Morgunblaðið - 26.07.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Fjölmiðlun
Kapalkerfi sem gefa
fjölbreytilega kosti
KAPALTÆKNI hf. nefnist fyrirtæki sem selur og setur upp kapal-
kerfi fyrir sveitarfélög eða aðra hópa. Kapalkerfi þessi byggjast
upp á sérstökum coax jarðköplum og hefur Kapaltækni hf. nú þeg-
ar komið upp slíku kerfi á Hellu, auk þess sem unnið er að uppsetn-
ingu á Seltjarnarnesi öllu, en fyrstu áfangar þess kerfis verða teknir
í notkun nú alveg á næstunni. Þá munu vera í gangi samningar við
hin ýmsu sveitarfélög.
Að sögn Rúnars Birgissonar hjá
Kapaltækni bjóða þessi kerfi fjöl-
breytta kosti, t.d. er mögulegt að
senda 30 sjónvarpsrásir og 30 FM
útvarpsrásir eftir einum 15 mm
kapli, en það er einmitt sú gerð sem
Kapaltækni hefur notað í þeim kerf-
um sem þeir hafa sett upp. Þegar
svona kerfi er sett upp, er að sögn
Rúnars notuð ein höfuðsstöð fyrir
öll húsin sem eru tengd kerfinu.
Þar er að finna öflug loftnet sem
ná öllum innlendum útvarps- og
sjónvarpsstöðvum, og þeim er svo
dreift til húsanna um kerfíð. Þar
með væru sjálfstæð loftnet á hveiju
húsi orðin algerlega óþörf. Þetta
kemur sér sérstaklega vel á mörg-
um stöðum úti á landi þar sem oft
er munur á milli húsa hvort sjón-
varps- eða útvarpsstöð næst, en við
slíkar aðstæður sagði Rúnar að loft-
netunum væri komið fyrir á stað
þar sem skilyrði eru góð, og þar
með væru þessir erfiðleikar úr sög-
unni. Rúnar sagði einnig að kerfið
byði upp á marga fleiri möguleika,
t.d. gætu sveitarfélög tekið sér eina
rás þar sem upplýsingar birtust á
skermi tengdra tækja, og jafnframt
væri hægt að nýta slíka rás til út-
sendinga á vegum sveitarfélag-
anna, t.d. frá fundum og mannfögn-
uðum. Rúnar sagði að kostnaður
við svona kerfi, ef gengið væri frá
því í u.þ.b. tvö hundruð hús, væri
gróft áætlað um 30000 kr á hvert
hús, en þetta færi þó eftir stærð
kerfisins og umfangi.
Samkvæmt lögum er ekki leyfi-
legt að veita .gerfihnattarsjónvarpi
í fleiri en 36 hús með einu og sama
kerfinu nema að allt efni í útsend-
ingunum verði íslenskað. Rúnar
sagði þetta vera þröskuldinn fyrir
því að ekki væri hægt að hleypa
gerfihnattaefni inn á kerfi af þeirri
stærð sem rætt hefur verið um hér
að framan. Hitt væri annað mál að
þeir hefðu sett upp minni kerfi, sem
féllu undir ramma laganna, og fyr-
ir slíka notendur væru þeir með
samninga um efnisöflun frá þremur
gervihnöttum.
ISLANDSKYNIMING — Á myndinni má líta hluta ritstjórahópsins gæða sér á sýnishorni af
íslenskri matargerð á Holiday Inn hótelinu. F.v. Nancy Hasselback frá Seafood Business, Nancy Dell’Aria
frá Woman’s day, Margery Tippies frá Redbook og Jane Kirby frá Glamour.
Ritstjórar heimsóttu Island
RITSTJÓRAR frá þekktum
bandarískum tímaritum, alls uni
fimmtán manns, komu hingað til
lands í byijun júní í boði Útflutn-
ingsráðs Islands, og dvöldust hér
í þijá daga. Tímarit flestra
þeirra sérhæfa sig í mat og mat-
Iðnaðarbanki
Helmiiigur
nýrra hluta-
bréfa seldur
HLUTHAFAR í Iðnaðarbankan-
um sem neyttu forkaupsréttar
síns keyptu um helming þeirrar
40 milljón króna hlutafjáraukn-
ingar sem ákveðin var á aðal-
fundi bankans i vor.
Hlutabréfin voru seld á genginu
1,5. Afgangur hlutaijárins verður
seldur á almennum markaði í haust
að sögn Vals Valssonar banka-
stjóra.
Að sögn Vals er ekki búið að
ákveða á hvaða gengi hlutabréfin
verða boðin í haust. „Þetta er sú
staða sem við óskuðum eftir,“ sagði
Valur.
„Við vildum fá töluvert af hluta-
bréfum til sölu á almennum mark-
aði svo að nýir hluthafar gætu
keypt hlut í bankanum."
argerð.
Að sjálfsögðu var gert eins vel
við ritstjórana og mögulegt var á
meðan á dvölinni stóð, en tilgangur
boðsins var að kynna ritstjórunum
fiskvinnslu og meðhöndlun íslend-
inga á fiski frá því að hann er dreg-
inn úr sjó þar til hann er sendur á
markað, auk þess að kynna þeim
ísland almennt. í frétt frá útflutn-
ingsráði segir að ritstjórarnir hafí
látið vel af viðurgjörningnum, en
meðal þess sem þeim var boðið
uppá var skoðunarferð í frystihús
Útgerðarfélags Akureyringa,
frystihús KEA í Hrísey, málsverður
á Brekku í Hrísey og skoðunarferð
um Reykjavík, svo eitthvað sé nefnt.
Á markaðinum
Nýtt Fanta-
appelsín
Verksmiðjan Vífilfell hf. hefur
hafið framleiðslu á nýju Fanta-
appelsíni. í Fanta-appelsininu eru
engin litarefni og er einn tíundi
hluti drykkjarins hreinn app-
elsínusafi.
Bragðið er frábrugðið því sem
áður var, en ákveðið var að skipta
um bragðtegund í kjölfar markaðs-
könnunar. Fanta-appelsín verður fá-
anlegt í fleiri tegundum umbúða en
fyrr. Má þar m.a. nefna nýjar hálfs
lítra plastflöskur, en á þeim er ný
tegund plasttappa sem gera fólki
kleift að loka flöskunum þéttar en
áður hefur verið hægt.
Morgunblaðið/Bjami
Kópal
Dýrótex er
útimálning
sem
dugar vel
fmálning V
Vinningstöiurnar 23. júlí 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.112.814,-
1. vinningur var kr. 2.059.364,- og skiptist hann á milli 4ra
vinningshafa, kr. 514.841,- á mann.
2. vinningur var kr. 617.048,- og skiptist hann á milli 274
vinningshafa, kr. 2.252,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.436.402,- og skiptist á milli 6.589 vinn-
ingshafa, sem fá 218 krónur hver.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
Sölustadirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.