Morgunblaðið - 26.07.1988, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Bretland:
Heath átelur Thatch-
er vegna manna-
breytinga hjá EB
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁKVÖRÐUN Margaretar Thatcher um að skipa Leon Brittan annan
af tveimur fulltrúum Breta í framkvæmdanefnd Evrópubandalags-
ins, vakti reiði Edwards Heaths. Hann sakaði Thatcher um að vinna
gegn hagsmunum Breta innan bandalagsins.
Cockfíeld lávarður hefur verið
annar af fulltrúum Breta í fram-
kvæmdanefnd EB og aðaldriffjöðrin
að baki því, að bandalagið verði
einn markaður árið 1992. Hann
hefur átt í nokkrum útistöðum við
Thailand:
Lýsa yfir
stuðningi
við Prem
Bangkok. Reuter.
CHATCHAI Chunhavan, leiðtogi
thailenzka þjóðarflokksins,
Chart Thai, lýsti í gær stuðningi
við að Prem Tinsulanonda, frá-
farandi forsætisráðherra, stýrði
næstu ríkisstjórn.
Chart Thai var sigurvegari kosn-
inganna og hlaut 87 þingsæti af
357. Flokkurinn er stærstur fimm
flokka, sem lýstu stuðningi við
áframhaldandi stjórnartíð Prems
fyrir kosningar og kunna hugsan-
lega að mynda samsteypustjóm.
Hlutu flokkamir 215 þingsæti.
Chatchai sagðist ekki tilbúinn að
leiða nýja stjóm og lýsti stuðningi
við Prem en Chart Thai-flokkurinn
tekur formlega afstöðu til nýrrar
stjómarmyndunar á morgun, mið-
vikudag. Prem tók við starfi forsæt-
isráðherra árið 1980 í framhaldi af
málamiðlun milli thailenzkra stjóm-
málaflokka, og spáðu vestrænir
stjómarerindrekar því í gær að
engra breytinga væri að vænta á
stöðu hans. Hann ætti sér engan
hættulegan keppinaut og nyti
stuðnings atvinnurekenda, hersins
og þjóðhöfðingja landsins.
ríkisstjóm Thatcher, vegna þess að
hann hefur viljað samræma fjölda-
margt innan bandalagsins, sem
breska ríkisstjórnin telur enga þörf
á. Hann hefur til dæmis verið tals-
maður þess, að virðisaukaskattur
verði lagður á bækur og bamaföt
og mat í Bretlandi til samræmis við
það sem er með öðmm þjóðum inn-
an bandalagsins, en þessar vörur
em undanþegnar virðisaukaskatti í
Bretlandi.
Á föstudag tilkynnti Thatcher,
að Cockfíeld lávarður yrði ekki full-
trúi Breta áfram, en Leon Brittan
skipaður í hans stað. Brittan var
viðskiptaráðherra, en varð að segja
af sér á síðasta kjörtímabili vegna
Westland-málsins svokallaða.
Edward Heath sagði í sjónvarpi
á föstudagskvöld, að Thatcher hefði
rekið Cockfield lávarð af hatri einu
saman. Hann sagði að vegna West-
land-málsins nyti Brittan ekki góðs
álits.
Stuðningsmenn Thatcher í hópi
þingmanna hafa krafíst þess, að
Heath verði rekinn úr flokknum
vegna þessara ummæla.
Young lávarður, viðskiptaráð-
herra bresku stjómarinnar, sagði í
viðtali við The Times síðastliðinn
mánudag, að ríkisstjómin mundi
neita að taka þátt í samræmingu á
virðisaukaskatti innan bandalags-
ins og að leggja niður eftirlit á
landamæmm.
Verkamannaflokkurinn hefur
minnkað forskot íhaldsflokksins í
skoðanakönnunum vegna óömggr-
ar stjómar efnahagsmála að und-
anfömu. í skoðanakönnun Harris-
stofnunarinnar, sem birtist í The
Observer síðastliðinn sunnudag,
nýtur íhaldsflokkurinn fylgis 46%
kjósenda, Verkamannaflokkurinn
41%, Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn
7% og Jafnaðarmannaflokkurinn
3%.
