Morgunblaðið - 26.07.1988, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 26.07.1988, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988 Hringvegur um Snæfellsnes breytir búsetu á nesinu eftir Finnboga G. Lárusson Þegar talað er um hringveg um Snæfellsnes þá finnst mér að slíkur vegur hljóti að miðast við Heydal annarsvegar og veg fyrir Jökul hinsvegar. Tel ég þá vega- gerð svo brýna, að það ætti að vera forgangsverkefni í vegagerð á nesinu, ef tryggja á að allt ne- sið haldist í byggð, sem ég tel mikilvægt. *r Ég las grein eftir Kristin Krist- jánsson barnakennara á Helliss- andi sem birt var í Morgunblaðinu 6. október 1987. Þar segir hann orðrétt meðal annars: „Væntanleg vetrarhringleið um nesið hlýtur að miðast við Heydal annarsvegar og veg fyrir Jökul hinsvegar, það er að segja ef menn eru því sammála að byggð skuli haldast á nesinu öllu.“ Ég tek svo sannarlega undir þessi orð Kristins, og þakka hon- um hans jákvæðu skoðanir á vega- málum á nesinu. Ég hef kynnt mér skoðanir Úölda fólks, bæði sem byggja ne- sið og annarra, og hafa flestallir verið þeirrar skoðunar að vetrar- hringleið um nesið eigi að vera um Heydal annarsvegar og fyrir Jökul hinsvegar. Einstöku menn hafa varpað fram þeirri hugmynd að hringveg- ur um nesið miðist við Kerlingar- skarð annarsvegar og Fróðárheiði hinsvegar. Mér fínnst furðulegt að mönn- um skuli detta slíkur hringvegur í hug, og það sem vetrarleið. Ég skil ekki hvemig á að kalla það hringveg um nesið, ef taka á að- eins miðstykkið úr nesinu og færa hring um það. Ef við skoðum landakortið og lítum á Snæfellsnes sjáum við hvað það er lítill hluti af nesinu milli Kerlingarskarðs annarsvegar og Fróðárheiði hins- vegar. Hellissandur og Olafsvík yrðu ekki í þannig hugsuðum hring, og þá ekki Breiðuvíkur- hreppur. Slíkur hringvegur yrði ekki til að tengja saman byggðina á nesinu öllu, síður en svo, en það er þó það sem gera þarf. Það væri mikil bylting til bóta fyrir þá sem byggja nesið og ferðast um það, ef byggður yrði upp góð- ur vegur fyrir Jökul, sem yrði þá nokkuð örugg vetrarleið. Er næsta furðulegt hvað það hefur dregist lengi. Ég fullyrði að leiðin frá Heiðarkasti að Gufuskálum er að mestum hluta mjög gott vega- stæði og upplagt til malbikunar. Þessi leið er því tvímælalaust heppileg vetrarleið. Þá er land- svæðið frá Arnarstapa að Gufu- skálum snjóléttasta svæðið á nes- inu. Ég vil segja að það sé allt sem mælir með góðum vegi fyrir Jök- ul, og skal ég nefna hér nokkur dæmi því til sönnunar. Leiðin liggur á láglendi, og það vita allir hvað mikill munur getur verið á veðri og færð uppi á ijöllum eða á láglendi. Þá er á þessari leið að mestum hluta þurrlendi, hraun og móar, og snjólétt á vetr- um. Þarna er líka um að ræða sveitarfélag, Breiðavíkurhrepp, sem hefur orðið mjög útundan hvað samgöngur snertir, en mundi fá betri samgöngur. I þessari sveit á Arnarstapa er vaxandi bátaútgerð, blómlegt at- Finnbogi G. Lárusson vinnulíf, ört vaxandi byggð og ferðamannaþjónusta. Þetta allt kallar á bættar samgöngur. Þá vil ég nefna læknaþjón- ustuna á nesinu. Heilsugæslustöð- in er í Ólafsvík, og þangað þurfa allir sem búa í læknishéraðinu að sækja læknisþjónustuna og í því sambandi getur góður vegur fyrir Jökul ráðið úrslitum um hvort hægt er að ná í lækni eða meðul í tæka tíð eða að koma sjúklingum á flugvöllinn sem er á Breiðinni GORI Fúavörn í öllum regnbogans litum Glær Hálf þekjandi Þekjandi HOZELOCK Slöngustatíf Oðabrúsar Tengi Vatnsúðarar og margt fleira YARD-MAN GARÐSLÁTTUVÉLAR 3,5 hestöfl, standard 3,5 hestöfl, með drifi 4,0 hestöfl, með tvígengismótor Sérlega hentug í halla