Morgunblaðið - 26.07.1988, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Flug
Hver er framtíð flug-
félaga í Evrópu ?
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgiinblaðsins.
í kjölfar nýrra reglna um starfsemi flugfélaga innan Evrópubandalags-
ins sem gildi tóku í desember síðastliðnum og ekki síður vegna hins aukna
frelsis á þessu sviði sem fyrirsjáanlegt er þegar Evrópubandalagið verður
einn markaður, í árslok 1992, hafa umræður um framtíð fiugþjónustu í
Evrópu aukizt mjög. Almennt er áhugi mestur á því að velta fyrir sér
hvaða flugfélög munu halda velli í aukinni samkeppni. Fleira er þó áríð-
andi svo sem hvernig samskiptum þjóðanna innan Evrópubandalagsins
annars vegar og Evrópuþjóða utan þess hins vegar verður háttað. Og
iJoks hvort Evrópubandalagið muni koma fram sem ein heild í samningum
við lönd utan Evrópu, eða hvort slíkir samningar verði áfram á hendi
einstakra þjóðríkja.
Flug í Evrópu
Millilandaflugi í Evrópu má
skipta í tvennt, þ.e. annars vegar
áætlunarflug og hins vegar leigu-
flug. Um það bil, eða jafnvel rúm-
lega, helmingur alls farþegaflugs
milli landa í álfunni er leiguflug.
Þetta er mun stærri hluti en í
Bandaríkjunum þar sem innan við
5% flutninga er með leiguflugi og
jafnvel áður en allt flug þar. var
gefið frjálst árið 1978 var innan
við 10% flugs þar í álfu leiguflug.
Leiguflugfélögin hafa í auknum
mæli hafíð sölu á flugsætum ein-
göngu, þ.e. óþarft er að kaupa aðra
ferðaþjónustu en flugið, auk þess
sem þau sýna aukinn áhuga á að
hefja áætlunarflug samhliða leigu-
flugsrekstrinum.
Þeim flugfélögum sem stunda
áætlunarflug má skipta í tvo hópa.
Ber fyrst að nefna stóru flugfélög-
in, en hver þjóð í Evrópu á sitt fé-
lag í þeim hópi, ef frá eru talin
Danmörk, Noregur og Svíþjóð sem
sameiginlega státa af SAS. Til
sikamms tíma voru öll þessi flugfé-
lög meira og minna í ríkiseign, en
sífellt bætast fleiri í hóp þeirra sem
færast að hluta eða öllu leyti yfir
í einkaeign. Þessi flugfélög flytja
yfir 90% allra farþega í áætlunar-
flugi á milli landa í Evrópu.
Auk stóru áætlunarflugfélag-
anna eru hin svokölluðu svæðaflug-
félög. Hlutdeild þessara fyrirtækja
fer vaxandi. Þessi flugfélög fljúga
aðallega á styttri leiðum, og til
annarra borga en höfuðborganna.
Þau byrja feril sinn með því að
fljúga litlum flugvélum en stækka
síðan og bæta flugvélakostinn eftir
því sem þau festa sig í sessi og
markaðurinn leyfir. Eftir því sem
' þessum félögum vex fiskur um
hrygg eykst áhugi stóru flugfélag-
anna á þeim. Hollenska flugfélagið
KLM keypti á dögunum 40% í sam-
landa sínum Transavia og hafði
áður tryggt sér 15% í breska fyrir-
tækinu Air Uji og við hlutfjáraukn-
ingu í svissneska flugfélaginu
Crossair tryggði Swissair sér rúm-
lega 30%. Síðast en ekki sízt var
mikil barátta á milli SAS og British
Airways um „flaggskip" þessara
flugfélaga, British Caledonian, í
fyrra, þar sem British Airways fór
með sigur af hólmi.
Leiguflugfélögum má einnig
skipta í tvennt. Annars vegár eru
dótturfyrirtæki stóru áætlunarfé-
"^áganna og hins vegar hin svoköll-
uðu „óháðu“ flugfélög. Að undan-
förnu hefur mjög færst í vöxt að
þessi fyrirtæki selji sæti eingöngu
í leiguferðum, þ.e. óþarft er að
kaupa aðra þjónustu en flugþjón-
ustu. Enn fremur sækjast þessi fé-
lög nú eftir að stunda áætlunarflug
jafnframt leigufluginu.
