Morgunblaðið - 26.07.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
51
þakka ég elsku ömmu minni fylgd-
ina.
Arna
Alltaf er verið að höggva í frænd-
garða og vinahópa, það er lífsins
gangur. Nú hefir góð frænka og
fóstra verið kölluð burt úr heimi,
Svanbjörg Amgrímsdóttir á Flat-
eyri. Þessi frétt kom ekki á óvart.
Þegar ég sat hjá henni dagpart í
júní leið, vissi ég að komið var að
leiðarlokum og ekkert getum við
sagt, þótt öldruð lasburða kona fari
frá okkur fyrir fullt og fast. Samt
er það nú svo, að sumir fara aldrei
frá okkur þótt Ieiðir skilji. Til eru
þær manneskjur sem halda áfram
að lifa í hjartanu og maður á, á
sinn sérstæða hátt, uns yfír lýkur.
Svanbjörg frænka var ein þeirra.
En fyrir undirritaða hverfur ekki
aðeins góð frænka, heldur einnig
heimildarmaður um allt það er lýtur
að uppvaxtarárum, heimilishaldi í
foreldrahúsum vestur á Flateyri
fram til ársins 1930 svo og um
mannlífið í þorpinu fyrir þann tíma
er ég man sjálf. Oft var líka leitað
til hennar og margafi fróðleik á ég
henni að þakka. Hún hafði gaman
af að segja sögur af bræðrum sínum
sem voru fjörmiklir strákar og hún
skildi vel, hvers vegna mér varð
stundum á að nefna sjálfa mig í
karlkyni, því að málið hafði ég lært
af þrem eldri bræðrum og svo föður
mínum, sem ég fylgdi eftir hvenær
sem færi gafst, líka í skólann þótt
mikið vantaði á skólaaldur.
Astæða þess, að Svanbjörg
frænka vissi allt betur en allir sem
ég þekkti um þetta skeið bemsk-
unnar var sú, að hún kom ung að
árum norðan úr Svarfaðardal árið
1923 til þess að gerast bamfóstra.
Það var móðurbróðir bamfóstrunn-
ar, Snorri Sigfússon, sem falast
hafði eftir henni og systir hans,
Ingigerður móðir Svanbjargar, fall-
ist á að hún færi vestur. Ekki er
víst, að móðurina hafi þá grunað
að þar með væru örlög ráðin. Unga
stúlkan kynntist efnismanni í þorp-
inu, Jóni Þorbjamarsyni, sem hún
gekk að eiga haustið 1925. Jón var
indælis maður, broshýr og góður
við okkur, en ekki líkaði lítilli telpu
alls kostar, að hann skyldi taka
Svanbjörgu úr heimilinu. Við hofð-
um strax hænst að þessari góðu
og glöðu frænku og sú væntum-
þykja og vinátta entist til hins
síðasta, og aldrei þreyttist hún á
að sýna okkur rausn og elskusemi.
Svanbjörg frænka mín varð fyrir
þeirri miklu sorg að missa mann
sinn snemma og vel man ég hryggð
okkar allra, þegar sú fregn barst
foreldrum mínum en þá vorum við
flutt til Akureyrar. Þau hjónin eign-
uðust tvo mannvænlega syni,
Arngrím, mikinn ágætismann, en
hann var lengi skólastjóri Héraðs-
skólans að Núpi en lést um aldur
fram, og Hjört, bakarameistara á
Flateyri. Mjög var kært með Svan-
björgu og sonunum og eftir að hún
var orðin ekkja flutti hún sig um
set og gerðist matráðskona og síðar
þjónusta að Núpi um tuttugu ára
skeið. Heyrt hefí ég eftir gömlum
nemendum við skólann, að margir
hafí átt hauk í horni þar sem Svan-
björg var, og einnig það að skólinn
hafí notið ríkulega dugnaðar hennar
og myndarskapar. Svanbjörg var
harðdugleg til allra verka og þótti
þeim, sem þekkt höfðu móður henn-
ar, Ingigerði Sigfúsdóttur, henni
kippa í kynið en hún var annálaður
dugnaðarforkur í sinni sveit. Það
var Svanbjörgu þungbær sorg að
missa Arngrím son sinn á besta
aldri, en hún bar harm sinn vel og
yngri sonurinn Hjörtur studdi hana
af miklum kærleika. Ég hefi sjaldan
kynnst jafn innilegu sambandi sona
og móður.
Svanbjörg Amgrímsdóttir var
Svarfdælingur í húð og hár, foreldr-
ar bæði,þar úr sveit. Systkinin voru
7 og lifa nú aðeins tvær systur á
Dalvík, Anna Björg og Kristín.
Ræktarsemi þessarar góðu frænku
var einstök og sendingamar frá
henni, fullar af handunnum mun-
um, ófáar.
