Morgunblaðið - 03.09.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
15
Veiðum hvali
eftir Grím Karlsson
Maðurinn getur ekki lifað utan
við lífkeðju láðs og lagar. Þótt það
sé mismunandi áberandi milli
manna og þjóða jafnast það út með
verkaskiptingu og viðskiptum.
Tilvera okkar Islendinga byggist
á nýtingu gífurlegra hafsvæða inn-
an fiskveiðilögsögu þessa lands.
Bestu nýtingu ogjafnvægi reyn-
um við að ná með því að veiða sitt
lítið af hvetju, og má þá alls ekki
undanskilja flökkufiska, seli og
hvali sem háma í sig ársforðann á
okkar miðum og okkar kostnað
sumarlangt.
Ef við ætlum að hætta veiðum
tiltekinna tegunda þá hefur það
miklu meiri áhrif, og alvarlegri, en
í fljótu bragði sýnist. Tökum selinn
sem dæmi og sleppum hringorma-
málinu. Ef við hættum að veiða
selinn mun hrognkelsaveiði dragast
saman og verða að litlu sem engu,
einnig mun fiskgengd í ár og vötn
stórlega minnka, og hafbeit mun
fara á sömu leið. Annað dæmi er,
að hér áður var algengt að bátar
færu á stórlúðuveiðar á djúpslóð
að lokinni vetrarvertíð. Þessar veið-
ar hafa lagst af vegna þess að há-
hymingar éta lúðuna á króknum
og það er aðeins hausinn sem næst
upp. Enda hefur ekkert að ráði
verið veitt eða drepið af háhymingi
síðan um miðjan sjötta áratuginn
þegar leitað var til vamarliðsins
vegna ágengni háhyminga við
síldveiðibáta hér suðvestanlands.
Við erum hætt að veiða hrefnu,
þótt óhemjumikið sé af hrefnum,
og nú fjölgar henni stjómlaust.
Hrefnan er mikið á gmnnslóð smá-
báta. Hún er ákafiega frek til mat-
arins þegar samkeppni um fæðuna
eykst.
Hvað þurftarfrekustu dýrin, stór-
hvelin, varðar og ef við hættum að
veiða þau, þurfum við ekki að hafa
áhyggjur af sölu fiskafurða í
Bandaríkjunum eða annarstaðar,
því fiskaflinn mun óbeint eða beint
fara í að fæða risana.
Stjómlaus offjölgun skíðishval-
anna hefur þau áhrif, að klak okkar
helstu nytjafiska og fæða mun mis-
farast í stórauknum mæli.
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri ásamt feðgunum Helga Hjör-
var, sem afhjúpaði myndina af afa sínum, og Úlfi Hjörvar rithöfundi.
Ríkisútvarpinu af hent
málverk af Helga Hjörvar
ÞESS var minnst við athöfn í
Útvarpshúsinu laugardaginn 20.
ágúst að þann dag voru 100 ár
iiðin frá fæðingu Helga Hjörvar,
fyrsta formanns útvarpsráðs og
skrifstofustjóra þess í tæpa þrjá
áratugi.
Erfingjar Helga Hjörvar afhentu
Ríkisútvarpinu að gjöf málverk af
Helga, sem Sigurður Sigurðsson
listmálari hefur málað.
Markús Öm Antonsson útvarps-
stjóri, Úlfur Hjörvar rithöfundur og
Andrés Björnsson fýrrverandi út-
varpsstjóri fluttu ávörp við athöfn-
ina en aðrir viðstaddir voru ættingj-
ar og afkomendur Helga Hjörvar,
stjómendur Ríkisútvarpsins og
samstarfsmenn Helga hjá stofnun-
inni.
Biðraðir hjá LÍÚ:
Leggjum ekki í að
draga um söluleyfi
- segir Kristján
Ragnarsson fram-
kvæmdasijóri
„VIÐ LEGGJUM ekki í að draga
um leyfi til sölu á karfa og ufsa
í Þýskalandi og höfum ekki fund-
ið betra ráð en að veita þeim
leyfin sem koma hingað fyrstir
í biðröðina eftir þeim,“ sagði
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna, í samtali
við Morgunblaðið.
LÍÚ veitir á fimmtudögum þrem-
ur skipum leyfí tii sölu á óunnum
karfa og ufsa í Vestur-Þýskalandi
fimm vikum síðar. Sá sem beið
lengst eftir úthlutun leyfanna í gær
mætti á skrifstofur LÍÚ klukkan
8.30 á miðvikudagsmorgun og
nokkrir fulltrúar skipaeigenda biðu
fyrir utan skrifstofumar í fyrrinótt.
LÍÚ veitti Hólmanesi SU, Birtingi
NK og Stálvfk SI söluleyfið.
Grímur Karlsson
„Við erumnú þegar
komin út á stórhættu-
lega braut með því að
veiða ekki meira af hval
en nú er gert, og mun
það strax komá fram í
því hvað klak mun mis-
farast nú þegar.“
Við erum nú þegar komin út á
stórhættulega braut með því að
veiða ekki meira af hval en nú er
gert, og mun það strax koma fram
í því hvað klak mun misfarast nú
þegar.
Við Islendingar eigum ekki nema
eina ieið, og hún er að veiða og
nýta það sem okkar hafsvæði býður
upp á, eins og reynsla okkar og
þekking leyfír.
Ef við ætlum að hætta veiðum,
einhverra tegunda um lengri eða
skemmri tíma, til dæmis hvala, þá
er okkur nauðugur einn kostur, og
hann er, að ofveiða freklega teg-
undina fyrst allt annað hefur í för
með sér ófyrirsjáanlega röskun á
lífríki fiskimiðanna sem verður á
kostnað okkar íslendinga.
Útilokað er að fara að tilmælum
Bandaríkjamanna og Grænfrið-
unga, og hætta hvalveiðum.
Það jafngildir því að við hættum
að hugsa um nýtingu og skynsam-
lega varðveisiu fiskimiðanna, sem
við þó undirgengumst við útfærslu
landhelginnar.
Ef við íslendingar stöndum okkur
ekki í þessu máii er það þegar frá-
gengið í landhelgissamningunum,
að aðrir taka við.
Höfundur er skipstjórí i Njarðvík.
ELDHÚSIN QKKAR
VEKJA ATHYGLI
KOMDU OG SKODADU
INNRÉTTINGARNAR
OKKAR UM HELGINA
Einmitt núna er
tækifæri til að
eignast ódýra og
fallega innréttingu.
Við bjóðum fallegar
og vandaðar eldhús-
innréttingar í öllum
verðflokkum, baðinn-
réttingar, fataskápa,
útihurðir, svalahurðir,
innihurðir, arna o.m.fl.
Komdu og kynntu
þér úrvalið og kjörin
hjá okkur.
Veitum allar nánari
upplýsingar.
OPIÐ:
Laugardag kl. 10-17
Sunnudag kl. 14-17
TILBOÐSVERÐ A
FATASKÁPUM ÚR
HVÍTU PLASTI
BÚÐIN ÁRMÚLA 17a
BYGGINGAÞJÓNUSTA SÍMAR 84585-84461