Þróun í Bandaríkjunum
Þegar spáð er fyrir um breyting-
arnar sem kunna að verða á flug-
.^rekstri í Evrópu með auknu frjáls-
ræði er gjarnan litið til þess sem
gerst hefur á þessum sviðum í
Bandaríkjunum frá því að höft voru
afnumin þar árið 1978. í fyrsta
lagi hefur farþegafjölgun í Banda-
ríkjunum orðið gífurleg, helzta
ástæðan er talin lægri fargjöld. Þær
tölur hafa verið nefndar að neytend-
um hafi sparazt 6 milljarðar dollara
við haftaafnámið. Flugfélögin urðu
að breyta mjög rekstri sínum í kjöl-
far lækkunarinnar sem varð á tekj-
um þeirra, þetta kom fyrst og
fremst fram í fækkun starfsmanna
svo og því að nýtt fyrirkomulag var
tekið upp hjá flugfélögum í kjara-
samningum þannig að þeir sem
voru ráðnir nýir fengu lægra kaup
og verri kjör en þeir sem fyrir voru,
einnig var kaup hinna síðamefndu
hreinlega lækkað. Þá breyttist einn-
ig uppbygging flugnetsins. í stað
beins flugs á milli staða tók við hið
svokallaða „hug and spoke“ sem
kannski má kalla á íslenzku mið-
stöðvarkerfi. Þessi háttur hefur
reyndar verið á flugkerfi í Evrópu
í áraraðir og felst í því að flugnet
er spunnið í kring um einhveija
ákveðna flugstöð eins og kónguló
spinnur vef sinn, flugfélögin fljúga
með farþegana fremur stuttar
vegalengdir inn á þessar stöðvar
og síðan út aftur til áfangastaða.
Afnám haftanna opnaði einnig nýj-
um flugfélögum möguleika og á
fyrstu sjö til átta árin bættust um
tvö hundruð ný flugfélög í hópinn,
flest þeirra (þekktasta dæmið úr
þessum hópi er Peoples Express)
heltust hins vegar fljótt úr lestinni
og nú tíu árum eftir að hinar miklu
breytingar áttu sér stað hafa yfir-
burðir stóru flugfélaganna aldrei
verið meiri og nú flytja 10 stærstu
flugfélögin 97% allra farþega innan
Bandaríkjanna. Þessi mikla sam-
þjöppun veldur ekki sízt þeirri um-
ræðu sem orðið hefur um hver verði
örlög flugfélaga í Evrópu þegar
athafnafrelsið eykst. Á hinn bóginn
er rétt að gleyma því ekki að þeir
sem harðast börðust fyrir auknu
frjálsræði í flugi í Bandaríkjunum,
og verða nú fyrir aðkasti vegna
þess að val neytandans þar er
kannski mun minna núna en það
var fyrir tíu árum, leggja áherzlu
á að samruna þennan hefði mátt
og kannski átt að koma í veg fyrir
með því að beita lögum um sam-
runa fyrirtækja og samkeppnis-
hömlur öðruvísi en gert hefur verið.
Hvað tekur við?
Flestir virðast sammála um að
eftir fimm til tíu ár verði flugfélög-
in í Evrópu færri og stærri en þau
eru nú. Hvernig það muni gerast
eru menn á hinn bóginn ekki eins
sammála um. Umræður eru sagðar
vera í gangi á milli áætlunarfélag-
anna. Flugtímarit segja viðræður
hollenzka félagsins KLM og
belgíska félagsins Sabena langt
komnar og aðrir bæta við að
Swissair komi einnig til sögunnar
í þeim viðræðum. Opinberlega láta
forsvarsmenn félaganna þó ekkert
eftir sér hafa, en forstjórar allra
þessara félaga sem og fleiri hafa
hins vegar lýst þeirri almennu skoð-
un sinni að samstarf sé nauðsyn-
legt, sérstaklega fyrir miðlungs og
minni félögin til að styrkja stöðuna
í aukinni samkeppni. Þögnina um
FÆRRI OG STÆRRI? “ Miklar vangaveltur eru um flug-
iá eftir 1992, þegar EB verður einn markaður. Flestir virðast sam-
mála um að eftir fimm til tíu ár verði flugfélögin í Evrópu færri og
stærri en þau eru nú. En hveijir lifa af og hveijir sameinast?
hvað sé nákvæmlega á pijónunum
má væntanlega rekja til þess að
SAS þykir hafa farið heldur illa út
úr landvinningatilraunum sínum og
vilja menn vafalaust forðast slíkt.
