Morgunblaðið - 26.07.1988, Side 64
Icelandic Freez-
ing Plants:
200 tonn af
flökum í salt
■■►VIÐ HÖFUM saltað tæplega 200
tonn af flökum og selt langmest
af þeim tii Ítalíu," sagði Ingólfur
Skúlason, forstjóri Icelandic
Freezing Plants í Grimsby í Bret-
landi. „Við þurfum ekki að greiða
toll af fiskinum þar sem hann er
saltaður hér í Bretlandi."
„Við byijuðum á söltuninni í lok
maí og það verður eitthvert áfram-
hald á henni," sagði Ingólfur. „Við
höfum aðallega keypt fiskinn á
mörkuðunum hér og handflakað
hann en einnig þítt upp frosinn fisk
og saltað. Miðað við það háa verð
sem er á mörkuðunum núna borgar
sig ekki að kaupa þar fisk til að
salta. Þetta háa verð hefur leitt til
•‘-jh.-ess að eftirspurnin eftir frosnum
físki hefur aukist en fyrir nokkrum
vikum var mjög erfitt að seija hann,“
sagði Ingóifur.
Ólafur V.
til íslands
ÓLAFUR V. Noregskonungur
hefur þegið boð Vigdísar Finn-
* bogadóttur, forseta íslands, um
að koma í heimsókn til íslands
5. til 8. september.
Ekki er um opinbera heimsókn
að ræða. Ólafur situr meðal annars
kvöldverðarboð forseta á Bessastöð-
um, heimsækir Amastofnun, Lista-
safn íslands og Norræna húsið, fer
til Þingvalla og að Reykholti. Heim-
sókninni lýkur með kvöldverðarboði
konungs til heiðurs forseta íslands.
Morgunblaðið/Þorkell
Tekistá viðstrauminn
Félagar úr íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík, margir bundnir í
hjólastól, tóku i gær upp á því sem margir fullfrískir hefðu eflaust
veigrað sér við. Þeir sigldu á gúmbátum niður Hvítá í Árnes-
sýslu ásamt meðlimum Nýja ferðaklúbbsins til að safna fé til
byggingar íþróttahúss fatlaðra við Hátún í Reykjavík. Ferðin
gekk að óskum en Hvítá er engin smáspræna, sterk og straum-
hörð, og kostaði átök að halda bátunum á réttum kili, eins og
sjá má.
Veiddi einn stærsta sjóbirting
seinni ára hérlendis:
Á þriðja tíma að
landa 24 punda fiski
„JÚ, ÞETTA var mikil glíma, á
þriðja klukkutíma, en ég sá
fljótt hversu stór fiskur þetta
var og fór því varlega," sagði
Auðunn Björnsson i samtali við
Morgunblaðið í gær, en hann
var þá að láta skrá 24 punda
sjóbirting hjá umboðsmanni
ABU hér á landi, Paul O’Keefe
í Veiðimanninum. Stórfiskinn
veiddi Auðunn í Vesturhóps-
vatni í Húnavatnssýslu, nánar
tiltekið í svokölluðum Vatns-
endaflóa. Hann mældist 86
sentimetrar á lengd og 24 pund
og er þetta með stærstu sjóbirt-
ingum sem veiðst hafa hér á
landi á seinni árum að minnsta
kosti.
Auðunn var að veiða af báti
*ásamt tveimur félögum sínum og
var annar þeirra kunnugur, en
Auðunn var að veiða þarna í
fyrsta skipti. Silungurinn mikli
tók svartan Tóbíspón í bítið um
morguninn og var ekki landað
fyrr en eftir rúma tvo klukk-
utíma. Stöng Auðuns er aðeins
6,5 fet og hjólið rúmlega tveggja
áratuga gamalt ABU-Matic og
hefur það aukið á tvísýnuna. Lét
Auðunn þess getið, að hann hefði
keypt veiðileyfi í Víðihlíð og hefði
það kostað aðeins 500 krónur.
Þeir félagar veiddu alls 26 urriða,
alla 1 til 3 punda. Þannig stendur
á göngufiski úr sjó í vatni þessu,
að úr því rennur Faxalækur til
Víðidalsár sem er ein af betri lax-
veiðiám landsins.
