Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ein af myndum Þóru máluð á
litla hraunhellu.
Þóra Siguijónsdóttir á vinnustofu sinni á Lækjarbakka. Á borðinu
er ein þeirra mynda sem hún hyggst taka með sér á kvennaráðstefn-
una.
Séð heim að Lækjarbakka þar sem rekaviðadrumbar prýða garðinn.
SELFOSS
Málar myndir á litlar hraunhellur
Eg mála þessar myndir á hraun-
gijót sem ég finn úti í náttúr-
unni og það eru margir hrifnir af
þessu og sækja í þetta," sagði Þóra
Siguijónsdóttir húsfreyja og lista-
kona á Lækjarbakka í Gaulveija-
bæjarhreppi. Hún hefur útbúið lítið
gallerí heima hjá sér, þar sem hún
selur listmuni sína.
Hjá Þóru getur að líta málverk,
skreytingar unnar út þurrkuðum
sjávargróðri og dýrum, myndir
málaðar á rekavið auk myndanna
á hraungijótinu. Þóra segist ekki
vitatil að aðrir máli slíkar myndir.
Þóra velur sér þunnar hraun-
hellur til að mála á og eru þær af
ýmsum stærðum og hentugar til
að hengja upp á vegg. Einnig mál-
ar hún á granítsteina sem hentugir
eru sem borðskraut. Myndimar á
steinunum eru fantasíur af ýmsum
gerðum og mikið ber á andlitsmynd-
um. Þóra segir að hvers kyns ævin-
týraheimar séu undirrót myndanna.
Myndimar eru málaðar með
akríllitum og minna margar þeirra
á keramik þegar þær eru fullgerð-
ar. Þóra segir steinana gefa ótrú-
lega möguleika til myndsköpunar
en tímafrekt sé að mála hveija
mynd. Hún er ein þeirra kvenna sem
ætla á norrænu kvennaráðstefnuna
á næstunni og hyggst hún taka
með sér nokkrar steinamyndir.
Það em allir velkomnir að Lækj-
arbakka til að skoða listmuni Þóm.
Bærinn er við veginn þegar ekið
er austur með ströndinni og þekkist
á því að í garðinum er mikið af
rekaviðardmmbum.
— Sig. Jóns.
KANADA
Elgur skreppur
í sund
Það varð uppi fótur og fit í ferð um daginn. Elgurinn hafði
bænum Glouchester í Kanada komið auga á notalega sundlaug í
þegar ungt elgsdýr brá sér í bæjar- garði við einbýlishús og ákvað að
Elgurinn var hífður upp úr lauginni með kranabíl.