Briggs &Stratton mótor Hæðarstilling 21" sláttuhringur sem nær vel út í kanta Öryggishandfang Góð varahluta- og viðgerðaþjónusta Eins árs ábyrgð Verð f rá 20.960 stgr. Tilboðið gildir til mánaðamóta. Takmarkaðar birgðir. BYGGINGAVÚRUVERSLUN SAMBANDSINS KRÓKHÁLSI 7 SÍMI 8 20 33 SUMAR TÆKIFÆRI Hér og nú! milli Hellissands og Ólafsvíkur, og gæti þá verið um mannslíf að tefla. í þessu sambandi ætla ég að nefna hér eitt dæmi: Það var sunnudaginn 10. apríl síðastliðinn, að kona mín, undirritaðs, lá í rúm- inu mikið veik. Ég hringdi til Ól- afsvíkur á læknavakt og náði í Sigurð Baldursson lækni. Hann vildi strax koma og skoða konuna en hann sagðist ekki vita um færð- ina yfir Fróðárheiði eða fyrir Jökul og ég vissi heldur ekkert um færð- ina. Norðan hvassviðri var og hríðarbylur. Við ákváðum því að tala saman aftur eftir að hafa grennslast fýrir um færðina. Þeg- ar ég hafði nýlokið samtalinu við lækninn, komu tveir menn á fólksbíl frá Ólafsvík heim til mín og sögðust þeir hafa komið fyrir Jökul, og að enginn teljandi snjór hefði verið á þeirri leið, en dimmt að keyra á köflum vegna skaf- hríðar. Ég hringdi þá aftur í lækn- inn og sagði honum frá þessu, og þá var hann búinn að frétta að Fróðárheiði væri kolófær. Læknirinn kom og fór fyrir Jök- ul og gekk ljómandi vel. Það mætti nefna mörg dæmi þessu lík í áraraðir. Það mundi spara ríkisfé í sam- bandi við snjómokstur og skapa vegfarendum og sjúkum mikið öryggi, ef vegurinn fyrir Jökul væri uppbyggður fyrir vetrarum- ferð. Ekki má skilja orð mín svo að ég sé á móti þeim fjallvegum sem eru, Fróðárheiði og Kerlingar- skarði. Nei, síður en svo, ég tel að þeir vegir þurfí að vera í góðu ástandi, svo umferð um þá geti verið með eðlilegum hætti, en ég fullyrði að góður vegur fyrir Jökul þjónar mikilvægum tilgangi og skapar ómetanlegt öryggi öllum þeim sem byggja nesið, einnig vegfarendum og sjúkum sem þurfa að leita læknis. Þá stuðlar það að stórbættum samgöngum og haml- ar á móti byggðaröskun og fólks- fækkun á nesinu. Mikið samband hef ég haft við fólk sem ferðast um nesið, og far- ið með hópum til náttúruskoðunar fyrir Jökul. Þar er stórkostleg náttúra sem fólk fýsir að skoða, en margir minnast á að veginum sé lítill sómi sýndur. Bílstjórar sem keyra bíla með vagna aftan í, hafa sagt mér að þeir fari fyrir Jökul þegar þeir geta að vetrinum því brattir fjallvegir séu svo erfiðir og hættulegir í snjó og á svellum. Ég álít að forgangsverkefni í uppbyggingu Útnesvegar sé að færa veginn frá Sleggjubeinu að Arnarstapa niður í svokallað Kleif- hraun, þar sem nú mun vera að mestu búið að mæla fyrir vegi. Þessi umrædda leið sem nú liggur um Stapabotn og meðfram Stapa- felli hefur verið erfiðasti kaflinn á Útnesvegi á vetrum. Hvað viðhald vega snertir er mjög áríðandi að klæða veginn fyrir Jökul með góðu efni, og af- leggjarann niður í Djúpalón og Dritvík er mjög áríðandi að klæða sem fyrst, svo náttúruskoðendur komist þangað með góðu móti, því þangað sækir fólk mikið. Einnig þarf að stækka bílaplanið niður við Djúpalón. Já, það er svo sannarlega mál til komið að vakna af svefni, og fara í alvöru að vinna að því að vegurinn fyrir Jökul verði byggður upp og bættur með vetrarumferð fyrir augum, öllum til mikils hag- ræðis og sálubótar. Að lokum mælist ég vinsamlega til þess við háttvirta þingmenn Vesturlands- umdæmis að þeir láti nú þetta mál til sín taka í alvöru, snúi bök- um saman, og vinni ötullega að uppbyggingu vegarins fyrir Jökul og farsælli lausn þessa máls með jafnrétti þegnanna fyrir augum. Höfundur er bóndi að Laugar- brekku.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.