Morgunblaðið - 02.09.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1988
9
INDIAN
TonícWater
COWTAJNSQUININE
'a*WEPI>ESSINCEI»5
AIIT TII
MÚRFESTINGAR
RR BYGGINGAVÖRUR HE
Suðurlandsbraut 4, Slmi 33331 og Nethyl 2, Ártúnsholti. Slmi 671440
Eldhús-
innréttingar
- verðlækkun
Við rýmum fyrir nýjum
innréttingum.
Vegna breytinga á sýningarsal
okkar, seljast uppsett
sýnishorn með 30-40%
afslætti.
Til afgreiðslu strax.
Nýbýlavegi 12 200 Kópavogur
Sími 44011. Pósthólf 167.
^ Jjðttk
S Gódan daginn! CO
Einkavæðing
Sala á hlutabréfum
Reylgavíkurborgar í
Granda hf. er viðræðu-
efni Alþýðublaðsins við
Bjarna P. Magnússon,
borgarfulltrúa Alþýðu-
flokksins, í gær, en hann
studdi þessa sölu einn
vinstri manna í borgar-
stjóm. Borgarfulltrúinn
segir orðrétt í viðtalinu:
„í gegn um tíðina hef-
ur Alþýðuflokkurinn ver-
ið tilbúinn til að standa
að því að byggja upp fyr-
irtæki þegar nauðsyn
hefur krafið. Jafnframt
hefur flokkurinn verið
tilbúinn að selja þessi
fyrirtæki til einstakUnga
og.félaga þeirra, þegar
um fulla atvinnu er að
rseða og einstaklingamir
geta auðveldlega séð um
reksturinn. í þessu tilfelli
er um góða rekstraraðila
að ræða og ég á von á
því að bréfin verði eign
fleiri aðila þegar fram
líða stundir . .
Varleynd
yfir sölu
bréfanna?
Alþýðublaðið spyr,
hvort leynd hafi verið
yfir sölu bréfanna. Borg-
arfulltrúi Alþýðuflokks-
ins svarar:
„Það hefur lengi verið
vitað að hlutafélagið
Grandi væri til sölu. Það
hefur verið yfirlýst
stefna Sjálfstæðisflokks-
ins og hver og einn hefur
getað spurzt fyrir um
það. Þó ég viti ekki um
það kæmi mér ekki á
óvart þótt fleiri aðilar
hefði íhugað kaup. Auð-
vitað má segja, að það
hefði mátt reyna að selja
þessi bréf á fijálsum
markaði. En ef maður
skoðar hvað fengizt hef-
ur með þeim hætti, þá
er þetta verð miklu
hærra. Ég hefði því verið
ánægðari ef slíkt fyrir-
komulag hefði veríð við-
haft og gengið upp, en
ég held að það hefði ekki
gerst."
Ö®MáDDg£P
Grandi og auglýsing SUF
Staksteinar staldra í dag við tvennt. Annarsvegar viðtal Al-
þýðublaðsins við Bjarna P. Magnússon, borgarfulltrúa Alþýðu-
flokksins, um sölu á eignarhluta Reykjavíkurborgar í Granda hf.
Hinsvegar við skopskrif sama blaðs um auglýsingatækni Sam-
bands ungra framsóknarmanna og Tímans. Borgarfulltrúinn
segir í viðtalinu: „Þrátt fyrir söluna verða tækin áfram til stað-
ar, fiskur verður dreginn úr sjónum og fólk mun hafa þarna
atvinnu og borgin mun hafa tekjur af fyrirtækinu. Við fáum hins-
vegar 500 milljónir í staðinn, verðtryggðar . . .“. Kaupendur
yfirtaka jafnframt 1.600 m.kr. skuldir sem fyrirtækinu heyra til.
Lokaorð borgarfull-
trúans í viðtalinu eru
þessi:
„Ef við getum tryggt
að við fáum þá þjónustu
sem við viljum fyrir
bömin og borgarana, þá
hefi ég ekkert á móti þvi
að þjónustan sé einka-
vædd. Það hefur hins-
vegar verið skoðun okk-
ar Alþýðuflokksmanna,
að á meðan einstakling-
amir treysta sér ekki til
að standa undir lág-
markskröfum i þessum
efnum verði málin i
verkahring borgarinn-
ar.“
Komma
Tímansog
SUF
Alþýðublaðið birtir
eftirfarandi klausu undir
yfirskriftinni: Sein-
heppnir ungir framsókn-
armenn.
„Undanfama daga
hafa lesendur Timans
barið auglýsingu augum
frá Sambandi ungra
framsóknarmanna. í
augiýsingunni er dag-
skrá þings SUF og 50 ára
afmælisþings sambands-
ins kynnt, en húllumhæ
ungra frammara verður
á Laugarvatni um næstu
helgi.-'
Það sem hefur hins-
vegar vafist fyrir lesend-
um er yfirskrift þings
SUF sem trónir með feit-
um stöfum yfir auglýs-
ingunni.
Þar stendur:
VELTUM, BORÐUM
VÍXLARANA . Þetta er
sem sé nyög byltingar-
kennd yfirskrift við
fyrstu sýn. VELTUM
þýðir væntanlega bylt-
um, umbreytum, gerum
uppreisn. BORÐIÍM
VIXLARANA þýðir þá
sennilega „leggjum okk-
ur okurlánara til munns"
eða „upprætum okrar-
ana“. Að vísu dálítið und-
arlega til orða tekið, en
hvað gera ekki frammar-
ar? Þeir láta nú allt upp
úr sér og éta ofan í sig
aftur, þannig að ekld
ætd að vera erfitt fyrir
framsóknarmenn að
gleypa nokkra okur-
karla.
En bibliufróður maður
sem átti leið framlijá rit-
stjóm okkar í gær benti
okkur á, að sennilega
hefðu Timamenn missldl-
ið yfirskrift SUF og mis-
ritað yfirskriftina. Og
enginn hefur uppgötvað
vitleysuna og dellan stað-
ið í auglýsingunni dag
eftir dag. Þama hefði
náttúrlega átt að standa,
orðrétt úr guðspjallinu;
þegar Kristur hreinsaði
út úr mustermu:
VELTUM BORÐUM
VÍXLARANNA!
Prentvillupúkinn á eft-
ir að hlæja lengi eftir að
hafa gert Tímanum
þennan grikk.“
Svo mælti Alþýðublað-
ið.
Bankabréf Landsbankans eru gefin út af Landsbankanum og aðeins seld
þar. Bankabréf eru verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu og árs-
ávöxtun er nú 9,25% umfram verðtryggingu. Endursölutrygging
bankans tryggir ávallt örugga endursölu. Endursöluþóknun er
aðeins 0,4%. Bankabréf Landsbankans eru eingreiðslu-
bréf, til allt að fimm ára, og eru seld í 50.000,-, 100.000,-
og 500.000,- króna einingum. Gjaldfallin bankabréf
bera almenna sparisjóðsvexti þar til greiðslu er vitjað.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Nánari upplýsingar fást hjá Verðbréfaviðskipt-
um, Laugavegi 7 og hjá verðbréfadeildum í
útibúum bankans um land allt.