Ingibjörg Marteinsdóttir söng-
kona söng einsöng á sa.nkomunni
við undirleik Daða Kolbeinssonar
óbóleikara og Guðna Þ. Guðmunds-
sonar organleikara. Danskur gest-
ur, Kristian Uhr prófastur, flutti
ávarp og kveðjur. Sr. Sigurður
Guðmundsson vigslubiskup flutti
ritningarlestur og bæn og samkom-
unni lauk slðan með almennum
söng. — Sig. Jóns.
Röskun og þensla vegna nýs
álvers mun minni en talið var
GERÐ hefur verið lausleg áætlun um fjárfestingarkostnað og þjóð-
hagsleg áhrif þess að nýtt álver risi í Straumsvík. I þessari áætlun
kemur fram að innlend fjárfesting á þessum vettvangi á ársgrund-
velli nemur 4,2% af heildarfjárfestingu atvinnuveganna í ár. Friðrik
Sophusson iðnaðarráðherra segir að þetta sýni að röskun á vinnumark-
aði og þensluáhrif vegna álversins verði mun minni en áður var talið.
Þó sé sjálfsagt að athuga hvort gripa þurfi til aðgerða til að draga
Leyft að selja
900 tonn í
næstu viku
Utanríkisráðuneytið hefur
heimilað sölu á um 550 tonnum
af þorski og ýsu úr gámum í
Bretlandi í næstu viku en sótt
var um leyfi til útflutnings á
800 til 900 tonnum af þorski og
ýsu í gámum, að sögn Árna
Benediktssonar sem sæti á í
samráðsnefnd um útflutning-
inn. Seld verða rúmlega 300
tonn úr skipum í Bretlandi i
næstu viku, að sögn Sveins H.
Hjartarsonar fulltrúa hjá
Landssambandi íslenskra út-
vegsmanna.
Sótt var um leyfi til sölu á rétt
rúmlega 1.000 tonnum af þorski
og ýsu í Bretlandi í þessari viku,
að sögn Áma Benediktssonar, en
leyft var að selja 550 tonn úr
gámum og 300 tonn úr skipum.
„Áhugi fyrir útflutningi á þorski
og ýsu til Bretlands hefur aukist
frá því að farið var að takmarka
útflutning á þessum tegundum í
gámum fyrir skömmu því verðið
hefur hækkað vegna þess. Meðal-
verð á þorski var t.d. 59 krónur í
júní sl. en er nú um 100 krónur,"
sagði Árni í samtali við Morgun-
blaðið.
Meint landhelgisbrot:
Færeyskur
tog'ari tekinn
en slapp með
áminningu
VARÐSKIPIÐ Týr stóð fær-
eyska togarann Sjúrð Tollaks-
son að meintum ólöglegum
loðnuveiðum IIV2 mUu innan
íslenskrar fiskveiðilögsögu
norður af Melrakkasléttu um
klukkan 20.30 á sunnudags-
kvöld.
Varðskipið hélt í fyrstu með tog-
arann áleiðis til lands en eftir
skamma stund var ákveðið að
sleppa skipstjóranum með áminn-
ingu.
Að sögn Helga Hallvarðssonar
skipherra hjá Landhelgisgæsiunni
var ákveðið að hafast ekki að í
málinu þar sem togarinn var á svo-
kölluðu gráu svæði. Ágreiningur er
milli íslendinga og Dana um hvort
reikna eigi Kolbeinsey sem staðar-
punkt og samkvæmt túlkun Dana
var skipið utan iögsögunnar.
úr þensluáhnfum framkvæmdanna.
Endanleg stofnkostnaðaráætlun
fyrir hið nýja álver liggur ekki fyrir
en starfshópurinn sem skipaður var
til að annast undirbúning að viðræð-
um við aðilana fjóra um nýtt álver
í Straumsvík hefur gert frumhag-
kvæmnisáætlun um verkið. Þar kem-
ur fram að fjárfestingin I þeim hluta
verksins sem nú er verið að semja
um, það er 90.000—110.000 tonna
álver, sé 13,5 milljarðar króna. Þar
af yrði innlendur kostnaður um fjór-
ir milljarðar eða einn milljarður á
ári ef miðað er við fjögurra ára bygg-
ingartíma á árunum 1989—1992.
Fjárfesting í virkjunum og há-
spennulínum er lauslega áætluð vera
af svipaðri stærðargráðu og heild-
arQárfestingin í stóriðjuverinu sjálfu.
Landsvirkjun vinnur nú að endur-
skoðun áætlana um framkvæmda-
hraða og stofiikostnað virkjana
vegna hugsanlegrar byggingar hins
nýja álvers. Miðað við þær tölur sem
liggja fyrir, á verðlagi í desember
1987, verður viðbótarfjárfesting
Landsvirkjunar vegna 90.000 tonna
álvers rúmir 4 milljarðar króna á
tímabilinu 1989—1992 eða um millj-
arður á ári.
