Morgunblaðið - 27.07.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988
31
Oddeyrin EA:
Engum afla hent
ODDEYRIN EA, sem undanfarið
hefur verið á karfaveiðum út af
Reykjanesi, hefur verið hreinsuð
af öllum áburði um að hafa hent
afla.
Eftirlitsmaður frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu fór um borð í Oddeyr-
ina fyrir skömmu til að fylgjast
með veiðum. Að sögn Þorsteins Más
Baldvinssonar framkvæmdastjóra
Samherja, útgerðarfélags skipsins,
mun hann hafa farið frá borði
ánægður með meðferð á afla og
því hefðu sögusagnir ekki átt við
rök að styðjast. Þorsteinn Már sagði
frystitogarana alltaf undir slíkum
sögusögnum og væri ekkert við því
að gera. „Nú er búið að fara ofan
í málin. Það kom í ljós að hlutirnir
eru í góðu lagi um borð og allir
sáttir í dag, að ég best veit,“ sagði
Þorsteinn Már. Oddeyrin er enn á
miðunum út af I&ykjanesi þar sem
skipið stundar karfaveiðar. Skip-
stjóri er Jón ívar Halldórsson. Odd-
eyrin verður á karfaveiðum fram á
haustið og þá verður skipt aftur
yfír í rækju.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Unnið hefur verið við löndun úr Akureyrinni síðustu þijá daga og
heldur hún aftur á miðin í kvöld. Skipstjóri verður aftur Þorsteinn
Vilhelmsson.
Akureyrin EA:
Hásetahlutur 450.000
eftir 22 veiðidaga
AKUREYRIN EA kom til heima-
hafnar á Akureyri á sunnudag
með 270 tonn af frystum afurð-
um, þorsk- og ufsaflökum. Afla-
verðmæti nemur hátt í 45 millj-
ónum króna og er það mesta
verðmæti í krónum talið er skip-
ið hefur komið með að landi.
Skipið var á veiðum í 22 daga.
Hásetahluturinn nemur einu pró-
senti af aflaverðmæti og er því
um 450.000 krónur.
I fyrrasumar kom Akureyrin með
jafnstóran túr hvað afla varðar og
nam þá verðmæti hans 38 millj. kr.
Túrinn var þó heldur lengri þá.
Unnið er nú að löndun úr Akur-
eyrinni og fer togarinn aftur á veið-
ar í kvöld. Aflinn fer beint í gáma
og verður sendur á markað í Eng-
landi. Aflinn fékkst á Vestfjarða-
miðum og var Þorsteinn Vilhelms-
son skipstjóri í túmum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
„Reistu mig við vinur“
Torfi Ólafsson frá Akureyri stóð uppi sem „Sterkasti maður lands-
byggðarinnar" eftir að varpað var hlutkesti milli hans og Magnús-
ar Vers Magnússonar frá Seyðisfirði. Hér veltir Torfi Ólafsson
425 kg. „svinghjóli" úr Sauðanesvita við, sem á er Ietrað„Reistu
mig við vinur“. Keppendur áttu að velta hjólinu fimm sinnum
og tókst aðeins þremur keppendum að ljúka verkinu. Magnús
Ver náði bestum tíma, 23,11 sekúndum. Áætlað er að halda aðra
slíka keppni að ári liðnu þar sem Torfi hugsanlega reynir að
verja titil sinn sem sterkasti maður landsbyggðarinnar.
r
Seglbrettamót
á Pollinum
ÁRLEG seglbrettakeppni fór
fram á Pollinum um helgina
þar sem meðfylgjandi myndir
voru teknar. Hér eru þær Anna
María Malmquist og Signe Við-
arsdóttir, báðar frá Akureyri,
en Anna María sigraði i fyrsta
flokki og Signe varð í þriðja
sæti. Finnur Birgisson skipu-
lagsstjóri Akureyrarbæjar lenti
í öðru sætinu. Jóhann Örn
Ævarsson úr Kópavogi sigraði
í meistaraflokki, Valtýr Guð-
mundsson frá Laugarvatni
hafnaði í öðru sæti og Aron
Reynisson úr Kópavogi i því
þriðja. Keppendur voru alls 14
og var veitingastaðurinn Fiðl-
arinn styrktaraðili mótsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Búumst við 8.000
gestum á útíhátíðina
— segja mótshaldarar á útihátíðinni „Fjör ’88“
Undirbúningur stendur nú sem hæst fyrir fyrstu útihátíðina, sem
nýstofnað fyrirtæki, Fjör hf., stendur fyrir á Melgerðismelum í
Eyjafirði. Á blaðamannafundi, er haldinn var fyrir skömmu, kom
fram að aðstandendur hátíðarinnar eiga von á um 8.000 gestum
ef marka má þær undirtektir er hátíðin hefur fengið.
