Morgunblaðið - 02.09.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1988
7
Mmnisvarði
um séra
Yaldimar
Briemað
Stóra-Núpi
Syðra-Geldingaholti, Gnúpverjahreppi.
MINNISVARÐI um sálmaskáldið
sr. Valdimar Briem vígslubiskup
verður afhjúpaður á Stóra-Núpi
nk. sunnudag', 4. september.
Helgi Gislason myndhöggvari
réði gerð minnisvarðans, sem er
úr stuðlabergsdrangi úr Hóla-
hnúkum hjá Hrepphólum.
Athöfnin hefst með messu í
Stóra-Núpskirkju, sem sr. Flóki
Kristinsson sóknarprestur og
kirkjukór Stóra-Núpskirkju annast.
Auk þess syngur Kristinn Sig-
mundsson við athöfnina. Síðan
verður kaffisamsæti í félagsheimil-
inu Amesi.
Sr. Valdimar Briem var sem
kunnugt er eitt mikilvirkasta sálma-
skáld Islendinga. Sálmar hans eru
margir orðnir inngrónir í trúarlíf
þjóðarinnar. Hann var prestur í
Stóra-Núps- og Hrepphólasóknum
alla sína embættistíð, sat í Hrepp-
hólum frá 1873—1880 en fluttist
þá að Stóra-Núpi og átti þar he>ma
til dauðadags, 1930. Hann var pró-
fastur Ámesinga og víglubiskup
Hólabiskupsdæmis og gegndi auk
þess ýmsum félagsstörfum.
Allir velunnarar kirkjunnar og
sr. Valdimars em velkomnir til
þessarar athafnar.
— Jón
Yfirsljórn
félagsþjónustu
sveitarfélaga
verði á vegum
félagsmála-
ráðuneytisins
NEFND um endurskoðun fram-
færslulaga leggur til að öll yfir-
stjóm félagsþjónustu sveitarfé-
Iaga verði á vegum félagsmála-
ráðuneytisins. Stjóm félagsþjón-
ustu heima í hérði verði í höndum
félagsmálanefnda eða -ráða í
hverju sveitarfélagi. Að sögn
Þorgerðar Benediktsdóttur,
deildarstjóra hjá félagsmála-
ráðuneytinu og formanns nefnd-
arinnar, hefur nefndin skilað
áfangaskýrslu til Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráðherra
og hefur skýrslan einnig verið
send landshlutasamtökum sveit-
arfélaga og Sambandi íslenskra
sveitarfélaga til umsagnar.
Höfuð í túni
Morgunblaðið/Theódór
Heyannir era víðast á enda og
töðugjöld framundan eða af-
staðin. Þessi mynd var tekin
nýlega sunnan Skarðsheiðar.
Óneitanlega líkist garðað túnið
listaverki, jafnvel í stíl Picasso.
Svona listaverk sjást aðeins úr
lofti og áður en varir-er búið
að hirða þau inn í hlöðu.
--------oqp------------
V/S4
STYRKTARAÐILI ÓLYMPÍULIÐS ÍSLANDS
EINA KORTIÐ
sem veitir aögang að hraöbönkum erlendis
auk helmingi fleiri banka en nokkurt annaö
Nefnd um endurskoðun fram-
færslulaga hefur starfað í tvö ár.
Hún vinnur ekki aðeins að endur-
skoðun framfærslulaga heldur einn-
ig að samningu rammalöggjafar um
félagsþjónustu sveitarfélaga. í
áfangaskýrslu nefndarinnar til fé-
lagsmálaráðherra er meðal annars
lagt til að yfirstjóm félagsþjónustu
sveitarfélaga verði hjá félagsmála-
ráðuneytinu. Stjóm þessa mála-
flokks verði síðan á vegum félags-
málanefndar eða -ráðs í hverju
sveitarfélagi. Með þessu telja
nefndarmenn að ná megi heildarsýn
yfir skipulag félagsþjónustu í hveiju
sveitarfélagi í stað þess að einstök
verkefni séu unnin af sérstökum
nefndum.
Nefndin leggur einnig til að í
væntanlegu frumvarpi til fram-
færslulaga felist hvatning til sveit-
arfélaga til að vinna saman að
framkvæmd félagsþjónustu, til
dæmis í héraðsnefndum, svo að
unnt verði að veita lögboðna félags-
þjónustu.
Með VISA upp á vasann og PIN-
númerið* bak við eyrað geturðu
nælt þér í skotsilfur í skyndi -
vasapeninga í réttri mynt - bara
með því að ýta á hnapp - jafnt á
kvöldin sem um helgar árið um
kring.
VISA opnar þér fleiri dyr en
nokkurt annað greiðslukort.
Á SJÖUNDU milljón viðtökustaða
um veröld alla auk 220.000 banka
og 26.000 hraðbanka á helstu
ferðamannastöðum.
*) Hafðu samband við VISA ÍSLAND ef þú þárft að fá
PIN-númerið (persónulega innsláttarnúmerið þitt)
endurútgefið.
Dæmi: Hraöbankar Bankar
Bretland 1.920 5.121
Bandaríkin 12.293 65.111
Danmörk 150 560
Finnland 241 366
V/SA
wassm
Dæmi: Hraðbankar Bankar
Frakkland 2.399 13.034
Porlúgal 278 350
Spánn 3.295 30.106
Sviþjóð 122 2.160
Allt sem þarf