Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
Fjárlagafrumvarpið:
Ný stefna í starfs-
mannahaldi ríkisins
Fjármálaráðherra mun væntanlega kynna nýja stefnumótun í
starfsmannahaldi ríkisins þegar fjárlög verða lögð fram. Þar mun
verða gert ráð fyrir mjög hertu eftirliti með matmaráðningum
og auknu sjálfstæði og ábyrgð stofnana, að sögn Bjarna Sigtryggs-
sonar, upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins. í skýrslu Rfkis-
endurskoðunar er lagt til að launaskrifstofa fjármálaráðuneytisins
auki til muna eftirlit með fjölgun starfa og aukningu yfirvinnu
hjá ráðuneytum og ríkisstofnunum.
í skýrslunni kemur fram að útreikninga að ræða og ekki gott
launakostnaður ríkisins umfram
heimildir Qárlaga hafí aukist um
200 milliónir króna á fyrri hluta
ársins. „Igildum stöðugilda" hefur
fjölgað sem svarar 725 stöðugild-
um frá sama tímabili 1987. í þess-
ari aukningu eru 230 ný stöðu-
gildi, en aukagreiðslur og yfír-
vinna eru sem svarar 415 stöðu-
gildum meiri en 1987. Fjármála-
ráðuneytið taldi aukningu á auka-
greiðslum og yfírvinnu (sem heitir
„magnaukning starfa" I skýrslu
Ríkisendurskoðunar) nema 205
stöðugildum, en að sögn Bjama
Sigtryggssonar er um mjög flókna
að sjá í fljótu bragði af hveiju
þessi munur stafar.
Mesta hlutfallslega aukningin á
launagreiðslum er hjá félagsmála-
ráðuneytinu, um 14%, og hjá land-
búnaðarráðuneytinu, um 12,4%.
Tölulega séð er aukningin mest
hjá menntamálaráðuneytinu, um
241 „ígildi stöðugilda", eða 4,5%,
og hjá heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, sem svarar 211
stöðugildum, 6,8%. Þessi tvö ráðu-
neyti greiða nær 60% af launa-
kostnaði ríkisins.
Sjá bls. 22.
Fiskmarkaðurinn:
Metverð í Hafnarfirði
METVERÐ fékkst fyrir þorsk og
ýsu á fiskmarkaðinum i Hafnar-
Ferðaskrifstofa
ríkisins:
Starfsmenn
kaupa2/ 3 hluta
ÞRÍR fulltrúar Ferðaskrifstofu
rfldsins og Matthías Á. Mathiesen
samgönguráðherra, undirrituðu f
gær samning um kaup starfs-
manna ferðaskrifstofunnar á 2/s
hlutum f fyrirtækinu.
Kjartan Lárusson, Tryggvi Guð-
mundsson og Hrafnhildur Pálsdóttir
voru fulltrúar starfsmannanna.
Hinir nýju hiuthafar greiða alls 14
milljónir króna auk yfírtöku á
skuldum við ríkið að upphæð 7,4
milljónir.
fírði f gær. Þá voru seld þar 995
kg af ýsu fyrir 92,83 króna meðal-
verð og 7,826 tonn af þorski fyrir
59,01 krónu meðalverð. Hæsta boð
f ýsuna var 110 krónur fyrír kfló-
grammið og það átti fisksali sem
selur ýsu á innanlandsmar kaði.
Hæsta boð f ýsu á markaðinum
þar til f gær var 104 krónur f jan-
úar síðastliðnum.
„Hátt verð á fískmörkuðunum
núna stafar af litlu framboði á fiski
að undanfömu vegna gæftaleysis,“
sagði Einar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri fiskmarkaðarins f
Hafnarfirði, í samtali við Moigun-
blaðið. „Þetta sýnir að verðið á mörk-
uðunum fer eftir framboði og eftir-
spum þrátt fyrir verðstöðvún. Menn
em með ákveðnar skuldbindingar
gagnvart sínum viðskiptavinum og
til að geta staðiö við þær neyðast
þeir til að bjóða n\jög hátt verð fyrir
fískinn til að fá hann,“ sagði Einar
Sveinsson.
Morgunblaðiö/Ólafur H. Ólafsson
Aðalsteinn Pétursson (t.v.) og Lúðvfk Halldórsson með tíu laxa
sem þeir veiddu f Þrengslunum f Laxá f Kjós f gærmorgun, þar
á meðal lax nr. 3.559, laxinn sem sló íslandsmetið.
