Morgunblaðið - 27.07.1988, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988
55
GOLF / LANDSMÓT
Morgunblaðið/KGA
Mikill áhugi
Áhorfendur höfðu sjónaukana á lofti þegar þeir fylgdust með landsmótinu í
golfi á Grafarholtsvelli í gær. í dag hefst keppni í meistaraflokkum karla og
kvenna og 1. flokkum karla og kvenna.
Jens G. Jensson
leiðir í 2. flokki
Keppni í meistaraflokki hefst í dag
Keppnin í 2. flokki karla á lands-
mótinu í golfí er hálfnuð og
munu 24 þeir beztu halda áfram
keppni í dag og á morgun en aðrir
eru úr leik. Keppni í meistaraflokki
karla og kvenna hefst í dag kl.
07.00.
Jens G. Jensson, GR, stendur vel
að vígi og hefur þriggja högga for-
ystu. Sá sem varð 24. í röðinni var
Svan Friðgeirsson, GR, lék á 176
höggum. Hefði hann leikið á einu
höggi til viðbótar eða 177, hefði
hann orðið jafn sex öðrum keppend-
um í 24.-30. sæti og þeir ailir hald-
ið áfram keppni. Ymsir munu því
hafa skammast í góðu út í Svan
fyrir að hafa nú ekki getað notað
svo sem eitt högg til viðbótar.
Staða efstu manna í 2. flokki
karla er eins og hér segir:
Jens G. Jensson, GR...........164
Óskar Ingason, GR.............167
Ólafur H. Jónsson, NK.........167
Ágúst Húbertsson, GK..........168
Guðlaugur Gíslason, GK........169
Jónatan Ólafsson, NK..........170
Jónas H. Guðmundsson, GR......171
Haukur Ó Bjömsson, GR.........171
Sigurður Aðalsteinsson, GK....171
Sævar Egiisson, NK............173
Daníel Ólafsson, GK...........173
KORFUBOLTI
Klappstýrur á heimaleikjum UMFG
GRINDVÍKINGAR ætla að breyta örlítið til í körfuknattleiknum
í úrvalsdeildinni í vetur og vera með klappstýrur á heimaleikjum
sínum. Fyrirmyndin er sótt til Bandaríkjanna og er tilgangurinn
að hressa upp á leikinn þegar dofnar yfír honum.
Grindvík er eina liðið í úrvalsdeildinni sem á eftir að ráða þjálf-
ara, en kannski verður þessi tilraun þeirra til að laða að þjálfara
fyrir næsta keppnistímabil.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Landsliðið
til Spánar á
sterktmót
MætirSpánverjum, A-Þjóðverjum,
Sovétmönnum og Svíum
ÞAÐ er skammt stórra högga
á milli hjá handknattleikslands-
liðinu. Liðið mœtti Vestur-
Þjóðverjum tvívegis í Laugar-
dalshöll á síðustu dögunum og
á sunnudag heldur það til
Spánar þar sem það tekur þátt
í alþjóðlegu móti.
að verður 16 leikmanna hópur
sem fer í þess ferð þannig að
líklegt er að um sama hóp verði
að ræða og lék gegn Þjóðveijum.
Eins og áður sagði heldur liðið utan
á sunnudag. Fyrsti leikurinn verður
miðvikudaginn 3. ágúst gegn Spán-
verjum. Síðan mætir íslenska liðið
því austur-þýska daginn eftir og
Sovétmönnum föstudaginn 5.
ágúst. Frí verðttr laugardaginn 6.
en sunnudaginn 7. ágúst verður
leikið gegn Svíum. Eins og sést á
þessari upptalningu er um verulega
sterkt mót að ræða, og þama eru
einmitt lið tveggja þjóða sem leika
með íslendingum í riðli á Ólympíu-
leikunum, Sovétmenn og Svíar.
Eftir keppnina á Spáni verður hald-
ið til Frakklands, þar sem leikið
verður tvívegis við heimamenn, 9.
og 10. ágúst.
FlugleiðamótiA
Liðið kemur heim 11. ágúst. Fljót-
lega hefst svo annað stórt verkefni
sem er hið árlega Flugleiðamót. Það
stendur dagana 20. til 25. ágúst.
