Morgunblaðið - 02.09.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1988
Ríkisendurskoðun:
Stefnir í allt að 2 milljarða
króna halla á ríkissjóði
Fjármagnskostnaður, laun og fjárveitingar umfram áætlun
RÍKISENDURSKOÐUN telur að nú stefni í l,5-2 milljarða króna rekstr-
arhalla hjá A-hluta ríkissjóðs á þessu ári. í áætlunum rikisstjórnarinn-
ar var gert ráð fyrir 53 milljóna króna tekjuafgangi. Rekstrarhalli
rikissjóðs nam 3,9 milljörðum króna í júnilok. Það er milljarði króna
meira en gert var ráð fyrir í greiðsluáætlun ársins. Ríkisendurskoðun
telur að hallarekstur á sjúkrastofnunum kalli á reglur um aukna fjár-
hagsábyrgð stjórnenda þeirra.
I skýrslu ríkisendurskoðunar um
framkvæmd fjárlaga á fyrri helmingi
ársins eru helstu ástæður hallans á
ríkissjóðl taldar að:
► Verðbólga er 8% meiri en fjárlög
gerðu ráð fyrir og er hækkun verð-
lags áætluð 28% á árinu. Gengi er-
lendra gjaldmiðla átti að haldast.
stöðugt en nú stefnir í 15% hækkun
á árinu.
► Ýmis ráðuneyti hafa veitt 300
milljónir króna umfram heimildir
fjárlaga og launakostnaður hefur
vaxið vegna fjölgunar starfsmanna
umfram heimildir.
► Innheimta vörugjalds hefur verið
ofmetin, að sögn ríkissendurskoðun-
ar. Hún er nú aðeins 2/3 hlutar þess
sem stefnt var að. Tekjumar hafa
lækkað um rúmlega helming frá
fyrra ári. Vantar 307 milljónir króna
til að áætlun fái staðist.
► Skuld ríkissjóðs við Seðlabank-
ann er einum milljarði króna hærri
en gert var ráð fyrir. Ríkissjóður
hefur flármagnað greiðsluhallann
með því að auka skuld sína við ban-
kann um 4,2 milljarða króna og nem-
ur hún alls 8,2 milljörðum króna í
júnílok.
Launakostnaður reyndist um 200
milljónir króna umfram flárlög. Að
mati ríkisendurskoðunar hefur
stöðuígildum fjölgað um 725 miðað
við sama tímabil í fyrra. Þriðjungur
þeirra var heimilaður í fjárlögum, en
alls var gert ráð fyrir að fjölgaði um
330 stöðugildi hjá ríkinu. Aukning á
yfirvinnu er einnig umtalsverð, sem
svarar til 181 stöðuígildis.
Aðeins fjórar sjúkrastofnanir af
55 voru reknar með tekjuafgangi á
síðasta ári. Alls nemur halli á rekstri
sjúkrastofnana 700 milljónum króna.
Sú fjárhæð jafngildir 7% af heildar-
tekjum þeirra. Ríkisendurskoðun
áætlar að sjúkrastofnanir skuldi að
meðaltali kostnað þriggja til fjögurra
mánaða, annan en launakostnað.
Skammtímaskuldimar eru nú 950
milljónir króna.
Ríkisendurskoðun leggur til að
fjármálaráðuneytið efli mjög eftirlit
með mannaráðningum og yfirvinnu
í ráðuneytum og stofnunum.
Skírskotað er til afkomu sjúkrahús-
anna á síðasta ári um brýna nauðsyn
á skýrum reglum um fjárhagsábyrgð
þeirra sem annast þjónustu fyrir
ríkissjóð.
VEÐUR
Morgunblaðið/Emilía
Unnið við lagfæringar eftir sprenginguna í Bátalóni. Efst á mynd-
inni sést hvar gat kom í þakið við sprenginguna.
Bátalón, Hafnarfirði:
Tveir slasast í
Heiðskirt
TAKN:
Ó
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
^ Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / • /
/ / / / Rigning
/ / /
* / #
/ * / * Slydda
/ * /
* # * # Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
•CO Mistur
—Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 igœr að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík htti 11 11 veður léttskýjað skýjað
Bergen 18 skýjað
Helsinki 13 rigning
Kaupmannah. 20 léttskýjað
Narssarssuaq 7 léttskýjað
Nuuk 7 skýjað
Ósló 16 skýjað
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn 11 alskýjað
Algarve
Amsterdam
Barcetona
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Las Palmas
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Montreal
New York
París
Róm
San Dlego
Winnipeg
heiðskírt
18 rignlng
28 skýjað
17 skýjað
25 léttskýjað
25 skýjað
15 rigning
21 skýjað
24 léttskýjað
17 rigning
17 þoka
22 skýjað
25 hálfskýjað
32 heiðskirt
28 skýjað
14 léttskýjað
19 léttskýjað
17 rignlng
29 helðskfrt
vantar
9 úrkoma
/ DAG kl. 12.00:
/ / / / / " Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR íDAG, 2. SEPTEMBER
1988
YFIRLIT í GÆR: Skammt suður af Reykjanesi er 993 mb iægð, sem
þokast suður og grynnist. Yfir N-írlandi er 975 mb iægð sem hreyf-
ist hægt norður. Hiti breytist fremur lítið.
