Morgunblaðið - 26.07.1988, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 26.07.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988 9 FLUGLEIDIR tilkynna morgunbrottför frá Kaupmannahöfn kl. 09.00, lending í Keflavík kl. 10.15 þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga. Auk þess vekjum við at- hygli á flugi frá Keflavík til Kaupmannahafnar þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 16.30. Þaðan er hægt að ná tengiflugi til allra Norður- landanna samdægurs. Að sjálfsögðu eru hin hefðbundnu morgunf lug enn á sínum stað - alla daga! Allarnánarí upplýsingará söluskrif- stofum Flugleiða og ferðaskrifstofum. FLUGLEIÐIR Albaníuklúbburinn í frumskógi flokksbrota íslenskra vinstrisinna er starfræktur klúb- bur sem iðkar menningartengsl við Albaníu. Klúbbfélagar stunda pílagrímsferðir til landsins þar sem trúarbrögð, utanlandsferðir og bifreiðir í einkaeign eru bannaðar með lögum. Formaður klúbbsins lýsir dýrðinni í viðtali í DV um helgina. Klúbbar vinstrísinna Hér í þessutn dálki hefur margsinnis áður verið rætt um þá áráttu íslenskra vinstrisinna að taka ástfóstri við ýmis ríki þar sem fram fara svo kallaðar „sósialískar tilraunir". Sitt sýnist hverjum meðal vinstri- sinna hvaða tilraun sé æskilegast að taka til fyrirmyndar þegar heim- færa á fræðin upp á íslenskar aðstæður og hafa deilur hinna mis- munandi hópa, s.s. kína- sinna, kúbusinna, sovét- sinna, Che Guevarasinna og vietnamsinna, á stund- um verið svo harðar að þær hafa valdið vinslitum og jafnvel Ieitt til rysk- inga. Þetta hefur þó orð- ið til þess að gera flóruna á vinstrivængnum injög fjölskrúðuga ekki síst þar sem i kringum þessi átök er oftast starfrækt nokkurs konar ldúbba- starfsemi líkt og tíðkast í kringum erlendar popp- stjörnur. Ferðir klúbb- félaga til fyrirheitna landsins, hvert svo sem það kann að vera, eru tíðar og sett eru upp bókasöfn þar sem klúbb- félagar geta fengið lánuð rit eftir forystumenn byltingarmnar. Mark- miðið með þessu öllu er að efla „menningar- tengsl" landanna. Albanía heitir riki á Balkanskaga sem hefur nokkra sérstöðu i hinum sósíaliska heimi. Við lok siðari heimsstyijaldar- innar tók þar við völdum stalinistinn Enver Hoxha og lýsti þvi yfir að Alb- anía hefði bæst í hóp svo kallaðra alþýðulýðvelda. Hann fylgdi i fyrstu Sov- étrikjunum að máli en snéri baki við þeim eftir að Khrústsjov fordæmdi Stalín á flokksþingi í Moskvu árið 1956. Alb- anía tók þá i staðinn upp samstarf við Kina sem fór snögglega út um þúf- ur þegar Albaniumenn töldu Kínveija vera fama að eiga of vingott við Bandaríkjamenn. Landið er nú það allra frumstæðasta og fátæk- asta í Evrópu auk þess í að vera eitt allra einangr- aðasta ríki veraldar. Sem dæmi um ástandið í Alb- aniu má nefna að bifreið- ir i einkacign eru bann- aðar, utanlandsferðir sömuleiðis og strangar reglur gilda um sam- skipti útlcndinga og Al- bana. En það virðist vera sama hversu herfilega hinar „sósíalisku tilraun- ir„ mistakast. Alltaf virð- ast vera til islenskir vinstrisinnar sem hlaupa til og taka upp hanskann fyrir alþýðuhöfðingjana og stofna