Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
Morgunblaðið/KGA
Verðlaunahafarnir Kristján Skúlason verslunarstjóri, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Anna Pálína
Sigurðardóttir ásamt Peter Mathiasen frá Jyske bryggerier sem afhenti þeim verðlaunin.
Tæplega 3 þúsund tillögur í
keppni um slagorð fyrir bjór
Ó. Johnson og Kaaber efndu til slagorðasamkeppni í sumar fyrir
léttan Royal bjór. Aldeilis makalaus mjöður varð hlutskarpast í
þeirri keppni, en höfundar þess eru hjónin Anna Pálína Árnadótt-
ir og Aðalsteinn Asberg Sigurðsson. Þau hlutu að launum viku
dvöl á lúxushóteli í Kaupmannahöfn. Einnig var Kristjáni Skúla-
syni, verslunarstjóra hjá SS í Austurveri, veitt verðlaun fyrir
mestu sölu á bjórnum i júlímánuði og hæstu aukningu milli mán-
aða.
góður, umbúðimar eru fallegar
og okkur fannst hann eiga skilið
gott slagorð," sagði Aðalsteinn
Ásberg, annar vinningshafínn.
Anna Pálína sagði að þau gætu
ekki notað vinningin strax. Það
yrði að bíða þar til bamið þeirra
væri ferðafært, en það er aðeins
3 vikna.
Að sögn Guðmundar Daníels-
sonar sölustjóra tókust báðar
keppnimar með ágætum og bár-
ust hátt í 3000 tillögur um slag-
orð. Fjórir menn frá Ó. Johnson
og Kaaber, umboðsaðlium bjórs-
ins hér á landi, og framleiðanda
hans, Jyske bryggerier í Dan-
mörku, völdu úr nokkur slagorð
og síðan það besta af þeim. Þá
var farið aftur í gegnum allar til-
lögumar til að fá fullvissu um að
þar ieyndist ekki neitt annað alveg
eins slagorð, sagði Guðmundur.
Slagorðið verður notað í auglýs-
ingar á bjómum.
„Við sendum inn tillögu um
slagorð af því Royal bjórinn er
Keppnin milli kaupmannanna
var miðuð við sölu til verslana í
júlí og ágústmánuði. Keppt var
um hvar væri mesta salan og
hæsta söluaukningin milli tveggja
mánaða. Sláturfélag Suðurlands,
Austurveri varð hlutskarpast og
tók Kristján Skúlason, verslunar-
stjóri, við vinningnum.
Verðstöðvunin: -
Verðlagsráð:
Hámarksverð sett
á kjúklinga og egg
VERÐLAGSRÁÐ ákvað á fundi í gær að setja hámarksverð á kjúkl-
inga og egg. Einnig var ákveðið að uppboðsmarkaðir eins og græn-
metismarkaður séu ekki háðir verðstöðvun, en hins vegar er útsölu-
verð vörunnar sem þar er keypt bundið af verðstöðvunarlögunum.
Eins og fram hefur komið í fréttum hafði orðið nær 60% verðhækkun
á eggjum frá því í aprílbyijun fram í miðjan ágústmánuð síðastlið-
inn. Verðlagsstofnun átti viðræður við fulltrúa framleiðenda í fram-
haldi af kæru frá Neytendasamtökunum. Var framleiðendum gefinn
frestur fram til loka þessarar viku til að endurskoða verðlagningu
sína. Hámarksverð er úrræði verðlagsráðs þegar tUmæli um lækkun
duga ekki.
Samkvæmt ákvörðun verðlagsr-
áðs er hámarksverð á eggjum nú
kr. 298 hvert kíló í smásölu. Hám-
arksverð á kjúklingum er nú kr. 376
hvert kíló í heildsölu og smásöluá-
lagning að hámarki eins og hún var
í upphafí verðstöðvunartímans, þ.e.
um miðjan ágúst síðastliðinn.
Þetta er sama verð og var al-
mennt fyrir miðjan ágústmánuð,
áður en síðasta hækkun frá fram-
leiðendum kom til framkvæmda.
Um miðjan ágúst hækkuðu þeir egg
um 14,4% og kjúklinga um 6%. Þær
hækkanir ganga nú til baka. Fram-
leiðendur höfðu ekki sinnt eindregn-
um tilmælum Verðlagsstofnunar um
að lækka þessar vörur, þ.e. taka til
baka þessar síðustu hækkanir.
Verðlagsráð fjallaði einnig um
grænmetisverð í gær og var sú
ákvörðun tekin að verðið skuli vera
það sama í smásölu, þ.e. út úr búð,
og það var um miðjan ágúst. Græn-
metismarkaðurinn getur þó starfað
óháð þessu, þar sem verðstöðvunin
gildir ekki um uppboðsmarkaði. Það
er þá algjörlega undir kaupendum
og seljendum komið hvort markað-
urinn starfar í verðstöðvun, en ljóst
er að kaupmenn mega ekki hækka
grænmetið í verði þótt þeir kaupi
það dýrara en áður á markaði. Sama
á við um fiskmarkaði, verðsveiflur
þar hafa ekki áhrif á hámarksverð
út úr búð. „Markaðurinn starfar,
menn aðlaga sín innkaup kannski
með hliðsjón af því verði sem þeir
heimila markaðnum," sagði Georg
Ólafsson verðlagsstjóri í gær.