F'riðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra segir að mikils misskilnings
hafí gætt hjá þeim sem telja að bygg-
ing álvers hér muni skaða efna-
hagslífið. Þvert á móti mun það
styrkja stoðir efnahagslífsins og vera
mikilvægt framlag til þjóðarbúsins
og skref í átt að bættum lífskjörum
landsmanna.
Sjá grein á miðopnu.
Siglufjörður:
Bæjarsljórn samþykk-
ir veginn í Siglunes
ísfisksölur í Bretlandi:
Ráðist á lögreglumann í Hafnarfirði:
Varðstjóri sleginn í andlitið
Arásarmaður talinn undir áhrifum fíkniefna
HANDTEKINN maður, talinn
undir áhrifum fíkniefna, réðst á
lögregluvarðstjóra, sem var að
yfirheyra hann, á lögreglustöð-
inni í Hafnarfirði aðfaranótt
mánudagsins og sló hann tvö
högg í andlitið. Varðstjórinn var
fluttur á slysadeild, meiddur í
andliti og jafnvel talinn nefbrot-
inn.
Um klukkan hálftvö aðfaranótt
mánudagsins var lögreglan kvödd
að Bifreiðastöð Hafnarfjarðar en
þar var kvartað undan tveimur
mönnum, rúmlega tvítugum Reyk-
víkingum, sem verið höfðu með
ólæti og brotið rúðu í bifreið. Menn-
imir voru handteknir og færðir fyr-
ir varðstjóra á lögreglustöðinni.
Meðan varðstjórinn var að ræða við
mennina réðst annar þeirra skyndi-
lega að honum og sló hann tvö
högg í andlitið. Talsverðir áverkar
voru á andliti og nefi varðstjórans
og þurfti að flytja hann á slysa-
deild til aðhlynningar. Var talið að
hann væri nefbrotinn.
Árásarmaðurinn og félagi hans
voru í haldi hjá Hafnarfjarðarlög-
reglunni um nóttina en að morgni
mánudagsins var málið fengið RLR
til rannsóknar. Annar mannanna
var svo æstur í skapi að hann tætti
og braut dýnu og ljós í fangaklefan-
um og barði og sparkaði í hurð og
veggi framundir morgun.' Að sögn
Rannsóknarlögreglunnar í Hafnar-
firði voru mennimir ekki taldir ölv-
aðir en greinilega undir áhrifum
lyfja eða fíkniefna.
fyrri hluta gærdagsins, vegna
mikils sandbyls.
Mikið rok var á sandinum í gær-
morgun og fram & dag. Sandurinn
var því ófær bifreiðum um tíma, en
var opnaður aftur um miðjan dag.
Þá reif rókið upp stórt samkomu-
SAMÞYKKT hefur verið í bæjar-
stjórn Siglufjarðar með fimm
atkvæðum gegn fjórum breyting
á aðalskipulagi bæjarins. Breyt-
ingin felst í lagningu 7 km langs
vegar frá Siglunesi suður að
Ráeyri. Stefán Einarsson, bóndi
og vitavörður i Siglunesi, hyggst
leggja veginn á eigin kostnað.
Siglunesbóndi sótti fyrst um að
fá að leggja veginn fyrir einu og
hálfu ári. Að fenginni umsögn Nátt-
tjald, en það hafði verið reist fyrir
útihátíð, sem haldin verður við Vík
um versiunarmannahelgina. Tjaldið
fauk á tvær bifreiðar og skemmdi
þær nokkuð.
Hvasst var á Suðuriandi aðfara-
nótt mánudags, en síðdegis í gær
hafði veðrið gengið niður. R.R.
úruvemdarráðs og Skipulagsstjóm-
ar ríkisins lét bæjarstjómin gera
nýtt aðalskipulag fyrir bæinn og
lauk þeirri vinnu síðastliðinn vetur.
Skipulagið var auglýst og komu
fram fjölmargar athugasemdir við
það. Málalyktir urðu þær að skipu-
lagið var samþykkt í bæjarstjóm
með fímm atkvæðum gegn fjómm
á fundi bæjarstjómar 21. júlí síðast-
liðinn.
Vegurinn sem Stefán vill leggja
liggur 7 km eftir fjallshlíðinni gegnt
bænum og telja margir heima-
manna að vegurinn verði lýti á
landslaginu. Þetta er töluvert hita-
mál á Siglufírði, að sögn ísaks Ól-
afssonar, bæjarstjóra á Siglufirði.
Vegurinn kemur til með að liggja
í gegnum svokallaða almenninga
sem nokkrir landeigendur eiga í
sameiningu, sagði Isak, og verða \
samningar að takast á milli Stefáns
og landeigendanna áður en ráðist
verður í framkvæmdir. ísak taldi
að álíka margir landeigendur væru ;
meðmæltir lagningu vegarins og )
andvígir henni.
Mýrdalssandur:
Sandbylur stöðvaði umferð
Vlk.
ÓFÆRT var yfir Mýrdalssand