Morgunblaðið - 03.09.1988, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
13
Laugardalur:
Samkeppni um listaverk
Menntamálaráðuneytiðj Borg-
arstjórn Reykjavíkur, _ Iþrótta-
samband Islands og Ólympíu-
nefnd bjóða félögum í Sambandi
íslenskra myndlistarmanna til
samkeppni um listaverk, sem
staðsett verður við íþróttamið-
stöðina i Laugardal í Reykjavík.
Veitt verða peningaverðlaun fyr-
ir þijár bestu tillögurnar, sam-
tals að andvirði 850.000,00 kr.
Frestur til að skila tillögum renn-
ur út 1. mars á næsta ári.
Að sögn Gísla Halldórssonar,
formanns dómnefndar, er þetta í
fyrsta skipti sem íþróttahreyfingin
gengst fyrir samkeppni af þessu
tagi, en hugmyndin að henni vakn-
aði fyrir 6 — 7 árum. Samaranch,
forseti Alþjóða ólympíunefndarinn-
ar (IOC) sýndi málinu áhuga, er
hann var hér á ferð fyrir nokkrum
árum og standa vonir til þess að
nefndin taki einhvern þátt í kostn-
aði vegna listaverksins.
Verkinu verður komið fyrir á 25
sinnum 25 metra reit fyrir framan
íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardalnum.
Umfang þess á að miðast við stærð
reitsins og má það vera allt að sex
metra hátt. Val efnis í listaverkið
er frjálst, en þar sem hér er um
útilistaverk að ræða er ætlast til
þess að það þoli veðrun um langa
framtíð. Verkið á að tengjast íþrótt- .
um og útiveru í táknmáli sínu.
í dómnefnd eiga sæti Gísli Hall-
dórsson, tilnefndur af Ólympíu-
nefnd, Níels Hafstein og Sigurður
Örlygsson, tilnefndir af Sambandi
íslenskra myndlistarmanna, Stefán
Snæbjömsson, tilnefndur af
Menntamálaráðuneytinu og Þor-
valdur S. Þorvaldsson, tilnefndur
af Reykjavíkurborg. Ritari dóm-
nefndarinnar er Gunnar B. Kvaran,
en trúnaðarmaður og tengiliður
milli útboðsaðila og dómnefndar er
Jóhanna S. Einarsdóttir.
Frestur til að skila tillögum renn-
ur út þann 1. mars 1989. Þrenn
verðlaun verða veitt: 1. verðlaun
eru 450.000,00 kr., 2. verðlaun
250.000,00 kr. og 3. verðlaun
150.000,00 kr. Auk þess er dóm-
nefnd heimilt að kaupa listaverk
fyrir 150.000,00 krónur. Tillögum-
ar verða sýndar á Kjarvalsstöðum
í síðari hluta maí.
Gísli Halldórsson segir, að ákveð-
ið hafí verið að veita há verðlaun
til þess að stuðla að góðri þátttöku
í samkeppninni. Oft hefði brunnið
við, að fáir sendu tillögur þegar
efnt hefði verið til keppni af þessu
tagi, en vegleg verðlaun ættu að
hafa hvetjandi áhrif á listamennina.
Eldur í Stálvík
ELDUR kom upp í skipasmíða-
stöðinni Stálvík í Garðabæ klukk-
an 8.45 á fimmtudag. Verið var
að vinna við logsuðu í bát og
komst eldur í tjöru og rusl.
Varð af eldur og mikill reykur
en slökkvistarf tók skamma stund.
Litlar skemmdir urðu á bátnum en
nauðsynlegt gæti orðið að skipta
um einangrun á hluta hans vegna
reykskemmda.
MARKAÐSÞEKKING
ÚTFLUTNINGSKUNNATTA
VILTU VERDA KUNNATTUMADUR
í ÚTFLUTNINGIOG
MARKADSSÓKN?
Þér gefst færi á eins vetrar námi til aö ná því marki?
-án þess aö þaö komi niður á vinnunni.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
■
V UTFLUTNINGS
OG MARKAÐSSKOLI ÍSLANDS
TMf IC ( I ANDIC' INSTITUTt. OF MAtTKf TINC, AND EXPfTfÍr
Ánanaustum 15-101 Reykjavík - Sími (91) 62-10*66
RÍÓ er alveg ekta...
RlÓkaffipakkinn er harður og lofttæmdur því þannig helst
RÍÓkaffið ferskt og bragðríkt alla leið í bollann þinn.
Rjúkandi RÍÓ -hörkugott kaffí
AUK hf. 93.3