Unnið hefur verið að byggingu
sex metra hás sviðs á svæðinu þar
sem dansleikir og aðrar uppákom-
ur fara fram. Auk þess hefur fyrir-
tækið keypt söluskúra og salerni
frá Húsafelli, flutt norður og kom-
ið þeim upp á svæðinu. Þeir Ómar
Pétursson, Jón og Pétur Bjama-
synir kváðu gífurlega vinnu liggja
í skipulagningu slíkrar útihátíðar,
en þeir sögðust trúa því að öll sú
vinna, myndi skila sér í góðri að-
sókn enda væri Melgerðissvæðið
vel fallið til útihátíða.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um átti m.a. hljómsveitin Big
Country að skemmta gestum á
Melgerðismelum, en rifta varð
þeim samningi vegna mikilla
krafna hljómsveitarinnar. Til dæm-
is hefði hljómsveitin farið fram á
90.000 watta hljómflutningskerfi,
sem er 30 sinnum sterkara en það
sem Skriðjöklar notast við. Gengið
hafði verið frá leigu á hljómflutn-
ingskerfi Reykjavíkurborgar sem
er um 25.000 vött að styrkleika
og því í miklu ósamræmi við hug-
myndir þeirra Big Country-félaga.
Þær hljómsveitir sem koma til
með að skemmta á Melgerðismel-
um eru Skriðjöklar, Sálin hans
Jóns míns, Stuðkompaníið, Víxlar
í vanskilum og ábekingur, sem í
eru meðlimir úr þremur fyrsttöldu
hljómsveitunum, Rokkabilly-band-
ið, Sniglabandið og Viking Band
frá Færeyjum sem er hvað fræg-
ast fyrir að hafa sérhæft sig í
Lónlí blú bojs lögum. Dansleikir
fara fram þrjú kvöld í röð frá kl.
20.00 til kl. 4.00. Skemmtidagskrá
hefst dag hvern á hádegi þar sem
meðlimir úr Spaugstofunni koma
fram. Keppt verður í sandspyrnu.
Hljómsveitakeppni, aflrauna-
keppni og aflraunasýning fer fram
og Sigurður Baldursson fallhlífa-
stökkvari hyggst gera heimsmetst-
ilraun í fallhlífastökki með því að
stökkva í fallhlíf og lenda á hrossi,
sem gengur undir nafninu Gutt-
ormur. Að sögn aðstandenda móts-
ins, mun þetta vera einstæður at-
burður í sögu hrossins. Svifflugs-
sýning og flugeldasýning eru á
meðal atriða og kveikt verður upp
í varðeldi á laugardagskvöld við
gítartónlist og tilheyrandi fjölda-
söng.
Mótshaldarar taka Melgerðis-
mela á ieigu frá hestamannafélög-
unum í Eyjafirði, Létti, Funa og
Þráni, og frá ungmennafélaginu
Vorboðanum. Um 250 starfsmenn
verða við vinnu á meðan á hátí-
ðinni stendur, þar á meðal skátar,
félagar úr Flugbjörgunarsveitinni,
Þór, JC og ungmennafélaginu
Reyni. Þess má geta að um helgina
bjóða Flugleiðir og Norðurleið upp
á niðursett fargjöld frá Reykjavík.
Með rútu kosta báðar leiðir 2.600
krónur og með Flugleiðum er far-
gjaldið 5.475 krónur fram og til
baka. Rútur verða til taks á flug-
vellinum sem flytja gesti beint á
mótsstað, sem er í 23,7 km. fjar-
lægð frá Akureyri. Aðgöngumiðinn
kostar 4.500 krónur, en eftir kl.
4.00 aðfaranótt sunnudags lækkar
verð niður í 1.500 kr.
Blaðburðarfólk
óskast í eftirtalin hverfi:
Dalsgerði - Grundargerði.
Uppl. í Hafnarstræti 85, Akureyri - sími 23905.