Þátttakendur í því verða A og B-lið
íslands, Sovétríkin, Spánn, Tékkó-
sióvakía og Sviss. Allir leika við
alla. Leikið verður á Akureyri,
Húsavík, Reykjavík, Akranesi,
Kópavogi og Selfossi.
KNATTSPYRNA
Atta leik-
menn í bann
Atta leikmenn voru úrskurð-
aðir í eins leiks bann hjá
aganefnd KSÍ í gærkvöldi. ómar
Torfason, Fram, er eini leikmað-
urinn í 1. deild sem fær leikbann
og tekur hann það út í leiknum
gegn sínum gömlu félögum í
Víkingi.
í 2. deild fengu tveir leikmenn
eins leiks bann. Þeir Hafþór
Sveinjónsson, Víði og Kári Ragn-
arsson, Þrótti.
í 3. deild fá fjórir leikmenn eins
leiks bann. Þorsteinn Guðbjarts-
son, Dalvík, Jakob Jónhartsson,
Reýni Sandgerði, Sverrir Heimis-
son, Magna og Njáll Eiðsson, Ein-
heija.
Kristján Theódórsson, Hvera-
gerði, var eini leikmaðurinn sem
fékk leikbann í 4. deild.
Morgunblaöiö/Bjarni
Kristján Arason, sem hér rifjar upp gömul körfuknattleikstiiþrif í landsleikn-
um gegn V-Þjóðveijum á mánudag, verður nánast á heimavelli á Spáni. Mótið
fer fram nálægt Santander, sem verður heimabær Kristjáns næsta vetur.
Eiríkur Slgurðsson.
Eiríkur
þjálfar
Þórfrá
Akureyri
Eríkur Sigurðsson, leikmaður
með Þór Akureyri, hefur
verið ráðinn þjálfari liðsins fyrir
komandi keppnistímabil. Eiríkur
sem verið hefur einn lykilmanna
Þórs undanfarin ár, mun leika
áfram með liðinu jafnhliða þjálf-
un. Þá hefur Kristján Raftisson,
fyrrum Breiðabiiksmaður, geg-
nið til liðs við Þórsara. Að sögn
Kristínar Jónsdóttur, formanns
körfuknattleiksdeildar félags-
ins, eru Þórsarar að þreifa fyrir
sér með aðra leikmenn og er
svara að vænta á næstunni.
Öll úrvalsdeildarliðin í körfu-
knattleik hafa nú ráðið þjálfara
fyrir næsta vetur utan
Grindavík. Þar eru menn enn
þjálfaralausir, en forráðamenn
liðsins standa í viðræðum við
nokkra aðila og munu málin
skýrast síðar í þessari viku.
FOLK
■ FRANK Stapleton hefur ver-
ið í viðræðum við Nice í Frakkl-
andi. Hann er samningsbundinn hjá
hollenska liðinu Ajax, en var lánað-
ur til Derby undir lok síðasta
keppnistímabils.
■ JOHN Chiedozie, sem verið
hefur í herbúðum Tottenham í
fjögur ár, hefur fengið fijálsa sölu
til Derby. Chiedozie, sem kom tii
Tottenham frá
Notts County, hef-
ur verið meiddur og
ekki leikið með
Tottenham í tæp
tvö ár.
■ DAVID Pleat, sem nú er
framkvæmdastjóri hjá Leicester
City, festi í gær kaup á Martin
Hodge, markverði Sheffield Wed-
nesday. Pleat borgaði 200 þúsund
pund fyri hann.
■ RUSSEL Osman hefur verið
seldur frá Leicester til Southamp-
ton fyrir 325 þúsund pund.
Frá
Bob
Hennessy
iEnglandi
■ ANDY Thorn, sem lék með
Wimbledon á síðasta keppnistíma-
bili, var f gær seldur til Newcastle.
Thorn sem er vamarmaður og leik-
ur með landsliði Englands undir
tuttugu og eins árs kostaði New-
castle um 70 milljónir kr. New-
castle hefur einnig fest kaup á
skoska unglingalandsliðsmanninum
John Robertson. Kaupineru meðal
annars ijármögnuð með sölu á mið-
vallarleikmanninum Paul Gasco-
igne til Tottenham. Söluverð hans
er tæplega 160 milljónir kr. sem
er breskt met.
■ STEVE WiUiams, leikmaður
Arsenal, hefur verið seldur til Lu-
ton fyrir 300 þáund pund.