Morgunblaðið - 03.09.1988, Page 5

Morgunblaðið - 03.09.1988, Page 5
i ?.\tOMraí3'W?*i .‘SKiurav.Uífeo'v: MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 ¥ 5 / Halldór Blöndal: Ha.lla.lans fjár- lög án þess að þyngja skatta Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í gærmorgnn voru drög fjármála- ráðherra að fjárlögum næsta árs til umræðu. Að loknum fundinum hélt þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins fund um málið. Halldór Blöndal formaður þingflokksins í forföllum Ólafs G. Einarssonar segir að það sé meginmarkmið flokksins að fjárlög verði halla- laus án þess að þyngja skatta. „Þingflokkurinn var á einu máli um þetta markmið. Við búum nú við þær aðstæður, í framhaldi af bráðabirgðalögunum í lok síðasta mánaðar, að ekki eru efni til að þyngja skattbyrði almennings," segir Halldór. Fyrir liggur að Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra hyggst skera niður útgjöld ríkisins að verulegu leyti í næstu fjárlögum. Aðspurður hvaða tillögur fjármála- ráðherra hafí og um hve stórar töl- ur sé að ræða segir Halldór að ekki sé nóg að setja fram tölur, einnig verði að sjást hvað liggi á bak við þær. Fjármálaráðherra hafi enn ekki útfært hugmyndir sínar nánar og fyrr en svo verði sé ekki hægt að tjá sig um þær. Aðspurður um þær yfirlýsingar Jóns Baldvins að hann sé með pólitískt sprengiefni í höndunum hvað niðurskurðinn varðar, segir Halldór: „Það hefur stundum komið fyrir að þeir sem eru með sprengi- efni sjái það springa í höndunum á sjálfum sér.“ Fiskmarkaðir: Mun meira magn selt í ágúst en í júlí MUN MEIRA magn var selt af þorski og ýsu á fiskmörkuðum hérlendis í ágúst sl. en í júlí sl. í ágúst voru seld þar 2.510 tonn af þorski, eða 683 tonnum meira en í júlí, og 425 tonn af ýsu, eða 126 tonnum meira en i júli. Á Faxamarkaði í Reykjavík voru seld 1.006 tonn af þorski í ágúst fýrir 39,08 króna meðalverð en 553 tonn í júlí fyrir 38,77 króna meðal- verð. I ágúst voru seld þar 156 tonn af ýsu fyrir 60,43 króna með- alverð en 114 tonn í júlí fyrir 47,21 króriu meðalverð. Á fískmarkaðinum í Hafnarfirði voru seld 802 tonn af þorski í ágúst fyrir 38,51 krónu meðalverð en 574 tonn í júlí fyrir 40,20 króna meðal- verð. Þar voru seld 125 tonn af ýsu í ágúst fyrir 50,07 króna meðalverð og 73 tonn í júlí fyrir 54,62 króna meðalverð. Á Fiskmarkaði Suðumesja voru seld 654 tonn af þorski í ágúst fyr- ir 41,43 króna meðalverð en 671 tonn í júlí fyrir 41,05 króna meðal- verð. I ágúst voru seld þar 120 tonn af ýsu fyrir 52,51 krónu með- alverð en 104 tonn í júlí fyrir 53,22 króna meðalverð. Á Fiskmarkaði Vestmannaeyja voru seld í ágúst 48 tonn af þorski fyrir 43,33 króna meðalverð en 29 tonn í júlí fyrir 45,33 króna meðal- verð. Þar voru seld 24 tonn af ýsu í ágúst fyrir 41,06 króna meðalverð og 8 tonn í júlí fyrir 46,47 króna meðalverð. Lög um verð- stöðvun koma ekkí inn á fiskmarkaði - segir fram- kvæmdastj óri Fisk- markaðarins hf. í Hafnarfirði „ÉG GET ekki séð að lög um verðstöðvun komi inn á fisk- markaði, því þeir selja ekki beint til neytenda og um þá gilda ekki lög um Verðlagsráð," sagði Ein- ar Sveinsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðarins hf. í Hafnar- firði, í samtali við Morgunblaðið. „Ég sé því ekki annað en haldið verði áfram að bjóða upp á fisk- mörkuðunum, því þrátt fyrir verð- stöðvunina hýtur verðið á mörkuð- unum að ráðast af framboði og eft- irspum eins og verið hefur,“ sagði Einar. Fangelsisstofnun tekur til starfa um næstu áramót F AN GELSISSTOFNUN mun taka til starfa um næstu ára- mót. Samkvæmt Iögum, sem þá taka gildi, verður hlutverk hennar meðal annars að sjá um daglegan rekstur fangelsa og málefni um 70 starfsmanna þeirra, afplánun refsidóma, skilorðseftirlit og ýmsa félags- lega þjónustu við fanga. Ætlun- in er að auka þá þjónustu frá því sem nú er. Að sögn Þorsteins Jónssonar deildarstjóra hjá dómsmálaráðu- neytinu er einnig ráðgert að innan stofnunarinnar verði teknar ákvarðanir um reynslulausn fanga. Staða forstjóra fangelsisstofn- unar hefur verið auglýst laus til umsóknar og skal sá vera löglærð- ur. Þorsteinn Jónsson sagði að ekki væri ljóst hve margir starfs- menn stofnunarinnar yrðu. Þó er ljóst að starfsemi Skilorðseftirlits- ins mun leggjast niður í núverandi mynd og starfsmenn þess heyra undir Fangelsissstofnun. Fangels- isstofnun verður væntanlega til húsa að Laugavegi 105 í Reykjavík. Enn eru laus sœti í nokkrar sérferðir Úrvals í haust! ftalía Langar þig að skoða Róm og Sorrento? En heimsækja Kaprí, Vesúvíus eða Pompei með íslenskum fararstjóra? Ítalíuferð með Úrvali er í senn sólar-, skoðunar- og slökunarferð. Aukaferð 7. september, tvö sœti laus. Vínuppskera Samfelld uppskeruhátíð í vínyrkjuþorpum í dölum Mósel og Rínar. Friðrik G. Friðriksson er fararstjóri. Fyrst og fremst ótrúleg stemn- ing og úrvals skemmtiferð. Brottför 21. september. Til Majorku á Lukkuhjólsverði! Septemberferð til Majorku er sannkallaður sumarauki. Þá eru mestu hitarnir yfirstaðnir og meðalhitinn 24°C. Og á Úrvalsstaðnum Sa Coma á austurströnd eyjunnar er ein besta baðströnd Majorku og allt sem þarf til að fríið heppnist vel. Lukkuhjól Úrvals er sniðið að þörfum þeirra sem leggja meira upp úr sól og strandlífi en minna upp úr gistiaðstöðu og þjónustu. í Lukkuhjólsferðum velurþú ekki gististað, en fœrð að vita um hann með minnst 7 daga fyrirvara. Við bjóðum aðeins mjög góða gististaði, svo áhœttan er engin! 3 vikur: Verð frá 35.900,- kr. miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. 8000,- kr. barnaafsláttur. BrottförlO. september. Thailand Við skoðum Thailand undir öruggri fararstjórn Jóhannesar Reykdal, byrjum í Bangkok og höldum síðan norður í land, til Chiang Mai og Chiang Rai. í ferðalok dveljum við í viku á hinni stórkostlegu Pattaya baðströnd. Brottför 25. október, örfá sœti laus. Nú gildir að taka ákvörðun strax! FERÐASKRIFSTOFAN - fólk sem kann sitt fag! Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.