Árásin á grísku feijuna:
Segja forsprakkann
hafa búið í Svíþjóð
Frá Erik Lidcn, fréttaritara Morgnnblaðsins í Svíþjóð, og Reuter:
MAÐURINN, sem grísk yfirvöld
telja að staðið hafi að baki árás-
inni á grísku farþegafeijuna
„Poros-borgir“ í Eyjahafi fyrr í
þessum mánuði, bjó í Svíþjóð sem
líbanskur flóttamaður. Þessar
upplýsingar komu fram í sænska
dagblaðinu Dagens Nyheter á
laugardag.
tilheyrðu Jaballa. Annar þeirra gilti
frá Stokkhólmi til Kaupmannahafn-
ar en hinn frá Kaupmannahöfn til
Aþenu.
Enn er ekki vitað hvort Jaballa
lifði af árásina 11. júlí en líklegt
er talið að annað líkanna sem enn
á eftir á bera kennsl á sé lík hans.
Níu farþegar ferjunnar fómst í árá-
sinni þar á meðal einn Svíi.
^ Reuter
Olga íSerbíu
Fjögur þúsund Serbar komu saman í bænum Pancevo í júgóslavneska héraðinu Vojvodina á laugar-
dag til þess að lýsa yfir stuðningi sinum við Slobodan Milosevic, forystumann kommúnistaflokksins
í Serbíu. Milosevic vill að héruðin Kosovo og Vojvodina verði að nýju sett undir yfirráð Serba. Fólkið
á fundinum krafðist þess að flokksforingjar í Vojvodina og Kosovo létu af embætti.Á langa borðan-
um sem tveir fundarmanna halda á milli sín segir að ekkert nema sameining geti bjargað Serbíu.
Afganistan:
Skæruliðar skjóta eld-
flaugum á höfuðborgina
Moskvu, Islamabad. Reuter.
Margir óbreyttir borgarar hafa látið lífið í árásum afganskra
skæruliða á Kabúl, höfuðborg Afganistans, að sögn sovésku frétta-
stofunnar Tass. Vestrænir stjórnarerindrekar telja þó ekki að borg-
in sé í neinni hættu.
Eldflaugaárásir afganskra
skæmliða hafa orðið 18 manns að
bana og sært 45 á síðustu dögum
í Kabúl, að sögn sovésku frétta-
stofunnar Tass. Alls hafa 154 lát-
ist og 205 slasast í árásum skæm-
liða síðan í maí þegar Sovétmenn
hófu að flytja her sinn á brott úr
landinu. Stjómvöld í Afganistan
segja að skæraliðar fái vopnasend-
ingar frá Pakistan og hafa farið
fram á að Sameinuðu þjóðirnar
komi í veg fyrir þær.
til Kabúl. Þessu var umsvifalaust
vísað á bug af yfirmanni í sovéska
hemum sem „hreinum rógburði".
Vestræni stjórnarerindrekinn taldi
almennt álit manna að borgin væri
ekki í neinnu hættu núna á að
ienda í höndum skæruliða, a.m.k.
ekki á meðan að sovéskir hermenn
væra enn í landinu. Sovétmenn
segjast munu standa við áætlanir
um að helmingur herliðsins verði
á brott um miðjan ágúst og að það
verði allt farið í febrúar á næsta
ári.
Tengdasonur Brezhn-
evs leiddur fyrir rétt
Moskvu. Reuter.
Vestrænir stjórnarerindrekar
telja þó að Kabúl sé ekki í sérst-
akri hættu vegna árásanna.
Skæmliðar gera nú tíðar árásir á
borgina úr hæðunum umhverfís
hana og virðast vera að færa sig
nær. Einn stjómarerindrekanna
sagðist ekki trúa orðum Zia-ul-
Haqs, forseta Pakistans, um að
hemaðarástandið væri að fara úr
böndunum. Zia sagðist hafa áreið-
anlegar heimildir fyrir því að Sov-
étmenn hefðu stöðvað herflutninga
úr landinu og ið tólf þúsund her-
mönnum hefði verið skipað aftur
JUÉÍJ Tsjúbanov, tengdasonur
Leonids Brezhnevs, fyrrum Sov-
étleiðtoga, verður dreginn fyrir
rétt í septembermánuði, að því
er sagði í fréttum sovéska dag-
blaðsins Izvestía í gær. Hann er
sakaður um mútuþægni.
Tsjúbanov, sem í eina tíð gegndi
embætti aðstoðarráðherra á sviði
innanríkismála, var handtekinn í
febrúar á síðasta ári og sakaður
um spillingu og mútuþægni. í frétt-
um dagblaða sagði að hann hefði.
þegið tæpar 50 milljónir ísl. kr. í
mútur.