SPÁ: Víða á landinu verður Norö-austanátt, stinningskaldi. Á Norð-
ur-, Austur- og Suð-austurlandi verður rigning eða súld en víðast
þurrt á Suð-vestur- og Vesturlandi. Hiti verður á bilinu 8-12-stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG: Norð-austanátt. Rigning eða súld á
Norður- og Austurlandi, en víðast þurrt á Suður- og Vesturlandi.
Fremur svalt í veöri norð-vestanlands, en annars sæmilega hlýtt.
HORFUR Á SUNNUDAG: Víðast fremur hæg austanátt. Þokuloft
við norður- og austurströndina og skúrir sunnanlands. Þurrt verður
á Vesturlandi og í innsveitum á Norður- og Norðausturlandi. Svipað-
ur hiti verður áfram.
gassprengingu
MIKIL gassprenging varð í lest
báts sem stóð í yfirbyggðri drátt-
arbraut í skipasmíðastöðinni
Bátalóni í Hafnarfirði um klukk-
an hálfníu að morgni fimmtu-
dags. Tveir menn brunnu nokkuð
í andliti. Báturinn skemmdist
Iitið en húsið mikið. Fuku meðal
annars plötur af þaki þess.
Verið var að vinna við endurbæt-
ur á 45 tonna báti, Amari KE 260,
og vom mennimir tveir að logsjóða
við lestarlúgu. Fljótlega eftir að
þeir kveiktu á logsuðutækinu í upp-
hafi vinnudagsins varð sprenging.
Talið er að slanga úr gaskúti í stút
hafi skemmst og lestin því fyllst
af gasi sem hafi spmngið þegar
eldur var kveiktur. Yfirbygging
dráttarbrautarinnar ér 12 metra
breið, 15 metra há og 40 metra
löng. Þakplötur úr plasti lyftust af
þakinu og skemmdir urðu á klæðn-
ingu þess. 12X15 metra hurð
skemmdist mikið og gluggakarmar
skekktust í veggjum.
Mennimir tveir vom fluttir á
sjúkrahús en meiðsli þeirra vom
talin ótrúlega lítil miðað við aðstæð-
ur. Nokkrir aðrir vom við vinnu um
borð í bátnum og alls vom 20-30
manns í húsinu.
Upplýsingafulltrái fjármálaráðuneytisiiis:
Nákvæmari tölur
um halla ríkis-
sjóðs væntanlegar
Vaxtalækkun mun væntanlega minnka hallann
BJARNI Sigtryggsson, upplýs-
ingafulltrúi fjármálaráðuneytis-
ins, segir skýringar á misræmi
á tölum Ríkisendurskoðunar og
fjármálaráðuneytisins um áætl-
aðan fjárlagahalla þessa árs að
hluta til þær að þær séu reiknað-
ar á mismunandi tímum og for-
sendur því ekki að öllu leyti þær
sömu. Skýrsla rikisendurskoð-
unar staðfesti hins vegar það
sem ráðuneytið hafi verið að
reka á eftir, að það sé skortur
á aðhaldi viða í ríkisrekstrinum.
Nákvæmari tölur um halla ríkis-
sjóðs ættu að liggja fyrir hjá
fjármálaráðuneytinu nú í mán-
uðinum, þar sem væntanlegar
efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar-
innar væru teknar inn f.
Sú athugun ætti að verða mark-
tækari en skýrsla ríkisendurskoð-
unar, til dæmis myndu vaxtagjöld
ríkissjóðs væntanlega lækka í kjöl-
far vaxtalækkunar, en ríkisendur-
skoðun gerði ráð fyrir óbreyttri
vaxtaprósentu í útreikningum
sínum.
Fjármálaráðuneytið greindi frá
því í júní að fjárlagahalli þessa árs
yrði 700 milljónir króna, en sam-
kvæmt nýbirtri skýrslu ríkisendur-
skoðunar stefnir hann í 1,5 - 2
milljarða króna. „Þessi skýrsla
ríkisendurskoðunar er lögbundið
eftirlit með framkvæmd fjárlaga.
Hún er mjög gagnleg sem slík og
fjármálaráðuneytið mun ekki láta
fara fram neina úttekt á niðurstöð-
um hennar," sagði Bjami Sig-
tryggsson. Hann sagði að í tölum
ráðuneytisins fyrr í sumar hefðu
ekki verið komin inn í atriði eins
og greiðslur til Landakotsspítala
og vegna Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar. Þá hefði ráðuneytið sett
þann fyrirvara að yrði ekki gripið
til sérstakra ráðstafana myndi 180
milljóna króna vaxtakostnaður
vegna landbúnaðarmála bætast við
700 milljónimar.
Bjami var spurður um þær tölur
ríkisendurskoðunar að starfsgild-
um hafi fjölgað um 725 hjá ríkinu.
Hann sagði þetta vera fjölgun um
200 fleiri stöðugildi en íjármála-
ráðuneytið hefði áætlað, en ekki
væri gott að segja í hveiju það
misræmi lægi. Aukin yfirvinna
kæmi inn sem fjölgun á starfs-
gildum og því gætu atriði eins og
aukinn snjómokstur vegna mikilla
snjóalaga í vor komið þama inn í.