Laxá í Kjós:
íslandsmetið slegið
TUTTUGU og fímm laxar veiddust í Laxá í Kjós f gærmorgun
og höfðu þá veiðst 3.577 l»x»r f ánni á þessu sumri. Er það nýtt
og glæsilegt íslandsmet. Gamla metið var 3.558 laxar, en Þverá/-
Kjarrá gaf þann afla sumaríð 1979. Var það met sem margur
ætiaði að yrði seint ef nokkru sinni slegið.
Það voru þeir félagar Lúðvík Laxá og fíesta daga er það svæði
Halldórsson og Aðalsteinn Péturs-
son sem veiddu laxinn sem sló
metið, 5 punda físk, í Þrengslun-
um á efsta svæðinu. Alls veiddu
þeir 15 laxa á þeim slóðum f
gærmorgun og 24 laxa á tveimur
dögum. Hópurinn veiddi alls 75
laxa.
Stórkostlegar laxagöngur hafa
verið í Laxá í sumar og hefur
vakið mesta athygli hversu langt
fram eftir öllu sumri nýjar göngur
hafa verið að skila sér. Enn er
dagviss veiði á neðsta svæðinu í
líflegast, en það er einsdæmi þeg-
ar svo langt er liðið á sumar.
Mikill lax er einnig upp um alla
á og er viðbúið að nýja íslands-
metið verði enn bætt, því veitt er
til 9. september og veiði góð.
Góð laxveiði hefúr verið vfðast
hvar á landinu í sumar, með fáein-
um undantekningum þó og sums
staðar á Vestur- og Suðvestur-
landi hefur verið frábær veiði. Til
dæmis f Elliðaánum og Leirvogsá,
Grfmsá, Laxá í Leirársveit,
Haukadalsá og víðar.
Forseti ASÍ:
Sendir for-
sætisráðherra
fyrirspumir
ÁSMUNDUR Stefánsson forsetí
Alþýðusambands íslands hefur
sent Þorsteini Pálssyni forsætís-
ráðherra bréf með spuraingum
varðandi væntanlegar efnahags-
ráðstafanir ríkisstjóraarinnar.
Forsætisráðherra segist eiga von
á að þær verði ræddar á væntan-
legum fundi forystumanna ASÍ
og ráðherra.
Þorsteinn sagði að sumar spurn-
inganna væru þess eðlis að ekki
væri hægt að svara þeim á þessari
stundu, en hann sagðist aðspurður
ekki eiga von á því að það tefði fram-
gang viðræðnanna þó að svör lægju
ekki fyrir. Fyrsti fíindur formanna
landssambanda ASÍ og formanna
stjómarflokkanna á að fara fram á
mánudaginn klukkan 9.30.
HelIaT
Kjötvinnsla
Jónasar Þórs
hf. gjaldþrota
KJÖT- og matvælavinnsla Jónas-
ar Þórs á Hellu hefur veríð tekin
til gjaldþrotaskipta. Starfsmönn-
um fyrirtækisins var sagt upp
með sfmskeyti 1. september, með
samningahmwlniun uppsagnar-
frestí.
Kjöt- og matvælavinnsla Jónasar
Þórs hf. hefur verið starfrækt í
rúmt ár á Hellu. Starfsmenn vom
12, þar af 10 verkamenn frá Hellu.
Þeir em flestir með viku uppsagnar-
frest. Brynjólfur Kjartansson hrl.
hefúr verið skipaður bústjóri til
bráðabirgða. — Sig. Jóns.
Fiskvinnslan á Seyðis-
fírði kaupir Norðursíld
Seyðisfirði.
Fiskverkunarf yrirtækið
Fiskvinnslan hf., stærsta fyrír-
tækið á Seyðisfirði, sem rekið
Komið með bátinn tíl Sandgerðis í gærkvöldi.
Jón Pétur II:
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Fannst á reki - dreginn til hafnar
Keflavik.
FLUGMENN i vél Landhelgis-
gæslunnar komu f gær auga á Jón
Pétur II, bátinn sem brann á hafi
útí að kvöldi fimmtudagsins. Var
báturinn á reki um 28 sjómílur
NNV af Garðskaga. Báturínn var
mikið brunninn en hafði ekki
fyllst af sjó. Landhelgisgæslan
hafði samband við Sandgerðing
GK 268, sem var skammt undan.
