Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJTJDAGUR 26. JÚLÍ 1988 Bíllinn okkar þarf ekki að vera banvænn Morgunblaðið/Einar Falur Frá fyrirlestri á málþingi stofnunar Sigurðar Nordal í gær. Stofnun Sigurðar Nordal: Málþingi að ljúka MÁLÞINGI um kennslu og rann- sóknir í islenskum fræðum, sem stofnun Signrðar Nordal gengst fyrir, lýkur í dag. Flestir fyrir- lestranna eru á sviði miðalda- fræða, en í dag verður einnig rætt um íslensk orðasöfn og nútímamál. Málþingið sækja tíu erlendir fræðimenn frá níu löndum og flytja þeir fyrirlestra og taka þátt í um- ræðum ásamt íslensku þátttakend- unum. Fyrirlestramir eru öllum opnir og eru haldnir í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Háskóla íslands. eftir Bergljótu Hreinsdóttur Við erum ung, við okkur lífið brosir ef eldri kynslóð veitir okkur lið að byggja á grunni góðvildar og friðar og glæða von hins smáa, sigrum við. Við æskjum mannlifs, menntunar og starfa svo megi öllum veitast umbun sú að vita gott af lífí sínu leiða og landið gera betra en það er nú. (Þórhallur Einarsson) Á mörgum barnaheimilum má heyra tærar, mismunandi lagvissar barnaraddir kyrja þetta fallega ljóð af einlægum krafti. Fóstrurnar hafa útskýrt vandlega merkingu þess og bömin em sammála um að þau vilji láta gott af sér leiða og lifa í friði og sátt. Þau em svo óhrædd, full af trausti og trú á lífið, það er svo gaman að vera til. Öll ætla þau að verða eitthvað þegar þau verða stór, hjúkrunar- fólk, löggur, skúringakonur, fóstmr og bílstjórar. Já, bílstjórar á flottum bílum eins og mamma eða pabbi eiga. Öll koma þau á bamaheimilið sitt akandi í bílum, mömmubíl, pabbabíl, afabíl eða ömmubíl, kveðja og hverfa inn í hópinn sinn, ömgg og áhyggjulaus. Það hvarflar ekki að neinum að einhver komi ekki aftur. Þau hafa alltaf verið sótt eins og um var talað. Stundum er talað um hvað sé hættulegast. Börnin segja þá frá tröllunum, Málnlngarverksmiðja Slippfélagsins ófreskjunum, krókódílunum og tígrisdýrunum sem þau óttast mest af öllu. En bílarnir, er enginn hræddur við þá? Neihei sko, abbababb, hrædd við bíla! „Geta þeir ekki meitt eins og t.d. krókódíl- amir?“ spyr fóstran. Jú, þau samþykkja, þekkja kannski einhvern sem bíll keyrði á, einn var í bíl sem lenti í árekstri og annar sá bíl klessa á staur. Það spinnast alvarlegar umræður í leik- stofunni. „Getur maður dáið ef bíll keyrir á mann?“ spyr lítil alvarleg hnáta. „Já,“ svarar snaggaralegur gutti, „ef maður keyrir eins og bijálæð- ingur og stímir á einhvern, þá deyr kannski einhver." „Frændi minn, ha, hann er sautján, ha, og hann getur sko keyrt á þúsund eða hundrað," segir einn, stoltur af „klára“ frænda sínum. „Það má ekki,“ segir ákveðin rödd, „pabbi segir það!“ „Hann ræður ekki yfir frænda mínum!" „Nei, en löggan ræður og hún segir að það má ekki keyra á fullu spani." „Af hvetju ekki?“ vill fóstran vita. „Aþþí það er svo hættulegt, ef annar bíll kemur þá klessast þeir kannski." „Þetta er alveg rétt, segir fóstr- an. Það má alls ekki keyra of hratt. Ef einhver keyrir svona hratt er erfitt að stýra bílnum og þá er voða- lega erfítt að stoppa snögglega ef einhver er á götunni. Þá getur orð- ið hræðilegt slys. „Deyr þá einhver?" Kannski. Kannski var einhver að ganga yfir götuna þegar bíllinn keyrði á hann og gat ekki bremsað af því hann keyrði svo hratt, kannski dó hann, eða slasaðist hræðilega mikið. En þeir sem keyra bíla vita vel að þeir mega alls ekki keyra of hratt. Þeir hafa lært um- ferðarreglur. Þeim á maður að hlýða. Samt gera það ekki allir og þess vegna verða oft árekstrar og slys. „Ef maður er í belti meiðir mað- ur sig ekki,“ fullyrðir strákurinn sem á „klára" frændann. Það á alltaf að vera í belti, það er í umferðarreglunum, segir fóstr- an, en þau geta ekki bjargað manni alltaf. Ef bíll keyrir voðalega hratt á annan bíl getur maður meitt sig þó maður sé í belti. „Og kannski líka dáið?“ Já, kannski. En það deyja alls ekki allir sem lenda í árekstri og sysum, sumir meiðast ekkert, aðrir mikið. Sumum batnar fljótt en svo er til fólk sem batnar aldrei. Það þarf að vera í hjólastól eða á spítala alla ævi. „Alla ævi?“ Bömin stara opin- mynnt á fóstruna sína. Getur þetta verið satt? Umræðan í leikstofunni heldur áfram. Hún vekur marga spurning- una og allir hafa eitthvað til mál- anna að leggja. Börn eru svo opin og hreinskilin og eiga auðvelt með að setja sig inn í málefni sem höfða til þeirra. En kaldur veruleikinn er þeim flestum óþekktur, enginn í leikstofunni hafði misst ástvin í bílslysi. Ekki í þessari leikstofu. En í annarri slíkri á kannski einhver ægilega bágt; einhver kom ekki aftur. Sannleikurinn er napur og það vitum við sem teljum okkur fullorð- in. Daglega lesum við blöðin og þekkjum vel klausurnar um hversu margir árekstrar urðu í gær, hversu margir náðust á of miklum hraða og hve margir óku ölvaðir. Og flennistóru fyrirsagnimar um bana- slysin, sem eru alltof mörg og tíð sökum hraðaksturs, ölvunaraksturs og fíflagangs. í slíkum tilfellum staldra flestir við og um okkur fer ískaldur hrollur. Réttlát reiði gagn- tekur okkur, hvers vegna eiga svona óhugnanlegir atburðir sér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.