Svanbjörgu frænku fylgir þakk-
látur hugur fyrir vináttu og tryggð
frá bernskudögum og ávallt síðan.
Blessuð sé minning hennar.
Anna S. Snorradóttir
t
Systir okkar,
LÁRA SKARPHÉÐINSDÓTTIR
áðurá Rauðarárstfg 11,
lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 24. júlí.
Jens Skarphéðinsson,
Friðjón Skarphéðinsson.
t
Bróöir okkar,
HELGI GUNNARSSON,
Blindraheimilir.u Hamrahlfð 17,
andaðist á öldrunardeild Borgarspítaláns 23. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Systkini hins látna.
t
Faðir okkar,
SIGURJÓN GUÐJÓNSSON,
Efri-Holtum, Vestur-Eyjafjöllum
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 22. júlí.
Jón Sigurjónsson,
Unnur Jóna Sigurjónsdóttir,
Kristbjörg Sigurjónsdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaöir og afi,
GUNNAR ÞORKELSSON,
Hraunbæ 174,
lést í gjörgæsludeild Landakotsspítala aðfaranótt 25. júlí.
Stella Gunnarsdóttir, Trausti Finnsson,
Eygló Gunnarsdóttir, Ragnar Ragnarsson
og barnabörn.
t
Faöir minn,
ÓLAFUR ÞORKELSSON
fyrrverandi vörubflstjóri,
Nýlendugötu 20,
lést á Kumbaravogi aðfaranótt 25. júli.
Fyrir hönd ættingja og vandamanna,
Inga Ólafsdóttir.
t
Faðir okkar,
MAGNÚS ÓSKAR MAGNÚSSON,
Dalbraut 18,
áður Freyjugötu 39,
andaðist í Borgarspítalanum 23. júlí.
Jarðarförin auglýst siðar.
Þórunn Magnúsdóttir,
Ásdfs Magnúsdóttir.
t
Eiginkona mín, móöir, tengdamóðir og amma,
GUÐLAUG SIGURJÓNSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
Skelðarvogl 89,
verður jarðsungin í Fossvogskirkju miðvikudaginn 27. júlí kl. 13.30.
Ólafur Galti Kristjánsson,
Agústa Jónsdóttir, Guðmundur Reynisson,
Kristján Ólafsson, Björg Árnadóttir
Erla Ólafsdóttir, Þorsteinn Danfelsson,
Ólafur Örn Olafsson, Aslaug Alfreðsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa,
OLGEIRS SIGURVINSSONAR
bifreiðarstjóra.
Erla Olgeirsdóttir, Guðmundur Finnbogason,
Guðborg Olgeirsdóttir, Slgurður Brynjólfsson
og barnabörn.
Lregsteinar
MARGAR GERÐIR
Mamorex/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni t4, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
t
Hjartanlega þökkum við öllum er vottuðu okkur samúö og vináttu
við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS TRYGGVASONAR
frá Kothvammi.
Elísabet Ólafsdóttir, Jakob S. Bjarnason,
Helgi S. Ólafsson, Dóra Eðvaldsdóttir,
Tryggvi Ólafsson, Anna Marfa Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
ÁSBJÖRNS GUÐMUNDSSONAR
kennara,
Samtúni 18.
Sigrfður Kjerulf
Guðrún Ásbjörnsdóttir, Björn Þórarinsson,
Sigurður Ásbjörnsson, Hrefna Kristjánsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúö vegna andláts systur okkar,
GUÐRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Nýjabæ, Garði.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Grensásdeildar Borg-
arspítala fyrir góða hjúkrun í veikindum hennar.
Addbjörg Sigurðardóttir,
Sigrfður Sigurðardóttir.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR.
Gyða E. Jónsdóttir,
Svana Eyjólfsdóttir,
Trausti Eyjólfsson
Erla Eyjólfsdóttir,
Þórunn Stella Markúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn
Georg Jónsson,
Gfsli Jóhann Sigurðsson,
Gréta Finnbogadóttir,
Guðlaug Marteinsdóttir,
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdafööur, afa og langafa,
ELÍASAR SVEINSSONAR
sklpstjóra,
Varmadal,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs á St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði.
Eva L. Þórarinsdóttir,
börn og fjölskyldur þeirra.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og jarð-
arför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
INGVARS KARLS SIGTRYGGSSONAR,
Bogabraut 16,
Skagaströnd.
Karftas L. Ólafsdóttir,
Rúnar Þór Ingvarsson, Rósa M. Sigursteinsdóttir,
Ragnar S. Ingvarsson, Krlstfn Jónsdóttir,
Gréta K. Ingvarsdóttir, Guðni Ólason,
Árni Geir Ingvarsson,
Vala Rós Ingvarsdóttir, Guðlaugur I. Sigurðsson,
Þórarinn B. Ingvarsson, Gyða Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfimd-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.