Tók hann Jón Pétur II í tog og
kom með hann til Sandgerðis um
klukkan 19 f gærkvöldi.
„Ég var staddur um 4 sjómflur
frá bátnum þegar Landhelgisgæslan
hafði samband við mig og óskaði
þess að ég tæki bátinn í tog til Sand-
gerðis,“ sagði. Kristinn Pálmason
skipstjóri á Sandgerðingi, en hann
var á leið í land vegna smávægilegr-
ar bilunar í tækjabúnaði. Var Sand-
gerðingur kominn að Jóni Pétri II
um hálftíma síðar og gekk vel að
koma taug í bátinn. Er komið var
að innsiglingunni í Sandgerðishöfn,
urðu skipveijar að bíða í um hálfan
klukkutíma eftir flóði.
Rannsóknarlögreglan í Keflavík,
Kristján Guðmundsson starfsmaður
Sjóslysanefndar og Siguijón Hann-
esson starfsmaður Siglingamála-
stoftiunar voru við komu bátsins.
Sögðu þeir að rannsókn á honum
yrði látin bíða morguns, en þá verð-
ur hann tekinn á land.
- B.B.
hefur frystihús og saltfiskverk-
un, hefur keypt Norðursfld hf.,
sem einnig hefur rekið frysti-
hús og saltfískverkun auk
síldarsöltunar. Gengið verður
frá kaupsamningnum nú um
mánaðamótin og verður hann
miðaður við 1. júli sl., uppgjör
eftir fyrstu 6 mánuði ársins.
Fyrirtækin verða áfram rekin
hvort um sig sem sjálfstæð fyr-
irtæki en undir sameiginlegri
yfirstjórn.
Adolf Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Piskvinnslunnar hf.
sagði í samtali við Morgunblaðið
að aðdragandinn að kaupunum
væri búinn að vera nokkuð lang-
ur. Byijað hefði verið að ræða þau
á síðasta ári. í upphafi þessa árs
hefði svo verið farið að vinna að
þessu og síðan gert tilboð í hluta-
bréf Norðursfldar hf. og málið
væri nú komið á lokastig. Hann
sagði að ekki væri búið að taka
endanlega ákvörðun um hvort og
hvenær fyrirtækin yrðu sameinuð
og þvl yrðu þau rekin fyrst um
sinn áfram sem sjálfstæð fyrirtæki
en undir sameiginlegri yfírstjóm.
„Það verður byijað að vinna að
heildarendurskoðun og framtíðar-
skipulagningu beggja fyrirtækj-
anna nú strax í þessum mánuði
og þegar því verður lokið verður
tekin ákvörðun um hvemig rekstr-
arfyrirkomulaginu verður háttað.
Það er ljóst að með þessu verður
hægt að ná betri nýtingu á hrá-
efríi og mannafla. Öll vinnsla verð-
ur hagkvæmari og breiddin í fram-
leiðslunni verður meiri hjá okkur
með tilkomu sfldarsöltunarinnar.
Auk þess verður yfírbygging minni
og öll stjómun ódýrari," sagði
Adolf Guðmundsson.
— Garðar Rúnar
Aðalfundur Stéttar-
sambandsins:
Fellt að af-
skrifa 2501
af dilkakjöti
Akureyri. Frá Halli Þorsteinssyni, blaða-
manni Morgfunblaðsins.
BIRGÐIR af kindakjöti munu
nú vera um 2.700 tonn í landinu,
en þar af eru um 500 tonn utan
verðábyrgðar. Á aðalfundi
Stéttarsambandsins kom fram
tillaga þar sem einn liður kvað
á um að bændur afskrifuðu 250
tonn af birgðum dilkakjöts gegn
því að ríkissjóður tæki þátt í
samsvarandi afskrift birgða og
yrðu þessar birgðir afhentar
fóðurstöðvum loðdýraræktar-
innar. Var þessi liður tillögunn-
ar feUdur.
Flutningsmaður tillögunnar var
Halldór Gunnarsson i Holti og í
framsögu með henni sagði hann
að bændur yrðu að færa einhveijar
fómir, þar sem að hans áliti hafí
ríkisvaldið staðið við sitt í búvöru-
samningnum. í tillögunni eins og
hún var endanlega samþykkt segir
meðal annars að aðalfundur Stétt-
arsambands bænda 1988 telji einn
mesta vanda sauðfjárframleiðsl-
unnar vera þá birgðastöðu, sem
nú er í upphafi sláturtíðar.