Morgunblaðið - 27.07.1988, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.07.1988, Qupperneq 1
169. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Skæruliðar herða árásirnar á Kabúl Islamabad. Reuter. Afganskir skæruliðar skutu 170 eldflaugum á Kabúl i síðustu viku og hafa ekki gert harðari hríð að höfuðborginni í þau níu ár, sem stríðið hefur geisað í iandinu. Haft er eftir vestrænum stjórnar- erindrekum, að ein eldflauganna hafi lent á franska sendiráðinu í borginni án þess að valda mann- skaða og önnur sprakk rétt við bandaríska sendiráðið. A laugar- deginum einum var 60 eldflaugum skotið að borginni en sérfræðíngar telja, að skæruliðar ætli ekki að ráðast inn í borgina í bráð, heldur séu þeir fyrst og fremst að sýna hvers þeir séu megnugir. Að undanförnu hafa skæruliðar látið meira að sér kveða en venju- lega á þessum árstíma og auk þess hafa þeir samræmt aðgerðir sínar í baráttunni við stjómarhermenn og eldflaugaárásum á Kabúl. Þá hafa þeir nú yfir að ráða eldflaug- um, sem unnt er að skjóta að skot- markinu úr 30 km Ijarlægð. Ðollarinn sækir enn í sig veðrið London. Reuter. GENGI dollarans hækkaði verulega í gær þegar skýrt var frá því, að pantanir á ýmsum vörum öðrum en neysluvörum, t.d. heimilistækjum, bifreiðum og flugvélum, hefðu aukist um 8,8% í júní. Gengi breska pundsins er einnig hátt og er búist við, að svo verði áfram. Pantanir á endingargóðum vörum, sem svo eru kallaðar, hafa ekki auk- ist jafn mikið síðan í desember árið 1985 og kom aukningin öllum á óvart. Höfðu flestir spáð um 2% hækkun en eftirspum eftir flugvélum og öðrum samgöngutækjum var miklu meiri en áður hafði verið talið. Raunar er þessi hækkun ekki talin gefa alveg rétta mynd af hagvextin- um því að flugvélar eru dýrar og ef þær eru pantaðar margar á sama tíma hefur það veruleg áhrif á vísi- töluna. í gær fengust fyrir dollarann 1,86 vestur-þýsk mörk og 132,40 japönsk jen og fyrir breska pundið fengust 3,1850 v-þýsk mörk. Telja sérfróðir menn, að pundið verði áfram sterkt enda hafi fjárfestendur óbilandi trú á þvi á hvetju sem gangi. „Þegar hagtölumar eru ekki nógu góðar treysta því allir, að ríkisstjórn- in hækki vexti og þar með gengi pundsins, og þegar þær eru góðar þarf ekki að sökum að spyrja," sagði breskur hagfræðingur. > Reuter Útsöluæði Sumarútsölurnar eru nú hafnar í Vestur-Þýskalandi í skóverslun í Hamborg en segja má, að þar hafí ‘ og er viða mikill handagangur i öskjunni þegar versl- verið barist um hvern einasta kassa enda afsláttur- anir em opnaðar á morgnana. Þessi mynd var tekin inn um 50%. Tólf málverkum eftír Munch stolið Ósló. Reuter. TÓLF málverkum eftir norska málarann Edvard Munch var stolið í fyrrinótt á einkaheimili í Ósló. Skýrði lögreglan þar í borg frá þessu í gær. „Þjófamir vissu hvað þeir vildu því að þeir tóku aðeins málverk eftir Muneh en létu verk annarra norskra málara ósnert," sagði Gunnar Halset, talsmaður lögregl- unnar, en þýfið, ómerkt málverk, teikningar, steinprentanir og tré- skurðarmyndir, er metið á rúmlega 90 milljónir ísl. kr. Munch, sem lést rúmlega áttræð- ur að aldri árið 1944, hafði mikil áhrif á evrópskan expressjónisma á öndverðri öldinni með stefjum sínum við dauðann, kynhneigðina og andlega og líkamlega vanlíðan. I febrúar sl. var einu af frægari olíumálverkum Munchs, Blóðsug- unni, stolið á safni í Ósló og hefur ekki fundist aftur. Það var metið á nærri 280 milljónir ísl. kr. Osló: Reuter írönsku klerkarnir hafa hvatt alla vopnfæra menn til að halda til vígstöðvanna þótt vonast sé til, að um vopnahlé semjist á næstunni. Þá hefur verið lagt sérstaklega að öllum félögum alþýðunefndanna svokölluðu að leggja sitt af mörkum. Hér eru nokkrir menn úr „miðstjórninni" í Teheran að lialda í stríðið. Persaf lóastrí ðið: Viðræður þrátt fynr grimmilega bardaga Sameinuðu þjóðunum, Nikósíu. Reuter. Utanríkisráðherra Irans átti í gær „árangursríkar“ viðræður við Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, um vopnahlé í Persaflóa- stríðinu en á sama tíma geisuðu grimmilegir bardagar innan landamæra írans. Áttust þar við skæruliðaher Mujahideen-e Khalq-hreyfingarinnar írönsku og iranskir stjórnarhermenn. Ali Akbar Velayati, utanríkisráð- herra írans, sagði eftir fyrstu vopnahlésviðræður sínar við de Cuellar, að þær hefðu verið „árang- ursríkar og hreinskilnar" en í dag ætlar de Cuellar að ræða við Tareq Aziz, utanríkisráðherra íraks. Fyrst í stað að minnsta kosti verð- ur ekki efnt til beinna viðræðna með fulltrúum styijaldarþjóðanna. Kvaðst de Cuellar vona, 'að innan viku yrði ljóst hvemig eiginlegum friðarviðræðum yrði hagað. Mjög harðir bardagar geisuðu í gær 100 km innan landamæra ír- ans milli íranskra skæruliða, sem beijast gegn klerkastjórninni, og íranska hersins. Kváðust skærulið- ar hafa tekið tvo bæi og upprætt herdeild íranskra byltingarvarða en íranir héldu því fram, að þeir hefðu endurheimt annan bæinn eftir grimmileg átök. Segja þeir einnig, að íraskir hermenn hafi barist með skæruliðunum en þeir síðarnefndu hafa haft bækistöðvar sínar í írak. Irakar neita því og segjast vera búnir að flytja allt sitt herlið frá Íran en talið er, að skæruliðar vilji með sókninni nú styrkja stöðu sína áður en sest er að samningaborði. Ekki hefur verið barist svona langt inni í íran síðan í upphafi Persaflóastríðsins og er óttast, að átökin kunni að verða Þrándur í Götu þeim viðræðum, sem nú eiga sér stað um vopnahlé og frið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.