Verðlagsstofnun:
Hækkun náms-
bóka ólögleg
Forlögin telja sig í rétti
Verðlagsstofnun telur að verð-
hækkun á námsbókum samrýmist
ekki verðstöðvunarákvæðum
bráðabirgðalaganna. í frétt Morg-
unblaðsins á miðvikudaginn kem-
ur fram að hækkunin sé yfirleitt
um 30% frá siðasta ári. Forsvars-
menn forlaganna segja hins veg-
ar, að þær hækkanir, sem orðið
hafi á námsbókum, hafi komið til
fyrir þann tima sem verðstöðvun-
arákvæðið nær til. Dæmi eru þó
til um að verðhækkanir hafi verið
ákveðnar i júlí, en bækumar kom-
ið út seinna, á þvi tímabili sem
verðstöðvunin nær til.
Hækkanir dregnar til baka
Reykjavíkurborg hefur dregið
fyrirhugaða hækkun á gjöldum
barna vegna gæsluvalla til baka
að ósk Verðlagsstofnunar. Gjald-
ið átti að hækka úr 30 krónum
í 50 fyrir hvern dag. Oliufélögin
hyggjast draga til baka hækkun
á ýmsum oliuvörum, svo sem
frostlegi, og hefur lækkunin þeg-
ar komið til framkvæmda hjá
Oliufélaginu hf., að þvi að Morg-
unblaðinu var tjáð hjá Verðlags-
stofnun.
Verðlagsstofnun hefur sent frá
sér fréttatilkynningar vegna fram-
kvæmdar verðstöðvunarinnar þar
sem segin „Af gefnu tilefni skal
tekið fram að verðstöðvun á um-
ræddu tímabili gildir fyrir hvers
konar gjöld fyrir skóla og nám-
skeið. Bannað er að hækka slík
gjöld frá því verði sem síðast var í
gildi vegna samskonar námskeiða
og skólahalds.
Þegar nýjar vörur koma í versl-
anir frá heildsölum eða framleið-
endum er bannað að selja þær á
hærra verði en því verði sem síðast
var á sömu vörutegundum áður en
verðstöðvunin gekk í gildi.“
Hjá Verðlagsstofnun fengust
þær upplýsingar að þeim sem hefðu
ákveðið skólagjöld sín fyrir 15.
ágúst, svo sem Verslunarskólanum,
væri heimilt að hækka skólagjöld,
en öðrum ekki. Mikið hefði verið
um fyrirspumir um þetta atriði, en
enn hefði engin formleg beiðni um
undanþágu borist stofnuninni.
Sérstakir verðgæslusímar, þar
sem tekið er við fyrirspumum og
ábendingum, hafa hringt stanslaust
frá því að þeir vom settir upp. Þrír
nýir starfsmenn hófu störf hjá
Verðlagsstofnun í gær og fímm í
fyrradag. í flestum tilvikum þar
sem verðgæslumenn þurfa að hafa
afskipti af meintum óleyfilegum
hækkunum er um mistök að ræða,
sem síðan em leiðrétt, en þó kemur
það fyrir að um vísvitandi brot er
að ræða, að sögn starfsmanna.
Katrín Amadóttir hjá Almenna
bókafélaginu sagðist telja, að þótt
endumnnar bækur, sem em að koma
í búðimar þessa dagana, hækki í
verði, þá stangist það ekki á við verð-
stöðvunarákvæðin, þar sem verðið
hafí verið ákveðið fyrir þann tíma
sem þau ná til.
Þær upplýsingar fengust hjá ísa-
foldarprentsmiðju, að engar náms-
bækur hefðu komið út á þeirra veg-
um á þeim tíma sem verðstöðvunin
nær til.