klúbb um mál- staðinn. Albanía er þar engin undantekning — þó ótrúlegt kunni að virð- ast. Árið 1967, sama ár og Hoxha bannaði öll trú- arbrögð og lýsti þvi yfir að Albania væri heiðið land, var stofnaður á ís- íandi klúbbur sem ber nafnið Menningartengsl Albaniu og íslands — MAI. Frekar hljótt hefur verið um þennan klúbb að jafnaði þó klúbbfélag- ar skjóti alltaf af og til upp kollinum i fjölmiðl- um, oftast eftir einhveija pilagrimsferðina, og dá- sama ástandið i þessu fyrirheitua landi. Slíkur viðburður átti sér stað nú um helgina í DV en þar birtist viðtal við Hrafn E. Jónsson, for- mann MAÍ, um ferðir til Albaníu. Þar kemur fram að eitt helsta hlut- verk félagsins sé „að þurrka út þá þjóðsögu að Albanía sé lokað Iand og að ekki sé tekið á móti útlendingum“. Hinir útvöldu Hrafn er í viðtalinu spurður hvort að Albania sé ekki lokað land. Lítum á svar formannsins: „Nei, nei, langt frá þvi. Albanir eru einstaklega gestrisið fólk. í raun er litið á ferðamenn, sem koma til landsins, sem gesti en ekki sem túrista. Albanir sjá ekki ferðamenn sem gangandi dollarabúnt. Hitt er þó staðreynd að þeir hleypa ekki hveijum sem er inn í landið [!?!]. Þeir vilja ekki galopna landið þannig að allir hafi aðgang að Albaníu. Þetta hefur trúlega skap- að þessa þjóðsögu um að landið sé lokað.“ Ekki kemur fram í máli menningartengsla- formannsins hvað átt sé við með því að stjómvöld í Albaníu vilji ekki hleypa „hveijum sem er inn í landið“ eða að „allir“ megi ekki hafa aðgang að landinu. Hann á þó væntanlega við með þessu orðskrúði að landið sé ekki lokað þar sem klúbbfélagar sem vilja auka „menningartengsl" fá aðgang að dýrðinni. Formaðurinn fer siðan á kostum þegar hann er inntur álits á stjórnarfyr- irkomulaginu. „Ég veit nú ekki hvað skal segja. Fyrst ber að nefna að Albanir em ákaflega sér- stök þjóð. Þeir em stað- settir á milli austur- og vesturblokkarinnar. Það hefur leitt til þess að þeir hafa þurft að ríghalda í sjálfstæði sitt. í gegnum aldimar hafa þeir barist við Tyrki, Þjóðveija og marga aðra um yfirráðarétt yfir eig- in landi. Tungumál þeirra er jafnvel sér á báti.“ Hann kemst loks að þeirri niðurstöðu „að mér virðist albanska stjómarfyrirkomulagið henta Albönum vel“. Það er sorglegt til þess að hugsa að enn þann dag í dag má finna sæmi- lega vel upplýst fólk sem telur að fjötrar kommún- ismans geti hentað nokkrum manni vel. Hrafn E. Jónsson lýsir í viðtalinu yfir hrifningu sinni yfir Miðjarðarhafs- strönd Albaníu þar sem liann virðist hafa átt góð- ar stundir. En gæti hann hugsað sér að búa sjálfur við sömu kjör og lýðrétt- indi og almennir íbúar Albaniu? Myndi það hlut- skipti henta formannin- um jafn vel og hann telur það henta Albönum? Hvad geri ég? „Ég á 400 þúsund krónur ogget ávaxtað 200 þúsund í 4 ár en þarf að hafa 200 þúsund lausar eftir 6 mánuði ...“ Með skuldabréfum Glitnis er unnt að tryggja fasta 11,1% ávöxtun yfir verð- bólgu allt til gjalddaga bréfanna. Til sex mánaða er hentugast að fá sér Sjóðsbréf 3 en ávöxtun á þeim er um 9- 11% yfir verðbólgu. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.