Fyrir ári síðan áttu sér stað miklar
samningaviðræður milli SAS og
Sabena sem urðu árangurslausar
og slagurinn um British Caledonian
sl. haust þótti almennt ekki auka
hróður SAS, þó segja megi að frá
upphafi hafi það verið ójafn leikur.
Áhrif EB-markaðarins
Nýlega var birt viðtal við for-
stjóra Sabena, Van Raphalgem. Þar
lýsir hann skoðunum sínum á
framtíðarhorfum í flugrekstri í Evr-
ópu: Einn markaður í Evrópu mun
gjörbreyta starfsumhverfi áætlun-
arfélaganna. Hvort heldur það ger-
ist 1992 eða 1994 mun Evrópa í
framtíðinni keppa sem ein efna-
hagsheild við aðrar slíkar, sérstak-
lega Bandaríkin, Austur-Evrópu,
Japan og jafnvel Suðaustur-Asíu.
Staða Evrópuflugfélaganna mun
styrkjast því 320 milljón manna
markaður muni semja við aðra t.d.
Bandaríkin þar sem eru 240 milljón-
ir. Öll Evrópufélögin munu þá
standa jafnt að vígi ólíkt því sem
nú er í tvíhliða samningum þegar
styrkur hvers félags í slíkum samn-
ingum er í hlutfalli við efnahagsleg-
an styrk heimalandsins. Miklar
breytingar munu eiga sér stað og
öll áætlunarfélögin eru nú að reyna
að tryggja framtíð sína. Samruni
fyrirtækjanna verður þó ekki í sama
mæli og í Bandaríkjunum, áætlun-
arflugfélög innan Evrópubanda-
lagsins verða ekki íjögur eða fimm
heldur átta eða níu. Hjá Sabena er
ekki áhugi á sameiningu eða sam-
runa við stóru félögin, þó_ svo að
allir kostir verði skoðaðir. í slíkum
samruna er hætt við að minna fé-
lagið hverfi eða týnist. Meðalstóru
félögin ættu fremur að sameina
krafta sína og stofna eitt bezta flug-
félag í Evrópu, sem hefði marga
flugvelli sem miðstöðvar. Slíkt félag
yrði sameiginlegt dótturfyrirtæki
þátttakendanna, þannig gætu sér-
einkenni hvers félags haldist. Síðan
slitnað upp úr samningaviðræðum
við SAS fyrir ári hafa mörg flugfé-
lög nálgast Sabena með samstarf
í huga þar á meðal Air France og
KLM. Engar samningaviðræður
hafa hins vegar átt sér stað, hvorki
við þessa aðila né aðra, menn hafa
hins vegar borið saman bækur sínar
og skoðað hvemig hugsanlegt sam-
starf gæti orðið.
Erlent
Steinway og Yamaha takast
á í tónleikahöllunum
í MAÍ sl. komu nokkrir kunnustu píanóleikarar í heimi fram á svið-
inu í Carnegie Hall, þessari nýuppgerðu Mekku bandarískrar tónlist-
ar, og spiluðu hver á eftir öðrum á nýtt Steinway-píanó, það 500.000.
frá upphafi.
Píanóið var eitt ár í smíðum og
er mjög nýtískulegt í útliti, enda
teiknað af einum fremsta hús-
gagnahönnuði í Bandaríkjunum,
Wendell Castle. Á það voru svo
letraðar með leysigeisla eiginhand-
arundirritanir'900 kunnra píanó-
leikara, sem gert hafa garðinn
frægan með Steinway-píanóinu.
Fyrir píanóleikarana og áheyr-
endur í Carnegie Hall var þessi
kvöldstund nokkurs konar óður til
Steinway-píanósins, sem haldið
hefur velli í 135 ár, eða allt síðan
þýski innflytjandinn Henry Stein-
way opnaði fyrstu vinnustofu sína
í New York árið 1853. Hefur vegur
þess jafnan verið mikill, ef undan
er skilinn nokkur tími á áttunda
áratug þessarar aldar, þegar heldur
dró úr gæðunum og ýmsar tækni-
legar nýjungar reyndust ekki sem
skyldi. Þessir erfiðleikar hafa nú
verið yfirstignir og undir forystu
nýrra eigenda sækir Steinway aftur
fram sem fullkomnasta píanó, sem
völ er á.