Ámi Einarsson hjá Máli og menn-
ingu sagði, að hækkanir hjá þeim
hefðu komið til löngu áður en verð-
stöðvunin tók gildi. Þá væm 36%
þeirra bóka, sem þeir gæfu út, að
koma út í fyrsta sinn núna, þannig
að ekki væri um hækkanir að ræða.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar:
Fjölgun stöðugilda hjá ráðuneytum
Hér á eftir er gerð grein fyrir helstu frávikum vegna fjölgun-
ar igilda stöðugilda hjá einstökum ráðuneytum samkvæmt samn-
tekt Rikisendurskoðunar. Heildaraukningin svarar tíl 725 stöðu-
gilda, en inni i þeirri tölu eru bæði nýjar stöður og aukagreiðsl-
ur og yfirvinna. Ný stöðugildi eru 230, en fjárlög heimiluðu aukn-
ingu um 330. Áhrif verkfalla eru metin á 80 stöðugildi og það
sem kallað er „magnaukning starfa“ í skýrslu rikisendurskoðun-
ar svarar til 415 stöðugilda á milli ára, en þar mun vera átt við
aukagreiðslur og yfirvinnu:
Æðsta stjóm ríkisins:
Fjölgun ígilda stöðugilda hjá
æðstu stjóm ríkisins er 22 eða
hækkun um 10%. Fjölgun hjá
Ríkisendurskoðun nam um 8
stöðugildum frá árinu 1987. Meg-
inskýring á fjölgun starfa hjá
stofnuninni er vegna þess að í
upphafi árs 1987 vom ekki nýttar
stöðuheimildir er námu 10 en um
þau áramót tóku ný lög um Ríkis-
endurskoðun gildi. Því samfara
áttu sér stað vemlegar skipulags-
breytingar hjá stofnuninni. Fjölg-
un stöðugilda hjá ríkisstjóm er
4,1 sem tengjast ríkisstjómar-
skiptum á sl. ári. Hjá Alþingi
hefur aukning numið 9,0 stöðu-
gildum sem skiptast að jöfnu milli
biðlauna alþingismanna og aukn-
ingar á yfirvinnu.
Menntamálaráðuneytið
Ejölgun ígilda stöðugilda hjá
menntamálaráðuneytinu er 4,5%
eða 241 stöðugildi. Fjölgun vegna
mánaðarlauna em 203 stöðugildi
en vegna yfírvinnu 31 stöðugildi.
Ekki verður séð að aukning á
stöðugildum hjá menntamála-
ráðuneytinu í heild sé bundin við
neina eina stofnun sérstaklega.
Utauríkisráðuneytið
Fjölgun ígilda stöðugilda hjá
utanríkisráðuneytinu er 15 stöðu-
gildi eða hækkun um 8,5%. Hjá
aðalskrifstofu ráðuneytisins hefur
Qölgun numið 6 stöðugildum sem
að meginhluta skiptast vegna til-
flutnings verkefna frá viðskipta-
ráðuneytinu á svið utanríkisversl-
unar. Þá hafa komið til ígildi 8
stöðugilda hjá Lögregluskólanum
á Keflavíkurflugvelli.
Landbúnaðarráðuneytið
Fjölgun fgilda stöðugilda hjá
landbúnaðarráðuneytinu em 38
stöðugildi eða hækkun um 12,4%.
Fjölgun stöðugilda dreifíst á
margar stofnanir sem tilheyra
ráðuneytinu, þar á meðal hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins, 7 stöðugildi, Skógrækt ríkis-
ins, Garðyrkjuskóla ríkisins og
Bændaskólanum á Hvanneyri, eða
um 13 stöðugildi.
Sjávarútvegsráðuneytíð
Fækkun hjá sjávarútvegsráðu-
neytinu um 15 stöðugildi eða
4,6%. Meginskýringin á fækkun
stöðugilda er vegna skipulags-
breytinga hjá Ríkismati sjávaraf-
urða.
Félagsmálaráðuneytið
Fjölgun ígilda stöðugilda hjá
félagsmálaráðuneytinu er 76
stöðugildi eða hækkun um 14%.
Meginskýring á aukningu stöðu-
gilda tengist málefnum fatlaðra,
þar af vegna starfsemi í Reykjavík
um 20 stöðugildi.
Heilbrigðis- og tryg-ging-a-
málaráðuneytíð
Fjölgun ígilda stöðugilda hjá
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu er 211 stöðugildi eða
hækkun um 6,8%. Hjá ríkisspítul-
um hefur flölgun numið í allt 164
stöðugildum, þar af vegna auk-
inna yfírvinnu er svarar til 75
stöðugilda. En aukning stöðugilda
hjá ríkisspítulum svara til 3/4 hluta
heildaraukningar hjá ráðuneytinu
í heild.
Fjármálaráðuneytið
Fjölgun ígilda stöðugilda hjá
Qármálaráðuneytinu nam 53
stöðugildum eða hækkun um
8,7%. Fjölgun vegna stofnana sem
tengjast skattakerfínu svarar til
21 stöðugildis. Hjá aðalskrifstofu
ráðuneytisins og launaskrifstofu
rfkisins er ijölgun 8 stöðugilda.
Samgönguráðuneytíð
Fjölgun ígilda stöðugilda hjá
samgönguráðuneytinu er 53
stöðugildi eða hækkun um 5,3%.
Meginhluti aukningar er vegna
Vegagerðar ríkisins.
Iðnaðarráðuneytíð
Fækkun var hjá iðnaðarráðu-
neytinu um 17 ígildi stöðugilda
eða um 5,3%. Fækkunin skýrist
fyrst og fremst vegna fækkunar
starfsmanna hjá Orkustofnun.
Viðskiptaráðuneytið
Fækkun hjá viðskiptaráðuneyt-
inu um ígildi 4 stöðugilda er vegna
tilflutnings á verkefnum frá ráðu-
neytinu til utanríkisráðuneytisins.