- gg
Greenpeace í Bandaríkjunum:
Dómstólar knýi fram
staðfestingarkæru
Þeir munu vafalaust tapa málinu, segir Halldór Ásgrímsson
GREENPEACE og 15 önnur umhverfisverndarsamtök í Bandaríkjun-
um hyggjast láta dómstóla skylda viðskiptaráðherra Bandaríkjanna
til að gefa út svonefnda staðfestingarkæru á hendur íslendingum,
þvert ofan í samkomulag ríkjanna um hvalveiðar íslendinga í vísinda-
skyni. Dean Wilkinson, sem sér um lögfræðileg málefni fyrir Gre-
enpeace, sagðist vera mjög bjartsýnn á að þetta tækist. Islendingar
myndu þá neyðast til að fara í einu og öllu eftir tilmælum Alþjóða-
hvalveiðiráðsins eða hætta hvalveiðum á næsta ári til að forðast
takmarkanir á innflutningi fisks í kjölfar staðfestingarkærunnar.
Halldór Ásgrimsson, sjávarútvegsráðherra, segist ekki efa að græn-
friðungar tapi málinu.
Wilkinson sagði að grænfriðung-
ar hefðu ástæðu til bjartsýni eftir
að hafa tvívegis reynt þcssa leið til
að knýja fram staðfestingarkæru á
hendur Japönum. I fyrra skiptið
hefðu öll dómstig dæmt grænfrið-
ungum í hag þar til Hæstiréttur
Bandaríkjanna snerist gegn þeim
með minnsta mögulega mun; 5 at-
kvæðum gegn 4. í síðara skiptið,
nú í febrúar, hefði viðskiptaráð-
herrann lagt staðfestingarkæru
fram áður en úrskurður dómstóla
tá fyrir og voru fiskveiðar Japana
í bandarískri lögsögu bannaðar í
kjölfar þess. Ljóst væri að mála-
reksturinn hefði þar vegið þungt á
metunum.
Málarekstur hefst í næstu viku,
að sögn Wilkinsons. Hann sagðist
búast við að það tæki 1-2 mánuði
þar til úrskurður lægi fyrir. Málinu
yrði ef til vill áfrýjað, en endanleg
niðurstaða ætti að liggja fyrir áður
en hvalvertíð næsta árs hefst.
Staðfestingarkæra er gefin út á
hendur ríkjum sem talin eru vinna
gegn alþjóðasamþykktum um nátt-
úruvemd. Forseti Bandaríkjanna
getur í kjölfar kærunnar takmarkað
fískveiðar viðkomandi ríkis í banda-
rískri lögsögu eða lagt hömlur á
fiskinnflutning. Wilkinson sagði að
Norðmenn hefðu orðið að gera hlé
á hvalveiðum sínum til að forðast
innflutningshöft þegar staðfesting-
arkæra var gefin út á hendur þeim
fyrir tveimur árum.
Campbell Plowden hjá Green-
peace sagði að samtökin hefðu
fengið skólayfírvöld í 12 umdæmum
til að skrifa undir yfirlýsingu þess
efnis að þau myndu ekki kaupa
íslenskan físk í skólamötuneyti.
Aðspurður kvaðst hann ekki vita
hvort allir þessir aðilar keyptu
íslenskan fisk nú eða hve mikill
hluti af íslenskum fiski færi í skóla-
mötuneyti. Ekki náðist í talsmenn
fisksölufyrirtækja SH og Sam-
bandsins vestra vegna þessara mála
í gær.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra var spurður álits á
þessari fyrirætluðu málshöfðun
grænfriðunga. „Það er að sjálf-
sögðu þeirra mál,“ sagði hann. „Það
hefur alltaf verið reiknað með því
að þeir mundu hugsanlega fara út
í það. Ég er ekki í nokkrum vafa
um að þeir munu tapa því máli.
Hitt er svo annað mál, að ég vænti
þess þá að það verði til þess að
þessi samtök sætti sig við lýðræðis-
leg vinnubrögð og lagalegar leiðir
í sínum störfum og grípi ekki jafn-
óðum til ólöglegra og ólýðræðis-
legra aðgerða ef þeir verða ein-
hvers staðar undir.“