í frétt Izvestía sagði að rannsókn
málsins væri nú lokið og hefðu yfír-
völd ákveðið að réttað yrði í máli
Tsjúbanovs í september. Átta aðrir
fyrmm embættismenn munu einnig
svara þar til saka en sovéskir emb-
ættismenn hafa gefíð í skyn að
Tsjúbanov verði dæmdurtil dauða.
Tsjúbanov er kvæntur Galínu,
dóttur Leoníds Brezhnevs, fyrrum
Sovétleiðtoga, sem lést árið 1982.
í síðustu viku var Galína svipt eftir-
launagreiðslum sínum auk þess sem
hún, líkt og fleiri ættmenni Brez-
hnevs, nýtur ekki lengur forréttinda
valdastéttarinnar í Sovétríkjunum.
Þegar spurst var fyrir um sann-
leiksgildi fréttarinnar hjá sænska
útlendingaeftirlitinu vildi talsmaður
þess lítið um málið segja, sagði ein-
ungis að grísk yfírvöld hefðu til-
kynnt þeim að hugsanlegt væri að
Svíþjóð tengdist málinu.
Samkvæmt fréttum dagblaðsins
á maðurinn, Hejab Jaballa, að hafa
búið sem líbanskur flóttamaður í
Svíþjóð í 18 mánuði áður en árásin
átti sér stað. Þessar upplýsingar
em sagðar koma frá sænska inn-
flytjendaeftirlitnu.
Það styður þessa frétt að gríska
lögreglan hefur nú í fómm sínum
vegabréf Jaballa sem gefíð er út í
líbanska sendiráðinu í Svíþjóð. Lög-
reglan fann vegabréfið í rústum
bifreiðar sem sprengd var í loft upp
í Aþenu skömmu fyrir árásina á
feijuna. í hótelherbergi í Aþenu
fundust einnig flugfarseðlar sem
Geðklofi arfgengur sjúkdómur að hluta
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðarí Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BRESKIR vísindamenn telja sig hafa fundið gen, sem veldur
geðklofa, að því er segir í frétt í The Observer síðastliðinn sunnu-
dag. Greint er frá uppgötvuninni í vísindaritinu Nature, sem út
kemur í næsta mánuði.
Vísindamenn hafa lengi leitað
að hugsanlegum orsakavaldi geð-
klofa. Niðurstöður rannsóknar-
hóps, sem starfar við Middlesex-
sjúkrahúsið í Lundúnum, virðast
staðfesta, að sjúkdómurinn sé að
hluta til arfgengur.
Rannsóknir fór þannig fram,
að safnað var DNA-erfðaefni úr
fjölskyldum, þar sem fleiri en einn
einstaklingur var haldinn geð-
klofa. Borið var síðan saman
erfðaefni úr þeim, sem haldnir
vom sjúkdómnum, og hinum, sem
ekki höfðu hann.
Uppgötvunin gerir kleift að
segja fyrir um, jafnvel á fóstur-
stigi, hvort hætta sé á, að viðkom-
andi einstaklingur fái geðklofa.
Hins vegar fá ekki allir geðklofa,
sem hafa þetta tiltekna gen.
Geðklofí er mjög alvarlegur
sjúkdómur, sem einkennist af
djúpstæðum tmflunum á tilfinn-
ingalífi og hugsunum, klofningi í
persónuleika og rofnum tengslum
við hversdagslegan vemleika.
Talið er, að einn af hveijum
hundrað þjáist af geðklofa. Ef
annað foreldra hefur sjúkdóminn,
em líkumar sagðar sex á móti
hundrað, að bam þeirra fái hann,
en þrettán á móti hundrað, ef
báðir foreldrar em geðklofa-sjúkl-
ingar. í frétt Reuíens-fréttastof-
unnar frá í gær ségir á hinn bóg-
inn að helmingslíkur séu á því að
barn geðklofa foreldra fái sjúk-
dóminn og 15 prósent líkur sé'
annað foreldrið geðklofasjúkling-
ur. Þá em átta prósent líkur tald-
ar á því að systkini geðklofasjúkl-
ings fái einnig sjúkdóminn.
Ef böm foreldra, sem þjást af
geðklofa, em sett í fóstur til heil-
brigðra foreldra, virðist það ekki
breyta neinu um líkindin á veik-
indunum. Hingað til hafa þetta
verið sterkustu rökin fyrir því, að
geðklofi sé arfgengur.