Yamaha er áskorandinn
Þótt Steinway hafí kannski óum-
deilanlega forystu er það samt ekki
eitt um hituna og áskorandinn er
farinn að búa sig undir hólm-
gönguna. Þar er um að ræða Yama-
ha-fyrirtækið japanska, stærsta
hljóðfæraframleiðanda í heimi, sem
hélt upp á aldarafmælið á síðasta
ári. Áratugum saman hefur Stein-
way næstum verið einrátt í
klassísku tónleikahaldi, en nú ætlar
Yamaha að heyja sér völl á þessum
markaði.
Heitar umræður um gæði
Væntanleg átök þessara risa
hafa nú þegar komið af stað heitum
umræðum innan tónlistarheimsins
um gæði hljóðfæranna og ekki
síður um samskipti fyrirtækjanna
og listamannanna. Margir skelfast
þá tilhugsun, að Steinway verði
undir í baráttunni við Yamaha en
verksmiðja Steinway-fyrirtækisins
er orðin meira en aldargömul og
hönnun og tækniaðferðir hafa lítið
breyst frá því snemma á öldinni. í
New York eru árlega handsmíðuð
3.000 píanó og 2.000 í verksmiðj-
unni í Hamborg í Vestur-Þýska-
landi.
Árið 1972 seldi Steinway-ijöl-
skyldan fyrirtækið til CBS-sjón-
varpsfyrirtækisins og tóku þá við
13 mögur ár í sögu þess. CBS seldi
það aftur í september árið 1985
fyrir ótilgreinda upphæð til tveggja
bræðra í Boston, Johns og Roberts
Birminghams, og Bruce Stevens,
fyrrum markaðsstjóra Polaroids-
fyrirtækisins á erlendum markaði.
„Það má segja að fyrirtækið sé
aftur orðið að fjölskyldufyrirtæki,“
SAMKEPPIMI — Ára-
tugum saman hefur Steinway
næstum verið einrátt í klassísku
tónleikahaldi, en nú ætlar
Yamaha að heyja sér völl á þess-
um markaði.
sagði Stevens, „og við vitum hvað
við viljum — framleiða bestu píanó
í heimi“.
Það sem kann að ráða úrslitum
í glímunni eru þó ekki aðeins gæð-
in, heldur einnig peningar. Stein-
way hefur ekki fjárhagslegt bol-
magn til að styrkja alla sína bestu
listamenn, en það hefur hins vegar
Yamaha. Yamaha vill líka sýna
fram á að það geti framleitt jafn
góð píanó og hver annar og vax-
andi samkeppni við Suður-Kóreu-
menn á ljöldaframleiðslumarkaðn-
um á einnig sinn þátt í sókninni inn
á þann hluta markaðarins, sem
Steinway hefur ráðið hingað til.
Ólík fyrirtæki
Steinway og Yamaha eru líka.
gjörólík að því leyti, að það fyrr-
nefnda handsmíðar jafn mörg píanó
á ári og það síðarnefnda ijölda-
framleiðir á tíu dögum. Þau munu
hins vegar takast á í tónleikahöll-
unum.
í verksmiðjum Yamaha í Japan
eru handsmíðuð píanó af gerðinni
CF III þau fullkomnustu sem
Yamaha framleiðir, og tekur smíði
hvers þeirra um hálft annað ár.
Kostar hvert píanó um 2,2 milljón-
ir ísl. kr. eða það sama og bestu
Steinway-píanóin.
Miklar deilur hafa risið um gæði
þessara tveggja píanógerða og eins
og líklegt er hampa miklu fleiri
Steinway-píanóinu. Sumum finnst
það raunar ganga guðlasti næst
að bera Steinway saman við önnur
píanó, en Roland Loest, forstöðu-
maður ameríska píanósafnsins í
New York, segir, að í þessu sem
öðru sé það smekkurinn, sem ráði.
Sjálfum líkar honum ekki við
Yamaha.
„Þegar búið er að stilla Stein-
way-píanóið vel uppfyllir það allar
þær óskir, sem einn listamaður
getur haft fram að færa.“